Tíminn - 08.11.1953, Síða 6

Tíminn - 08.11.1953, Síða 6
6 TÍMINN, sunnudaginn 8. nóvember 1953. 254. blaff. SKR OG SKRAFAD Hún varð ýmsum umhugs- unarefni, grein Tímans um Holland, þar sem lýst er, hvað skortur á landi er fyrir vax- andi þjóð. Hugsið ykkur það, að 50 þúsundir Hollendinga verða að flytjast úr landi til þess að hinir geti lofað í land- inu. Rikið ver stórfé árlega til þess að sjá svo um, að þessi útflutningur á sonum og dætr um Hollands stöðvist ekki — því hann er lífsnauðsyn. Þriðja hvert taarn, sem fæðist í Hollandi, er dæmt til að yf- irgefa sitt föðuriand — til þess að geta lifað. Hver blett- ur, sem ræktanlegur er, hefir verið fullnýttur. Holland—ísland. Það er erfitt að hugsa sér meiri andstæður en þessi tvö lönd — og meiri aðstöðumun en þeirra tveggja þjóða, er löndin byggja. Þekktur erlend ur fræðimaður og stjórnmála- maður í senn, var eitt sinn hér á ferð með íslenzkum mönn- um. Einn íslendinganna lét orð falla á þá leið, er þeir horfðu yfir hin miklu órækt- uðu landflæmi íslands, að það væri hryggilegt, hve ræktun væri hér enn skammt á veg komin. — „Já,“ sagði útlendi maðurinn, „en tilfinning mín, þegar ég horfi yfir þetta land, er nánast öfund. Ég öfunda þá þjóð, sem er vaxandi og á svo mikið og gott land óræktað, viðfangsefni handa mörgum kynslóðum, — óþrotlegan sparisjóð.“ Vissulega er þetta satt. Við eigum mikla og góða mold, sem rétt með farin gefur mikla og örugga uppskeru — og getur brauðfætt margfalt fleira fólk en nú byggir ís- land. Davíð skilur þetta með skáldlegu innsæi: „Moldin hún geymir svo mik- inn auð, moldin gefur oss daglegt braúð.“ 2yz—3 milljónir liektara. Þaö vita sjálfsagt ýmsir hvað ræktanlegt land á ís- landi er stórt, eítir þeim „á- gizkunum“, sem um það hafa verið gerðar. Nákvæm mæling getur naumast farið fram á þessu landi, því það er alltaf nokkurt matsatriði hvað er viðunandi land til ræktunar. En eftir því sem allra fróð- ustu menn telja, af þeim mæl ingum, sem fyrir hendi eru, eigum við um 2V2—3 milljón- ir hektara af ræktanlegu landi. — Það er mikill auður í þessari mold. 19 þúsund hektarar. Af öllu þessu Iandi voru túnin árið 1926, þegar Jarð-; ræktarlögin komu til fram-! kvæmda, — einir 19 þúsund hektarar. Og mikið af þessum túnum voru þýfðir og oft of: blautlendir sldkar. — Síðan' hafa túnin orðið slétt að mestu og eru nú 50 þúsund hektarar. — En rétt er að geta þess og til fróðleiks, að flæði-: engjar og áveituengjar eru taldar vera um 63 þúsund hektarar. — Skurðgröfurnar vaída alda- hvörfum í rækíun. Rætt var um það og ritað í mörg ár að kaupa til lands- ins skurðgröfur af þeirri gerð, sem nú eru notaðar við skurð- gröft. Pálmi Einarsson núver- andi landnámsstjóri o. fl. voru sívakandi hvatamenn þessa máls. Englendingar notuðu Stórt land og gott—ÓmetanSegur auöur—MSklar framfarSr — ByitSng véianiia — Lærdómsríkar samanburður — ÚtflutnSngur iandbúnaðarvara mikið gröfur þessar í síðustu styrjöld, til þess að auka við hið ræktaða land og efla land- ; búnaðarframleiðsluna heima fyrir, sem þéim tókst í stórum stíl. Árið 1942 fékk Hermann Jónasson þá forsætis- og landbúnaðarráðherra, því til vegar komið, að keyptar væru tvær skurðgröfur til landsins. ’ Nú eru skurðgröfurnar orðnar j um 40 talsins. — .Ríkið greiddi j 1/3 kostnaðar við skurðgröf- j i ur til 1949, en greiðir nú helm ing. — Framlög ríkisins til þurkunar lands var 1942 tæp- ar 13 þúsundir, árið 1946 rúm ar 244 þúsundir, en árið 1951 rúmar þrjár milljónir. — En 1952 rúmar 4 milljónir. — Bænfiur færast í aukana með ári hverju. Það er bæði fróðlegt og skemmtilegt að athuga hvern ig ræktunarmennirnir færast í aukana. Langmestar eru framkvæmdirnar síðustu ár- in. Fimm síðustu ár hafa bændur þurkað land, sem mun vera um 20 þúsund hekt- arar að stærð, eða stærra en öll tún á landinu voru árið 1926. — Og þeir hafa ræktað um 10 búsund hektara á sama tima, eða um helming þeirrar túnstærðar, sem var í landinu fyrir rúmum 25 ár- J um. — Ríkið greiddi til jarðabóta rúmlega 600 þúsund krónur 1942, um 31/2 milljón árið 1946, ‘ en um 9Y2 milljón 1951. — Og árið 1952 var þessi upphæð, rúmlega 10 millj. og sjö hundr uð þúsund. 1 „Starfiff er margt“. En fólkið í sveitum þessa lands hefir haft í fleiri horn að líta — en að þurka land og rækta. Alörei hefir verið og útihúsum eins og seinni ár- byggt annað eins af íbúðar- in. —• Sést þetta greinaiegast þegar athugað er, að árið 1946 var lánað úr Byggingar- sjóði Búnaðarbankans til íbúðarhúsabygginga i sveitum tæpar 248 þúsundir — en ár- ið 1952 um 10 milíjónir króna. — Árið 1946 var lánað úr Ræktunarsjóöi Búnaðarbank- ans til ræktunar og útihúsa- bygginga tæpar 93 þúsundir, en 1952 rúmar 17 milljónir króna eða um 185 sinnum meira en 1946. — Af miklu er að taka. En þótt lánaöar hafi verið um 80 milljónir til framan- greindra framkvæmda í sveit- um síðustu fjögur árin, er þetta aðeins brot af því, sem framkvæmdirnar kosta. Af því má sjá, hve óhemju fé bændur sjáfir leggja af mörk- um til þessara íramkvæmda. Ríkisstjórn og bændur hafa verið samtaka í því að gera stærri átök í framkvæmdum i sveitum en áður eru dæmi til — og þar má ekki slaka á klónni, heldur hið gagnstæða. — Ræktaðar hafa verið um 10 þús. hektarar síðustu árin eða um 2 þús. hektarar árlega. Með sama hraða ræktum við 100 þús. hektara á 50 árum og 1 milljón hektara á 500 ár- um — og 21/2 milljón hektara á 1250 árum! — En vitanlega koma ný vinnubrögð til sög- unnar og þær aðferðir, sem við nú beitum, verða, þegar þeir, sem nú lifa, eru komnir undir torfuna grænu, talin jafn seinvirk og skóflan og undirristuspaðinn, samanbor- ið við skurðgröfuna og drátt- arvélina. — En gaman væri að líta yfir þetta land, þegar hið ræktan lega land, sem við eigum, er svo til allt fullræktað — með skjólbeltum nytjaskógar — til að prýða og skýla. — Úrskurður talnanna. Það er fróðlegt að bera sam an tölurnar um framlög rík- isins til ræktunar og fram- kvæmda í sveitum árin 1946 og 1952. Sá samanburður sýn ir glöggt hvorum flokknum má betur treysta til að gæta hagsmuna landbúnaðarins, Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum, en í seinasta Reykjavíkurbréfi Mbl. var því haldið fram, að ekki mætti á milli sjá hvor- um flokknum væri betur treystandi í þessum efnum. Árið 1946 var Sjálfstæðis- maður landbúnaðarráðherra. Þá voru framlög ríkisins til i landþurrkunar 244 þús. kr., cg til jarðabóta alls 3.5 millj. kr. Úr byggingarsjóði Bún- aðárbankans voru þá lánaðar 248 þús. kr. til íbúðabygg- inga í sveitum og úr Ræktun arsjóði voru þá lánaðar 93 þús. kr. til framkvæmda í sveitum. j Árið 1952 var Framsóknar- 1 maður landbúnaðarráðherra. Þá nam rikisstyrkurinn til ’ landþurrkunar rúmum fjór- 1 um millj. króna eða hafði meira en tólffaldast síðan ; 1946. Þá nam jarðræktarstyrk urinn 10.7 millj. kr. eða hafði mun meira en þrefaldast síð 1 an 1946. Þá námu útlán bygg Jingarsjóðs Búnaðarbankar.c 10 millj. kr. eða hafði meira [en fertugfaldast síðan 1946. (Þá námu útlán Ræktunar- (sjóðs rúmum 17 millj. kr. eða höfðu meira en 185-faldast jsíðan 1946. j Þetta sýnir betur en nokk- ur orð fá gert, hvort það sé sama fyrir landbúnaðinn að búa við forsjá Sjálfstæðis- flokksins eða Framsóknar- íiokksins og skal svo ekki meira um það rætt að sinni. Beitíandið. Þá er sá auður, sem þjóðin á í heiðunum og fjalllendum ekki lítils virði. Beitilandinu gefum við enn sem komið er alit of lítinn gaum. Kvikfén- aður sá, er vér rekum á afrétt, lítur ekki við nema sumum þeim grastegundum, sem á af- réttunum vaxa. f framtiðinni munu menn gera sér fyllri. grein fyrir þvi, hverjar þær tegundir eru, sem eru bezt við hæfi skepnanna og síðar mun ný tækni leysa þann vanda, sem ekki verður nú yfirstig- inn, vegna kostnaðar, að rækta sérstaklega á afréttun- um bann gróður, sem bezt hæfir. — Við sjáum svo skammt. Það er ekki á færi manns- ins að sjá langt fram í tim- ann. Slikt telst að minnsta. kosti til undantekninga. En eitt er þó alveg víst. Okkur íslendingum er mikil nauðsyn að halda áfram að auka rækt- un, stækka búin, fjölga heim- ilum í sveit o. s. frv. — Annað er og jafnvíst. Okkur íslend- ingum, sem eðlilega erum enn á gelgjuskeiði í flestum fram leiðsiugreinum, ríður mest á því, að bæta öll vinnubrögð og gildir þetta um landbúnaðinn eins og aðrar greinar. Það þarf að fullkomna rækt unina, nýta áburðinn betur, bæta bústofninn stórkostlega frá því sem er, endurbæta vimiubrögð öll. Því framtíff landbúnaffarins byggist á því, áff framleiðsla hans yfirleitt getí orðið samkeppnishæf útfiutn- ingsvara. — Það er takmarkiff, - því verður að ná. — Og þótt vér finnum að við sjálfa okkur, þótt við gerum okkur þess grein, að við erum enn skammt komnir, þarf það engan veginn að draga úr okk- ur kjark. Það er svo skammt síðan við losnuðum undan ok- inu og hófum framfarabarátt- una, að undravert er, hvað viff höfum komist áleiðis á stuttum tíma. En það er ekkert undarlegt þótt við enn eigum langan veg (Framhald á 8. síðu). Stærff véltækra túna á íslandi hefir margfaldast seinustu 30 árin

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.