Tíminn - 28.11.1953, Blaðsíða 4

Tíminn - 28.11.1953, Blaðsíða 4
TÍMINN, laugardaginn 28. nóvember 1953. 271. blað, LEIKFÉLAG REYKJAVIKUR: Skóli fyrir skattgreiðendur Skattframtalið fer nú í hönd, enda var létt yfir frum sýningargestum Leikfélags- ins síðastliðið miðvikudags- kvöld, er það sýndi gamanleik inn „Skóli fyrir skattgreið- endur“. Leikritið er franskt að uppruna, samið af tveimur kunnum gamanleikahöfund- um, Louis Verneuil og Georges Berr. Páll Skúlason, ritstjóri Spegilsins, hefir þýtt leikinn og staðfært að nokkru. — Á hinum gömlu, góðu dögum Reykjavíkurannáls h. f., þeg- ar Reykvíkingar fengu ár eft ir ár að hlægja eins og þeir orkuðu og hláturinn varð við- varandi og vísurnar urðu að dægurlagasöngvum og nöfn eins og „Haustrigningar', „Eldvígslan“ og „Spanskar nætur“ hlutu ævintýraljóma í minningunni, sem varir jafn- vel enn í dag, var Páll Skúla- son fremstur í flokki þeirra manna, sem skemmtu Reyk- víkingum með „revyum“. Um þær mundir eða litlu síðar þýddi hann þennan gaman- leik, en handritið týndist „og kom ekki í leitirnar fyrr en í haust, um leið og umræður hófust um skattamálin" eftir því, sem í leikskránni greinir. Ekki getur hér oröið dæmt um þýðingu Páls. En leikur- inn er ósvikinn gamanleikur. Hann er sýndur hér í sinni upphaflegu mynd eins og Páll gekk frá honum fyrir um tveim tugum ára. Má til marks hafa um það, hversu efni leiksins og form er hald- gott, að hann fellur vel að nú- tímanum og ekki síður hér á íslandi en í Frakklandi og öðrum lýðræðislöndum. Meg- inefnið er hin ævagamla og síunga viðureign skattayfir- valda og skattgreiðenda. Og Yfirlýsing frá stjórn Sambands Nautgripa- félaga Eyjafjarðar ið sér í allra kvikinda líki og verður ávallt mjög vinsæll á' leiksviði. Af Alfreð gneir.tar,! hvort heldur hann talar eða! þegir, fjör hans og sönn per- j sónutúlkun bregst aldrei og' verður ekki gert upp á milli. þessara manna um ágæta j meðferð aðalhlutverka í þess um leik. — Aðalkvenhlutverk ið, konu Valtiers en dóttur FromenteL, leikur frú Elín Ingvarsdóttir af fjöri og sér- legum þokka og missir aldrei marks, að túlka sitt vafa- sama sakleysi. Önnur hlutverk eru minni og öll meira og minna vel leik in. Gísli Halldórsson leikur fulltrúa skattstjórans, Giroux fjörlega og skemmtilega, en skortir leiksviðsrödd og skýr- an framburð. — Árni Tryggva son leikur La Chapeland, auö- ugan kvennabósa og er hlut- verkinu trúr. Steinunn Bjarna dóttir leikur Betty Dorlange, léttúðuga skartmey, sem fram fleytir sér á alþjóðagjaldeyr- isverzlun, fjörlega og hispurs laust. — Gunnar Bjarnason leikur af ósvikinni samúð með sjálfum sér hinn ógæfu- sama og stórhneykslaöa skatt borgara, Alfred Menu. — Ein- ar Þ. Einarsson leikur skáldið Sérigny ekki ólaglega og Þor- steinn Ö. Stephensen leikur ágætlega fjármálaráðherrann aumkunarverðan og ráðvillt- an yfir tómum ríkiskassa og skattsvikum borgaranna, Einar Þ. Einarsson. enda fellur rikisstjórnin, með an hann er á leiksviðinu, eins og sjálfsagt var í Frakklandi. — Gerður Hjörleifsdóttir og Helga Bachmann fara með minnstu hlutverkin: vinnu- konu og skrifstofustúlku. Leikstjórinn Gunnar R. Hansen hefir sett leikinn á- gætlega á svið og leiktjöld eru vandlega gerð af Lothar Grund. Það er vissulega vel til fund ið af Leikfélagi Reykjavíkur, að létta mönnum í geði í skammdeginu með svo ágæt- um gamanleik sem „Skóla fyr ir skattgreiðendur“. Er það spá mín, að hann verði líf- seigur á leiksviðinu. J. Þ. >, Sinbauctax wv 1m5M>cUs22íWi Blöðin „Þjóðviljinn“ í Reykjavík og „Verkamaður-' iun“ á Akureyri hafa þ. 13.' þ. m. birt lesendum sínum1 stórorðar og feitletraðar æs ingargreinar, þar sem stj órn' Sambands Nautgriparæktar- 1 félaga Eyjafjarðar (S. N. E.) er borin þeim sökum, að hafa nú nýlega sagt upp starfsmanni sínum, Bjarna Arasyni, vegna stjórnmála- skoðana hans. — Bæði blöð-1 in segja, að þessi starfsmað- ur hafi daginn áður, ásamt fleirum, stofnað svokallað, „Þjóðvarnarfélag Akureyr- ar“. Þessa þátttöku starfs-! manns síns í framangreindu félagi hafi stjórn S. N. E. | ekki getað þolað, og því sagtj honum upp starfi sínu þá þeg ar. En með þessari uppsögn’ mannsins telja blöðin að' hafi verið framið pólitískt of beldisverk og muni mega vænj;a fleiri slíkra óhæfu- verka hér um slóðir að undir lagi Framsóknarmanna. Þar sem skrif þessara blaða, málfræsla þeirra öll og 1 fullyrðingar hér að lútandi! eru að flestu leyti svo fjarri| sanni, en öll málsmeðferð( þeirra sýnilega gerð í þeim tilgangi að gera þennan um- getna starfsmann að eins konar pólitískum pílsarvotti og jafnframt reyna til að vekja óánægju og sundrung innan félagssamtaka S. N. E. þá telur stjórn S. N. E., að þvi miður verði ekki hjá því komizt að skýra þetta mál í opinberu blaði, og vill því taka fram eftirfarandi: 1. í hinum almennu og al- gengu vinnusamningum á milli vinnuþiggjenda og vinnuveitenda hefir hvor að ili um sig rétt til uppsagnar starfssamnings með þar til greindum uppsagnarfresti, svo sem kunnug;t er. í hinu umrædda tilfelli hefir Bjarna Arasyni verið sagt upp starfi sínu með sex mán aða fyrirvara i samræmi við áður gerðan samning. Þetta mun vera það eina, sem satt er sagt frá í frásögn umget- inna blaöa varðandi þetta mál. 2. Þjóðviljinn og Verkamað urinn hafa í skrifum sínum túlkað þessa uppsögn sem at vinnukúgun eða atvinnuof- sókn á hendur stjórnmála- legum andstæðingi og telja, að ef til vill muni fleiri slíkra ofbeldisverka að vænta af hendi Framlsóknarmanna. Máli sínu til stuðnings segja blöðin, að hinn umræddi starfsmaöur hafi verið rek- inn frá starfi af þeim ástæð- um, að hann hafi verið einn af stofnendum hins svokall- aða „Þjóðvarnarfélags Akur eyrar“ og gerzt ábyrgðarmaö ur að blaði þess. Ef þetta sjónarmið hefði legið til grundvallar fyrir starfsuppsögn mannsins, þá virðist, að legið hefði beint fyrir að sú uppsögn hefði komið fram strax, er hann gerðist þingmannsefni Þjóð- varnarflokksins s. 1. vor. Fullyrðingar þessar og ill- kvitnislegar getgátur í þessu sambandi eru fjarri öllum sanni, því að öll þau ár, sem S. N. E. hefir starfað, hafa ráðunautar þess og aðrir starfsmenn talið sig til hinna ýmsu stj órnmálaf lokka í landinu, enda hefir aldrei verið spurt um pólitískar skoöanir þeirra, þegar þeir hafa verið ráðnir til starfs. (Pramhald - o. síðu.) Gerður Hjörleifsdóttir og Gunnar Bjarnason. í þessa uppistöðu er brugðið öðru efni, sem ekki er heldur úr sér gengið: Hjónabandinu í litríkri og viðburðamikilli fjölskyldusögu. Eins og venja er til í slíkum leik sem þess- um, er mest hlegið á kostnað skattyfirvalda, ríkisstjcrna og stjórnmálaflokka, en leik- urinn er allur barmafullur af stakri fyndni og skemmtileg- heitum bæði í orðum og at- höfnum. Urðu leikendur oft að sýna leikhúsgestum þá nær gætni, að hafa stuttar þagnir meðan hláturrokurnar gengu yfir. Með aðalgamanhlutverkin fara tveir vinsælustu gaman- leikarar Reykvíkinga, nú sem stendur, Brynjólfur Jóhann- esson, sem leikur yfirskatt- stjórann Fromentel, og Alfreð Andrésson, sem leikur tengda son hans Valtier, og leika báð ir afburðavel. Brynjólfur er fjölhæfur leikari; getur brugð Leiðrétting í grein minni um Vefar- ann við Skúlagötu í Tíman- um 22. þ. m. hefir slæðst inn villa vegna misskilnings. Er þar sagt, að Sveinbjörn Jóns. son byggingameistari hafi1 verið „aðalhvatamaöur og stofnandi“ Vikurfélagsins. —1 Þetta er ekki allskostar rétt. • Jón Loftsson stórkaupmað-j ur var aðalhvatamaður og upphafsmaður að vikurnám ínu á Snæfellsnesi og stoín- ' un Vikurfélagsins og unnu jþeir saman hann og Svein- (björn að stofnuninni og fyrstu framkvæmdum. — SíS. ar skildu þeir með sér félag, ♦ þannig, að Sveinbjörn lét af;i hendi hlut sinn í Vikurfélag • inu, en Jón hlut sinn í Ofna- smiðjunni. Jón Loftsson er nú aðaleig andi og forstjóri Vikurfélags ins. Reykjavík 26. nóv. 1953 Jónas Þorbergsson. KJÖRSKRÁ til bæjarstjórnarkosninga í Reykjavík, er gildir frá 24. janúar 1954 til 23. jan. 1955, liggur fraimui aliaicnniugi til sýn is í skrifstofu Iiorgarstjóra, Áustur- stræti 16, frá 30. nóvemleer til 28. des- emher, að báðuin dögum meðtöldum, alla virka daga kl. 9 f. liád. til kl. 6 e. hád. — Kærur yfir kjörskránni sknlu komnar til borg’arstjóra eigi slðar en 9. janúar næstkomandi. Borffursíjórinn í Retfkjjavík, 26. nóvember 1933, Gunnar Thoroddsen O o o o i

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.