Tíminn - 10.12.1953, Síða 2
2
TÍMINN, firoratudaginn 10. desember 1953.
- 281 blað,
Helzti málari andfætlinga vorra,
Ástralíumaðurinn Norman Lindsay
Hann fæddist árið 1879 og
fór að vinna í Melbourne, er
hann var sextán ára að
aldri. Eftir að hann giftist ár
ið 1901 fluttist hann til
Sýdney og fór að teikna í dag
blöð þar í borg. Þetta er í
stórum dráttum upphaf á
æviferli eins mesta málara
andfætlinga vorra, Normans
Lindsay, er hefir ekki að
ósekju verið nefndur Lind-
say hinn stórkostlegi, enda
fer þar saman stórkostlegur
persónuleiki og stórkostleg
Hstaverk, er Lindsay hefir lát
ið frá sér fara á léreftinu.
Lindsay hefir tvisvar ótt
gamla England heim og einu
sinni hefir hann komið til
Bandaríkjanna. Árið 1923
voru málverk hans á ást-
ralskri listsýningu í London.
Bar þá svo við, að einn af
heldri mönnum landsins birti
þá yfirlýsingu, að hans háæru
verðugu augu gætu ekki litið
á myndir Lindsays.
Ástralíumenn móðgaðir.
Þetta, að viðbættri meiri
andúð á málverkum Lindsays,
olli því, að ástralskir samland
ár hans fóru að líta á hann
sem þjóðhetju sína. Voru þeir
mjög hreyknir af honum,
þrátt fyrir það, að búast mátti
við að málverk hans yrðu
bönnuð af yfirvöldum í Ástral
íu, er þau komu heim af sýn-
ingunni. Þetta varð þó aldrei
og máske hefir þar ráðið
mestu um, að Norman Lind-
say hafði fylgi alþjóðar með
sér. Til marks um það, hve
Lindsay er kunnur og mikils
virtur, þótt hans hafi að litlu
eða engu verið getið hér, hafa
ýmsir kunnir menn sagt, er
komið hafa til Ástralíu, að
það tvennt, er þeim þætti
merkilegast þar, væri höfnin
í Sydney og Norman Lindsay.
Dýr og konur.
Lindsay hefir verið fundið
það til foráttu, að hann máli
konur naktar. Og hefir þá vilj
( að hverfa í skuggann, að hann
. málar yfirleitt allt milli him-
| ins og jaröar þar fyrir utan
|með því handbragði, sem fá-
| um er gefið. Hann er sérstak-
lega góður dýramálari og
myndir af dýrum eftir hann,
! sem birzt hafa í barnabókum,
1 eru hreinustu listaverk. Enn
fremur málar hann blóm og
ÚtvarpLð
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
20,20 Ávarp á mannréttindadegi
Sameinuðu þjóðanna (Bene-
dikt Gröndal ritstjóri).
20.30 Kvöldvaka: a) Ólafur Þor-
valdsson þingvörður flytur er-
indi: A vegum úti. b) Andrés
Björnsson flytur hugleiðingu
eftir Þorbjörn Björnsson
bónda á Geitaskarði: Á Lands
spítalanum um síðustu jól. c)
Tónlistarfélagskórinn syngur;
dr. Victor Urbancic stjórnar.
d) Karl Guðmundsson leikari
les ijóðaþýðingar eftir Helga
Hálfdanarso.i, úr bókinni:
„Handan um höf“. e) Broddi
Jóhannesson les kafla úr bók
inni: „Undir tindurn" eftir
Böðvar Magnússon bónda á
Laugarva*-ni.
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22,10 Sinfóniskir tónleikar (pl.).
23,05 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir iiðir eins og venjulega.
20,20 Lestur fornrita: Njáls saga; V
(Einar Ói. Sveinsson próf.).
20,50 Tónleikar (plötur).
21,15 Dagskrá frá Akureyri: í bað-
stofunni 1 Lóni (blandað efni)
21,45 Náttúrulegir hlutir: Spurn-
ingar og svör um náttúru-
íræði (Árni Friðriksson fiski-
fræðingur).
22,00 Fi'éttir og veðurfregnir.
./22,10 Útvarpssagan: „Haila“ ftir
• • 'Jóh Trausta; XIII (Helgi
Hjörvar).
23.30 Dagskrárlok.
'ið, var hún undrandi yfir að
Lindsay skildi vera kominn á
hæla hennar. Hún sagði síðar
svo frá, að það fyrsta, sem
hefði vakið athygli hennar á
manninum, hefði verið sér-
lega stórt nef og þó ennþá
stærri bót á buxnasetu hans,
rauð að lit. En hún glyemdi
þessu brátt vegna hinnar töfr
andi framkomu Lindsays,
Ltmdspehktu
Slank
beltin
eru frumleidtl hjtí
Lady h.f.
lífstykkjaverksmiðja,
heildsala,
Barmahlíð 56.
KONUR, SEM BÍjÐA LAUSNARGJALDS.
Eitt af beztu málverkum Lindsays.
landslagsmyndir, en hans
mun lengst verða minnzt,
þrátt fyrir allt, fyrir að hafa
málað konur. Hann er engu
síður en Rubens mikill aðdá-
andi kvenna, án þess að fölna
nokkuð, þótt aölaðir menn
snúi sér undan og fussi, þar
sem málverk hans eru á sýn-
ingum.
Trúboðadóttir og læknir.
Faðir Lindsays var héraðsr
læknir í fremur litlu héraði og
virtist hann ekki hafa neina
listræna hæfileika, fremur en
kona hans og móðir Lindsays,
er var dóttir frægs trúboða.
Hét sá trúboði John Williams.
Lítið eimir eftir af fornri
frægð hans, annað en það, að
eitt trúboösskip þar syðra ber
nafn hans. Hann endaði líf
sitt á þann hátt, að villimenn
irnir snerust gegn honum,
suðu hann og átu. Sagan seg-
ir, að Williams hafi strokið
frá Englandi ásamt ungri
írskri hertogaynju. Dóttir
þessa harðsoðna trúboða skap
aði fljótt þaö strangtrúarlíf
á heimili sínu, að Lindsay
flúði við fyrstu hentugleika til
Melbourne og hefir hann síð
an verið nætur- og daglegur
andstæðingur alls skipulagðs
trúarlífs.
Með rauða bót á buxumrm.
Lindsay kynntist konu sinni
á þann hátt, að bróðir henn-
ar bauð nokkrum kunningj-
um sínum heim aö kvöldlagi
og var Lindsay einn þeirra.
Er þeir höfðu reykt og drukk-
ið nokkra stund, barði hún á
dyrnar til að vita, hvort þeir
vildu fá kv.öldverð. Hún sá að-
eins andlit þeirra í reykhjúpi,
en er hún kom niður í eldhús-
enda giftist hún honum inn
an tíðar, þrátt fyrir það, að
hann var mjög fátækur um
þessar mundir.
Mikill vinnuhestur.
Vinnusemi Lindsays var
honum til mikillar gæfu í upp
hafi ævistarfsins. Þegar félag
ar hans eyddu tímanum í
drykkju, var hinn stöðugi og
vakandi áhugi hans á við-
fangsefnum málaralistarinn-
ar þess valdandi, að hann
hafði engan tíma "til drykkju
og nautn hans var að vinna
nótt með degi. Þessi vinnu-
gleði hans hefir haldizt með
árunum, þótt hann hafi jafn
framt haft tíma til að gefa
sér lausan . tauminn á eftir-
minnilegan hátt öðru hverju.
Slysav.fél. á Sandl
(Framhald af 1. síðu.)
oftar en einu sinni veriö
kvödd á strandstað, enda á
hún heima á hættulegri
strönd. Stjórn deildarinnar
skipa Magnús Arngrímsson,
Benedikt Benediktsson og
Magnús Guðmundsson.
Altnunnuíri/f/f/inf/«rnur í Reykfttvík.
Útborgun bóta í desember
hefst föstudaginn 11. des.
Föstudag, laugardag og mánudag verða aðeins
greiddar bætur til elli- og örorkulífeyrisþega. Þriðju-
dag, 15. des., veröur greiddur barnalífeyrir, en frá ög
með miðvikudegi, 16. des. og til jóla, allar tegundir bóta.
Milli jóla og nýárs verður ekkert greitt.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur
Varðmannsstaða
Bæjarsíminn í Reykjavík óskar eftir reglusömum
manni nú þegar, er hafi næturvörzlu við bæjarsím-
ann sem aðalstarf. Eiginhandar umsóknir með upp-
lýsingum um aldur, menntun og fyrri störf óskast
sendar bæjarsímstjóranum í Reykjavík fyrir 16. des-
ember 1953.
iTi'DTI
Tómstundakvöld kvenna
verður í kvöld kl. 8,30 í Aðalstræti 12.
Skemmtiatriði:
upplestur, handavinna, söngur, kaffidrykkja o. fL
Allar konur velkomnar.
SAMTÖK KVENNA.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
móður minnar
SIGURVEIGAR SIGURÐARDÓTTUR.
Sérstaklega þökkum við sveitungum hennar fyrir hjáip
semi og hlýjan hug.
Magnús Gunnlaugsson,
Sigurður Gunnlaugsson.
IÍU lic^ur lcioin (
ftfV/JAVÍK - SÍMI 7080
UMBODSMCNN UM LANO ALLT
Amma okkar,
HELGA BRYNJÓLFSDÓTTIR
frá Selalæk,
verður jarðsett frá fríkirkjunni í Hafnarfirði laugar-
daginn 12. desember. Athöfnin liefst með húskveðju'
frá heimili hcnnar, Ilringbraut 7 í Hafnarfirði kl. 1 e. h.
Sigríður Thorderscn,
Iíelga Thordersen,
Stefán Thoidersen,
Svava Thordersen.