Tíminn - 10.12.1953, Page 4
til að minnka dýrtíðina, er lækkun framleiðslukostnaðar. _ Árangurinn er kom-
inn í ljós: Þúsundir karlmanna og unglinga kaupa vönduð föt á aöeins kr. 890.00,
dýrustu tegundirnar, og hafa sannfærzt um gæðin.
Kynnist hvers íslenzkur iðnaðar er megugur.
wdreóar
ceóauerzivm
ndreóóonat'
TIMINN, fimmtudaginn 10. desember 1953.
281. blað.
Helgi Hjörvar:
IKveðJa til BJarna Bjama-
sonar á Laugarvatni
Meðal þeirra, sem til máls
tóku á 25 ára afmælishátíð
Laugarvatnsskólans, var
Helgi Hjörvar, skrifstofustj.
útvarpsráðs, og vill Tíminn
birta orð hans í framhaldi af
ræðu Bjarna skólastjóra. H.
Hjv. mælti hér um bil á þessa
leið:
Þegar Magnús Helgason
var að senda frá sér sína
fyrstu nemendur nú fyrir (
meira en 40 árum, þá hefir
hann varla litið svo á sjálfurj
að hann væri að gera annað
en bæta úr bráðustu þörf á
mjög fátæklegu sviði í þjóð-
félaginu. Sú liðsveit, sem
hann sendi fram í baráttu
þjóðarinnar var fátækleg og
illa vopnum búin.
En nú, þegar ég hlýddi á
ræðu Bjarna skólastjóra, skyn
samlega, skrumlausa, byggða
á staðreyndum um aldarfjórð
ungsverk hér á Laugarvatni,
þá sækir að mér ein setning
úr Heimskringlu, sem segir
mikla sögu í fáum orðum:
„Jökull hlaut að stýra Vís-
undinum."
Bjarni skólastjóri ságði áð-
an á þá leið, að vissulega hefði
þurft mikinn skort á lífs-
reynslu til þess að ráðast í
skólastjórn á Laugarvatni,
eins og hann gerði fyrir 24
árum. Og víst er það, að vandi
var á fyrir ungan kennara-
skólamann að taka upp merki
séra Jakobs Lárussonar, þeg-
ar hann féll frá þessu starfi
í blóma ævi sinnar. En við
vitum það allir, skólafélagar
Bjarna og vinir, að hér var
hlutskipti gert. „Jökull hlaut
að stýra Vísundinum“; Þeim
sem var „manna mestur og
styrkvastur11, frænda Grettis,
var fengið stærsta skipið til
stjórnar.
Bjarni Bjarnason hafði til
þessa hlutskiptis mikla karl-
mennsku, jafnaðargeð og höf-
semi, bjartsýni í verki og
framkvæmd, meir en í fögr-
um orðum. Það var einkenni
hans í okkar hóp, ungra og
lítt reyndra manna, að hann
var gætinn og hófsamur í
mati á sjálfum sér, en örlát-
ur og góðviljaður í mati sínu
á öðrum. En hann þoldi eng-
um úrtölur og kjarkleysi.
Hann barðist í félagsmálum
okkar, í forvígi og við hlið
okkar annarra, og við reynd-
um hann ætíð að hinu sama,
kjarki, heilum hug og tilþrif-
um í verki.
Og nú hefir hann Iýst hér
hófsamlega, sem honum er
lagið, með látlausum rökum,
að allvel var til skipstjórnar-
innar hlutað, að það er mik-
ill farmur og eigulegur, sem
nú kernur til skipta hér að
Laugarvatni eftir 25 ár.
Bjarni skólastjóri hefir hér
talið mörg verðmæti og eng-
ar raunatölur. En það er sagt
frá Guðbrandi sægarpi, þeg-
ar hann sigldi skipi sínu í of-
viðri og brimsjó vestur yfir
Breiðafjörð og fleytti farmi
og mönnum, að stýristaumarn
ir skáru herðar hans og hend
ur til blóðs. Efalaust er það,
að stjórntaumarnir hafa
stundum verið sárir átökum,
hér á Laugarvatni sem víðar,
og ærnir þeir sjóar, sem braut
á bæði borð, ef þeim manni,
sem undir stjórntaumum sat,
hefði einkum orðið starsýnt
á boðana.
Bjarni Bjarnason hlaut
ungur að verðlaunum afreks-
Bjarni Bjarnason
merki Sunnlendinga, þar sem
greipt er í silfur þessi forna
einkunn: „Lítt dró enn undan
við þig, og ertu vor fræknast-
ur.“ Þetta afrek þurfti að vísu
enginn annar að ætla sér úr
hópi okkar félaga. Nú hafa
ungir menn og vaskir leyst
hina eldri af þeim hólmi og
helgað sér silfurgripinn með
einkunn hans.
En nú þykir mér samt sem
Bjarni Bjarnason hafi sjálfur
letrað hina sömu einkunn í
það efni, sem trúrra er og síð
ur forgengilegt én silfrið:
„Lítt dró erin undan við þig,
og ertu vor fræknastur.“ Ég
færi honum hamingjuóskir á
þessum degi og þakkir okkar
allra, hinna gömlu félaga
hans úr þeirri fátæklega búnu
fyrstu liðsveit Magnúsar
Helgasonar. Hann hefir unn-
ið slíkt verk, að það er okkur
hinum Iika til sæmdar. Fyrir
það þakka ég honum og við
allir.
Neytendasaratökin
vilja afgreiðslu-
númer í verzlanir
Neytendasamtök Reykjavík
ur hafa ákveðið að veita þeim
verzlunum viðurkenningu,
sem sérstaklega skara fram
úr um verðmerkingar og ann
að, sem verða má til að flýta
fyrir og auðvelda afgreiðslu
og vöruval. T. d. myndu af-
greiðslunúmer tryggja rétt-
láta afgreiðsluröð.
Fólk er beðið að hafa sam-!
band við skrifstofu Neytenda
samtakanna, í síma 82722;
og gefa henni upplýsingar um
verzlanir, sem gætu átt við
urkenningu skilið.
Æfir í Valadalen
Nýlega var skýrt frá því í
norska íþróttablaðinu, Sports
manden, að einn keppandi,
sem taka mun þátt í heims-
meistarakeppninni í skíða-
íþróttum í Svíþjóð á þessum
vetri, sé byrjaður æfingar í
Valadalen í Svíþjóð, en það
er einn frægasti æfingastað-
ur í héimi. Er það íslending-
urinn Oddur Pétursson frá
ísafirði, sem keppa mun í 18
og 50 km. skíðagöngu, eftir
því, sem blaðið segir.
. JÓLA-KAUPTÍÐ
a__„ílr? W
Annríki mikið á heimilum.
svip a pao, sein boðstólum allt, ssnan
fram um paS aS g konfektgerðar.
til matargerðar, bokunar
t rAKSTURINN leyfum við okkur að Púður-
IBAKSXnK pmsbury. Strausykm, hvrtu - ^ Van.Uu
5VndteýtSÍS'HesUhiSukja”nar.
hörkur, steyttur. » {t Eggjagult. Karttemu ^ Kírsu.
ar, allar tegundir. Lyumrn arber3a, Hmi
a_’ Ivtor. — Blonduð sulta, J Wl,sínur. Ko
AL„ *■skraut-
3"a’Klrsi'
Essensar: Piparmyntu ^ gulur, grænn
f JÖLAGRMUNN: - Síam P.«na
f Hollenzk úrval
Dönsk
Tékknesk
KERTI: Amerísk
BÉÐINGAR: Stórt úrvak J ^ hlaup> 3 tegunto Sj
Súkkulaði, Karamellm^ __ 0stastengur, ostakex
KEX: lunlent og tengur. mánuðinn.
c- rstíái **
v,”l“ an m4no,mn
jhæeTG”pc'
Mandarínur, Heslihnetur.
jo -uag þér sem segið fyrir verku
i bænum
Rom, Vanillu, Luxus,
Auglýsið í TÍMANUM
•T» III