Tíminn - 08.01.1954, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur f Edduhúsl
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 8Í300
Prentsmiðjan Edda
38. árgangur.
Reykjavík, föstudaginn 8. janúar 1954.
5. blaff.
Reykjavíkurbær verður að krefjast öruggra
trygginga af Kveldúlfi vegna skulda s.f. Faxa
Eíga skuldir Kveldúlfs að lenda á Reykvíking-
uan ef fél. getur ei greitt skuðdarhlyt sinn í Faxa
Þórðnp Björmss©!! ber ír:mi t!31ögur uiaa
tafarlausar aðgerðir í þessu isrýwa máli
Þórður Björnsson bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins ræddi
nokkuð og bar fram allýtarlega tillögu á fundi bæjarstjórnar
í gær um Faxaverksmiðjuna. Benti hann á, að vegna sívax-
andi skulda þessa félags, sem eru nú um 30 milij. kr. en
jafnframt yfirlýstri eignarýrnun h.f. Kveldúlfs, sem er eig-
andi Faxa að % hiutum, stafaði bæjarfélaginu hætta af því,
að svo gæti farið, að Kveldúlfur gæti ekki staðið við skuld-
bindingar sinar um greiðslu á skuldum Faxa. Lagði hann
því til í tillögu sinni, að borgarstjóri krefðist nú þegar veðs
í ákveðnum og tryggum eignum Kveldúlfs, sem svaraði 2/5
hlutum af skuldum sameignarfélagsins Faxa. Tillagan er
svohljóðandi:
Hinn 6. okt. 1948 var und-
irritaður félagssamningur
milli Reykjavíkurbæjar og h.
f. Kveldúlfs um stofnun sam
eignarfélagsins Faxa í þeim
tilgangi að stofna og starf-
rækja verksmiðju til vinnslu
á 5000 síldarmálum á sólar-
hring með algjörlega nýrri
og óreyndri aðferð hér á
landi.
SkuldirKar 30 laaillj.
Stofnfé s.f. Faxa var 3,5
millj. kr. og lagði Reykjavík-
urbær fram % hluta en h. f.
Kveldúlfur % hluta þess.
Ráðgert var að stofnkostn-
aður verksmiðjunnar myndi
nema 10—12 millj. kr. en sá
kostnaður er nú að meðtöld-
um breytingakostnaði kom-
inn í a. m. k. 28 millj. kr.
Skuldir s. f. Faxa umfram
stofnfé voru á s. 1. ári orðn-
ar 30 millj. kr. Verksmiðjan
er óstarfandi þegar af því að
hana vantar hráefni og er
því ekki ennþá vitað um ár-
angur af tilraunum hinnar
nýju vinnsluaðferðar.
Rekstrarhalli félagsins
nemur þó tæpum 2,3 millj.
kr. á ári þó að verksmiðja
þess sé ekki starfrækt. Þá
liggja nú fyrir upplýsingar
um það að frekari nauösyn
legar tilraunir til að gera
verksmiðjuna starfhæfa
kosta margar millj. króna
og það sem meira er, að fjár
hagslegur grundvöllur er
ekki fyrir rekstri verk-
smiðjunnar.
hafi orðið fyrir stórvægileg-
um töpum undanfarin 8 ár,
sem skipti tugum milljóna
króna og hafi félagið þurft
af þeim ástæðum að selja
stór athafnasvæði sín hér í
bænum, jafnvel hreinni nauð
ungarsölu.
Tryggiiag irá
j
, Kviildálfa
I Af framangreindum á-
| stæðum samþykkir bæjar-
stjórn að krefjast þess að h.
(Framhald á 2. síðu.)
Rvík og Kvöldálfur
bcra áhyrgöiaa
Samkvæmt 9. gr. áður-
nefnds félagssamnings um s.
f. Faxa bera samningsaðilar,
Reykjavíkurbær og h. f.
Kveldúlfur, solidariska á-
byrgð á skuldbindingum sam
eignarfélagsins gagnvart
lánardrottnum og öðrum við
skiptamönnum en hvor gagn
vart öðrum í réttu hlutfalli
við stofnfjárframlög sín.
Frá fréttaritara Tímans Þannig geta lánardrottnar
Bátur laskast
á Sandi
á Hellissandi.
í fárviðrinu slitnaði 16
lesta bátur, sem Guðmundur
er nefndur, upp af legunni
og rak á land í stórgrýtta
fjöru og skemmdist mikið og
brotnaði. Báturinn var lát-
inn liggja við festar, sem
slitnuðu í veörinu, sem var
eitt hið mesta, sem komið
hefir um langt skeið.
og aðrir viðskiptamenn s. f.
Faxa gengið að Reykjavíkur-
bæ einum fyrir öllum kröf-
um sínum. Fjárhagur h. f.
Kveldúlfs skiptir því Reykja
víkurbæ miklu máli meðan
samningur þessara aðila um
s. f. Faxa er enn í gildi. Nú
hefir stjólrn h. f. Kveldúlfs
lýst því opinberlega yfir, í
apríl f. á., að það hlutafélag
Munið fundinn í kvöld
Sameiginlegur fundur fulltrúaráðs, hverfaráðs,
kosninganefndar og frambjóðenda Framsóknarflokks
ins í Reykjavík verður haldinn í Eddusal í kvöld kl.
8»30. — Þar verður rætt um bæjarstjórnarkosning-
arnar, bæjarmálastefnuskrá flokksins og kosninga-
starfið.
j Sérstaklega áríðandi að allir fulltrúaráðsmenn og
frambjóðendur flokksins mæti á fundinum. —
■MT
Hjá hverjum eru
tryggingamálin
í athugun?
Brunatryggingamál bæj-
arins bar lítillega á góma á
fundi bæjarstjórnar í gær.
Þóröur Björnsson ítrekaði
spurningu sína til borgar-
stjóra um það, hvað liði
útboði trygginganna eða
öðrum ákvörðunum í því
efni.
Borgarstjóri brást illur
við og sagðist ekki skilja,
hvers vegna verið væri með
slíkar spurningar. Málið
væri í athugun. Áður hafði
hann gefið þau svör, að það
væri í athugun lijá hagfræð
ingi bæjarins.
Þórður upplýsti, að hag-
fræðingurinn hefði þegar
skilað sínu áliti og spurði,
hjá hverjum það væri nú í
athugun.
Borgarstjóri gaf engln
svör við því, svo að það er
jafndularfullt og annað í
þessu mikla hagsmunamáli
bæjarbúa.
Skemmdir af eldi í
timburverkstæi
Klukkan 21,15 í gærkve'di
var slökkviliðið kvatt að
j Hraunteig 23, þar sem kvikn-
I að hafði í timburverkstæði.
j Mikill reykur var í húsinu og
! eldur í timburstafla, sem var
þar til þurrks. Tók um klukku
stund að ráða niðurlögum elds
ins og urðu skemmdir nokkrar
af vatni og reyk, og timbrið
brann að mestu. Kviknað hef
ir út frá rafmagni. Eigandi
verkstæðisins var Emil Hjart
arson.
Mogginn er fyndinn:
Andsiöðyflokkar ótfasf vin-
sældir Jóhanns Hafsfein!!
Allir vita, að Mæring'ur er miklu vmsælli
Mogginn getur stundum verið fyndinn, en oftast er
honum það ósjálfrátt. Þannig fór í gær, þegar hann
hélt því fram, að andstöðuflokkar óttuðust vinsældir
Jóhanns Hafstein! Þá hló margur, því að allir vita, að
jafnvel Hæringur er miklu vinsælli en Jóhann Haf-
stein. —
Þá segir í sömu fyndnu Moggagreininni, að Jóhann
Hafstein hafi veitt Iiðveizlu sína og greitt úr málum
óteljandi borgara, einkum síðan hann varð banka-
stjóri útvegsbankans. Það er svo sem auðskilið, hvað
Mogginn er að fara. Bending til þeirra, sem vantar
víxil? Þarf kannske ekki aðra tryggingu en — X
D-listinn?
Þá klykkir Mogginn út með því að segja, að Jó-
hann hafi verið „í hópi þeirra, sem allra flest atkvæði
fengu í hinni víðtæku prófkosningu“ Sjálfstæðis-
manna og hefði því átt að skipa eitt af efstu sætum
listans. Áður var Mogginn búinn að hæla sér af því,
að skipað hefði verið á listann nákvæmlega eftir úr-
slitum prófkosninganna. Og svo er Jóhann hafður í
áttunda sæti — fallsæti íhaldsins. Það er gaman að
vera fyndinn, Moggi sæll, en það dugir ekki að gera
það svona hatrammlega á kostnaö sjálfs sín og for-
ingja sinna,
Þetta er ekki hægt, Hafstein. Það er óhætt að
sverja við nafn sjálfs Hærings.
Agæt norsk gripagjöf
ti! Þjóðminjasafnsins
BJúrsii Ásgeirssoii, sendilierra aflicnti
liana frá Raabc, kunimni forngripasafnara
Bjarni Ásgeirsson, sendiherra íslands í Noregi, sem er
í heimsókn hér á landi um þessar mundir, afhenti Þjóð-
minjasafni íslands fyrir skömmu gjöf frá dr. Anton Raabe
i Osló. Dr. Raabe var hér á landi fyrir tveimur árum ásamt
konu sinni frú Tore Segelskc leikkonu. Hann kom þá oft
á safniö hér og fékk sérstakan áhuga á kvensilfrinu, sem
honum virtist að mörgu leyti líkt norsku kvensilfri.
Nú hefir dr. Raabe sent
Þj óðminj asafninu 24 skart-
gripi kvenna, flesta úr silfri,
hnappa, nælur og sylgjur,
sem hann ætlast til að verða
megi til samanburðar við
sams konar íslenzka hluti. í
biéfi segir gefandinn: „Allir
silfurmunirnir eru úr Efri-
Setursdal, sem einangraður
hefir verið í hjarta Noregs,
iárnbrautarlaus og án vega-
sambands fram á siðustu
tima. Járnbraut kemur varla
þangað á næstunni. Áður en
vegur kom, var eina samband
ið við umheiminn annað
hvort yfir fjöllin til vestur-
lands eða um „Byklestigen"
suður yfir fjöllin.“ — Dr.
Ráabe telur einangrun vissra
norskra byggða, svo og fs-
lands, valda því, að forn arí-
leifð í skartgripagerð hafi
varðveitzt á sama hátt á báð
um stöðum frá fornöld.
Dr. Raabe er mikill forn-
gripasafnari og safnar má a.
(Framhald á 2. síðu.)
Góður afli hjá Kefla
víkurbátum
Keflavíkurþátar fóru á sjó
eftir áramótin og öfluðu þeir
ágætlega, eða 5—7 lestir. Tíð
arfar er annars þannig, að
varla er til sjósóknar. Sjó-
menn eru hins vegar sæmi-
lega vongóðir um aflabrögð,
er tíðarfar veriur þolanlegt
og hægt verður að kemast á
sjó vegna verkfalla. ;
k