Tíminn - 15.01.1954, Qupperneq 2
,Ö£Íd
TIMINN, fðstudaginn 15. janúar 1954.
11. blað.
Þjóðleikhúsið aö hefja sýningar á
kunnum ævintýraieik fyrir börn
Næstkomandi laugardag: verður
frumsýndur í Þjóöleikliúsinu ævin-
týraleikurinn „Ferðin til tunglsins“
eftir Gert von Bassewitz. Þetta er
barnaleikrit Þjóðleikhússins að
þessu sinni, eins og áður liefir ver-
ið getið, og hefir Stefán Jónsson,
höfundur „Hjalta litla“ og fleiri
barnasagna, annazt þýðinguna.
Simon Edwardsen frá Kgl. óperunni
í Stokkhólmi er Ieikstjóri.
Langt er slöan áformaö var, að
hann tækist þetta verk á hendur,
en leikritið hefir verið sýnt undan-
farin 20 ár eða svo, um hver jól,
í Stokkhólmi, svo og í Helsingfors
og víðar, og má nokkuð marka vin-
sældir þess af því. Edwardsen er
gamalkunningi þessa vinsæla
barnaleikrits, ekki aðeins sem leik-
stjóri, heldur hefir hann leikið í
því hlutverk Óla Lokbrá, síðast í
Stokkhólmi í fyrra.
Bidsted samdi dansa.
Músíkin í ævintýraleik þessum
er líkleg til þess að ná vinsældum
hér, en hana hefir Clemens Schmal
stich samið. Þjóðleikhúshljómsveit-
in leikur, undir stjórn dr. Victors
Urbancie. Ekki mun það spilla leik-
ritinu, að í því eru margir dans-
ar, sem Erik Bidsted, ballettmeist-
ari Þjóðleikhússins, hefir samið við
efni þess, en nemendur úr ballett-
skóla Þjóðleikhússins dansa.
Draumar barnanna.
í leikritinu eru ein 17 hlutverk,
en auk þess um 30 listdansarar úr
ballettskólanum, flest börn, auk
fleiri barna, er þar hafa hlutverk.
Leikurinn gerist í hugarheimi, eða
öllu heldur draumi þeirra Önnu
Lísu og Péturs. Þau dreymir furðu-
lega hluti, ævintýralega ferð til
tunglsins, en á vegi þeirra og hjá
Karlinum í tunglinu verða ýmsar
skringilegar persónur, og margt
kynlegt ber fyrir.
Myndin er tekin á æfingu í Þjóðleikhúsinu. Verið er að æfa
atriöi úr „Ferðinni til mánans'. Símon Edwardsen lcikstjóri
er að leiðbeina leikendum.
Þrumuvaldur og skrug~a.
i Aðalhlutverldn, Önnu Lísu og
Pétur, leika þau Bjarndís Asgeirs-
dóttir og Andrés Indriðason, en
önnur hlutverk fara þau með Guð-
björg Þorbjarnardóítir, sem leik-
ur móðurina, Anna Guðmundsdótt-
ir, sem leikur Mínu barnfóstru,
I Bessi Bjarnason, sem er aldinbor-
I inn, Róbert Arnfinnsson Óli Lok-
j brá, Næturdísin (Regína Þórðar-
dóttir), Þrumuvaldur (Valdimar
Helgason), Skrugga (Arndís Björns
dóttir), Skýjamamma (Emelía Jón-
asdóttir), Skúraflóki (Jón L. Hall-
dórsson), Éljagrímur (Ólafur Mixa),
Vörður á Vetrarbrautinin (Klem-
| enz Jónsson), Hennar hátign Sólin
(Guðbjörg Þorbjarnardóttir), Morg
Útvarpíð
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
18.55 íþróttaþáttur (Sigurður Sig-
urðsson).
19.25 Tónleikar: Harmoníkulög (pl.)
20.20 Lestur fornrita: Njáls saga;
IX. (Einar Ól. Sveinsson róf.)
20.50 Tónleikar (plötur): „Góði hirð
irinn“, svíta eftir Hándel.
21.15 Dagskrá frá Akureyri.
21.45 Frá útlöndum (Axel Thor-
steinsson).
22.10 Upplestur: „Maðurinn, sem
varð að fiski", kínversk smá-
saga eftir Li Fu-yen (þýðand-
inn, Halldór G. Ólafsson, flyt
ur).
22.35 Dans- og dægurlög (plötur).
23.00 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
17.30 Útvarpssaga barnanna.
19.25 Tónleikar: Samsöngur (pl.).
20.30 Tónleikar (plötur).
20.45 Leikrit: „Spretthlauparinn"
útvarpsleikrit í tveimur þátt-
um eftir Agnar Þórðarson.
22.10 Danslög (plötur). —
24.00 Dagskrárlok.
Árnað heilla
Trúlofanir.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Bjarndís Helgadóttir
frá Seyðisfirði og Kjartan Þór Ingv
arsson, Dölum, Hjaltastaðarþfng-
há.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
eína ungfrú Guðrún Árnadóttir,
Ormastöðum, Fellum, og Þorbergur
Jónsson, Skeggjastöðum, sömu
sveit.
Á gamlárskvöld opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Gunnhildur
Daníelsdóttir, Hraunteig 22, og
Gunnar Gunnarsson, 5ðnnemi.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
s.'na ungfrú Halla Guðmundsdóttir,
starfsstúlka, Eiðum, og Björgvin
Runólfsson, Litla-Sandfelli, Skrið-
dai.
■ unroði (Amalía Sverrisdóttir), Jóla
' sveinninn (Ævar R. Kvaran), Jóm
frú Jóiagjöf (Anna Guðmundsdótt-
ir) og Karlinn í tunglinu (Lárus
Ingólfsson). Auk þess dansa þau
hjónin 'Erik Bidsted og Lisa Kære-
gaard með nemendum sínum, sem
eru margir, eins og fyrr segir.
Ávísun á miða.
Leiktjöldin, sem eru ævintýraleg,
eins og vera ber, hefir Konráð
Pétúrsson gert, en búninga teikn-
aði Lárus Ingólfsson. Rétt er að
geta þess, að fyrir jólin lét Þjóð-
Þjóðvörn hafnaði
samstarfi við komra
únista með 1 atkv.
raeirihluta
Þjóðvarnarmenn bjóða
fram sérlista á Akureyri.
Litlu munaði þó, að þeir
væru þar í sæng meö vin-
um sínum, kommúnistum.
Kommúnistar buðu Þjóö-
vörn og Alþýðuflokknum
samstarf. Bjuggust komm-
únistar ekki við að ná sam-
starfi við Alþýðuflokkinn
en höfðu góða von með
Þjóðvörn og. vildu gjarna
samstarf við hana, þótt Al-
þýðuflokkurinn heltist úr
lest.
Það kom líka á daginn,
að tiltrú kommúnista í
garð Þjóðvarnar var ekki
með öllu ástæðulaus. Á
fundi Þjóðvarnarmanna,
var samstarfi við kommún-
ista um bæjarstjórnarlista
á Akureyri hafnað MEÐ
EINS ATKVÆÐIS MEIRI-
HLUTA.
leikhúsið prenta jólagjafakort, sem
einkum vorú ætluð börnum. Þessi
kort eru ekki aðgönj umiðar, held-
ur ávísun á miða, sem börnin fá
við framvísun í miðasölu leikhúss- 1
ins, og skulu þau þá jafnframt
geta þess, á hvaða sýningu þau
helzt vilja koma, en það fer auö-
vitað eftir því, í hvaða röð' þau
koma með kortin, sclu miða o. s. ,
frv. En ráðlegast mun þeim þó að
snúa sér sem fyrst til miðasölunnar
með þau.
Fyrir fullorðna og börn.
Leikrit þetta flytur fagran boð-
skap og hollan börnum, eins og
vera ber um. barnaleikrit. Þau eiga
að vei'a cóð við dýrin, hlýðin og
prúð, en umfram allt er það góð
og holl skemmtun, nýtízkúleg og
íburðarmikil eftir því sem hér ger-
ist. Leikritið er þó þess eðlis að
ætla má, að fullorðnir íái notiö
þess ekki síð'ur en börnin, ekki
sízt vegna óvenjulegs sviðsútbún-
! aðar, hrífandi tónlistar Schmal- !
! stich og heillandi dansa Eriks Bid- .
steds.
meiW'iniiKiiiimiHir ..aiiiiiiH*iiimiiiiiiiiiiini
i
MYNDIRi
Loftbrúin
Loftbrúin í Nýja bíó bendir til
I þess, að Bandaríkjamönnum sé
heldur kalt til þýzkra kvenna. Því
þótt það stríði á móti öllum lög-
. málum í kvikmyndagerð, sé hábölv-
j að í garð alls sentimentalitets og
valdi því að Bandaríkjamaður bið-
ur ósigur fyrir konu, þrátt fyrir
j allt þetta, er kuldinn í garð þýzkra
kvenna svo mikill, að þeir verða
að Iáta myndina fara illa. Má vera
að þess gerist dæmi í Berlín, að
þýzkar konur hafi hlunnfarið
bandaríska hermenn, en það er
ekki garpslegt að hefna þess á
heimsvísu. Annars er myndin vel
leikin og skemmtileg á köflum, þótt
skemmi hana tal um demókratí og
frelsisskrár í bland við kolaflutn-
inga.
Öruág og ánægð með
trygginguila hjá oss
ÚTSALA
Verðlækkun
Þessi viku og svo lengi, sem birgðir endast, seljum|1
við éftirfarandi vörur með þessu verði ;
Sirs rósótt ensk nú 10.00 áður 15.00—17.00
Skyrtuefni ensk — 10.00 — 15.00j
Léreft ensk — 11.00 — 16.00
Flúnell röndótt dnsk — 12.00 — 15.00j
Bómullarefni ensk — 15.00 — 20.00!
Tvisttau ensk — 18.00 — 26.00'
Gardinuefni ensk — 25.00 — 36.00j
Handklæöi ensk — 10.00 — 15.00
Handklæði ensk — 20.00 — 26.00J
Sumarkjóiaefni ensk — 19.50 — 30.00i
Silkikrep franskt — 29.00 — 52.00j
Pikki, franskt — 25.00 — 36.00 <
Silkiefni franskt — 25.00 — 35.00j
Náttkjólar nælon — 135.00 — 240.00*
Euxur nælon — 35.00 — 60.00]
Angora garn 100% — 6.50 — 8.50*
Eyrnarlokkar 5.00—10.00 parið og ýmsar eldri vörur(
með miklum afslætti.
Aðrar vörur með 10% afslætti þessa viku.
DYNGJA H.F.
Laugaveg 25
Almennur
iðnaðarmannafundur
Stjórn Landssambands Iðnaðarmanna boðar til al-
raenns fundar iðnaðarmanna í byrjun febrúarmánað
ar um afstöðu þeirra til svonefndrar IÖnaðarmála-
stofnunar íslands. Fundarstaður og tími nánar aug-
lýstur síðar. Frummælandi verður Björgvin Frederik-
sen, forseti Landssambands Iðnaðarmanna. Fundur-
inn er boöaður meö þessum fyrirvara með tilliti til
þátttöku iðnaðarmanna utan Reykjavikur.
o
o
O
O
o
O
O
o
o
O
o
o
O
o
AUGLÝSING
nr. 4/1954
frá Iimflutiiiiigsskrifstofmmi urn
um sóknir um ný fjárfestingarleyfi
Þeir aöilar, sem ætla að sækja um ný fjárfestingar
leyfi á þessu ári, þurfa að senda Innflutningsskrif-
stofunm umsokn fyrir 10. febrúar eða póstleggja um-
sókn í síðasta lagi þann dag.
Eyðublöö undir nýjar umsóknir fást hjá Innflutn-
ingsskrifstofunni í Reykjavík og hafa verið send odd
vitum og byggingarnefndum utan Reykjavíkur.
Ekki þarf að sækja um fjárfestingarleyfi vegna
framkvæmda, sem frjálsar eru samkvæmt lögum um
skipan innflutnings- og gjaldeyrismála, fjárfesting-
armála o. fl. 24. des. 1953, en þaö eru í fyrsta lagi
íbúðarhús, þar sem hver íbúð, ásamt tilheyrandi
geymslu, þvottahúsi og þess háttar, er allt að 520 rúm
metrar, í öðru lagi peningshús og heyhlöður, í þriðja
lagi verbúðir og veiöarfærageymslur og í fjóröa lagi
þær framkvæmdir, sem fullgeröar kosta í efni og
allt að 40 þúsund krónur.
Reykjavík, 15. janúar 1954
Ennflutníngsskrifsfofan
Bezt að auglýsa í TÍMANUM