Tíminn - 28.01.1954, Side 8
X B-listinn
38. árgangur.
Reykjavík,
X B-listinn
28. janúar 1954.
22. blaff.
Skemmtifundur B-listans að
íhaldið hraktist á hröðum flótta
Hótel Borg annað kvöld í útvarpsumræðunum ígærkvöldi
Skemmtifundur stuðningsmanna B-listans í Hótel
Borg annað kvöld (föstudag) byrjar kl. 8,30. Húsið opn-
að kl. 8.
Verður ýmislegt til skemmtunar: Haraldur Björns-
son fer með gamanþátt. Sigurður Ólafsson syngur. Fá-
einir menn flytja 5 mínútna ávörp. Hjálmar Gíslason
syngur gamanvisur- Dans, almennur söngur og ef til vill
fleira.
í gær voru um 300 manns búnir að panta aðgöngu-
miða. Er bezt að þeirra verði vitjað í dag fyrir kl. 7 e. h.
í Edduliúsið (sími 6066).
Stuðningsfólk B-listans er velkomið meðan húsrúm
leyfir. En enginn vafi er á að Borgin verður langt of
lítil annað kvöld.
Fjórveldafundurinn:
Þýzkalandsmálin rædd
fyrst þrátt fyrir allt
Berlín, 27. janúar. Á fjórveldafundinum í dag lögðu ráð-
herrar Vesturveldanna til að sleppt verði að ræða fyrsta
málið á dagskrá þeirri, er formlega var samþykkt í gær, en
þegar tekið að ræða Þýzkalandsmálin. Molotov kom fram
með dagskrá að fimmveldafundi, sem haldinn verði í vor.
ÞórSur Björnsson íætti simelnr öruggt og
markvisst Mekkingaræ'ðu horgarstjóra
íhaldið í Reykjavík er nú svo lirætt um að missa völdin
í bænum, að því varð fótaskortur æ ofan í æ á þeim hraða
flótta, sem það hefir verið hrakið á af minnihlutaflokkun-
um, einkum markvissri gagnrýni Framsóknarflokksins.
Eitt er augljóst eftir þessar umræður, og það er það, að
íhaldinu liefir nú fatazt „stóra átakið“, sem flokkurinn
auglýsti eftir fyrir nokkrum dögurii til að halda völdunum.
Af hálfu Framsóknarflokks
ins í gær töluðu þeir Þórar-
inn Þórarinsson og Þórður
Björnsson. Þórarinn talaði
fyrr. Deildi hann mjög hart
á glundroðastjórn íhaldsins,
einkum fjármálastjórnina.
Einnig rakti hann nokkur
(Framhald á 7. slðu.)
Fyrir Vesturgötu 7
fær íhaldið aðeins 7
Húslð Vesturgata 7 skag-
ar út í Vesturgötu og mynd
ar þar lífshættulegt horn í
umferðinni. Þannig hefir
þetta verið alla stjórnartíð
íhaldsins. Gangstéttin við
húsið er hálfur metri og
engin gagnstétt hinum
megin.
En það er vandalítið að
leysa þessa þraut. Þarf ekki
annað en færa húsið, sem
er meðfærilegt tiinburhús,
dálítið innar á lóðina, sem
er stór. Það er óþarfi að
kaupa húsið, sem er einsk-
is virði, aðeins nóg að taka
spildu af lóðinni eignar-
námi eftir mati dóm-
kvaddra manna. En það er
víst ekki ætlunin að fara
þannig að. Sterkir íhalds-
menn eiga liúsið og hugsa
sér að láta bæfnn kaupa
það fyrir drjúgan skylding,
varla minna en Vesturgötu
9, vilja helzt að sögn fá
hálfa aðrar milljón fyrir
kofann.
íhaldsmenn í vesturbæn-
um ættu að minnast þessa
húss, þegar þeir kjósa.
Fegrunarfélagið með borg-
arstjórann í brodid fylking
ar ætti að fara þangað
skrúðgöngu að morgni kosn
ingadagsins.
Hornið við Vesturgötu 7
er táknrænt um stjórn í-
haldsins í bænum, og fyrir
það eins og svo margt ann-
að, á íhaldið alls ekki skilið
nema 7 á sunnudaginn
kemur, og raunar alls ekki
það.
| Dulles tók fyrstur til máls.
Hann kvað það einungis tíma
eyðslu að ræða fyrsta málið
á dagskrá fundarins, er fjall-
ar um, hvernig dregið verði
úr úlfúð í heiminum og enn-
fremur, að kallaður verði sam
an fimmveldafundur með þátt
töku Kína. í þess stað vildi
Dulles, að þegar í stað yrði
tekið að ræða Þýzkalandsmál
in. Þeir Bidault og Eden héldu
stuttar ræður og tóku mjög
í sama streng og Dulles.
Aukin verzlunarviðskipti
austurs og vesturs.
Næstur tók Molotov til máls
og talaði í eina klukkustund.
,Hann stakk m. a. upp á dag-
! skrá í þrem liðum fyrir fimm
|veldafund þann með -þátt
töku Kína, sem hann vill, að
[haldin verði á vori komanda.
!Eitt dagskráratriðið og það,
jsem Molotov ræddi mest, var
jaukin viðskipti milli austurs
og vestu»*3. Hann kvað þær
800 milljónir manna, er
byggja Ráðstjórnarríkin og
Kína skorta margt, sem
gnægð væri af í Vestur-Evr-
ópu og Ameríku og erfiðlega
gengi nú að selja. — Á morg-
un verður Molotov í forsæti
á fjórveldafundinum, en í
kvöld situr hann boð Edens,
utanríkisráðherra Breta.
Komið til starfa
Erleiidar fréttir
í fáum orðum
□ Bandaríkjaþing samþykkti í
gær hinn gagnkvæma örygg-
is- og varnarsáttmála milli
Bandaríkjanna og Suður-Kór-
eu, sem undirritaður var í fyrra
vor.
□ í gær bárust á land í Noregi
samtals 625 þúsund hektólítr-
ar af síld og er það mesta afla-
magn á einum degi síðan síld-
arvertíðin hófst í ár.
□ 8450 menn úr norska heima-
varnarliðinu verða þjálfaðir í
ár að nokkru leyti og er það
minna en ráð hafði verið fyrir
gert.
□ Rússar hafa skipað nýjan
sendiherra í Svíþjóð. Heitir
hann Georgi Arkadjev og hefir
veitt forstöðu þeirri deild ut-
anríkisráðuneytisins rússneska
er sér um amerisk mál.
□ Arababandalagið lýsir yfir, að
það muni ekki viðurkenna hinn
nýja soldán, er Frakkar hafa
sett til valda í franska Mar-
okkó.
□ Bretar hafa sent stjórn Spán-
ar nýja orðsendingu, þar sem
hún er sökuð um að hafa ekki
veitt eignum og öryggi brezkra
borgara á Spáni nægilega vernd.
Miklir kuldar
í Evrópu
NTB — Osló, 27. janúar.
Miklir kuldar eru nú um
mikinn hluta Suður- og Mið
Evrópu. í Grikklandi hefir
ekki komið jafn harður vet-
ur í 60 ár. Mjög ber nú á
því þar, einkum í norður-
hluta landsins, að hungrað-
ir úlfar leiti til byggða. í
Júgóslafíu er víða 30 stiga
frost. Á Ítalíu og Spáni er
einnig mjög kalt í veðri og
veldur það miklum erfiðleik
um. í Þýzkalandi eru einnig
hörkufrost. Samgöngur með
Halender biskup
dæmdur frá em-
bætti
NTB, 27. janúar. Ríkisrétt-
urinn í Stokkhólmi kvað í dag
upp þann úrskurð, að Heland
. er biskup skuli láta af bisk-
'upsstörfum 1. febr. n.k., unz
mál hans hefir verið útkljáð
fyrir hæstarétti, en biskup-
inn hefir áfrýjað dómi fógeta
réttar í Uppsölum, sem var á
þá leið, að Helander væri sek-
ur um að hafa skrifað níðbréf
in. Hélander var skipaður
biskup í ársbyrjun 1953, en
hefir aðeins gegnt embættinu
fáeina mánuði, þar eð mála-
ferlin hófust skömmu eftir að
hann var settur inn í embætt
ið. Búizt er við að hæstirétt-
ur taki málið fyrir um miðj-
an marz n. k-
fljótabátum hafa stöðvast
að mestu og hafa sumsstað-
ar verið teknir upp flutning
ar á sleðum í þeirra stað.
Reykjavíkurhöfn ekki
veriö stækkuö í
Útlendingar, sem koma hingað til lands, taka margir
eftir því, að Reykjavíkurbær fer dálítið einkennilega að
því, er borgarstjórinn kallar fyrir kosningar að „stækka
höfnina“. Stækkunin er nefnilega fólgin í því að minnka
höfnina og aka í hana grjóti alla daga frá morgni til
kvölds.
Aðrar þjóðir stækka hafnir sínar með öðru móti. Til
dæmis með því, að grafa fyrir nýjum skipakvium inn í
landið og nota uppgröftinn til uppfyllinga, eða leggja
undir ný svæði af sjónum með því að byggja nýja hafn-
argarða, sem ná lengra út.
Reykjavíkurhöfn hefir ekki verið stækkuð í áratugi,
en í þess stað er búið að fylla upp stór svæði innan
hinnar raunverulegu hafnar. Raunveruleg stækkun
Reykjavíkurhafnar er mál, sem ekki þolir margra ára
bið. Líklegt er þó að núverandi bæjarstjórnarmeirihluti
hugsi ekki til slíkra stórræða.
í kvöid
Kosningaskrifstofu B-
listans vantar tilfinnan-
lega sjálfboðaliða í kvöld
kl.. 5—7 og kl. 8—11. Nú líð
ur að kjördegi, og síðasta
undirbúningi þarf að ljúka.
Verkið vinnst fljótt og vel,
ef margar hendur vinna að,
Komið í kosningaskrifstof-
una.
Löggæzlan beitir refsiaögerðum
gegn ,borðsiöum’ fólks í danshúsum
Það virðist sem vasapela
fyllirí á dansstöðum hér sé
farið að verða löggæzlunni
erfitt. Eins og kunnugt er,
þá fer viss erindreki lög-
reglustjóra í eftirlitsferðir
um samkomuhús bæjarins,
þegar dansleikir eru haldn
ir, til að fylgjast með því,
hvernig „borðsiðir“ fólksins
eru.
Erfitt viðureignar.
Þrátt fyrir tilskipanir
um það, að ekki megi neyta
víns í samkomuhúsum, hef
ir þcssi erindreki orðið að
horfa upp á það, að þessar
tilskipanir yfirboðara hans
hafa ekkert að segja. Er
málið svo erfitt viðureign-
ar, að dómsmálastjórninni
fer líkiegasta að skiljast
upp úr þessu, að það er
ekki í hennar verkahring
að segja fyrir um „borð-
siði“ fólks á dansleikjum.
Refsiaðgeröir
En til þess að láta ekki
málið falla niður þegjandi
og hljóðalaust hefir nú
verið gripið til þeirra ráð-
stafana, aö beita all kynd-
ugum refsiaðgerðum gegn
veitingahúsum. Hefir þetta
komið til framkvæmda við
eitt veitingahús hér í bæn-
um. Hefir því verið bannað
að halda dansleiki á mánu-
dögum og þriðjudögum, eins
og það hefir gert að undan
förnu, án þess að nokltuð
hafi þótt athugavert við
þann rekstur.
Leitað á fólki.
í þessu húsi er svo
strangt eftirlit með því, að
engin komist inn með vín,
(Framhald á 7. s:ðu.)
FRAMSÓKNARMENN. — Aðeins 3 dagar til kosnlnga. Herðum sóknina.
Komið í kosningaskrifstofu B-listans í Edduhúsinu Símar 5564,82629 og 82630