Tíminn - 04.03.1954, Síða 2

Tíminn - 04.03.1954, Síða 2
TÍMINN, fimmtudaginn 4. marz 1954. 52. blað. i leitinni að snjómanninum er haldið frá glólundum Indlanús ti! fimb ufvetrar Himalaya Leiðang-urinn, sem hefir i hygeju | að ráða gátuna um lanl hins „hræðilega snæmanns", er nú á leiðinni til Nanche Eazaar i Hima Iayafjöllúm, þar sem líffræðingur inn og fornleifafræðingurinn Cliarles Stonor bíður aðalleiðang- ursins. Samkvæmt fregn frá frétta ritara enska blaðsins Daily Mail, Kalph Izzard, eru Iciðangurs- menn þegar komnir í 2700 metra hæð. Skilyrði þau, sem ferðalangarnir eiga við' aS búa, eru öll önnur en búizt var við. Kuldinn er geigvæn- legur um nætur, en vorsólin -skín brennandi heit á daginn. Þótt vorið hafi nýlega haldið innreið sína, bar fyrir augu leiðangursmanna á fyrsta áfanga þeirra vel ræktað land, með glóaldinum og hvers kyns ávöxtum, auk ýmis konar grænmetis. Sorgartónar lindýrahornanna. Það er æði örðugt að gera sér í hugarlund hið mikla vetrarríki, sem varir í margar vikur þarna í hita- beltinu. Á öðru dægri ferðarinnar frá Kat mandu, náttuðu leiðangursmenn á' grýttum árbakka í skógivaxinni kleif, þar sem þrjú vatnsföll koma hann hafði steypt sér út í, bárust Izzard, blaðamaðurinn enski, fékk sér hressandi bað til að endurnýj- ast eftir erfiði dagsins. Áður en‘ hann hafði steypt sér út í barst mönnum til eyrna tónar frá lindýra hornum, sem merktu það, að lík- fylgd nálgaðist. í líkfylgd þessari voru eingöngu menn, sem voru nakt ir að ofan. Líkið, sem var tötrum vafið, var borið til árinnar, þar sem það var eftirlátið árstraumnum, að afstaðinni tilhlýðilegri viðhöfn. Að svo búnu dreifðist líkfylgdin i skyndi, en leiðangursmenn komust áöur að því, hvað dregið hafði hinn látna til dauða, en það í'eyndist bólusótt. Það sló felmtri miklum yf ir ferðalangana, er þeir heyrðu þetta, því að sóttin herjaði einmitt í bænum, þar sem um 300 burðar- menn leiðangursins höfðu nýlega keypt vistir og dvalið um stund. Sem að líkum lætur var enginn þeirra bólusettur og mun því leiðangurinn gjalda mikið afhroð, ef bólusótt kemur upp á meðal þeirra. HíQfl'ioinniiRimsÐ^sniaii I JiviL I MYNDIRf Útvarpið Útvarpið í dag: Fastir liðir eins og venjulega. 20,30’ Kvöldvaka: a) Kjartan Ólafs son rakari flytur frásöguþátt: Skútu siglt heim fyrir hálfri öld. b) Útvarpskórinn syngur; Róbert Abraham Ottósson stjórnar (plötur). c) Elísabet Baldvinsdóttir segir skyggni- sögur. d) Knútsbylur, — frá- saga eftir Halldór Pálsson (Þulur flytur). 22,00 Préttir og veðurfregnir. 22.10 Passíusálmui' (16). 22.20 Sinfónískir tónleikar (plötur). 23,15 Dagskrárlok. Útvarpið á morgun: Fastir liðir eins og venjulega. 20.20 Lestur fornrita: Njáls saga; XVI. (Einar Ól. Sveinsson). 20,50 Tónleikar: Kvartett eftir Shostakovich (Björn Ólafs- son, Josef Felzmann, Jón Sen og E’inar Vigfússon leika). 21.10 Dagskrá frá Akureyri: Guðm. Jörundsson skipstjóri talar við tvo eyfirzka sjómenn, Eið Benediktsson og Stefán Magn ússon. 21,30 Einsöngur: Paul Robeson syngur (plötur). 21.45 Frá útlöndum (Jón Magnús- son fréttastjóri). 22,00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Passíusálmur (17). 22.20 Útvarpssagan. 22.45 Dans- og dægurlög (plötur.. 23,00 Dagskrárlok. Fyrirliði burðarmannanna 300 heldur hér á skjali því, er inniheldur samning þeirra við leiðangursmenn, en hann sam þykktu þeir með fingraförum sínum. Ætur göngustafur. Þessu næst taka leiðangursmenn að sinna hugðarefnum sínum og búa í haginn fyrir komandi dag. Einn þeirra hefii' sýnt allvænlega uppfinningahæfni, hann styður sig sem sé við staf, sem þénar í senn sem hið mesta góðmeti og göngu- stafur. Hann er úr sykurreyr. Hve- nær sem hann langar í hressingu, sker hann sér álitlega sneið af stafn. um og etur. Blæbrigðarík skegg. ^ Vísindamenn, kvikmyndatöku- menn og fjallgöngumenn urðu á það sáttir að leiðangurinn saman- stæði' af alskeggiingum. En Ralph Izzard barðist fyrir daglegum rakstri með hnúum og hnefum. En barátta hans var fyrir fram von- laus, enda komst hann að því, að rakblöðin höfðu horfið að fullu og öllu. Skeggin fá nú að vaxa í friði og má þar greina margs kyns liti, allt frá ljósgulu skeggi Tom Sto- barts til hins rauða sseggs Russels og- kolsv'arts skeggs dr. Biswass. Veðrið hefir verið með ágæturn. Á daginn hefir verið svo heití í veðri, að leiðangursmenn hafa far- ið þrisvar í bað, síðast f kléttalaug nokkurri í 1800 metra hæð. fíólar- hitinn var slíkur, að skyrtur og nær íöt, sem þvegin voru í lauginni, voru skraufþurr eftir eina klukku- stund. Á nóttunvú er hins vegar sárkalt. Á hverju kvöldi fylla menn flöskurn ar sínar með sjóðandi aldinsafa, og koma þær í staðinn fyrir hitapoka í svefnpokunum. Morguninn eftir er safinn kaldur og notast þá sem svaladrykkur í árdegissóliuni. Áfengur hrísgrjónagrautur. Sí.ðustu áfangana hafa léiðangurs menn haft mestar áhyggju.r af burð armönnunum þrjú hundruð. Þeir eru illa útbúnir. Hafa ekki svo mik ið sem teppi meðferðis. Því hafa leiðangursmenn orðið að haga ferð sinni þannig, að þeir yrðu á hverju kvöldi staddir í námunda við eitt- hvert þorp, þar sem burðarmennirn ir geta fengið mat og húsaskjól. Tveir menn eru daglega sendir á undan til að kunngera þorpsbúum, að leiðangursins sé vcn. Það hefir gefið góða raun. Bændurnir koma á móts við ferðamennina, selja þeim óteljandi ávexti og grænmeti nuk öls og annarra lystilejra tíryskja. Þar sesia Isættan leyistst Gamla bíó sýnir og eru þrír þekktir leikarar í aðalhlutverkum, Robert Mitchum, Claude Rains og Faith Domergue, sem lék Colombu í myndinni „Vendetta", er Gamla bíó sýndi í sumar. Bezt fer á því að hafa sem fæst orð um efni þesS- arar myndar. Robert Mitchum fær heilahristing snemma í myndinni, sem á að endast honum til ólífis í lokin. Hann notar síðustu ævistundirn- ar til að koma fögru glæpakvendi yfir landamæri Mexíkó og sannast þar sem áður, að mikið vilja menn leggja á sig fyrir kvenfólki^, þótt uppskeran sé misjöfn. Hvað snertir efni er myndin ekki þess virði að horft sé á hana. Ef menn vilja hins vegar horfa á fallegan kvenmann í hálfan annan I tíma, þá verða þeir varla fyrir von- brigðum, því að Faith Doniergue er einhver mesti kjörgripur, sem hér hefir sézt á hvíta tjaldinu. Væri vel, ef við fengjum að sjá hana oftar, því að auk yndisþokkans býr kvenmaðurinn yfir góðum leikhæíi- leikum. V. A. Ilsiiir foi’dæmdii Hafnarbíó sýnir franska mynd, er greinir frá þýzkum kafbáti á leið. til Suður-Ameríku í stríðslok. Höfundar skáldverlca lýsa gjarnan heiminum í hnotskurn, þar sem fólk ið er fulltrúar ákveðinna mannfé- lagshópa í hinum stóra heimi, þó meö sjálfstæðu lífi en ekki persónu gervingar. Þessa aðferð notar mynd arhöfundur, hnotskurn hans er kaf báturinn. Farþegarnir eru herfor- ingi, ástmaður hinnar þýzku Hilde, sem er eiginkona og laun ítalsks stóriðjuhölds fyrir að koma iðnaði ítala undir stjórn Þjóðverja; fransk ur blaðamaður með slæma sam- vizku; norskur vísindamaður og dóttir hans; Foster, þýzka leynilög reglan dæmigerð, ásamt hinum hundtrygga Willy, pródúkti þriðja ríkisins. Þetta er fólkið, sem sögu- maðurinn, franskur læknir, kallar les maudits, „hina fordæmdu" (betri þýðing: glataðir menn), eilíflega út- skúfaðir úr mannfélaginu eftir skip brot Hitlersævintýrsins. „Hinir fordæmdu" er mjög jafn vel leikin og ber ekki að nefna neinn sérstakan í því sambandi, framburð ur óvenjuskir á öllum málum. At- burðarásin er hröð og nóg af ómeng uðum æsingi, en yfir myndinni allvi hvilir blær hinnar óviðjafnanlegu frönsku listfengi. Kapp er bezt með forsjá siMMTVTiKPJiinriKtnDíjaKríttAia Ölið brugga þeir úr hrísgrjónum, og er það nokkurs konar áfengur hrís /grjónagrautur. Áður en það er drukk ið, er hrært í því með þar til gerð- um prjóni. Brúin riðamli. Einn burðarmannanna ætlaði að (Framhald á 7. síðu.) Iéi'íkísrmeisíurumóí í BADMSNTON verSur haldið dagana 13. og 14. marz n. k. í íþrótta- húsi KR við Kaplaskjólsveg og hefst kl. 5 e. h. fyrri daginn. Þátttaka tilkynnist skriflega til Einars Jónssonar c/o Samband ísl. samvinnufélaga, fyrir þriðjudags- kvöld 9. mars. — Keppt verður í eftirtöldum grein- um, ef næg þátttaka fæst: Einliðaleik karla og kvenna, tvíliðaleik karla og kvenna og tvenndarkeppni. Þátttökugj ald, kr. 15 fyrir einliðaleik og kr. 25 fyrir lið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni, fylgi með þátt- tilkynningu. Mótsnefndin «444444444444444444444444444444444444444444444444444444444444444444444« 44444444444444444444444444444444444444444444444444444444444444444444444« U P P B O Ð Opinbert uppboð verður haldið í uppboðssal borgar fógetaembættisins í Arnarhvoli, föstudaginn 5. marz næstk. klukkan 1.30 e. h., og verða þar seldar forlags- bækur Söguútgáfunnar, ásamt firmanafninu, alls ca. 9000 eint. Ennfreður verða seld alls konar húsgögn, þ. á. m. peningaskápur, skj alaskápur, útvarpstæki, oregl og borðlampar, einnig ísskápur og loks snyrti- vörur, leikföng o. m. fl. Greiðsla fari fram við hamarhögg. BORGAFÓGETINN í REYKJAVÍK 4S44444444Í44Í444S4Í4Í4Í4444S4444444Í44444444444444Í4Í4Í4Í444««4444Í44S Trésmiðafélag Reykjavíkur Allsherjaratkvæðagreiðsla um lagabreytingar, stjórn og aðra trúnaðarstöður í félaginu fyrir yfirstandandi ár, fer fram í skrifstofu félagsins, Laufásvegi 8, laugardaginn 6. þ. m. klukkan 14—20 og sunnudaginn 7. þ. m. kl. 10—22. — Kjör- skrá til sýnis. Þeir, sem skulda yfirgjald, vera að hafa greitt það áður en þeir kjósa Kjörstjórn 5«í4444444í44444í4í4í4444444S44444444444444444444444444S4S44444444444*á «S44444í444444444444444S4í4444íí44444444444M444í4í44444444S44444444444t Nýkomin húsgögn Stofuskápar, rúmfataskáppar, ritvélaborð, barnarúm, barnakojur. — Lágt verð. — Góðir greiðsluskilmálar Húsgagnaverzlun GUÐMUNBAR GUÐMUNDSSONAR Laugaveg 166 Íííííííí4íísííííí4síííííííísí4íí4í4ííííí44íííís4íí44íí44í44í4í4í4s44s4íít Laugaveg 166 Nýtt námskeið í teikn ingu og meðferð ýmiss konar lita, hófst 1. marz Kennari Hjörleifur Sigurðsson listmálari. Upplýsingar í síma 80901 og i skólanum, sími 1990 kl. 8-10 mánu daga og fimmtudaga. 44444444«

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.