Tíminn - 04.03.1954, Side 7
52. blað.
TÍMINN, fimmtudaginn 4. marz 1954.
2C
Frá hafi
til heiba
Hvar erti skipin
Sambandsskip:
Hvassafell er á Dalvík. Arnarfell
er í Reykjavík. Jökulfell er j N. Y.
Dísarfell er í Amsterdam. Bláfell
fór frá Keflavík 28. febrúar til Brem
en.
Kíkisskip:
Hekla er á Austfjörðum á suður-
leið. Esja var væntanleg til Rvíkur
seint í gærkveldi að vestan úr hring
ferð. Herðubreið kom til Rvíkur síð-
degis í gær frá Austfjörðum. Skjald
breiö fer frá Reykjavík í dag til
Breiðafjarðar. Þyrill fór frá Skerja-
firði síðdegis í gær vestur og norð-
ur. Helgi Helgason fer frá Rvik á
morgun tií Vestmannaeyja.
Eimskipafélag /slands.
Brúarfoss fór frá Boulogne 1. 3.
til Hamborgar, Antverpen, Rotter-
dam og Hull. Dettifoss fer frá Vent-
spils á morgun 4. 3. til Hamborgar.
Fjallfoss fór frá Hull 27. 2. Væntan
iegur til Rvíkur kl. 20 í kvöld 3.'3.
Skipið kemur að bryggju um kl.
21,30. Goðafoss átti að fara frá N. Y.
2. 3. til Reykjavíkur. Gullfoss fer
frá Kaupmannahöfn á morgun 4. 3.
til Leith og Reykjavíkur.. Lagarfoss
fór frá Rotterdam 1. 3. til Bremen,
Ventspils og Hamborgar. Reykjafoss
fór frá Rotterdam 27. 2. Væntanleg-
ur til Djúpavogs á morgun 4. 3. Sel-
foss kom til Reykjavíkur 23. 2. frá
Leith. Tröllafoss fór frá Rvík 18.
2. til N. Y. Tungufoss fór frá Sao
Salvador 1. 3. til Rio de Janeiro og
Santos. Drangajökull fór frá Rott
erdam 1. 3. til Rvíkur.
Messur
Kvöldbænir
í Hallgrímskirkju fara fram a
hverju virku kvöldi kl. 8. Sungið úr
Passíusálmum. (Á miövikudögum
kL 8,15 eru föstumessur).
Úr ýmsum áttum
Glímufélagið Ármann.
Glímunámskeið fyrir byrjendur
er í íþróttahúsi Jóns Þorsteinsson-
ar við Lindargötu á þriðjudögum kl.
7—3 og föstudögum kl. 8—9. Aðal-
kennari er Guðmundur Ágústsson.
Fjölmennið og æfið þjóðaríþróttina.
austur um land til Þórshafn
ar hinn 8. þ. m. Tekið á móti
flutningi til ' Hornafjarðar,
Djúpavogs, Breiðdalsvíkúr,
StöðVarfj arðar, Mj óafj arðar,
Borgarfjaröar, Vopnafjarðar,
Bakkafjarðar og Þórshafnar
í dag og á morgun. Parseðl-
ar seldir árdegis á laugar-
dag.
„Skja!dbreið“
vestur um land til Akureyr-
ar hinn 10. þ. m. Tekið á
móti flutningi til Tálkna-
fjarðar, Súgandafjarðar,
Húnaflóa- og Skagafjaröar-
hafna, Ólafsfjaröar og Dal-
víkur á morgun og árdegis á
laugardag. Farseðlar seldir á
þriðjudag.
M.s. Helgi Helgason
fer til Vestmannaeyja á
morgun. Vörumóttaka dag-
lega. —
Skiðafélag 20 ára
(Framhald af 8. slðu.)
fyrsta flokks húsi, eyðilagðist
með öllu í snjóflóði. Skíðafél.
ísaf j arðar hefir við þetta áfall
ekki lagt hendur í skaut en
hafizt handa, um byggingu
myndarlegs skála, sem nú er
kominn undir þak. Félagið hef
ir jafnan átt góða og félags-
þroskaða menn og ágæta for
ystumenn, margir þeirra eru
burtu fluttir, flestir til Reykj a
víkur, en frá þeim flestupi
leggur lilýju heim til átthag-
anna og félagsins. En sífellt
verða ungir áhugamenn til aö
fylla í skörðin.
Núverandi formaður Skíða-
félags ísafjarðar er Guðbjarni
Þorvaldsson mjólkurbússtjóri.
Formenn hafa verið Ólafur
Guðmundsson forstjóri, Helgi
Guðmundsson bakaram., Páll
Jónsson verzlunarmaður og
Guttormur Sigurbjörnsson
skattstjóri.
Getraunaspá
m
fyrir þessa viku
í bikarkeppninni eru nú að
eins eftir 5 l.-deildar lið, og
af þeim hefir a. m. k. W.B.A.
möguleika á að vinna báðar
keppnirnar. Bolton hefir
einnig nokkra möguleika og
munu þeir því ekki draga
neitt úr liði sínu gegn Sund-
erland. Eins og þeir vita,
sem fylgjast með enskri
knattspyrnu, hefir heima-
völlurinn mjög mikla þýð-
ingu. Það hefir því vakið
nokkra athygli, að í ár hafa
2 félög í 1. deild, Arsenal og
Newcastle, náð mun betri ár
angri á útivelli en heima.
Burnley, sem nú leikur heima
gegn Arsenal hefir náð bezt-
um árangri af 1. deildar lið-
unum, á heimavelli það sem
af er, eða 27 stigum Ports-
mouth er nú fallið út úr bik-
arkeppninni og getur því ein
beitt sér óhikaö gegn Charl-
ton. Liverpool, sem engan
leik hefir unnið úti, hefir
enn möguleika á að forðast
fall með því að vinna alla
sína heimaleiki. Ólíklegt er
þó, að þeim takist að ná báð
um stigunum frá Hudders-
field. Sheffield Wed. er enn
í bikarkeppninni og er því
eigi víst að þeir leggi sig alla
fram gegn Blackpool, enda
þótt þeir hafi náð mjög góð
um árangri, eða 25 stigum.
Everton er nú örugglega efst
í 2. deild en verður þó að
halda í hvert stig, sem unnt
er og ætti að geta náð jafn-
tefli, enda þótt Swahsea sé
ágætt heimalið.
Bolton-Sunderl. 1
Burnley-Arsenal 1 (x 2)
Charlton-Portsm. (1) x (2)
Liverpool-Huddersf. x (2)
Manch.Utd-WoIves 1
Middlesbro-Chelsea 2
Newcastle-Aston V. 1
Sheff.Wedn-Blackp. (1) 2
Fulham-Blackburn 1
Luton-Notts Co 1
Plymouth-Hull 1 .
Swansea-Everton x
Engln síld
(Framhald af 1. síðu.)
ur fór þangað í fyrradag en
varð einskis var og ekki hafa
menn heldur séð merki til
þess frá næstu bæjum. Er eng
in síld í firðinum og ekki held
ur í Grundarfirði.
Bátar hér afla vel, fá 5—10
lestir í róðri og upp í 16 lestir.
Vegurinn yfir Kerlingar-
skarð hefir verið ruddur og
fóru bifreiðar yfir skarðið í
gær.
MaSiir drukknar
(Framhald af 1. síöu.)
stöðin og fleiri tæki, en vél-
in gekk þó. Þegar Hermóður
kom til hans, tók hann inn
ljósbaujuna og vísaði Her-
móður hinum veginn til
lands. Kom Flosi til Bolung-
arvíkur undir morguninn.
1
Fékk brotsjó —
maðurinn horfinn.
i Þegar til laiids kom feng-
j ust nánari fregnir af at-
1 burðum. Skipstjórinn á
Flosa, Jakob Þorláksson, al
kunnur sjósóknari og dugn
aðarmaður, skýrði svo frá,
að laust eftir að hann tal-
j aði við Víking kl. átta um
kvöldið, hefðii riðið mikill
brotsjór yfir bátinn, svo að
hann lagðist á hliðina og
síýrishúsið fór I sjó. Við
það spenntist hurð þess
upp, og fylltist húsið af sjó.
Þegar sjórinn reið yfir,
voru þrír skipverjar i stýris-
húsinu, Hkipstjórinn, Gunn-
ar Leósson, stýrimaður og
Hálfdán Sveinbjörnsson, 1.
vélstjóri. «
Þegar báturinn rétti sig
við eftir áfallið og húsið
tæmdist af sjó, sást, að
Hálfdán Sveinbjörnsson,
vélstjóri, var horfinn. Hafði
hann tekið út um leið og
sjórinn rann út um opnar
dyrnar, þegar báturinn
rétti sig við.
Hálfdán Svofinbjörnsson
var 29 ára að aldri, kvænt-
ur og átti þrjú börn á unga
aldri, 1—4 ára.
Með verstu veðrum.
j Við þetta áfall bilaði tal-
stöð Flosa og fleiri tæki, og
‘gat hann þá ekki haldið ferð
inni áfram í þessum veður-
ham, setti út ljósbauju sem
'fyrr segir og andæfði við
hana, unz Hermóður fann
1 hann. Vélbáturinn Víkingur
komst heill til hafnar. Er tal
ið, að þetta sé með verstu
veðrum sem komið hafa við
j Vestfirði upp á síðkastið.
I Vestfjarðarbátar misstu þó
ekki teljandi veiðarfæri og
' komust slysalaust til hafn-
ar, nema Flosi.
Gott hjálparskip.
Sjómenn við Vestfirði eru
mjög ánægðir með eftirlits-
skipið Hermóð og stjórn-
anda þess. Hefir skipið reynzt
vel og skipstjórinn reynzt
viðbragðsfljótur og úrræða-
góður, þegar vanda ber að
höndum. Þykir það til dæm-
is vel af sér vikið að finna
Flosa í rúmsjó í því veðri,
sesm var þessa nótt.
M.s. DronQi!
Ælexaedríne
fer frá Kaupmannahöfn 5.
marz n. k. áleiðis til Færeyja
og Reykjavíkur. Tilkynning-
ar um flutning óskast sem
fyrst til skrifstofu Samein-
aða í Kaupmannahöfn. Frá
Reykjavík fer skipiö þann 11.
marz til Færeyja og Kaup-
mannahafnar.
Skipaafgreiðsia Jes Zimsen.
Erlendur Pétursson.
►4M
I Tomstmadakvöld |
jj 5
kvenna
I verður í kvöld kl. 8,30 í í
| Café Höll. — Skemmtiat- |
iriði — Kaffidrykkja.
Samtök kvenna. 1
i i
IiIIIIIIIIIIKIIIíIIIIIIIIttiIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIl
CtbrelðíS Tímans.
KARLAKÓR REYKJAVÍKUR
Skemmtikvöld
í Iðnó föstudaginn 5. þ. m. klukkan 8,30 siðdegis.
Skemmtiatriði og dans.
Styrktarmeðlimir og aðrir velunnarar kórsins eru vel-
komnir meðan húsrúm leyfir. •— Aðgöngukortin af-
hent í hljóðfæraverzluninni Drangey, sími 3311 og
blaðsöluturni Eymundssons, sími 3185.
Fyrsti bassi kórsins. Skemmtinefnd.
Siijómaðurlitii
(Framhald af 2. siðu.)
ærast, þegar leiðangurinn fór vfir
brú nokkra fræga. Hún er reist af
tveim keðjum, með handsmíðuðum
hlekkjum. Niður úr keðjunum
hanga linur, sem bera uppi nokkra
planka, 30 sm. á breidd. Brúin er í
20 m. hæð yfir á nokkurri. Þegar
burðarmennirnir voru að fara yfir,
steig einn þeirra á planka, sem
sporðreis og var ekki annað sýnt
en vesalings maðurinn styngist í
djúpið, en hann fékk gripið í aðra
keðjuna, þar sem hann hékk, þar
! til félagi hans kom og barg honum
úr háskanum, sem hin skjálfandi
1 brú bjó honum.
I Upp frá þessú varð að taka til
þess bragðs að láta burðarmennina
j vaða árnar, og hefir ekkert óhapp
hlotizt af því.
Ræktunarsambönd —
Búnaðarfélög
ALGJÖR NÝUNG.
Nýtízku vólar notaðar.
Hefi opnað viðgerðar
stofu til viðg. og end-
urnýjunar á eldsneytis-
lokum í ALLAR tegund
ir Dieselvéla. Sætin í
eldsneytislokunum slíp-
uð á réttri gráðu, enn-
fremur nálarnar, einn-
ig skipt um nálar ef
nauðsynlegt er. Botn-
arnir planaðir og lyfti-
hæS rét4 af. Lokarnir
síðan þrýstireyndir og
innstilltir fyrir réttan
þrýsting.
Komið með eða sendið loka til viðgerðar og endur-
nýjunar sem fyrst, svo þér hafið þá tilbúna til að
setja þá í vélarnar þegar vorannir hefjast. — Takið
fram heiti vélar og hestaflafjölda. Eldsneytislokarnir
sendir til baka gegn póstkröfu ef óskað er.
Eldsneytislokarnir verða uppgerðir sem nýir.
Dieselvélaeigendur! — Reynið viðskiptin.
Sparið peninga! Sparið erlendan gjaldeyri.
það gerið þið með því að láta mig endurnýja
eldsneytislokna.
Viðgerðarstofan Laugavegi 72.
Heima: Leifsgötu 6. Sími 7044.
EDWARD PROPPE.
Geymið auglýsinguna. '
ÍÍÍÍÍJÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍSÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍJÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍJÍ
/ 7rnmm
Jarðarför
GÍSLA LAFRANZSONAR,
fer fram laugardaginn 6. marz og hefst með bæn frá
heimili mínu, Björk í Flóa kl. 12,30. — Blóm og krans-
ar afbeðið.
Jón Gíslason.