Tíminn - 13.07.1954, Qupperneq 1
Bkriístoíur 1 Edduhú*S
Fréttaslmar:
81302 og B1303
Aígreiðslusíml 2323 I
Augiýsingasíml 81300
Frentsmiðjan Edda.
38. árgangur.
Reykjavík, þríðjudaginn 13. júlí 1954.
153. blað.
[- '
!
Mynd þessi er frá komu Ismay lávarðar til Reykjavíkur. Við hlið hans standa þeir dr.
Kristinn Guðmundsson utanríkisráðherra og Ólafur Thors forsæíisrááherra.
Ismay lávarður framkv.stj. Atlanz-
hafsbandal. kominn í heimsókn
í heÍMÍ msimians cr ekki nm eiisaiígrms
klsitfeysi að- ræða, segir Iiann
Ismay lávarður framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalags
Sns kom hingað til lands með einkaflugvél frá London laust
eftir klukkan tólf á miðnætti aðfaranótt mánudagsins. í
fylgd með iávarðinum voru herra Pasons og ungfrú Jane
Edwards einkaritari lávarðarins. Enfremur komu með hon-
greinarmun er að ræða milli
stórra ríkja og smárra né
milli ríkra landa og fátækra.
Þess vegna hefir minn ágæti
vinur Hans Andersen, fasta-
fulltrúi íslands, riákvæmlega
jafnmikil völd og fastafull-
(Framhald a 7. aiðu).
Bíll með þrem mönnum
steypist í IViiðfiarðará
Slffijíjm elllr lífs ©g !í<B meidtílL’. HíIIíhh
var fjpemisuSaiss skeiuEudlst alluiiktð*
Frá fréttaritara Timans á Blönduósi.
Síðdegis í gær varð það slys, að fólksbifreið úr Reykja-
vík steyptist með þremur mönnum í Miðfjarðará. SIuppu
þeir allir Iifandi, en bíllinn er mikið skemmdur.
Nánari atvik eru þau, að
bíllinn, sem var á norðurleið,
reyndist vera með bilaða
hemla, þegar komið var norð
ur í Húnavatnssýslu. Var þá ,
ákveðið að fá lagfæringu á .
bílaverkstæði í Árnesi, sem j
er handan brúarinnar yfir
ána skammt frá þjóðvegin-
um.
! Fór í kaf.
I Þegar bíllinn var að fara
upp brekkuna, er hggur upp
frá brúnni, drap hann á sér
og ronn aftur á bak út al
vegmum og steyptisí niður
brekku og oían í ána.
Kom hann niðu.r á hjólun-
um, en mátti heita í kafi.
Akrancs-Yíklngísr
4:0.
I
] Níundi leikur Islandsmóts-
j ins í knattspyrnu fór fram
j á íþróttavellinum í gærkvöldi
milli Akurnesinga og Víkings
og fór leikar svo. að Akur-
nesingar unnu með 4 mörk-
um gegn engu.
Tveimur mönnum tóks.t að
komast strax út úr bíinu.n,
en þriðja félaga sínum náða
þeir ekki út, fyrr en hann var
oréinn meðvitur.da rlaus.
Kom hann þó fljótt til með-
virundar aftur. Sluppu þeir
fé’agar frá þessu óhugnan-
lega ævintýri uif.filu lega htiff
meiddir.
Danfiegt á síldar-
miðunum í gær
Dauflget var á síldarmið-
unum í gær. Hvergi var vart
við síld að kalla fyrr en í gær
kvöldi. Þá sást nokkur síld
undan Rauðunúpum, en blað-
inu var ókunungt um veiðí,
er prentun hófst í gærkvöldi.
Aðeins fá skip með litið
magn sildar komu til Siglu-
fjarðar í gær. Síldarverk-
smiðjur rikisins þar voru bún
ar að taka á móti 18.200 mái-
um í gærkvöldi.
um Hans G. Andersen fulltrúi Islands í ráði bandalagsins
og’ Óltar Þorgilsson staifsmaður viö upplýsingadeild stofn-
unarinnar.
Mótttakan á flugvellinum.
Dr. Kristinn Guðmundsson
utanríkisráðherra tók á móti
Ismay lávarði, er hann steig
út úr flugvélinni ásamt fylgd
arliði sínu. Viðstaddir voru
ennfremur Ólafur Thors for
sætisráðherra og þeir Hendrik
Sv. Björnsson forsetaritari
og Niels P. Sigurðsson, sem er
Julltrúi í þeirri deild íslenzka
iutanríkisráðuneytisins, sem
hefir með málefni Atlants-
hafsbandalagsiris að gera.
í gærkvöldi flutti Ismay lá
varður eftirfarandi ávarp í t
útvarpið til íslendinga:
„Það er mér mikil ánægja,'
að vera nú staddur í Reykja-
vik sem gestur ríkisstjórnar
íslands. Eg er stoltur af því,
að ísland er eitt hinna 14
þátttökuríkja, sem ég þjóna
sem framkvæmdastjóri Norð
ur-Atlantshafsbandalagsins.
Yður er sjálfsagt kunnugt,
að ráð bandalagsins hefir
bækistöð sína í París, og að
í því sitja fulltrúar 14 ríkis-
stjórna sjálfstæðra fullvalda
ríkja, þar sem hvorki um
ingaframkvæmdir hefj-
ast við sementsverksm. í sumar
Ríkissíjftmin imm hafa ákvcðið að vcrja
þrcm millj. kr. fil framkvænulaima í ár.
Frá jréttaritara Tímans á Akranesi.
í sumar eru ráðgerðar allmiklar framkvæmdir við
byggingu sementsverksmiðjunnar á Akranesi. Fram
kvæmdir þar efra munu hefjast á næstunni.
Iþað því miklar fréttir og góð
ar, að í sumar skuli ei’ga að
fara að hefjast har.da um
sjálfar byggingarframkvæmd.
ir verksmiðjunnar. GB.
Fjórfalt vatnsmagn
Bátur missti báða
nótabátana og nótina
Maf^p.r hrökk fyrir borð en náðist
Frá fréttaritara Timans á ísafirði.
Vélbáfurinn Guðmundur Þorlákur varð fyrir því óhappi,
er hann var staddur 35 sjómílur norffvestur af Grímsey,
aff missa báða nótabátana og nótina. Einnig missti bát-
urinn út rnann þegar þetta kom fyrir, en hann náðist strax
og varff ekki meint aí.
Þegar þetta skeði var nokk
ur kaldi, 5—6 vindstig og
nokkur alda, og voru skip-
verjar að taka bátana upp í
davíðana. Þá brotnaði fremri
lykkjan í öðrum bátnum, og
báturinn stakkst niður á end
ann og sökk samstundis.
Hinn báturinn var í talíum
en ekki búið að lyfta honum,
en það reyndist ómögulegt að
ná honum upp og fyllti hann
við skipshliðina og sökk. Nót-
in var í þeim bát.
Guömundur Þorlákur kom
hingaö til ísafjarðar í gær
og fær hér báta, en varanót
á hann. GS
Eins og kunnugt er, var í
fyrra dælt upp mikiu magni
af skeljasandi til verksmiðj-
unnar, sem endast á i tveggja
ára framleiðslu. Áður en það
var gert hafði verið byggður
grjótgarður mikill á leirnum
fram af Langasandi með fjör
unni, og myndar sá grjót-
yeggur sandþró verksmiðj -
unnar. Einnig er þegar búið
að vinna mikið af hafnar-
mannvirkjum þeim, sem nauð
synleg eru á staðnum, en
miklu verki er þar lokið.
Undirbygging verksmiðju-
húsanna.
í sumar verður reynt að
gera hafnarmannvirki þessi
þannig úr garði, að þau séu
fullnægjandi, svo liægt sé
að hefja bygginguna, sem
nær fram á hafnarmann-
virki og er áætlaður kostn-
affur við mannvirki J»essi um
hálf önur milljón króna. Eru
þá enn eftir ófuJIgerð hafn-
armannvirki önnur í sam-
bandi við verksmiffjuna.
Ráðgert er að vi»ma í sum-
ar aff undirbyggingu verk-
smiöjuhúsanna sjálfra og
steypa grunn þeirra. Er ráð-
gert aff vinna að verksmiðju
framkvæmdunum fyrir um
þrjár miHjónir króna, sem
ríkisstjórnin mun hafa á-
kveðið að verja til þessara
framkvæmda á þessu ári til
að flýta byggingu verksmiðj
unnar, er fengin eru heild-
arlán til framkvæmdanna.
Sementsverksmiöjan er eitt
af brýnustu nauðsynjamál-
um þjóðarinnar í dag, og eru
í Skeiðará
Frá fréttaritara Tímans
í Öræfum.
Skeiðará virðist enn hafa
vaxið nokkuð síðustu 2 dag-
ana og mun nú vera um það
bil fjórfalt vatnsmagn í
henni miðað við meðalvatns
magn aö- sumri. Breiðir hún
orðið dálítið úr sér en aðal-
vatnsmagnið þó nn í fyrri
farvegum. Hún er ekki enn
búin að brjóta af sér jökul-
inn svo að ekki er um raun-
verulegt hlaup að ræða og
ekki einu sinni víst að svo
veröi. Brennisteinslykt legg-
ur enn af henni og sorti fell-
ur á málma. Síminn virðst
kk enn í verulegr hættu. SA,