Tíminn - 13.07.1954, Blaðsíða 2
TÍMINN, þriðjudaginn 13. júlí 1954.
153. blað.
Gestir á Hótel Borg
Tíminn mun framvegis birta nöfn
þeirra gesta, sem búa á Hótel Borg
og ekki eru þar fastir gestir. Að
þessu sinni eru nefndir allir þeir
gestir, sem komið bafa síðustu
daga og búa þar enn. F.n framvegis
verður sá háttur haföur á, aö birta
nöfn nýrra gesta frá degs ti! dags.
Ætti þetta nýja cfni biaðsins að
geta orðið mörgum ti! hægðatauka,
ekki sízt þegar um er að ræða
fólk, sem þarf að reka viðtæk er-
indi við marga hér < bæ.
Lord Ismay
Hr. Pasons
Miss Jane Edwards
Mrs. Helen Nelson Englund
Hr. O’Neill Osborn
Hr. Gaston Jaecard, sendiherra
Hr. stórkm. Garðar Gíslason
Hr. Aðalbjörn Tryggvason
Hr. Andres Angström
Hr. Nyberg
Hr. Walter Berger
Hr. Antczak Stanistan, pólski
sendiherrann, og Mucal Woj-
zcek
Hr. Hans Hersfeld
Hr. Klemens Sörensen
Hr. Dowrik og írú
Hr. Barry Warner
Dr. Warner og frú
Hr. Harald Ögland
Hr. de Boisgelin
Hr. Brunet
Hr. Ole Lökvik og frú
Hr. Wander
Hr. Stefán Bjö-'nsson
Prk. Hjördís ögland
Hr. Kjartan Friðbjarnarson
Hr. Trane
Frú Kristín Björnsdóttir
Hr. Hans Gensler
Hr. Lester Sternin
Hr. Erik Linklater
Hr. Óttar Þorgilsson
Hr. Hans Andersen
Hr. Hesselberg
Hr. Plage
Hr. Madsen
Hr. Lauge Kock
LOKU
vegna sumarlevfa frá 15. júlí — Opnum aftur þann
3. ágúst að Ingólfsstræti 6.
LJÓSMYNDASTOFAN LOFTUR H.F.
.■AV.V.V
V.V
Útvarp'ið
■Útvarþið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
19.30 Tónieikar: Þjóðlög frá ýms-
um löndum (plötur).
20.30 Erindi: Þættir um gróður
landsins; I. (Steindór Stein-
dórsson mentnaskólakennari).
21.00 Tónleikar (plötur).
21.25 íþróttir (Sigurður Sigurðsson)
21.40 Tónleikar (plötnr).
22.10 „Á ferS og flugi“, Bkemmti-
saga, í þýðingu Björns Jóns-
sonar ritstjóra; I. (Sveinn
Skorri Höskuldsson les).
2225 Dans- og dægurlög (plötur).
23.00 Dagskrárlok.
Árnað heilla
70 ára.
í gær varð Guttormur Pálsson,
skógarvörður, 70 ára. Hann stund-
aði skógræktarnám í Danmörku
frá 1904—1908 og lýðháskólanám í
Askov 1905—1906. Síðan gerðist
hann skógarvörður á Hallormsstao
og hefir hann það starf enn á
hendi. Guttormur hefir unnið mik
ið að félagsmálum, verið í skatta-
nefnd og form. skólanefndar. Hann
hefir unnið að ritstörfum og meðal
rita hans eru Hallormsstaður og
Hallormsstaðarskógur.
Isniay
(Framhald af 1. síðu).
trúi hinna voldug Banda-
rikja. Hið sama má segja um
fyrirrennara hans Gunnlaugi
Pétursson, sem um langan
tíma starfaði með ágætum í
ráði bandalagsins.
Allar ákvarðanir ráðsins
verður að gera í einu hljóði.
Ekkert land þarf að gera
neinar ráðstafanir, sem það
getur ekki fallizt á, jafnvel
þótt 13 bandalagsríki fari
þess á leit. Engu að síður hef
ir einróma samþykkt jafnan
náðst fyrr eða síðar af þeirri
einföldu ástæðu, að stefnu-
mið vor eru hin sömu. Það
sem næst liggur, er að byggja
Myndiu sýnir Iíofskirkju í Öræfum eins og hún var áður en
viðgcrðin fór frain. Hún er fallegt og sérkennilegt hús, sem
nýtur sfn vel í því landslagí, sem þarna er.
Vigsla Hofskirkju í Ör-
æfum á sunnudaginn
Hofskirkja í Öræfum, h:n gamla og endurreista kirkja
úr torfi og grjóti, var vígð á sunnudaginn að viðstöddu
mörgu fólki úr sveitinni og hvorki meira né minna en sjö
prestvígðum mönnum, og munu vart í annan tíma, að
minnsta kosti cKki um langan aldur hafa verið svo margir
idgðir menr ásamí í Öræfum, enda var tilefnið ánægju-
legt Blaðið hafði tal af Kristjáni Eldjárn, þjóðminjaverði,
nýkornnum heim frá vígslunni í gær.
VID ÞÖKKQM hjartanlega stjórn Kaupfélags Ár-
nesinga, fararsrjórum, bílstjórum, gestgjöfum og þjón
ustuhði á gistlnúsum þeim, sem við borðuðum og gist-
um á, í hinni ógleymanlegu skemmitferð, sem Kaup-
félag Árnesinga bauö okkur í dagana 5.—6. júlí 1954.
IvONUR AF STOKKSEYRI
.‘.V.V.V.V.V.V.V.V/.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.’.VAV
Opnum útibú
á KeflavikurflugvelSi
Opnum í dag M. 11 f. h. útibú á Keflavíkurflugvelli.
Eðnaðarbaraki íslands h.f.
upp sameiginlegar varnir, unz
þær hafa náð því marki, að
um árás verði vart að ræða.
Á þann hátt þarf að tryggja
friðinn. En í stofnskrá banda
lagsins er einnig sérstaklega
gert ráð fyrir þvi, að banda-
lagsþjóðirnar vinni saman að
efnahagsmálum, félagsmálum
og menningarmálum í því
skyni að bæta lífsafkomu
allra manna meðal þjóða
vorra. Auðvitað slær stund-
um í brýnu, svo sem gerizt í
friðsömum fjölskyldum. En
hér er aðeins um fjölskyldu-
deilur að ræða. í aðalatrið-
um erum vér algerlega sam-
mála.
ísland er níunda land
bandalagsins að stærð en hiö
fólkfæsta að íbúatölu. Land-
ið á sér ekki margar auðlyndir
og mér er tiáð að lífsbaráttan
hér sé örðug. En fyrir sakir
legu sinnar hefir landið mjög
hernaðarlega þýðingu fyrir
bandalagið. Svo sem kunnugt
er, hefir tækni nútímans gert
fjarlægðir að engu, hvort sem
er á landi eða sjó, og ísland
er sem næst miðsvæöis inn-
an NorðurAtlantshafssvæðis-
ins, enda er það þýðingar-
mikill viðkomustaður á sjó-
og loftleiðum um Atlantshaf,
þegar í nauðir rekur. Það er
bandalaginu mikill styrkur.
að íslendingar höfðu kjark
og raunsæi til að gera sér það
ljóst, að í heimi nútímans
getur ekki verið um einangr-
un og hlutleysi að ræða.
Hinar frjálsu þjóðir geta því
aðeins verið frjálsar, að þær
standi sem órofa heild.
Öll aðildarríki Atlantshafs
bandalagsins verða að færa
nokkrar fórnir. Sum þeirra
verða líkt og ísland að hafa
herlið bandalagsríkja í landi
sínu. Slíkt er jafnan erfitt,
hvort sem á málið er litið frá
sjónarmiði landsins sjálfs eða
frá sjónarmiði þess herafla,
sem starfa verður fjarri
heimalandi sínu. Slíkt fyrir-
komulag krefst skilnings og
umburðarlyndis, ekki sízt á
þjóðamálum, én mér virðist
slíkt þó lítil fórn, miðað við
tímum allmikilla átaka í al-
Hofkirkja í Öræfum er torf
kirkja og var orðin hrörleg
en hefir nú verið endurreist
í fyrri mynd sinni að forsögn
þjóðminjavarðar.
Torfþak yfir sköruðum hellum
Veggir kirkjunnar eru að
mestu úr grjóti en þekja er
þannig, að innst er viðarsúö
en síðan lagðar á hana skar
aðar hellur gerðar af náttúr-;
unnar hendi en þar yfir torf.!
Að innan er kirkjan þiljuð og
tekur um 100 manns í sæti.
Kirkjan er þiljuð innan og
máluö og er Ijómandi snot
ur bæði utan og innan.
Vígsluathöfnin á sunnudag.
Biskup landsins, herra Ás-
mundur Guðmundsson, vígði
svo kirkjuna á sunnudaginn.
Voru þar saman komnir lang
flestir Öræfingar en auk þess
bar svo við, sem ekki er á
hverjum degi í Öræfum, að
þar voru viðstaddir sex prest
vígðir menn, þ. e. fimm prest
ar auk biskups. Mun að
minnsta kosti mjög langt sið
an svo margir vígðir menn
hafa verið þar ásamt. Pró- ■
fasturinn, séra Eiríkur Helga
son gat þó því miður ekki
verið viðstaddur vígsluna sök:
um lasleika.
! Séra Sváfnir Sveinbjarnar-
j son sóknarprestur predikaði ‘
og prestar iásu ritningarstaði
úr kórdyrum. Kristján Eld-
járn flutti einnig ávarp 1 til-
iefni af endurreisn kirkjunn-
iar- |
| Eftir vígsluna var boðið til
kaffidrykkju 1 félagsheimil-
inu að Hofi. Þar voru haldn-'j
ar ræður, og hafði Páll Þor-
steinsson alþingismaður þar
orð fyrir heimamönnum.
Allir voru hinir ánægðustu
með hina endurreistu kirkju
og hina hátíðlegu vígsluat-
nöfn, sem fór ágætlega fram.
Hofskirkja fer sérstaklega
vel i því landslagi, sem þarna
er, og er til hinnar mestu
prýði.
FYRIRLIGGJANDI
glæsilegt úrval heimilistækja.
Ryksugur '' ’
Bónvélar
Hrærivélar
Straujám
Strauvélar
Vöffhijárn
Þvottavélar
og önnur
heimiíistæki
Heimsþekkt vörumerki — Hagkvæmir greiðsluskilmálar
DRÁTTARVÉLAR h.f.
Hafnarstræti 23 — Sími 8 13 95
esSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS!
Þakjárn
fyrirliggjandi.
SINDRI H.F.
Hvevfisgötu 42 — Sími 8 24 22.
«SSS55SSSSSSS5S55SS5SSSSSSSS5SSSSSSSSSS5SSSSSS$$SS5SSS5SS5$SSSSS3555S554
CSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS*
það öryggi, sem það veitir
gegn hinum ólýsanlegu hörm
ungum. er af nýrri heims-
styrjöld myndi leiða.“
Ferguson
dráttarvél, ný, til sölu á kostnaðarverði, ásamt plóg og
sláttuvél. — Upplýsingar gefur Jón Bjarnason, Lang-
holtsvegi 131 Revkjavík og í síma 7259 kl. 4—6 næstu
daga. ,
eS5SSSS3$SSS535355S5SS5SSSS53S3553SSS3SS5SS5SS3S55$55SS3SS$S3SSS$SSSSSS»