Tíminn - 29.07.1954, Síða 8
ERLENT YFIRLIT 1 DAG:
RafaeI Leonidas Trujillo
38. árgangur.
Reykjavík.
23. júli 1954.
167. blaS.
Kommúnistar dæma
Mskup í 25 ára
fangelsi
Lcndon, 28. júlí. — Róm-
vers-katólski biskupinn í
Litomerice í Tékkóslóvakíu,
Stefan Trochta, hefir verið
dæmdur í 25 ára fangelsi
fyrir glæpsamlega starf-
semi gegn ríkinu, að því er
segir í tilkynningu frá Tass-
fréttastofunni. Segir þar, að
i réttarhöldunum hafi kom-
ið í Ijós, að biskupinn ásamt
3 katólskum prestum hafi
unnið að því síðan 1947 að
kollvarpa núverandi stjórn
landsins og koma á auð-
valdsskipulagi. Allir hinir
seku játuðu sekt sína, sagði
í tilkynningunni. Einn
hinna þriggja presta var
dæmdur í 20 ára fangelsi,
annar í 15 og sá þriðji í 7
ára fangelsi.
Rhee vil! að látið verðitil
skarar skríða gegn Kínverjum
Washington, 28. júlí. — Syngman Rhee, forseti S.-Kóreu, er
þessa dagana staddur í Bandaríkjunum í boði Eisonhowers
forseta. Ávarpaði hann Öldungadeild Bandaríkjaþings í dag
og stakk upp á því að Asíulöndin hæfu það sem hann kallaði
gagnsókn gegn kínvcrska alþýðulýðveldinu. Tveggja millj-
óna her Asíumann, vopnaður bandarískum vopnum, og
studdur af bandarískum flugher og flota, skyldi látinn hcfjá
sóknina.
Hér er þá sá frægi tréhestur frá Trojuborg. Að vísu er hann
nýrri tima smíði og er byggður í kvikmyndaveri Warner-
bræðra, sem utn þ^ssar mundir eru að gera kvikmynd um
Paris prir.s og HeJenu hina fögru. Hesturinn er þýðingar-
mikið aíriði í kvikmyndinni. Hann er um 10 metra hár og
vegur 20 smálestir.
Mörg þúsund ferkílómetrar lands
í Indlandi undir vatni níu fljóta
Flóðin síafa af Alonsiíaregni og leysingum
í Himalnya. Járnbrantarsamgöiigar rofnar
New Dehli, 28. júlí. — Níu stórár á Norður-Indlandi flæddu
yfir bakka sína í dag eg er óttast að fjöldi manns hafi farizt.
IVIörg þús. ferkílómetrar lands eru undir vatni. Talið er að
ein milljón manna búi á flóðasvæðinu. Ailar járnbrautar-
samgöngur eru rofnar við norðurhluta Indlands, þar eð flóð-
in hafa sópað burt mörgum brúm á járnbrautarlínunni.
Áin Kosi hefir einkum vax-
tS mikið vegna Monsunrign-
nga og leysinga í Himalaya-
jöllum. Mestur hluti bæjar-
ins Supaul í Sihar-héraði er
á floti sökum flóða úr ánni
auk þess, sem 300 sveitaþorp
eru á kafi í vatni og mörg
fleiri eru í yfirvofandi hættu.
lárnbrautarsamgöngur
rofnar.
Járnbrautarsamgöngur við
norðurhluta landsins eru
rofnar, þar eð margar brýr
hafa sópast burtu. Mörg þús-
und landbúnaðarverkamenn
eru atvinnulausir, því að akr
arnir hafa eyðilagzt.
Bjargaði sér upp á trjátoppa.
Margt fólk, sem bjaygaði
sér undan flóðinu upp í trjá-
toppa eða smáhæðir, er alger
lega einangrað og getur orð-
ið erfitt að koma því til hjálp
ar. Flóð hafa einnig orðið
mikil á landamærum Burma
og Indlands og í Nepalríki er
Katmandu-dalurinn einangr
aður. Eini flugvöllurinn, sem
er í dalnum, hefir eyðilagzt.
Yfirborð Saghmati-árinnar,
sem fellur um dalinn, er
hærra en það hefir nokkru
sinni verið undanfarin 50 ár.
Buddha-klaustur eyðilagt.
í Rhaiuing hreif flóðið
(Framhald á 7. síðu.)
Sænskur leyniiögregfumaður
rannsakar hvarf dr. Jofin
Br. Jolm hólt ræð« í útvarp í A-Fterlio í
gær og var sími hressari í máli í þetta sinn
Berlín, 28. júlí. — Yfirmaður vestur-þýzku öryggisþjón-
ustunnar dr. Otto Jchn, sem hvarf með dularfullum hætti
til A-Berlínar í fyrri viku, talaði í kvöld í útvarp frá A-
Berlín. Sagði hann að sér hefði verið vel ljós hin mikla
ábyrgð, er hann tók sér á herðar, með því að leita hælis í
Austur-Berlín.
Hressari en fyrr.
Dr. John hefir áður talað
í Austur-þýzka útvarpið, ef
það var þá hann sjálfur. —
Þótti hann þá daufur í dálk
inn, en var nú miklu hress-
ari í ináli. Hann sagði, að
(Framhald á 7. síðu.)
Hann hefði fyrst og fremst
gert það til þess að vinna að
einingu Þýzkalands. Jafn-
framt réðist hann á utan-
ríkisstefnu Adenauers kansl-
ara, og kvað hana hina ó-
heillavænlegostu.
Hefir bæjarráð
mismunað björgun-
arsveitum í spor-
hundum
Bæjarráð hefir nú hafnað
beiðni Slysavarnafélagsins
um að mega hafa sporhund
á sínum vegum. Hundahald
er bannað hér í bænum, en
þó mun vera um nokkrar
undanþágur að ræða, þar
sem eitthvað er um kjöltu-
rakka og svo stærri hunda.
Ekki liggur Ijóst fyrir hvaða
skilyrði hundar þurfa að
uppfylla til að finna náð fyr
ir augum bæjarráðs. Slysa-
varnafélaginu er þörf á spor
hundi, vegna björgunarstarf
semi sinnar, sem er þyngri á
metunum en uppihald kjöltu
rakka og annarra gæludýra.
Þessi neitun bæjarráðs virð-
ist því vera gerð alveg út í
(Framhald á 7. síðu.)
Þróttnr keppir
í Keflavík
Tveir flokkar úr Knatt-
spyrnufélaginu Þrótti fóru i
j keppnisför til Keflavíkur sl.
iþriðjudag. Fyrst háði þriðji
fl. leik við Knattspyrnufélag
■ Keflavíkur og lauk honum
með sigri Þróttar 2:0. Því
næst lék 1. fl. við íþrótta-
bandalag Suðurnesja og sigr
uðu Suðurnes með 4:0.
Eftir leikinn buðu Kefl-
víkingar hópnum til kaffi-
'drykkju, en 29 manns tóku
þátt í ferðinni. Er þetta önn
ur keppnisferð Þróttar í sum
ar, hin fyrri var til ísafjarð-
ar.
Við skulum minnast þess,
sagði forsetinn, að það verð-
ur aldrei unnt að skapa frið í
heimi, þar sem annar helm-
ingurinn er kommúnistískur,
en hinn býr við lýðræðis-
skipulag.
Svæfa þá sefninum langa.
Bandaríkjaþing yrði að
taka röggsamlega ákvörðun,
sém gæti tryggt frelsi Asíu-
rikjá, en það myndi af sjálfu
sér bægja kommúnistahætt-
unni frá öllum hinum heims-
álfunum. Aðferð kommúnista
er sú, að rugga Bandaríkja-
I mönnum í dauðasvefn með
því að tala um frið, unz Ráð-
i stjórnarríkin eiga nægilega
margar vetnissprengjur og
flugvélar til að gera flugvelli
og framleiðslustöðvar í Banda
rikjunum að dufti og ösku.
Rhee sagði fréttamönnum
í gær, að hann væri vonlaus
um sameiningu Kóreu með
friðsamlegum hætti. Allir
samningar, sem lýðræðisþjóð
irnar hefðu gert við kommún
ista, hefðu endað með því að
láta undan kommúnistum,
og bæta þannig aðstöðu
þeirra til nýrra árása.
Ráðherraskipti í
stjórn ChurchiIIs
London, 28. júlí. — Churchill,
forsætisráðherra Bretlands,
tilkynnti í kvöld nokkrar
breytingar á stjórn sinni, en
hún hefir nú setið að völdum
í nærri 3 ár. Breytingar þess-
1 ar ná alls til sjö ráðherra-
1 embætta. Eru þær helztar, að
1 Oiiver Lyttelton, nýlendu-
málaráðherra, lætur af því
j embætti, en hann hefir lengi
jviljað losna úr stjórninni.
' Teku» Lennox Boyd við em-
bætti hans. Landbúnaðarráð-
herrann, Dugdaie, baðst einn
ig lausnar fyrir skömmu og
tekur Archibald Carpenter
við starfi hans.
Meistaramótið í
róðri í kvöid
íslandsmeistaramótið í
róðri fer fram í kvöld og
keppa tvær sveitir, önnur frá
Róðrarfélagi Reykjavíkur, en
hin frá Ármanni. Keppnin
hefst kl. 9 frá Shell-bryggj-
unni i Skerjafirði, en lýkur
í Fossvogi. Vegalengdin er
2000 metrar. Keppt er um
bikar, sem Árni Siemsen,
ræðismaður íslands í Lúbeck
gaf, er fyrsta meistaramótið
jvar háð 1950. Róðrarfélagið
, bar sigur úr býtum tvö fyrstu
skiptin, en í fyrra vann Ár-
mann. Bezt er að fylgjast
með keppninni úr Nauthóls-
vík.
Tiíraun til að spilla
miili Vesturveld-
anna
Washingtcn, 28. júlí. — Eis-
enhower forscti hélt hlaða-
mannafund í dag og kvað
kínversku kommúnistástj.
nota atburði við Iíínastrend
ur til þess að vekja sundr-
ung meðal Vesturveldanna.
Þegar Kínverjar skutti niS-
ur brezku Skymasterflugvél
ina, sendu beir afsökunar-
beiðni hið skjótasta, en
gagnvart Bandaríkjamönn-
um taka þeir allt aðra af-
stöðu, sagði forsetinn. Eiscn
hower sagði, að fregnir frá
París bentu til að fólk þar
teldi Bandaríkin hafa rasað
um ráð fram pg sýnt óþarfa
hörku í máli þcssu. Þetta
hefði þó ekki vcrið ætlun
þeirra og flotadeildin, sem
tók þátt í björgunarstarf-
inu, fékk skipun um að forð
ast árekstra, en verja sig,
ef á hana yrði ráðist.
Sami umboðsmaður fyr
ir báða höf. Gimbfls
Gimbill er stöðugt mikið
umræðuefni manna á með-
al og höfundur hans, eink-
um sá íslenzki, sem enn læt-
ur ekki til sín heyra. Veröur
hann sýnilega af höfundar-
launum, en ekki séð enn,
hvort hann fær þýðingar-
laun út á höfundarheitið
Yðar einlægur, sem óumdcil
anlega verður að tcljast
gerfinafn úr þessu.
Umboðsmaður valinn.
Það má segja að Yðar ein-
lægur hafi ekki gert það
endasleppt við Mr. Savory,
höfund leikritsins, George
og Margaret, því umboðs-
maður þeirra á íslandi er
einn og sami maður, Sigurð-
ur Reynir Pétursson, lög-
fræðingur. Öllu hcldur er
Sigurður umboðsmaður þess
fyrirtækis, er gætir réttinda
ðlr. Savory í sambandi við
leikritið. Stendur haiin því
næst því allra manna á ís-
landi að gæta réttinda Mr.
Savory. Vitanlega hafði Sig-
urður ekki hugmynd uni
skyldleika verkanna, þegar
hann tók að scr umboð fyrir
höfund Gimils.
Vandi á höndum.
Sigurði Reyni Péturssyni
er mikill vandi á Iiöndum í
sambandi við þetta mál.
(Framhald á 7. síðu.)