Tíminn - 01.10.1954, Blaðsíða 6

Tíminn - 01.10.1954, Blaðsíða 6
TÍMINN, föstudaginn 1. október 1954. 220. blað. wjm bjGdleikhösid Topaz Sýning í kvöld kl. 20. 96. sýning. Nitouche óperetta í þrem þáttum. Sýning sunnudag kl. 20. Venjulegt Xeikhúsverð. Aðeins örfáar sýningar. Aðgöngumiðasalan opin frá kl. 13,15—20,00. Tekið á móti pönt- unum sími: 8-2345 tvær línur. Sólarmegin götunnar Frankie Laine Billy Daniels Terry Moore Jerome Ceurtland. Sýnd kl. 5, 7 og 9 NYJA BiO — Ih44 — Kfeð söng í hjarta i (With a song in my heart) EEeimsfræg, ameríjk stórmynd 1 litum, er sýnir hina örlagaríku Bevisögu söngkonunnar Jane Froman. Sýnd kl. 5, 7 og 9. TJARNARBÍÓ Síml B4M. Louise Afburðaskemmtilee: og vel leikin frönsk óperumynd, byggS á samnefndri óperu eftir Gustave Charpentier. Aðalhlutverkið leikur hin heimsfræga leikkona Grace Moore, sem fórst af slysförum fyrir nokkrum árum. 120 manna hljómsveit leik- ur í myndinni undir stjórn tónskáldsins Eugene Bigot. Leikstjóri: Abel Gance. Sýnd kl. 5, 7 og 9. BÆJARBIO — HAFNARFIRÐI - Lögr cglnþ j ónnlnn og þjófurinn Heimsfræg ítölsk verðlauna mynd, er hlaut viðurkenningu á alþjóða kvikmyndahátíð í Cann es sem bezt gerða mynd ársins. Poddo hinn ítalski Chaplin, hlaut „Silfurbandið'1, viðurkenn ingu Italskra kvikmyndagagn- rýnenda. Aðalhlutverk: Addo Fabrizi, Todd, Rossana Podstrea hin unga ítalska stjarna. Mynd- in hefir ekki verið áður nd hér á landl. Danskur skýringartexti. Sýnd kl. 7 og 9 Simi 9184. Cemia-Desinfector er veliyktandi vótthreineandí vökvi nauðsynlegur & hverju heimill tll sótthreinsunar 4 munum, rúmíötum, húsgögnum, aímaáhöldum, andrúmsloftl e. •. írv. — Fæst £ öllum lyíjabúð- um og ■nyrtlvöruverslunum. ÍLEIKFEIAG! taKjAyftajifl Frænka Charleys Gamanleikurinn góðkunni. Árni Tryggvason í hlutverki „frænkunnar". Sýning í kvöld kl. 8. Aðgöngumiðar seldir í Iðnó í dag eftir kl. 2. Sími 3191. AUSTURBÆJARBIO 1 opiun daufSann (Captain Horatio Homblower) Aðalhlutverk: Gregory Peck, Virginla Mayo, Bönnuð bömum innan 14 ára Sýnd kl. 5, 7 og 9. Síðasta nn. Sala hefst kl. 4 . h. Allra síðasta sinn. GAMLA BÍÓ — 147» — Nóttin langa (Split Second) Óvenju spennandi ný amerísk kvikmynd. Sagan, sem yndin er gerð eftir kom sem framhalds saga í danska vikublaðinu „Hjemmet" í sumar. Aðalhlutverk: Stephen McNally Alexis Smith Jan Sterling Sýnd kl. 5, 7 og 9 Bönnuð börnum innan 16 ára. TRIPOLI-BÍÓ Bimi llö. Johnny Holitlay Frábær, ný, amerísk mynd, er fjallar um baráttu kornungs drengs, er lent hefir út á glæpa- braut, fyrir því að verða að manni, í stað þess að enda sem glæpamaður. Leikstjórinn, Ronnie W. Alcorn upplifði sjálf- ur í æsku það, sem mynd þessi fjallar um. Aðalhlutverk: Allen Martin, William Bendix, Stanley Clements, Hoagy Carmichael. I*ctta er mynd, sem enginn ætti að iáta hjá líða að sjá Sýnd kl. 5, 7« Kennarafélag Vest- fjarða Kennarafélag Vestfjarða hélt 12. aðalfund sinn dag- ana 18. og 19. sept. sl. Voru kennarar mættir víðs vegar að af Vestfjörðum. Forseti fundarins var kjörinn Hjört- ur Hjálmarsson, kennari. Á fundinum flutti Sigurð- ur Gunnarsson, skólastjóri í Húsavík, erindi um vinnu- bókagerð og gaf ýmsar leið- beiningar varðandi slíka starf semi, en Sigurður hefir kynnt sér þessi mál meðal hinna Norðurlandaþjóðanna og í Englandi. í sambandi við er indi þetta var sýning á vinnu bókum skólabarna í Húsavík. Snorri Sigfússon, fyrrv. námsstjóri flutti erindi um sparifjársöfnun skólabarna. Þá voru nokkuð ræddar til lögur að námsskrá, er nefnd sú hafðj samið, ér skipuð var af menntamálaráðherra 1953. Framsögumaður í því máli var Þorleifur Bjarnason, námsstjóri. Ennfremur veitti Aðalsteinn Eiríksson, náms- stjóri, ýmsar upplýsingar um þetta mál, en hann átti sæti í nefnd þeirri, er samdi um- ræddar tillögur. Núverandi stjórn Kennara- íélags Vestfjarða skipa: Jón H. Guðmundsson, kennari á ísafirði, formaður; Kristján Jónsson, skólastjóri í Hnífs- dal, gjaldkeri; Sigurjón Jó- hannesson, skólastjóri í Bol- ungarvík, ritari. ♦♦♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦»♦♦< HAFNARBÍÓ — Biml 8444 — Gcimfararnlr Ný Abbott og Costello-mynd (Go to Marz) Bud Abbott, Lou Costelio, Mary Blanchard. Sýnd kl. 5, 7 og 9 Þúsundlr vlU, •> fylglr hrlnguuma frá 8IGURÞÓB, Hafnár*tr»t! t. Margfcr gerllr fyrirliggjandi. Bendum gegn póitkröím. ♦■!■■ Gagnfræðaskóli vcrknáms (Framhald af 4. slðu). í 4. bekk. Þar eru 4 stundir á viku, og eiga þeir nemend- ur, sem þaðan útskrifast að vera full færir til vélritunar- starfa á skrifstofum. Vegna fyrirspurna er rétt að taka fram, að ekkj allir nemendur skólans, sem óska geta fengið tilsögn í meðferð og keyrslu bíivéla. Eg vona aö þessi greinar- gerð naigi til að foreldrar og nemendur geri sér frekar grein fyrir hvað um er að velja, svo að strax þegar skóli hefst geti sem flestir nemenduf gert sér grein fyr- ir hvaða námsgreinum þeir ætla að taka þátt í. Nánari upplýsingar um skólann er hægt að fá hjá skólastjóra í síma 6993 kl. 6 —7 síðdegis. Magnús Jóiisson skólastjóri. nimniminininiiiiiiinnMiniimiinManp R VOLTI afvélaverkstæSI afvéla- og aftækjaviðgerSIr aflagnir i Norðurstlg 3 A. Slml 6458. í - Öruéé og ánægð með trýgginguna hjá oss S.ATyTVTl r-TMTIT'inBVG C1117QAIR 10. Stáiajieiff Skáldsaga eftir llja Ehren.bu.rg Lena roðnaði. Hún fylgdi Veru heim, og þannig hófst vin- átta þeirra. Sama kvöldið féllu einmitt þau orð, sem gróð- ursettu fyrirlitningu Lenú á manni hennar. Hann kom seint heim af skrifstofunni, og þótt hann væri bæöi svang- ur og þreyttur, spurði hann þegar um álit læknisins á sjúk- leika barnsins. Lena sagíi honum hvað gerzt hafði í heim- sókn Veru. Hann þagði. En Lena var staðráðin í þvi að fá svar. Hvað álítur þú um þetta? Er þetta ekki hatrammlegt? Hvað snertir þetta mál hana? ívan sagði rólega: — Hvers vegna tekur þú þér þetta svona nærri? Ég ráðlagði þér sjálfur að lita til Veru, því að hún er sögð góður læknir. En að öðru leyti má maður ekki oftreysta þessu fólki, það er augljóst mál. Lena sneri baki við honum orðlaus. Öll biturðin, sem safnazt hafði í huga hennar, leið allt í einu frá. Grátandi endurtók hún hvað eftir annað: Og þetta er maðurinn minn — maðurinn minn. Mörgum mánuðum : síðar, þegar Dimitri lét falla ein- hver hrósyrði um ívan, varð Lena að gæta sín til þess að gefa ekki reiði sinni lausan tauminn. Hana langaði ,tiL að hrópa: — Þú þekkir hann ekki, hann er huglaus og kald- rifjaður. ' . n, Daginn, sem blöðin birtu fréttina um það, að ákæran gegn, læknunum hefði verið tekin aftur og þeir fengið uppreisn æru sinnar, hraðaði Lena sér til sjúkrahússins og krafðist þess að fá að tala við Veru Grigorsdóttur þegar í stað. Henni var mikið niðri fyrir og kom vart upp orði af því, sem hún hafði ætlað -áð segja. Hún lét sér nægja að faðma vinkonu sína að sér.' En hvað var það, sem tafði Lenu í því að yfirgefa mann sinn? Hún hafði enga meðaumkvun með honum, þótt hún vissi, að hann mundi sakan hennar. Efnahagslegir erfið- leikar skutu henni heldur ekki skelk í bringu. Hún hafði starf sitt og mundi geta séð sjálfri sér og Shuru litlu far- borða. En þó strandaöi þetta allt á Shuru. Hún er mjög hænd að föður sínum. Þegar hann leikur við hana, verður hann ungur í annað sinn og hlær glaðlega. Er það afsak- anlegt að skilja föður og barn að? Shura er saklaus, sökin er mín. Ég valdi henni þennan föður. Það er því ég, sem ein á að gjalda þess. Lena reyndi að fullvissa sjálfa sig um það, að auðvelt væri að lifa lífinu án ástar. Það var svo margt annað, sem gat gefið því gildi, svo sem starfið og félagarnir og Shura.. ívan er að vísu hæði huglaus og eigingjarn, það er satt, en hann er þó hvorki þjófur né svikari. Ef hún aðeins gæti lært að umbera hann, þá mundi Shura fá að halda föður sínum. Kunningsskapurinn við Dimitri svæfði að nokkru um sinn þessar nagandi hugsanir. Seinna, þegar Dimitri tók aö forðast hana, varð hún svo altekin af hugsuninni um á- stæðuna til þess, að hún gleymdi nær því að hugsa um mann sinn. Á yfirborðinu var allt óbreytt, hún færði honum te og spurði um starf hans, og hélt hálfvegis sjálf, að hún væri fari nað sætta sig við það að halda lifinu þannig á- fram aðeins fyrir Shuru og starf sitt. En nú, eftir þennan óheppilega lesendafund, skildi hún, að hún elskaði Dimitri, og að þessa ást mundi hún ekki geta upprætt úr hjarta sínu. Þessi uppgötvun kom henni raunar svo á óvart, að henni hnykkti við. Hún gat meö naumindum haldið stillingu sinni, meðan ívan drakk úr teglasi sínu. Allt í einu lagði hann blaðið frá sér og spurði: — Hvers vegna gazt þér ekki að ræðu Dimitris? Mér fannst hún góð. Að vísu hefi ég ekki lesiö bókina sjálfur, en gagnrýni hans hitti í mark, það er augljóst. Það, sem hann sagði um á- byrgð sovétborgarans á frióhelgi fjölskyldunnar, er dag- satt. Lena reyndi að vera róleg og svaraði: — Ef satt skal segja hlustaði ég ekki á ræðuna með athygli. Umræðu- efnið vekur engan áhuga hjá mér, eins og ég sagði áður. Ég hefi um nóg annað að hugsa. 7. bekkur veldur mér á- hyggjum — námsfnið er mikið og margir dragast aftur úr. Viltu meira te? Jæja, þá býð ég góða nótt, ég þarf að gá að Shuru. ÚTBOÐ !>n rv Tilboð óskast i raflögn í 45 íbúðir Reykjavikur- þæjar við Réttarholtsveg. —.Útboðslýsing og teikning- ar afhendast á teiknistofu minni Tómasarhaga 31 og \erða tilboðin opnuð á sama stað mánudaginn 11. október kl. 11 f. h. .OUrWti Gísli IlalldórsMm arkitekt — M. A. í

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.