Tíminn - 04.02.1955, Side 1

Tíminn - 04.02.1955, Side 1
Bkrifstofur í Edduhúsl Fréttaslmar: 81302 og 81303 Afgreiðslusími 2323 Auglýsingasími 81300 Prentsmiðjan Edda 39. árgangur. Reykjavík, föstudaginn 4. febrúar 1955. 28. blaó. að 650 þúsund fjár séu nú á fóðrum FjölguEifn í ár um 200 þús. fjár. Biiast iná við að selja verði ur lamli um 2 þúsund smáEesfir af kindakjöti næsta hanst í síðasta hefti Árbókar landbúnaðar?ns 1954, sem er ný- komið út, ræðir rítstjórinn, Arnór Sigurjónsson, lítillega um l>að, hve margt sauðfé muni vera á fóðrum hér á landi í vetur. Gerlr hann áætlun um þetta og kemst að þeirri nið- urstöðu, að fjárfjöldinn muni vera um 650 þús. og mun það vera um 200 þús. fjár fleira en var á fóðrum í fyrravetur. Kjarnorkuknúinn kafbátur Aætlun þessi er gerð eftir tölum um áretning og lamba fjölda síðasta ár. Þá var fjár fjöldinn áætlaður 43Ö þús. á fóðrum en reyndist 20 þús. fleiri. Fundur í Féiagi ungra Framsókn- armanna Félag ungra Framsóknar- manna í Reykjavík efnir til umræðufundar í EddUsaln mu n. k. þriðjudagskvöld kl. 8,30. Fundarefni: Stjórnarstefn an og framkvæmd hennar. Frummælandi á fundinum verður Eysteinn Jónsson, fjármálaráðherra. Þykkur ís á Þingvallavatni Frá fréttaritara Tímans í Þingvallasveit. Þingvallavatn er nú allt á Is, en vakir eru á stöku stað, þar sem mikið er um kalda- vermsl. Er það einkum í Vatns víkinni og fyrir framan Þing- velli. Aðalíshellan á vatninu mun nú vera um rúmt fet á þykkt og væri akandi eftir henni á bílum. Alþingi kvatt sam- an að nýju Fundum Alþingis var frest að 18. des. s. 1. Nú hefir forseti íslands kvatt þingið saman að nýju og hefjast fundir í dag kl. 13,30. Lambafjöldinn á s. 1. sumri var áætlaður um 500 þús. og tala sláturdilka var í haust um 280 þús. Sést á geysimikið hefir verið sett á af lömbum i haust. -vvSSSí.: . . . , ,........ því, hve , v - y*"*** ***~v^.■«. .í-cC Þarf að selja 2 þús. Ef fjárhöld verða góð á þessu ári má búast við að upp komist 600—620 þús. lömb og þá verða um 1250 þús. fjár á fjalli næsta sum- ar eða um 220 þús. fleira en s. 1. sumar. Gera má ráð fyr- ir, að enn verði fé fjölgað næsta haust og sett á um 700 þús. fjár og mundu þá koma til slátrunar 550 þús. kindur eða 145 þús. fleira en árið 1954. Mun þá láta nærri, ef vænleiki verður svipaður, að kjötaukningin á markaði verði 2—3 þús. lestir og get- ur orðið enn meiri. Nú mun láta nærri, að kjöt framleiðslan í ár fylli innan- landsmarkaðinn, og má þvi búast við, að selja verði um 2 þús. lestir af kjöti úr landi næsta haust. í Árbók landbúnaðarins er margvislegur annar fróðleik- ur, sem bændum er nauðsyn- legur, og er útgáfali öll hin vandaðastá og myndarleg- asta. Þetta er fyrsti kjarnorkuknúni kafbáturinn, sem smíðaður hefir verið í heiminum. Myndin er tekin skömmu áður en báturinn var reyndur undan ströndum Connecticut í Bandaríkjunum. Báturinn er þannig byggður, að hægt er að knýja hann áfram, hvort heldur er með dísilvélum, rafvél- um eða kjarnorku. Sögulegar nefndakosningar á bæjarstjórnarfundi í gær Á fundi bæjarstjórnar í gær var kosinn forseti bæjar- stjórnar og varaforsetar, bæjarráð og nokkrar fleiri nefndir. Urðu kosningar þessar allsögulegar. Forsetar bæjarstjórnar voru endurkjörnir frú Auður Auð- uns forseti og dr. Sigurður Sig urðsson fyrri varaforseti. í bæjarráð voru kosnir Auð ur Auðuns, Geir Hallgrímsson og Guðmundur H. Guðmunds son frá Sjálfstæðisflokknum. Guðmundur Vigfússon og Bárður Daníelsson af sameig inlegum lista kommúnistá og Þjóðvarnarmanna. Höfðu þeir samvinnu um kosningar í bæj Fiugvélar rufu tveggja daga einangrun Akureyrar í gær Frá fréttaritara Tímans á Akureyri. í gær, eiiis og oft áður, voru það flugvélar Flugfélags ís- lands, sem rufu einangrun bæjar og liéraðs, því að heiðar eru ófærar og vegna verkfalls hefir tekið fyrir komur ís- lenzkra skipa. í tvo daga voru engar samgöngur við höfuð- staðinn vegna dimmviðrí?, en í gær sendi Flugfélagið hing- að þrjár flugvélar, og flutti ein farþega, en tvær póst og alls kyns varning. Síðan flugvöllurinn var opnaður í nágrenni bæjar- ins, fylgjast menn betur en Oddvitinn að Héðinshöfða á Tjörnesi fékk Fordbílinn Hann er ekki aldeilis gangandi sá maður, sem vinnur fólksbifreið, Ford af árgerðinni 1955, en þessi bifreið féll á miða númer 3434 í happdrættí Dvalar- lieimilis aldraðra sjómanna. Þegar er vitað hver hréppti bifreiðina, en mið- inn er seldur á Húsavík. Sá heppni' að þes u sinni var Úlfur Indriðason, bóndi og oddviti aö Héðinshöfða á Tjörnesi. Einnig var dregið um Ferguson-dráttarvél og kom vinníngurinn á miða núm- er 16007, en hann er seldur í Vestmannaeyjum. áður með ferðum flugvéla, en annars veit allur bærinn að jafnaði, ef ekki er flogið. Þá berast engin blöð og eng inn póstur. Þá er ekkert sam (Fi-ar-hald & 2. slðu.i Mildur vetur í Öræfum Frá fréttaritara Tímans í Öræfum. Hér í Öræfum hefir vetur- inn verið mildur. Oftast hef ir verið snjólaust og frost lít ið, en þó eru vötn á ís. Yfir- leitt hefir verið nóg jörð fyr- ir fénað og má búast við tölu verðum fyrningum. SA. arstjórninni. Komst Bárður í bæjarráð á hlutkesti milli hans, Magn- úsar Ástmarssonar og Gunn- ars Thoroddsens. Alþýðuflokk urinn á því nú engan fulltrúa í bæjarráði, sem hann hefir átt frá stofnun bæjarráðs ár- ið 1934. í fyrra var samvinna um allar nefndir milli Alþýðu flokksins og Þjóðvarnar- manna og Magnús þá kjörinn í bæjarráð. Nú virðist sú sam vinna hafa rofnað. Hins vegar var Alfreð Gíslason annar full trúi Alþýðuflokksins í bæjar- stjórn kjörinn varamaður Bárðar í bæjarráði af sameig inlegum lista kommúnista og Þjóðvarnarmanna. Þá var Bárður kjörinn í byggingarnefnd í stað Tómas ar Vigfússonar. Hlaut hann þar fimm atkvæði og fékk þá annað atkvæði Alþýðuflokks- ins í bæjarstjórn til viðbótar stuðningi kommúnista. En fulltrúi Alþýðuflokksins Tómas Vgfússon féll og fékk aðeins eitt atkvæði. (FraniHtM á 2. sI3u) Sjúkraflugvélin aft- ur komin á loft Sjúkraflugvél Slysavarna- félagsins og Björns Pálsson- ar hefir verið í viðgerð að undanförnu. Hefir farið fram skoðun og endurnýjun á vél inni . Er Björn nú tilbúinn að sinna köllum um sjúkraflug eins og fyrr. Samninganefndir úr Eyjum kallaðar til Reykjavíkur Frá fréttaritara Tímans í Vestmannaeyjum. Sáttasemjari ríkisins hefir nú kallað samninganefndir deiluaðila i Vestmannaeyjum á sinn fund til Reykjavíkur og munu þeir væntanlega fljúga þangað til samningaviðræðna í dag. Varð fyrir bíl og meiddist illa Frá fréttaritara Tímans í Siglufirði. Fyrir nokkrum dögum varð það slys í Siglufirði, að mað- ur varð fyrir bíl og meiddist illa. Sá, sem fyrir slysinu varð, er Árni Kristjánsson, forstjóri Shell í Siglufirði, og var hann með olíubíl í út- hverfi kaupstaðarins ásamt bílstjóra, er bíllinn bilaði, svo fá varð aðstoð annars bíls til að draga hann til mið bæjarins. En þegar verið var að leysa bílana sundur varð Árni fyr- ir öðrum bílnum og meiddist svo, að flytja varð hann í sjúkrahús. tsólfur landar á Seyðisflrði í fyrrinótt landaði ísólfur hér 120 tonnum af saltfiski og 20 tonnum af ísfiski. Skip ið hafði áður lagt upp um 80 tonn af ísfiski á Flateyri af afla, sem það fékk í þessari veiðiferð. AV. Verður gasstöðin lögð niður og slökkvistöðin flutt þangað? 4 bæjarstjórnarfundi í gær bar Alfreð Gíslason læknir fram tillögu um að bæjarstjórn athugaði hvort ekki væri tímabært að leggja gasstöðina niður, þar sem gas cr lítið notað, en gasið í lélegum lögnum orðið hættulegt í gömlu bæjarhverfunum. Borgarstjóri upplýsti, að nefnd, sem rannsakað hefði brunavarnir í bænum hefði einmitt lagt til að leggja gas stöðina niður og láta lóð og byggingar þar undir nýja slökkvistöð. Bætt aðstaða slökkvistöðvar innar er orðin mjög aðkall- andi og telja margir, að lóð gasstöðvarinnar sé einmitt heppileg til þeirra nota.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.