Tíminn - 04.02.1955, Page 3

Tíminn - 04.02.1955, Page 3
TÍMINN, föstudaginn 4. íebrúar 1955. BffBnrT 5, 28. falaff. íslendingaþættir Dánarminning: Helgi Jakobsson frá Arnheiðarstöðum Hinn 8. nóv. síðastl. and- aðist að Droplaugarstöðum í Fljótsdal elzti maður i Norð- ur-Múlasýslu, Helgi Jakobs- son. Hann var fæddur 4. apríl 1857 á Eiríksstöðum í Foss- árdal við Berufjörð. Úr foreldrahúsum var Helgi sendur 11 ára gamall norður á Fljótsdalshérað að Meðal- nesi í Fellum, og byrjaði þannig sinn langa starfsferil sem barn að aldri. Táplítill og umkomulaus fór hann milli misjafnra heimilia og fékk stundum að tárast fyrir litla yfirsjón. Á slíkt minnt- ist Helgi aldrei með beiskju, heldur með góðlátleari kímni. Helgi sálaði var greindur að upplagi og reyndi að bæta sér upp: þá fræðslu, sem hann fór á mis við á barns- og unglingsárunum, mes iestri bóka og blaða, hvenær sem tími eða tómstund gafst, og myndaði sér sjálfstæða skoð un á þeim málum, sem efst voru á dagskrá þá og þá. Helgi var 3 eða 4 ár í Fell- um, í Meðalnesi og Ormars- stöðum og þaðan að Hamborg I Fljótsdal. Ekki þótti hon- um vistin þar batnandi. Gætti hann búsmala dag og nótt og sagðist oft hafa orð- ið að endurbæta klæðnað sinn, þegar hann hefði verið kominn með ærnar í hagann, því þá hefði hann fyrst verið farinn að ranka við sér og orðið þess var, að klæðnað- urinn hefði stundum ekki verið sem snyrtilegastur. „En þetta gjörði ekki svo mikið, því að ekki var annað að gera en rölta kringum ærnar, langtímum í hálf- myrkri, svo nægur var tím- inn. en verst held ég að aug- un min hafi farið á þessu vökulagi og óreglulega^vefni11 sagði Helgi. Harðindaárin frá 1880— 1887 var Helgi hjá Jóni Þor- steincsyni, bónda í Brekku- gerði, og konu hans, Margréti Sveinsdóttur, hinum ágæt- ustu manneskjum. Þar sagði Helgi, að sér hefði fyrst safn ast þróttur. í Brekkugerði var búið stórbúi og gætti hann þar oftast sauða á beit arhúsum að vetrinum, og svo sagði hann, að ætti hann gu^'i skuld að gjalda við sín reikningsskil á himnum, þá væri það fyrir meðferð sína á sauðunum í Brekkugerði, sem hann hefði stundum staðið yfir þar til blæða tók úr nösum þeirra í frosthörk- unni. Á þá þolraun, sem mað urinn lagði á sjálfan sig, minntist hann ekki. Á þeim árum var ekki gef ið „úr lofti“ né gjafa að vænta, ef í þrot fór og mátti því segja, að afkoma heim- ilanna ylti mjög á því, að fjár mennirnir kynnu með það pund að fara, sem þeim var í hendur lagt og trúað fyr- ir. Helgi stóð áreiðanlega ■ f remstur í fiokki þeirra manná hér um slóðir. Árið 1889 gekk Helgi að éiga Guðnýju Sigurðardótt- ur, Hallssonar írá Sleðbrjót óg eignaðist með henni eina tíóttur, Jónínu að nafni. Fór hún til Noregs ung að aldri og er nú búsett þar. Konu sína missti Helgi eftir fárra ára sambúð. Árið 1389 eða 90 réðst hann sem vinnumaður til Sölva Vigf ússonar hreppstj óra á Arnheiðarstöðum qg konu hans, Sigríðar Sigfúsdóttur, og var þar samfellt í röska hálfa öld. Sölvi kunni fljótt að meta mannkosti Helga, enda tókst með þeim bróður leg vinátta og fullur trúnað- ur, er var þeim báðum styrk ur á margri sorgarstund, enda varð Helgi fljótt frem ur hinn ráðgefandi maður en þjónn á hinu mannmarga og umsvifamikla heimili. Þegar Helgi varg að sjá á bak þessum bezta vini sín- um eftir nær 40 ára sambúð var sem lífsþróttur og lífs- löngun brysti, og að hans heitasta ósk væri að sem íyrst drægi að þeirri örlaga- stundu, er allra bíður. Hjá Sigríði Sigfúsdóttur var hann svo áfram, þar til hún lét af búskap árið 1941. Árið 1931 varö Helgi fyrir því bunga áfalli að missa sjónina og vera alblindur í 23 ár. Þegar Sigriður hætti búskap á Arnheiðarstöðum, varð það að ráði, að Helgi íæþi í Kollsstaðargerði á Vöilum, til hjónanna Sigur- jóns Guðjónssonar og Guð- laugar Þorsteinsdóttur Ein- arssonar, aldavinar Helga. Fram að þessum tíma var | Helgi all hress og starfaði ýmislegt, þótt blindur væri, en sérstök dægrastytting var honum að því, að gæta litilla drengja þeirra Lauf- eyjar Ólafsdóttur og Hall- gríms Helgasonar, er hófu búskap sinn í húsmennsku hjá Sigríði á Arnheiðarstöð- um 1935. Hjá þessum ungu hjónum eignaðist hann sitt síðasta athvarf, er þau tóku hann til sín, þegar þau höfðu reist sér nýbýli á hluta úr Arn- heiðarstaðalandi. Þau 4 ár, sem Helgi var í Kollstaðagerði var han oft þungt haldinn og rúmliggjandi. Hygg ég að sú hugarkvöl, sem honum var að þurfa að slíta sig af þeirri slóð, er hvert fótmál og far var samtvinnað sæt- ustu minningum og sárustu kvölunum, hafi þar mestu valdið, þótt til vina færi. — Vorið 1945 tóku þau hjón á Droplaugarstöðum Helga til umönnunar og sagði Hall- grímur mér, að þeim fögn- uði, sem gagntekið hefði gamla manninn, þegar hann hefði fundið sig kominn heim gleymdi hann ekki. Þarna á Droplaugarstöðum var hlúð að Helga sem faðir væri. Eg finn, að mér er um megn að lýsa þessum manni sem vert væri. Manni gleðinnar, manni samúðarinnar, trú- mennskumanninum. Þegar ég lít á farinn veg þessa manns, koma mér í hug orðin: „Vertu trúr allt til dauöans, þá mun ég gefa þér lífsins kórónu“. Helgi sálaði var ef til vill einn af sárfáum, sem bók- staflega lifði allt sitt langa (Framhald á 6. síðu). ♦ ♦ <> o o o o o <» < > < ► O <* o O Pappírspoka af beztu tegund þ. e. tilbúna úr bezta brúnum, gljáandi kraftpappír, framleiðum við eins og að undanförnu. Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að framleiðsla okkar er ódýrari, en sambærileg vara innflutt til landsins. Þess vegna eru það vinsamleg tilmæli okkar, að kaupmenn, kaupfélög og bakarar, beri saman verðlag og vörugæði við þá erlendu íramleiðslu, sem kann að vera á boðstólum — Þá munuð þér komast að þeirri niðurstöðu að hag yðar er bezt borgið, með því að kaupa innlenda framleiðslu og um leið styðja innlendan iðnað. Vér höfum nú allar stærðir af pappírspokum fyrirliggjandi, og höfum tryggt okkur kaup á pappír, er nægir til að fullnægja þörfum landsmanna á pappírspokum allt þetta ár. Virðingarfyllst, PAPPÍRSPOKAGERÐIN H.F. ♦ ♦ Viíiíslíjí 3 Símar: 3370 og 3015 ♦ ♦ I ♦ ♦ ♦ A- t ♦ ♦ ♦ ♦ < ♦ § $ I»rýsíivatns|ií|>wr og alls konar tengistykki, Frárennslispíijur og’ tengistykki. Byggingavörur úr asbestsementi Utanhúss-plötur, sléttar Báru-plötur á þök Þakhellur Innanhúss-plötux EINKAUMBOÐ Mars Trading Co. Klapparstíg 26, sími 7373 Czechoslovak Ceramics, Prague, Czechoslovakia. :! ! O o o <' 4 4> I) f’ fj f I f f f 4' i <>, •■j

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.