Tíminn - 04.02.1955, Síða 4

Tíminn - 04.02.1955, Síða 4
TÍMINN, föstudaginn 4, febrúar 1955. 28. blað. i Sigurbur Vilhjálmsson: Orðið er frjálst Raforkumál Austurlands Tilefni þess, að ég skrifa grein þessa, er miður heppi- leg grein Sveins á Egilsstöð um, sem birtist í ísafold nú fyrir stuttu. Ekki ætla ég aö svara þeirri grein. Aðeins setja fram mínar skoðanir á málinu eins og það horfir nú. Þó verð ég að segja það, að ég tel það ekki flýta fyrir úr- lausn þessa máls að við, sem lítið skyn berum á, hvernig á að leysa vandann, séum að jagast um, hvernig eigi að fara að því. Aðalatriðið er rafvæðingin sjálf, og þá að sjálfsögðu að hún verði framkvæmd þannig, að hún komi að sem víðtæk- ustum og hagkvæmustum not um. Hvernig það megi verða, eiga hinir sérfróðu menn að ákveða. Þá hlýtur slík fram- kvæmd og að takmarkast af þvi fjármagni, sem er til, til ráðstöfunar í þessum tilgangi. Þegar Fjórðungsþing Aust- firðinga gekkst fyrir því, að sýslurnar og kaupstaðirnir legðu til sinn manninn hver í nefnd til þess að fylgjast með áformum ríkisstjórnarinnar í raforkumátum, var til þess ætlast, að sú nefnd gætti þess, að réttuir Austfirðinga yrði ekki fyrir borð borinn. Ég held, að ekki hafi verið ætl- azt til þess, að sú nefnd legði nokkra sérstaka áherzlu á, hvaða vatnsfall yrði virkjað, eöa hvernig þessi verk yrðu unnin. Á Fjórðungsþinginu kom það glöggt fram, að þess var vænzt, að virkjunin yrði þannig, að not hennar yrðu sem víðtækust og næði til sem flestra. Þátttaka Sveins á Egilsstöð um í þessari nefnd var ekki að tilhlutan Fjórðungsþings- íns, og satt að segja, veit ég ekki, í hvers umboði hann tók þar sæti. Austfirðingum hefir ekki verið sýnt um að standa fast saman um framkvæmd þýð ingarmikilla stórmála. Það hefir ekki fyrr verið drepið á að koma þýðingarmiklum framkvæmdum í verk, en far Ið er að þrefa um, hvar fram kvæmdin skuli staðsetjast. Þá þykjast allir hafa vit á málun um og úr þessu hefir oft orðið leiðindaþref, sem ekkert gagn gerir, en tefur aðeins fyrir því, a.ð ráðizt verði í verkefnið. Þannig hefir þetta einnig ver ið í raforkumálunum. Ef til vill eigum við nokkra afsökun í því, hvernig landslagi er hátt að hér eystra og miklir erfið leikar á að sameina hagsmuni allra. Einmitt þess vegna, er okkur nauðsyn víðsýnna og ó- singjarnra manna til þess að koma fram hagsmunamálum okkar. Við verðum að hafa það hugfast, að sérhver fram kvæmd, sem miðar til almenn ingshagsbóta hér, kemur okk ur öllum að notum, enda þótt hún snerti okkur hvern fyrir sig óbeint. Þannig er það í raun og veru um allar raun hæfar framkvæmdir í land- inu. Þess vegna er það, að skrif eins og þessi áminnzta grein, eru fremur til ógagns en gagns. Eins og kunnugt er, hefir ríkisstjórnin nú tekið ákvörð un um virkjun á Grímsárfossi og dreifingu raforkumagns um Austurland. í mínum augum er mikilvæg ast við þessa ákvörðun, að allt svæðið frá Vopnafirði til Djúpavogs á að njóta þessar ar virkjunar. Slík ákvörðun felur í sér fyrirheit og mögu leika til þess að dreifa raf- magninu út um sveitirnar frá aðallínunum. En þarna þurf um við að fylgja fast á eftir, að ekki verði hætt í miðju kafi við þetta mikilvæga verk efni. Þá er það ekki síður mik ilvægt að fyrirhuguð er teng ing við hin_ norðlenzku orku ver, ef framkvæmanlegir tæknilegir möguleikar eru til þess. Mikil nauðsyn er okkur Aust firðingum á þvi, að í sam- bandi við fyrirhugaðar raf- orkuframkvæmdir, að upp geti risið lífvænlegur og arð vænn iðnaðarrekstur. Mikla þýðingu í því sambandi hefir ef hægt væri að nota jarð- efnin hér í því augnamiði. Ég hygg, að hér eystra séu til hráefni, sem nota mætti til iðnrekstrar og þyrfti að fara fram ýtarleg rannsókn á því. Þá fyrst fær rafvæðing landsins fullt gildi, að orkan verði hagnýtt til þess að auka fjölbreytnina í framleiðslu þjóðarinnar. Jafnframt mundi það stuðla að því, að gera raforkuna til heimilis- þarfa ódýrari. Ég lít svo á, og treysti því, að virkjun Grímsárfossins og tengingin við Laxárvirkjun- ina séu byrjunarframkvæmd- ir. Það veltur á framtaki Aust firðinga, hvort þörf verður á meiri raforku en þannig fæst. Ég treysti því einnig, að ríkis stjórnin haldi nú fast á máli þessu og hraði framkvæmd- um. Ég treysti því einnig, að Austfirðingar láti ekki hræra í sér svo, að þeir fari nú enn á stað með nýtt moldviðri og ríkisstjórnin láti ekki eyði- leggja fyrirætlanir sínar i þessu máli eins og hún hefir sett þær fram. Pólitískum hrakningsmönn um má ekki líðast að trufla framgang góðra mála, með því að slá á viðkvæma strengi. Mönnum getur verið vorkunn armál að vilja fá fyrirtæki staðsett sem næst sér, en heil brigð skynsemi á að vísa okk ur veg, fremur en tilfinningin. Við megum ekki láta tækifær in ganga okkur úr greipum. Við verðum að gæta okkar Austfirðingar, að verða ekki að viöundrum, sem enginn tekur mark á. Við verðum að grípa þau tækifæri, sem gefazt og við ráðum við og hagnýta þau til vaxandi almennrar velmegun ar og hagsældar. 20.1. 1955. Sig. Vilhjálmsson. Síðan grein þessi var skrif uð, hafa mér borizt þau furðu legu tíðindi, að Sveinn á Eg- ilsstöðum gangi milli manna og þá fyrst og fremst sveitar stjórnanna, til þess, að koma af stað mótmælum gegn því, að Grímsárfossinn verði virkj aður. Eftir því, sem mér hefir verið tjáð, vill hann heimta línuna frá Laxárvrkjuninni, áður en ráðizt verði í virkjun Grímsárfossins, og jafnvel vill hann alls ekki virkjun hans. Það er auðvitað hver sjálfráð ur um skoðanir sínar, en það má ekki láta það óátalið, þeg (Framhala á 6. 6lðu.) SERENELLI með AFBORGUN! SERENELLI með ÁBYRGÐ! <> <> <» <> <» <» <» Ný sending — Nýjar teyundir Vinsældir SERENELLI má marka af því að þrátt fyr- jir allan þann fjölda harmonikutegunda, sem nú er um að velja hér á landi, hafa flestir fremstu atvinnu- harmonikuleikarar landsins valið SERENELLI, t. d.: Bragi Hlíðberg (Röðull) Garðar Jóhannesson (Þórscafé) Guðm. Hansen (I.O.G.T.) Guðni Guðnason (Kf.flugvelli) Jan Morávek (Þjóðleikhúsið) Jóh. Jóhannesson (Þórscafé) Sigurgeir Björgvinsson (Naust) Stefán Þorleifsson (I.O.G.T.) Valdemar Auðunsson Þeim fjölgar með hverjum degi, sem kjósa sér SERENELLI — Allar harmoniku- viðgerðir afgreiddar fljótt og vel. — Komið — símið — eða skrifið. Harmonikuverkstæði Jóh.. Jóhannessonar Laugavegi 68. — Símí 81377. Vandamál aldraðs fólks rætt á ráðstefnu í Genf Uámark starfsaldnrs missminandi í ýmsnm löndum — allt frá 5Ö-70 ár Bætt lífsskilyrði, heilbrigð ishættir ásamt framförum í læknavísindum hafa hækkað meðalaldur manna til muna á síðari árum. Af þessu leið- ir, að hlutfallstala aldraðra manna eykst með þjóðunum. Vegna betri heilbrigðishátta eru menn nú á tímum vinnu færir lengra fram eftir aldri, en áður. Margs konar vandamál, er lúta að vinnufærni aldraðs fólks og um það hvenær sé heppilegt að menn dragi sig í hlé frá störfum, eru rædd á ráðstefnu, sem Alþjóðavinnu málaskrifstofan í Genf (ILO) boðaði til frá 24. f. m. til 5. fcbr. Fulltrúar frá 27 lönd- um taka þátt í ráðstefnunni, sem mun eingöngu fjalla um þessi vandamál meðal Evrópu þjóða. Vinnumálaskrifstofan hef- ir látið semja ítarlega skýrslu i um þessi mál, sem er grund- völlur undir umræðurnar á ráðstefnunni. Atvin?iuleysz meðal aldraðra manna. í skýrslunni er þess getið, að atvinnuleysi sé hlutfalls- lega miklu meira meðal eldra fólks en yngri manna í flest- um Evrópulanda. T. d. eru 30 af hverjum 100 atvinnulaus- um í Austurríki, Frakklandi og Hollandi 50 ára og eldri. í Svisslandi, þar sem atvinnu leysi er svo að segja óþekkt fyrirbæri, er hundraðstalan 49. Það er svo að segja alltaf hin aldraða stétt, sem ber bróðurpartinn af erfiðleik- um atvinnuleysisins. í Það kann að þykja ótrú- legt, en er samt staðreynd, segir í skýrslunni, að atvinnu leysi aldraðra manna er til- finanlegast í þeim starfsgrein um, er henta öldruðu fólki bezt. Unga fólkið heldur sig frá erfiðustu og óheilnæm- ustu a'cvinnugreinunum, og er þá bar að finna hlutfalls lega fleiri aldraða menn, er neyðast til að taka þeirri vinnu, sem að höndum ber. í skýrslunni er getið um ráðstafanir, sem gerðar hafa verið í mörgum Evrópulönd- um til að tryggja öldruðu fólki atvinnu viö þess hæfi. Hafa shkar ráðstafánir _yfir loitt gefist vel. Oft. er það svo, að aldrað fóik sem \innur, neyðrst til þess af því að það nýtur ekki eítiriauna, eða þá að þau eru svo iág, að það getur ekki lifað af þeim eingöngu. Loks er þess getið, að I Frakklandi sýni hagskýrslur, að dánartala sé óeðlilega há meðal aldcsðs fólks á fyrsta cg iiðru ári eftir að það héclr lagt niður vinnu og sé'st í helgan stein. Mismunandi eftirlaMnaaldtír. Samkvæmt rannsókn Vinnu málaskrifstofunnar er eftir- launaaldur mjög misjafn í ýmsum löndum Evrópu. Þannig hefst eftirlaunaald ur í tveimur löndum (írlandi og Noregi) með sjötugsaldrin um. 1 tveimur löndum . (ís- landi og Svíþjóð) með 67 ára aldri. Sjö þjóðir (Finnland, Vestur-Þýzkaland, Luxem- burg, Holland, Pólland, Portú- gal og Sviss) hafa 65 ára aldurstakmark fyrir karía og konur. Tvennskonar hámarks aldur, 65 fyrir karla og 60 fyrir konur gildir í fimm lönd um (Austurriki, Belgíu, Dan- mörku, Grikklandi og Bret- landseyjum). 60 ára aldurs- hámark er fyrirskipað fyrir karla og konur í fimm lönd- um (Tékkóslóvakíu, Frakk- landi, Luxemburg, Saar og Tyrklandi). Fimm lönd hafa tvöfaldt aldurshámark, 60 fyrir karla og 55 íyrir konur (Albanía, Búlgaríá, Ungverja land, Ítalía og Sovétríkin). Lægst er aldurshámark starfsfólícs í Júgóþlavíu 55 ár fyrir karla og 50 ár fyrir konur. Sérfræðinganefnd, sem set ið hefir á rökstólum í New York undir forsæti Dag Hammarskjölds, til að undir búa ráðstefnu um friðsam- lega notkun atomorkunnar, hefir ákveðið að kalla ráð- stefnuna saman i Genf 8. ágúst n. k. Er talið að um 80 lönd sendi fulltrúa á ráð- stefnu þessa. (Frá upplýsingastofnun S.Þ.) DRI-RITE Höf imi aftnr feng ið Iiina vinsæln DRI-RITE merki penna. — Einnig DRI-RITE Mck og fimm gerðir af ankacnduin fyrir pennana. Islenzka verzlunar- félagið h.f. Sími 8 29 43 Laugavegi 23

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.