Tíminn - 03.03.1955, Blaðsíða 8

Tíminn - 03.03.1955, Blaðsíða 8
89. árgangur. Reykjavík, -'l 3. marz 1955. 51. blaíí. Tvær breytingar á rússnesku stjórninni á aðeins 3 dögum Tveim í'áðherrwm í rúss?iesku stjórninni var vikfð frá f dag. Stjórnwðu þeir ráðuneytwm námumála og samyrkju- búa, en ráðherrar þessir hafa sætt mikzlli gagJirýni síSan Malenkov varð að víkja úr forsætisráðherrastóli. Fyrir 3 dögum voru einnig gerðar breytfngar á stjórninni. ÆvintýraflugiOrlofs frestað til hansts Hópferð þeirri hinni miklu sem ferðaskrifstofan Orlof er búin að skipuleggja til Miðjarðarhafslanda og Ieggja átti upp í um miðjan mánuðinn, hefir nú verið frestað til hausts, þar sem ekki var talið hættandi á að festa hótelherbergi og aðra þjónustu á þeim tíma, ef verkfallsaðgerðir gætu stöðvað ferðina þegar til kæmi. Einnig vildu margir af þeim, sem skráðir eru til fararinnar, að þessi háttur yrði hafður á vegna óvissunn ar, sem ríkir um atvinnuhorf ur. Varð bví að fresta förinni til hausts, þar sem of heitt þykir til ferðalaga suður á Afríkuströndum, þegar kom Stúkan Frón eflir styrktarsjóð sinn í hinni opinberu tilkynn- ingu segir, að stjórnarnefnd æðsta ráðsins hafi ákveðið skv. tilmælum frá Bulganin forsætisráðherra, að leysa ráðherra þessa frá störfum, þar eð störf þeirra hefðu ekki borið viðunandi árang- ur. Sérfræðingar taka við. Sá er tekur við embætti kolamála heitir Zademidko, en núverandi landbúnaðar- ráðherra tekur við ráðuneyti því, er sér um samyrkjubú- in. Talið er, að Bulganin vilji fá sem flesta sérfræð- inga í stjórnina, en þessir menn munu hafa hana til að bera. Va?aforsætisráðherra nú 12. Á mánudag voru útnefndir fjórir nýir varaforsætisráð- herrar og eru þeir þá alls orðnir tólf. Mesta athygli vakti, að Mikojan, sem lét af störfum verzlunarmálaráð- iierra fyrir skömmu, var gerð ur að varaforsætisráðherra. Sú skoðun á vaxandi fylgi, að fagna, að Kruschev sé alls ráðandi í hinni nýju stjórn, en raunveruleg völd Malen- kovs hins vegar mjög lítil. Eins og venja hefir verið undanfarin ár, verður efnt til fjáröflunar fyrir styrktarsjóð stúkunnar með bögglauppboði á eftir fund stúkunnar í kvöld. Styrktarsjóðurinn var ekki öfl ugur í fyrstu en fyrir dugnað systranna og annarra í stúk- unni, hefir hann eflzt allmik- ið á síðari árum með frjáls- um samskotum, gjöfum, áheit um og tekjum af skemmtun- um. Allmörgum hefir orðið að ósk sinni með því að heita á sjóðinn og hefir hann haft all drjúgar tekjr af þeim áheit- um. Sjöðurinn hefir orðið að- njótandi nokkurs opinbers styrks. Tilgangur sjóðsins er að ið er Iangt fram á vorið. styrkja og gleðia með fjár- framlögum félaga stúkunnar, einkum sjúka og fátæka, enn (Framhald á 2. slðu ) Margrét á Eyrar- landi látin Á sunnudaginn var andað- ist ?.ð Eyrarlandi í Öngulstað- arhreppi frú Margrét Eiríks- dóttir, ekkja Einars Árnason- ar alþingismanns og ráðherra. Hún var 75 ára gömul. Frú Margrét lét aldrei mikið á sér bera utan heimilis, en vann störf sín heima í kyrrþey með an bóndi hennar dvaldi lang- vistum að heiman við ýmis trúnaðarstörf í þágu alþjóðar. Standa því allir, sem Einar á Eyrarlandi starfaði fyrir á langri ævi ?. þjóðmálasviðinu í þakkarskuld við húsfreyjuna á Eyrarlandi, og heiðra minn ingu hennar. Hún verðu.r jarð sett að Kaupangi næstkom- andi þriðjudag kl. 2 e. h. Nokkurt tjón í stór- viðri í Kræklingahlíð Frá fréttaritara Tímans á Akureyri. S. 1. sunnudagskvöld gerði hér hvassviðri af suðvestri, en ekki varð þó teljandi tjón af hér í bæ og ekki heldur í nær- sveitum nema í Kræklingahlíð, þar sem veðurofsinn varð svo mikill að undrun sætti. Þetta aftakaveður gekk yf- ir suðurhluta Kræklingahlíð arinnar og var veðrið á þver- vestan. Töldu menn alveg ó- stætt í byljunum og var mildi að ekki hlauzt stórtjón af. Að Ásláksstöðum fuku 15 járnplötur af fjósþaki, og var það aðeins vegna þess hve veðrlð stóð stutt, að þak ið fór ekki alveg. Bóndi á Ásláksstöðum er. Sigurður Jónsson. Einnig svipti opn- um baggagötum á hlöðunni og skekktist hlaðan öll á grunni Eitthvað fauk og af lieyí. Að Hrappsstöðum, sem er næsti bær, íuku um 20 hest- ar af heyi. Kjarvalshúsið strandaði á togstreitu milii ráðuneyta Von iun að íir Jiessis verði bætt á næstunni Tvær fyrirspurnir voru til amræða í sameinaðu Alþingi í gær. Var önnur um hvað liði byggingu Kjarvalshúss, en hin lím þingmannabústað, hversa því máli væri komið áleiðis. Urðu um þessi mál talsverðar amræðar. Kommgurinn í Cam- bodia aísalar sér völdum Pnompenh, Cambodia, 2. marz. — Konungurinn í Cam bodia í Indó-Kína afsalaði sér völdum í dag og við tók faðir hans, Suramarit prins. Norodam Sihanodok konung ur kvaðst muhdi taka upp lifnaðarhætti óbreyttra borg ara í ríki sínu. Ástæðan til þess að hann hefði sagt af sér væri sú, að hann hefði ekki getað haft í fullu tré við valdamikla menn í land- inu, sem væru andvígir stefnu sinni í utanríkzs- cg innanlandsmálum. Konung- rinn hefir beitt sér fyrir og fengiö framgengt, að Cambo dia fékk fullt sjálfstæði inn an franska ríkjasambands- ins. Lét hann fara fram þjóð aratkvæði um þessa stefnu sína og hlaut hún vfirgnæf- andi fvlgi meðal þjóðarinn- ar. Fyrri fyrirspurnin var bor- in fram af þeim Gils Guð- mundssyni og Gylfa Þ. Gísla syni, og var sá fyrrnefndi framsögumaður. Alþingi hefði samþykkt árið 1945 að hús skyldi reist í Reykjavík, er væri hvort tveggja í senn safn fyrir málverk Jóhann- esar Kjarvais og íbúð handa listamanninum. Hefði verið heimilað að verja 300 þús. kr. af tekjuafgangi ársins 1944 í þessu skyni. Ekkert hefði hins vegar orðið af framkvæmd- um í þessu efni. Bjarni Benediktsson, menntamálaráðherra, svar- aði fyrirspurninrii og rakti sögu málsins. Menntamála- ráðuneytið Hefði 1945 skipað nefnd í málið, en hún sagt af sér á beim forsendum að fjár málaráðuneytið hefði tekið að sér framkvæmdir í iriál- inu. Leitað hefði verið til húsameistara ríkisins og hann hefði á sinums tima gert frumdrög að slíku húsi, eif aldrei gerðar fullnaðar- teikningar. Væri ekki ann- að sjáanlegt, en framkvæmd ir hefðu farizt fyrir í bessu máli sökum togstreytu eða misskilnings milli ráðuneyt- anna. Ný tUrawn verði gerð. Kosin var í gær stjórn Áburðarverksmiðjunnar Á samezmtðu Alþingi í gær var kosin 3ja manna stjórn Ábu? ðarverksmiðjannar h. f. í Gufunesi til 4 ára. Var kosið hlutfallskosningu og lcomu fram tveir listar A og B. Á A- I'sta voru þrír menn, Þeir Pétur Gunnarsso??, tilraunastjóri, Vilhjálmur Þór, bankastjóri og Kjartan Ólafsson. Á B-lista var einn maður, .Jóhann Guðjónsson, bóndi Leirulæk í Mýra sýslu. Kosning fór þanmg að A-listi hlaut 35 atkvæði og alla 3 menn listans kjörna. B-listi fékk 9 atkvæð, en 2 scðlar voru auðir. Er forseti hafði lesið upp lista þá, sem fram komu, kvaddi sér hljóðs Bergur Sig urbjörnsson, þingmaður Þjóð varnarflokksins. Kvaðst hann krefjast þess að nafn eins manns á A-listanum, Vilhjálms Þór, bankastjóra, yrði strikað út af listanum, þar eð störf hans sem stjórn arnefndarmanns Áburðar- verksmiöiunnar samrýmdust ekki stöðu hans sem banka- stlóra Landsbanka íslands, skv. Jögum beirrar stofnun- ar. Einar Olgeirsson tók í sama streng. Forseti frest.aði bá fundi í 15 mínútur til þess að hon- um gæfist tóm til að athuga hversu máliö skyldi úrskurð- að. um Jaganna um störf banka- stjóra. Kvaðst fcrseti þvi ekki telja það í sínum verkahring að kveða upp úrskurð um þetta atriði, en teldi, að Al- þingí væri það í sjálfsvald sett að kjósa til þessa trún- aðarstarfs, hvern þann mann er fullnægir almennum kjör gengisskilyrðum og þess vegna yrði kosið um listana, eins og þeir lægju fyrir. — Kosning fór síðan fram og urðu úrslit þau, er áður seg- ir. — Eysteinn Jónsson, fjármála ráðherra, kvað engin gögn um þetta mál finnast í fjár- málaráðuneytinú, utan bréf það. er menntamálaráðherra hefði vitnað til. Tók hann í sama streng og menntamála ráðherra, að mál þetta virt- ist hafa dagað uppi milll ráðuneytanna af misskiln- ingi. Væri nú sjálfsagt að taka málið uþp áð nýju og reyna að koma því á rekspöl. Kjarval 70 ára í haust. Gvlfi Þ. Gíslason þakkaði greið svör og kvaðst vona að nú yvði hafizt handa í máli þcssu. Það hefði upphaflega kom:ð fram í tilefni af sex- tugsafmæli listamannsins. Nú ætti hann sjötugsafmæli á næsta hausti, og væri vel, ef takast mætti að minnast þess á þennan hátt. Þ?ngmannabústaður. Bernharð Stefánsson bar fram fyrirsþurnir úm þing- mannabústaðinn. Kvað hann (Framhald á 7. síðu.) Agætur árangur á sund mótinu í gærkvoldi Úrskurður forseta. Að fundarhléi loknu kvað forseti upp úrskurð sinn. Benti hann fyrst á. að hér væri um að ræða fvrirtæki. sem ríkið réði. 0" bað hví á eno-nn hátt sambærilegt við eínkafyrirtæki. Hér væri eínnig um bað að ræða, að kiósa fulltrúa ríkisvaldsins í slíkt fyrirtæki. í öðru laei væru fordæmi fvrir hendi. ,Tón Árnason. banka- stióri I,andsbankans. hefði verið um möra ár í st.iórn Eimskinafélags íslands, Maen ús Bigurðsson í stiórn Sölu- samb. ísl. fiskframleiðenda og Jón Maríusson. bankastj., væri nú í stjórn bessá sama fyrirtækis. í briðja lagi væri bað yfirstjórn Lands- banka fslands, sem ætti að seaía til um bað. hvaða starf semi geti samrýmzt ákvæð- í gærkveldi hélt sundmót Ármanns og Ægis áfram. Áhorfendasvæð? Sundhallarinnar voru fullskipuð, meðal gesta voru forseti íslands og sendiherrahjón Svía. Mörg met voru sett. í 400 metra skriðsundi sigraöi Östrand á 4:46,2 mín. En Helgi Sigurðsson setti nýtt íslands- met á vegalengdinni, synti á 5:00,3 mín. Eldra metið ar 5:1,4. í 100 metra skriðsundi kvenna sigraði Helga Haralas dóttir, KR. á nýju íslandsmeti, 1 i 13,0 mín. (Eldra metiö 1:13,7 mín.). Önnur varð Ljunggren á 1:15,7 mín. Þriðja Inga Árnadóttir frá Keflavík á 1:15,9 mín. í 100 metra bringusundi sigraði June Felt á 1:14,0 mín. Þor- steinn Löve KR varð annar á 1:15,7, sem er sami tími og ís- ienzka metið. Var þetta sund mjög hörð og skemmtileg keppni. June Felt sigraði einnig í 50 metra flugsundi karla á 32,1 sek. Pétur Kristjánsson Á. varð annar á 33,1 sek. í 50 metra bringusundi drengja setti ‘ Sigúrður Síg1" urðsson, Akranesi. nýtt drengjamet, 35,2 sek. í 50 m. baksundi karla sigraði' Jón Helgasor., Akránesi', á 33,3 sek. og í 50 metra skriðsundi drengja sigraði Hélgi Hannts son, Akranesi, á 29,5 sek. Kveðjumót verður haldið i sundhöllinni á laugardaginn fyrir Svíana og hefst það klukkan 8,30. Verður þá keppt í þeim greinum, sem íslendingar hafa gefið Svíum harðasta keppni í.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.