Tíminn - 09.07.1955, Blaðsíða 4
TÍMINN, laugardaginn 9. júlí 1955.
141. blaS,
Landnámshátíöin í Spanish Fork
Sendiráð ísiands í Washing Af 6000 íbiium þar, crn nm 1500 a£ íslcwzku
ton hefir láti'ð Tímanum í té . „ , , .
frásögn af landnámshátíð ís- lícrgl Orotllir.
lendinga í Spanish Fork og|
fer hún hér á eftir: hundruð kílómetra löngu
Um það bil 90 kílómetra
suður af Salt Lake City er
smábœrinn Spanish Fork, er
telur um 6000 íbúa. Bær'nn
er umlokinn fjöllum, sum
skógi vaxin, en önnur snævi
þakin. Þarna hafa íslending
ar setzt að, og þarna stóðu
hátíðahöld í 3 daga í tUefni
af því, að hundrað ár eru
liðin síðan fyrstu íslending-
arnir settust þarna að, og
munu það hafa verið Samúel
Bjamason og kona hans Mar
grét, og Helga Jónsdóttir. ís-
lendingafélagið í Utah hafði
íarið þess á leit, að ríkisstjórn
íslands sendi fulltrúa á þessa
hátíð, og einnig að ríkisstjórn
Báfidaríkjanna sendi þangað
íúlltrúa.
Fulltrúi íslands var Pétur
Eggerz, sendiráðunautur við
íslenzka sendiráðið í Washing
ton, en fulltrúi Bandaríkj-
anna var Marsebs C. Parsons
Undersecretary of State.
Svo að segja alhr íslending-
ar í Spanish Fork eru Mor-
mónatrúar, en íslendingar og
afkomendur íslendinga eru
'tim það bil 1500. Mormónar
eiga mörg guðshús og vegleg,
og fóru hátiðahöldin að mestu
fram í einu þeirra, Palmyra
Stake House.
Hátlðahöldin hófust mið-
vikudaginn 15. júní með guðs
þjónustu, og stjórnaði henni
Byron Geslison, biskup. Söirg
þar nokkur lög Tani Bjarna-
son, sem er vel þekktur söngv
ari vestur á Kyrrahafsströnd.
Talar hann góða íslenzku, og
söng fjölmörg íslenzk söng-
lög á hátíðinni. Tani er bú-
settur í Seattle.
íslendingar höfðu komið
víða að ttl þess að sækja þessa
hátíð, og hitta þar vini og
kunningja og spjalla við þá
á ísienzku. Menn og konur
komu frá Kanada, Los Angel
es, San F’rancisco, Vancouver,
Salvatnsborg, Colorado og
víðar að.
Fulltrúi íslands og kona
hans heimsóttu flest öll ís-
lénzk heimili í Span'sh Fork,
og hefir Íslendinguní búnazt
þarna vel. Búa alUr v^ð góð
kjör og eiga sér hús. Skammt
frá Spanish Fork er gríðar-
stór verksmlðja, sem framleið
ir stál, og þar hafa margir
Ííjfend'ngar atvinnu. Þá
stunda margir landbúnað,
mjólkurframleiðslu og akur-
yrkju. Framleiða þe'r baunir,
lauk,. alfa alfa, gulrætur,
rauðrófur o. fl. Niðursuðu-
verksmiðjur eru þarna á
staðnum, og er því markað-
ur góður fyrir landbúnaðaraf-
urðirnar og nærtækur.
íslendingar í Spanish Fork
eru mjög gestrisnir og taka
manni opnum örmum, en
ekki bjóða þeir fram kaffi, og
stafar það af því, að Mor-
mónatrúin leggur eindregið á
móti allri nautnaneyzlu, hvort
heldur sem er kaffi, tóbak
eða áfengi.
Fimmtudagurinn 16. júní
hófst með glímu og öðrum í-
þróttum. Fimmtudagskvöldið
var söguleg leiksýning, og var
henni stjórnað af Hólmfriði
Daníelson, lekkonu frá Winni
peg. Sóttu mörg hundruð
manns sýninguna, og var
Hólmfríði klappað óspart Jof
í lófa.
Leiksýningin brá upp mynd
Tim af brottíör íslendinga frá
íslanúi, og af hinnl mörg
göngu þe'rra til Utah, en er
þangað kom, þá benti Brig-
ham Young, kirkjuhöfðingi
Mormóna, íslendingum á að
setjast að í Spanish Fork, því
að þar höfðu Danir setzt að
áður, og hélt hann að vel
mundi fara á sambúð íslend-
inga og Dana.
Dóra Þorsteinsdóttir hatði
sýningu á hannyrðum, og sat
þarna á sýningunni og spann
á rokk.
Kl. io á föstudagsmorgun-
inn, hinn 17. júní, fór skrúð-
ganga mikil um borginá. Tutt
ugu og sjö fjölskyldur í Span
ish Fork höfðu tekið að sér
að útbúa táknræna þætti úr
sögu íslenzku landnemanna,
sem settust að í Spanish Fork.
Var leikþáttum þessum kom-
ið fyrir á fjórhjóluðum pöll-
um, sem dregnir voru af bif-
reiðum. Þannig voru í skrúð-
göngunni 27 slíkir leikþættir,
og sumir gerðir af mikilli hug
kvæmni og íburði. En i farar
broddi voru þeir, sem skipu-
lagt höfðu hátíðina, svo og
gestir og fulltrúar ríkis-
stjórna.
Föstudaginn 17. júní var
hádegisverður kl. 12,30, sem
550 manns sóttu, og stjórn-
aði honum John Y. Bearnson,
biskup. Að afloknum hádegis-
verðinum las John Y. Bearn-
son, formaður íslendingafé-
lagsins, símskeyti og kveðjur,
sem borizt höfðu, m. a. frá
sendiherra íslands í Washmg
ton, Thor Thors. Þá las full-
trúi íslands kveðju frá for-
seta fslands, hr. Ásgeir Ás-
geirssyni, og afhenti jafn-
framt gjöf frá íorseta íslands
til íslendingafélagsins, íslenzk
an silkifána.
Þá tók til máls fulltrúi
Bandarikjastjórnar, Marselis
C. Parsons, aðstoðarráðherra.
Var Parsons, ráðherra kynnt
ur af einum æðsta embættis
manni Utah-ríkis. Seinna um
daginn var ekið um bæinn
og nágrennið.
KI. 8 um kvöldið var sam-
sæti, sem sóttu um 600 manns
og stjórnaði því Victor Leif-
son, b’skup. Þar söng Taní
Bjarnason og einnig söng þar
EHen Jameson íisl. söngva.
Ellen Jameson er systir Paul
Jameson, iæknis, Páll lækn-
ir er raunverulega Guðmunds
son og fluttist faðir hans frá
íslandi td Utha. Páll læknir
er sérfræðingur í augnsjúk-
dómum, og háls nef og eyrna
læknir. Starfar hann í Salt
Lake City, og er þekktur
læknir langt út fyrir landa-
mæri Utah-fylkis.
Þama komu og fram marg
ir ágætir listamenn, bæði ís-
lenzkir og amerískir. Aðal-
ræðumaður kvöldsins var Pét
ur Eggerz, og var hann kynnt
ur fyrir áheyrendum af Finn
boga Guðmundssyni, prófess
or. Að ræðu sinni lokmni
flutti Pétur Eggerz ávarp frá
rikisstjórninni. Ávarp þetta
var undirritað af forsætis-
ráðherra Ólafi Thors, og
bundiö í mjög fallega bók.
Bókin með ávarpinu var síð-
an afhent íslendingafélaginu
til eignar.
Þfe afhenti Pétur Eggerz
með stuttri ræðu riddara-
kross Fálkaorðunnar þeim
John Y. Bearnson og Kate B.
Carter. Kate B. Carter er for
maður stærsta kvenfélagsins
í Utha-ríki, og hefir getið sér
góðs orðs sem rithöfundur,
og ritað margar bækur, sem
sumar fjalla um landnámið i
Utah. Forseti íslands hafð'
sl. maí sæmt ofangreinda að-
ila riddarakrossi Fálkaorðúnn
ar, og óskað þess, að fulltrú'
ríkisstjórna.•mnnr afhenti þá
viö þetta tæk'-taori.
Seinna um kvöldið sýndi
Kjartan B,i?,rnason kv'kmynd
sina frá Lslandi og skýrð'
prófessor Finnbogi hana út
fyrir áheyrendum. Þe'r Kjart
an og Finnbogi voru sífellt á
ferð og ílugi við að taka ljór
myudir og kvikmvnd'r og að
taka ratídir manna upp á
stálþráð.
Hátíðahöldunum lauk á
föstudagskvöldið um mið-
nætti, og þótti öllum sem þau
hefðu tekizt vel.
Blöð'n í Salt Lake City og
sjónvarp»ð og útvarpið keppt
ust v!ð að skýra frá nátiða-
höldunum og má af því ráða
að talsvert gæt'j ahrifa þeirra
manna af islenzkum uppruna
sem sezt hafa aö í Utah-ríki.
chh ihe/dur
náfoefáa etfMÍ
CMC er hid albjódlega heiti fyrir carboxymelhylcell
lose-efni sem er framleiM úr cellulose. CMC hefur þau
óhrif, að óhreinindi leysast belur og f!fótar upp og
bvctturinn verður ónæmari fyrir óhreinindum eftir en
áður - því CMC myndar varnarlag um þræöi efnisins
SAPUVER.KSM IÐJAN SJOFN.AKUREYRI
Fliigfélagið uraboðs-
raaður Lufthansa
á íslandi
Flugfélagi íslands hefir ný-
lega verið veitt aðalumboð á
íslandi fyrir hið nýendurreista
þýzka flugfélag Lufthansa.
Sem kunnugt er eru ekk1
bðnir nema hðlega þrír mán
uðir frá því að Lufthansa hóf
flugferðir á ný, en það hætti
allri starfsemi í stríðslok. Fé-
lagið heldur nú uppi flugsam
göngum múli helztu borga í
Þýzkaland' og flýgur auk þess
til Lundúna, Parísar, Madríd
og New York.
Flugfélag íslands hefir nú
aðalumboð á íslandi fynr sjö
erlend flugfélög auk Luft-
hansa, og eru þau þessi:
Brezka flugfélagið BEA, hol-
lenzka flugfélagið KLM,
finnska flugfélagið Aero, sviss
neska flugfélagið Swissair,
belgíska flugfélagið Sabena,
SAS og bandaríksa flugfélag
ið Trans World Airlines.
HEKLU karimannasokkdr
Við höfum nú fengið aftur hiiva margeftirspurðu
HEKLU karlmannasokka í miklu virvali.
HEKLU karlmannasoklcar eru sérstaklega sterkir
og mjög ódýrir.
Höfum emnig fengið barnale-áta. - *
_ ■ i-Ú ■):■:- i
Gefjun — lóunn
Kirkjustræti 8 — Simi 2838 — Reykjavík
S555555S555555555555555555S555555555555555S5S555555555SS555555555Í5S555t
<515556555555555555555555555555555555555555555555555555555555551
Einangrunarkork
Óskum eftir 1. flokks einangrúnarkoík f' plötum:
120 rúmm., 4 tommu þykkum og 40 rúmm., 2ja- tommu
þykkum. — Tilboð, er greini verð cif Seyðtsfjörður og
afgreiðslutíma, send'r bæjarstjórn Seyðifífjarðgrkaup-
staðar fyrir 20. júlí 1955.
SS5SSSSSSSS5SSSSSSSSSSS5S5S5SSSSSSSS5SS5SSSSS£SS5SSSS5SlSS5SSSSSS5SSS5SSSSS5SSSSSSSSSSS3S5SSSSSSSSSSSSSSSSSSSl
Smásagnakeppni
Tímaritsins STEFN
S
Frcstur til að skilti handritum frainlengdur til 15.
JUII <:
úttev
:-p.r4
■-lulltiík
ájLÍiist
Einfí og kunnugt er ákváð tímaritið Stefnir nýlega að efna úl smásagnakepþni
um BESTU SMÁSÖGU ÁRSINS 1955. Hámarksaldur til þátttöfeu er 38 ár. í dóm-
nefnd i'itstjórar Stefnts. GlæsÚegum verðlaunum heitið: Flugferð til Parísar eða
London og 10 daga kostnaðarlaus dvöl þar. Þá hafði frestur t-I að skila handr't-
um verið ákveðinn 15. júlí.
Nú þegar hafa allmargar sögur borizt, en vegna þess að 3. heíti Stefnis kem-
ur ekki út fyrr en í haust hefir nú verið ákveðið að framlengja þennan frest til
15. ágúst næstkomandi. Fyrir þann tíma þurfa handr't að hafa bonzt rit'nu, póst-
hólf 582, eða til ritstjóra. Skulu handrit vera nafnlaus, en þeim fylgja í íokuðu um-
slagi höftundarnafn og heimíUsfang. —>
líatariíið Sto£nir
*PWmW5»t5«^5!»S»5*C59S5«5*tS3S555SagS35mgll»«iaS5SS55SS5S55555S5555SS55S5SS555S55555$5S5S5Siga