Tíminn - 19.07.1955, Qupperneq 3

Tíminn - 19.07.1955, Qupperneq 3
blag - TÍMINN, sunnMdagmn 178. júli 1955 í slendingajDættir Dánarminning: Bergþór Jónsson bóndi að Flióisíungu Þau hörmulegu tíðindi bár- ust út um landíð um miðja síðustu viku, að tveir borg- firzkú’ bændur hefðu drukkn að í Úlfsvatni, er þeir voru þar að silungsveiðum. Menn þessir voru bændurn- ir í Fljótstungu í Hvítársíðu, Bergþór Jónsson, emn af elztu og traustustu bændum héraðsíns, og tengdasonur hans, Hjörtur Jóhannsson, er nýlega var tekmn við búi á hálfri jörðinni hjá tengdafor- eldrum sínum, en Fljótstung an hefir verið í eign sömu ættar um langt skeið. Ég, er þessar línur rita, vilj í stuttu máli mmnast Berg-j þórs Jónssonar, enda var< hann nákominn ættingi minn, og hafa foreldrar mín- ir og systkini notið margra ánægjústunda á Fljótstungu- heimilínu að fornu og nýju. Bergþór Jónsson var fædd- ur að Fljótstungu 8. okt. 1887, og var sonur Jóns Pálssonar, bónda þar og Guðrúnar Pét- ursdóttur, en börn þeúra auk Bergþórs, voru Vigdís, gift Halldórl skáldi á Ásbjarnar- stöðum, Halldóra, er gift var Sigurði Ólafssyni rakarameist ara„ Pétur er eitt sinn bjó í Borgarhrði, en fluttist síðar til Reykjavíkur og er nú lát- inn fyrir nokkrum árum, og . Páíí og Guðrún, er bæði lét- ust ung. Bergþór Jónsson tók við bú inu í Fljótstungu eftir for- eldra sina og bjó þar alla tíð síðan, en hann var giftur Kristínu Pálsdóttur frá Bjarnastöðum, og lifir hún mann sinn, nú sjötug að aldri. Þeim hjónum varð sjö barna auðíð, tveggja sona og fimm dætra, og eru þau öll á lífi. Þeim Fljótstunguhjónunum auðnaðist að koma börnum sínum vel tú manns og mennta, enda lögðu þau ríka áherzlu á að mennta börn sín og búa þau, sem bezt und- ir lífsbaráttuna. Voru þau jafnan samhent í starfi, enda búnaðlst þeim vel. Bergþór var míkill framkvæmdamaö- ur, bætti jörð sína og stóð framarlega í bændastétt hér- aðsins, og var mjög vel lát- inn af sveitungum sínum. í bernsku minni dvaldizt ég mörg sumur að Ásbjarnarstöð um hjá Vigdísi systur Berg- þórs og Halldóri skáldi manni hennar. Foreldrar mínir komu jafnan á hverju sumri upp í Borgarfjörð, og komu þá allt- af að Ásbjarnarstöðum á leið sinni að Fljótstungu. Fékk ég þá alltaf að fylgja þeún þang að frá Ásbjarnarstöðum, og var það mér jafnan fagnaðar efni að heimsækja frændfólk ið þar, enda fann maður sig þar jafnan sem heima, því að svo innilega náið var sam- bandið meðal þessa ættfólks. Móttökurnar yljuðu manni um hjartarætur, og svipaða sögu munu óskyldir einnig hafa að segja um Fljótstungu heimiHð. Þar var öllum gott að koma, og góðvild og hlý- hugur mætti hverjum þeim, sem að garði bar. Þetta mun ekki hvað sízt eiga við um sveitungana, sem haust og vor riðu tU fjalls, bæði er þeir ráku fé á fjall, og eins er þeir fóru í leitirnar á haust in. Þá var oft gestkvæmt í Fljótstungu, og má segja að þarna á innsta bænum í Hvít- ársíðunni hafi verið sannkall að sæluhús fjallleitarmanna. Þessar fáu línur áttu aðeins að vera stutt kveðja til hins aldna og fallna bónda í Fljóts tungu frá mér og systkinum mínum, og vildum vJð mega færa honum látnum innileg- ustu þakkir fyrir alla góðvild hans í okkar garð og margar ógleymanlegar stundir á heim ili hans. Um leið vottum við ekkju hans og öðrum nánustu ættingjum dýpstu samúð í raun þeúra, og þá ekki sízt dóttur hans, Ingibjörgu hús- freyju í Fljótstungu, sem nú hefir í einu orðið á bak að sjá ástríkum föður sínum og ungum eiginmanni. Páll Sigurðsson. KSSSSSSSíSSæsæSSSSSÍSSWÍÍÍÍíSíSSSSSÍÍSSSSÍftMSSSÍ^ÍSSSSÍSÍSSÍÍSSSSÍiííSSSSSSÍSSÍSSSÍÍSÍSSSSÍÍSSSSÍSftíSÍÍSa TRAUSTIR Reynsla síðustu 30 ára sannar að FORD vörubifreiðin er sem byggð fyrir ís- lenzka staðhætti. Þér fáið ekki betri hii en SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSI tssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssss Bláslð á rigmngima Höfum enn fyrirliggjandi nokkra blásara af báðum stærðum til afgreiðslu strax. — Enn fremur 1 stykki af B-18 með sambyggðri benzínvél. ICeiiir h.f. við Elliðavosi Burðarmagn allt að 14 tonnum. FORD-UMBOÐIÐ ■ , "j | - L ,i _ !• KR. KRISTJAN5SON H4 — % Laugavegi 168—170 — Reykjavík. Símar 82295 — tvær línur. íþróttamót U. M. S. Borgarfj, ssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssss íþróttamót U.M.S. Borgar- f jarðar var haldið á Ferjukots bökkum laugardag og sunnu- dag 9. og 10. þ. m. Veður var óhagstætt, rign- ing og stormur, er spillti árangri íþróttafólksins. Úrslit í einstökum greinum urðu þessi: 100 m. hlaup. 1. Garðar Jóhanness. í. 11,4 2. Jón Blöndal R. 11,5 3. Sveinn Þórðarson R. 11,6 400 m. hlaup. 1. Eyj. Sigurjónsson R. 60.0 2. Vigfús Fétursson R. 61,0 3. Jón Böðvarsson D. 61,5 1500 m. hlaup. f. Haukur Engilbertss í. 4:47,4 2. Rúnar Pétursson í. 4:55,8 3. Eyj. Sigurjónss. R. 4:58,8 ■tf. 3000 m. hlaup. 1. H. Engilbertsson í. 10:07,0 2. Eýj. Sigúrjónss. R. 11:32,6 3. Vigfús Péturss. R. 11:32,8 4x100 m. boöhlaup. 1. A-sveit Reykdæla 48,5 2. Sveit Hauks 51,5 3. B-sveit Reykdæla 52,8 Langstökk. 1. Ásg. Guðmundsson í. 6,21 2. Kristj. Sigurjónsson Þ. 6,20 3. Jón Blöndal R. 6,03 Hástökk. 1. Garðar Jóhanness. í. 1,60 2. Jón Þórisson R. 1,60 3. Bjarni Guðráösson R. 1,56 Þrístökk. 1. Bjarni Guðráðsson R. 12,42 2. Jón Blöndal R. 11,86 3. Jón Böðvarsson D. 11,58 Kúluvarp. 1. Sv. Jóhannesson St. 11,91 2. Bjarni Guðráðsson R. 11,82 3. Jón Eyjólfsson H. 11,20 Kr«nglukast. 1. Ásg. Guðmundsson í. 38,34 2. Jón Eyjólfsson H. 38,27 3. Sv. Jóhannesson St. 35,58 Spjótkast. 1. Þorst. Pétursson í. 41,95 2. Jón Blöndal R. 41,35 3. Sig. Sigurðsson St. 34,79 80 m. hlaup kvenna. 1. Guðrún Sigurðard. V. 11,6 2. Ásta Einarsdóttir R. 11,7 3. Guðrún Þorsteinsd. D. 11,8 Langstökk kvenna. 1. Sigrún Þórisdóttir R. 3,95 2. Guðrún Sigurðard. V. 3,94 3. Herdís Magnúsd. R. 3,90 Hástökk kvenna. 1. Guðrún Sigurðard. V. 1,22 2. Sigrún Þórisdóttir R. 1,15 3. Sjöfn Ásbjarnard. Sk. 1,15 Kúluvarp kvenna. 1. Sigrún Þórisdóttir R. 8,35 2. Perla Höskuldsd. R. 7,40 3. Sjöfn Gúðjónsd. H. 7,34 Kringlukast kvenna. 1. Sigrún Þói’isdóttir R. 19,17 2. Vigdís Sigvaldad. í. 18,88 3. Gúðf. Guðráðsd. D. 18,80 Starfshlaup. 1. Jón Eyjólfsson H. 6:43,0 2. Haukur Engilb.ss. í. 7:00,0 3. Har. Hákonarson H. 7:08,0 Dráttarvélaakstur. 1. Sig. Sigurðss. St. 101 stie 2. Ingvar Ingvarsson í. 83 stig 3. Marg. Gestsson Br. 77 stig, UMF Reykdæla hlaut 75 stig, UMF íslendingur hlaut 34 st, UMF Haukur hlaut 12 st, UMF Vísir hlaut 12 st, UMF Stafholtstungna 10 st, IJMF Dagrenning hlaut 9 st, UMF Þrestir hlaut 4 st, UMF Skallagrímur hlaut 3 sí, Lyf gegn æðakölkun í eggjum, rjóma, feiti og ýmsum tegundum fæðu, sen, daglega er neytt, er efni, sen, kallað er „Cholesterol“. Þetti efni veldur æðakölkun. Nú hefir amerískur læknii O. J. Pollack að nafni fundú upp efni, sem nefnt er „Sites- trol“ og hefir þann eiginleika að það varnar því að „Choleí terol“ komist inn í blóðið, er„ skUst frá líkamanum sem úr- gangsefni. Dr. Pollack hefir reynt efnið á sjálfum sér td aö komast a?. raun um, hvort það hafi nokk ur skaðleg áhrif. Og telur hann að svo sé ekki. Efni þetta er unnið úi,: sojabaunum. (He’lsuvernd), ;j

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.