Tíminn - 19.07.1955, Side 4

Tíminn - 19.07.1955, Side 4
4 TÍMINN, sunTmdagmn 178. júli 1955. 158. biað. KRISTMUNDUR JÓNSSON fyrrum kaupfélagsstjóri að Borðeyri í dag verður til moldar bor- inn Kristmundur Jónsson stjórnarráðsfulltrúi, fyrrum kaupfélagsstjóri á Borðeyri. Hann var fæddur að Litlu- Hvalsá við Hrútafjörð 25. á- gúst 1884, d. 13. þ. m. Kristmundur Jónsson var hinn merkasti maður á marga lund, og sakir h'ns mikilvæga starfs hans við Kaupfél. Hrútafjarðar um 20 ára skeið, er mér ljúft og skylt að minn- ast hans í þessu túefni að nokkru. Kristmundur mun ekki síður en margir aðrir á hans reki hafa í æsku og upp- vexti' reynt hin erfiðu kjör efnalausra sveitadrengj a, þar sem móðir hans, Sigurrós Kristjánsdóttir, átti ein og efnalaus fyrir tveimur drengj um að sjá, eftir að maður hennar andaðist, er drengir þeirra voru báðir á bernsku- aldri. En Kristmundur hóf sig fljótt yfir alla örðugleika með einbeittu viljaþreki og góðum hæfileikum. Kristmundur stundaði flest almenn störf, bæði sveita- vinnu og siómennsku á upp- vaxtarárum sínum. Var það almæli, að hann væri til allra starfa meira en meðalmaður, bæð1 hvað verklag og vinnu- afköst snerti. Eftir að Kristmundur var orðinn fullvaxta, stundaði hann nám við Flensborgar- skólann, sem þá var og mik- ill siður ungra og efnilegra manna. Lauk hann þar ágætu prófi og stundaði eftir það barna- og unglingakennslu um nokkur ár. Mun öllum, sem til þekkja, bera saman um að hann hafi verið með afbrigðum góður kennari. Hafði hann eir.stakt lag á að gera kennsluna meira að' skemmtandi og fræðandi við- ræðum en þreytandi skyldu- námi. Þegar eftir að Kristmundur 1908 hóf búskap á Kolbeinsá við Hrútafjörð, föðurleifð konu sinnar, Sigríðar Óla£s- dóttur, er hann kvongaðist það ár, tók hann þegar, jafn- framt því, að byggja upp og gjöra aðrar umbætur á jörð- inni, að sinna málefnum Kaup félags Hrútfirðinga, sem þá nefndist raunar verzlunarfé- lag, og fór þá bráðlega svo, að meginþungi af starfsemi þess færðist yfir á hans herð- ar, enda voru þá frumherjar félagsins hvað af hverju að falla í vabnn. Tók Kristmund- ur við deildarstjórastarfi I því 1915 og framkvæmdastjóra- starfi stuttu síðar. Ennfremur hafði hann hreppstjórn á hendi um nokk ur ár. Hvað kaupfélagið snerti varð niðurstaðan sú fyrir Kristmundi, eins og svo mörg um öðrum bændum, sem gerzt hafa forustumenn og fram- kvæmdastjórar kaupfélag- anna, að hann sá sér ekki ann að fært en bregða búi 1920 og flytja með fjölskyldu sína til Borðeyrar, þótt á því væru allmiklir annmarkar, bæði hvað húsakost og launakjör snerti. Var hvort tveggja, að verzlunarumsetning félagsins var lítil til aö standast mik- inn verzlunarkostnað, og skilningur manna ekki nægi- legur fyrir nauðsyn þess að gera kjör fjölskyldumanns við starfið svo góð sem þörf var á, einkum þar sem kaupfélags Stjórinn var allra manna frá- Jbitnastur því að gjöra kröfur vegna sinna eigin hagsmuna. Um það leyti er Kristmund ur tók við forustu kaupfélags- ins, var og fjárhagsafkoma fé lagsmanna mjög erfið, skulda verzlunarfyrirkomulag næsta rótgróið í hugsunarhætti fólksins, enda naumast um neinar peningastofnanir að ræða, er hægt var að snúa sér til með lántökur, er greitt gætu úr í þessu efni. Urðu því jafnan stjórn og fram- kvæmdastjóri á þeim árum að sætta sig við meira og minna undanhald frá settu marki um skuldlaus verzlun- arviðskipti. Er og ekki hægð- arleikur fyrir vinsælan og vel- viljaðan innanhéraðsmann, að neita mönnum um nauð- synjar, þegar örðugt var að benda á úrræði til bjargar. Þrátt fyrir þetta þróaðist vöxt ur og viðgangur félagsins jöfn um skrefum undir stjórn Kristmundar. Húsakostur þess var smátt og smátt nokk uð bættur, og að lokum, 1928, var byggt myndarlegt verzl- unarhús með íbúö fyrir kaup félagsstjórann á annarri hæð. Þegar svo hin gamla og að mörgu leyti góðkunna verzl- un R. P. Riis á Borðeyri var seld árið 1930, keypti kaupfé- lagið hús hennar og verzlun- araðstöðu. Var það mikill sig- ur fyrir samvinnuverzlun hér- aðsins. Á þessum árum stofnaði og félagið og rak um nokkurt skeið útibú á Óspakseyri, en þar hafði áður verið lítil kaup mannsverzlun. Nú hafa deild armenn kaupfélagsins þar og þeir, er skiptu við kaupmann- inn, fyrir alllöngu stofnað sér stakt kaupfélag og reka það, þótt lítið sé, með myndarskap og mikilli hagsýni. En þótt úr rættist að ýmsu leyti um fjárhag félagsins, verzlunarumsetningu og húsa kost, létu aðrir erfiðleikar ekki á sér standa. Veturinn 1931 varð eldur laus i kaup- félagshúsinu og brann þar hið nýja verzlunarhús, ásamt miklu af vörum og verzlunar- áhöldum, auk allra húsmuna kaupfélagsstjórans og fjöl- skyldu hans. Var það aðeins fyrir harðfylgi Kristmundar, að ekki brunnu þýðingar- mestu verzlunarbækur félags ins. Brunatryggingar búslóða tíðkuðust þá ekki almennt, og þótt lítils háttar samtök yrðu um að hlaupa undir bagga, varö tjón fjölskyldunnar stór kostlegt og tiltölulega miklu meira en kaupfélagsms, því það naut þá þess láns í láni að hafa fest kaup á húsum kaupmannsverzlunarinnar eins og áður er getð, og reynd ist sá húsakostur viðunanleg- ur um sinn. Þessu reiðarslagi tóku þau kaupfélagsstjóra- hjónin með einstakri stillingu og þreki. Veit ég, að þeim hefir þótt mestu varða, að hag félagsins va'r sæmilega borgið, fannst það og jafnan á, að Kristmundur bar meira fyrir brjósti afkomu félags- ;ins en eigin hag. | Á. því 20 ára tímabili sem Kristmundur Jónsson stjórn- aði Kaupfélagi Hrútfirðinga, óx það, þrátt fyrir marghátt- aða örðugleika, frá því að vera pöntunarfélag nokkurs hluta bænda á félagssvæð'inu með lítilli söludeild til þess að vera einrátt um alla verzl- un á Borðeyri, auk útibús á Óspakseyri. Segir sú þróun bezt til um hið farsæla starf hans. Árið 1934 sagði Kristmund- ur upp starfi sínu við félagið, og flutti vorið 1935 með fjöl- skyldu sína tU Reykjavíkur. Réðist hann fulltrúi í dóms- málaráðuneytinu og starfaði þar ósÞtið þar tU hann tók sjúkdóm þann, er dró hann til dauða. Má fullyrða, að hann hafi þar leyst störf sín af hendi með þehri skyldu- rækni og vandvirkni sem hon um var svo eiginleg. Sigríður, kona Kristmund- ar, var mikilhæf gáfukona, eins og hún átti kyn til. Var hún manni sínum hmn mesti styrkur. Þeim hjónum varð sjö barna auðið og lifa sex þeirra og eru hin mannvæn- legustu. Því miður varð þess skammt á milli, að Kristmundur hvarf frá starfi við Kaupfélag Hrút Þrðinga, sem hann var orð- inn næsta samgróinn, og að hann varð á bak að sjá sinni ágætu konu, því hún lézt sama árið og þau fluttu frá Borðeýri til Reykjavíkur. Mun þetta hvort tveggja sam tímis hafa verið meginorsök þess, að efth það dró hann sig meira í hlé en aldur og hæfileikar gáfu tilefni tU, og lifði mjög kyrrlátu lífi með- al barna sinna. Nú við lok langrar og merkr ar starfsævi Kristmundar Jónssonar, vil ég fyrir Kaup- félag Hrútfirðinga bera fram þökk og virð'ingu okkar gam- alla sveitunga hans og vina fyrir mikið og fórnfúst starf kaupfélagsskap okkar til gagns og gengis. Gunnar Þórðarson. Ungling vantar til blaöburöar í Skerjaflrði __ Affgreiðslei Títnans Sími 2323 icsassaassassssssssssssssasssssssssssssgsssssssssssssaassssssass&ssissaw «SSS3SS3SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS5SS3SSSSSSSSSSSSSSS3SSS» Oreiðið blaðagjaidið! Kaupendur blaðsins eru minntir á að blaðgjald írs- ins 1955 féll í gjalddaga 1. júlí sl. Þeir kaupendur, sem ekki greiða blaðgjaldið mánaðarlega til umboðsmanna ber að greiða það nú þegar til næsta innheimtumanns eða beint til innheimtu blaðsins. — Blaðgjaldið er ó- breytt. Innheimta TÍEVIAMS cssssassssssssssssssssssssssssssssssssassgsssssasgis* LOKAÐ vegna sumarleyfa frá 18. júlí til 8. ágúst. Opal h.f. SÆLGÆTISGERÐ »5SSSSSÍSÍSSS3SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS33SSS5SSSS$SSSSSSSSS3$5S) VWWWWVWWWVWVWJVWbiV Bezt að auglýsa í TÍMANUM Alboi er albezt QLIUVERZLUN IbLANDS? fSSSqSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSgSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSa

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.