Tíminn - 25.09.1955, Page 3
217. blað.
TÍMINN, sunnudaginn 25. september 1955.
/ slendingaþættir
Dánarminning: Sigurjón Jónsson,
héraðslæknir
Þann 30. f m. lézt að heim
ili sínu Reykjaveg 24, Rvík,
Sigurjón Jónsson, fyrrv. hér-
aðslæknir Svarídalahéraðs.
Með honum er horfinn úr
hópi íslenzkra lækna einn af
mikilhæfustu mönnum þeirr
ar stéttar og mætur dreng-
skaparmaður.
Sigurjón Jónsson var fædd
ur 22. des. 1872 að Hæli á Ás-
um í Húnaþingi. Hann varð
stúdent 1897 og cand. med.
1901. Skipaður var hann hér
aðslæknir í Höfðahverfishér
aði 1905, en hafði áður verið
settur læknir 1 Keflavík 1901
og Mýrahéraði 1902.
Kona Sigurjóns var Sigríð
ur Olafsdóttir frá Sveinsstöð
um í Húnavatnssýslu, fædd
26. sept. 1875, hin ágætasta
kona. Börn þeirra eru Elín,
gift Þórarni lækni Sveinssyni
í Reykjavík, Oddný kennslu
kona, Rvík, Július prófessor,
Rvík, giftur Bergljótu Peter-
sen og Ingibjörg, lyfjafræð-
ingur, gift Sverri Magnús-
syni lyfjafræðing, Hafnarf.
Er Sigurjón tók við Höfða
hverfishéraði náði það hér-
að yfír austurströnd Eyja-
fjarðar frá Þorgeirsfirði að
Svalbarðl. Vestan Eyjafjarð-
ar, yfir Árskógsströnd, Hrís-
ey, Svarfaðardal og Ólafs-
fjörð. Nú er þetta svæði þrjú
læknishéruð. — Ekki þekki
ég hversu erfið læknishéruð
voru á sama tíma annars
staðar á landinu, sjálfsagt
hafa þau verið erfið, en tæp
lega get ég hugsas mér að'
öllu erfiðara hafi fundist en
Höfðahverfishérað var. Fólks
fjöldi mikill, og þar af leið-
andi mjög mikið um læknis
vitjanir, en héraðið sundur-
slitið yfir sjó að sækja. heið
ar og erfiða fjallvegi í út-
kjálkahéraði og veðra- og
snjóaþungu. Það lætur að lík
um hvílíkt erfiði það hafi
verið að rækja læknisstörfin
og hversu háskasamleg ferða
lögin hafi verið. Sigurjón
læknir var hvorki mikill á
vöxt eða af líkamlegum burð
um, enda ekki heilsuhraust-
ur ifaman af ævi, en gæddur i
ótrúlegri seiglu og svo járn-j
•sterkum vilja, að hann lét
aldrei á sig ganga, að hann
fckki hlýddi kalli hvort held
ur var á nótt eða degi, hversu
tvísýnt og háskasamt sem
virtist um ferðalok. Enda
komst naumast sú hugsun að
hjá Sigurjóni lækni. Skyldu
ræknin var honum svo í blóð
borin, að allt annað varð aö
víkja.
HÖfSahverfishéraði var
sk’pt 3908. Sá hluti héraðsins
er lá vestan Eyjafjarðar var
gert að sérstöku héraði, Svarf
dalahérað, og kaus Sigurjón
að vera skipaður í það hérað,
enda miklu mannfleira. Lækn
isbústaðurinn var Árgerði við
Dalvík Svarfdalahéraði þjón
aði hann síðan til 1938 að
hann lét af læknisstörfum.
Ekki voit ég hver atvik
báru til þess að Sigurjón
gerðist læknir 1 útkjálkahér
aði, en svo mun Höfðahverf
ishérað og síðar Svarfdala-
hérað hafa verið talin á þeim
tíma. Virðist mér flest mæla
með að hann hefði átt að
h?.fa bctri kosta völ með svo
glæsiiegan námsferil og próf
að baki. En hvað sem valdið
hefir er hitt víst að Svarf-
dælingar og aðrir ibúar hér
aðsins telja sér það mikið
happ, og eru stoltir af, að
hafa átt Sigurjón að læcni,
og því, að hann skyldi svo
vei una hag sínum á meðal
þeirra, að hann leitaði, að ég
ætla, aldrei eftir að hverfa
til læknisstarfa annars stað
ar. —
Það er naumast á mínu
færi að dæma um læknis-
störf Sigurjóns og bera þau
saman við læknisstörf stétt
arbræðra hans, — þar kemur
svo margt til greina, aðbún-
aður og aðrar aðstæður að
fagmanni einum er fært að
fella þann dóm. En eltí er
víst, að héraðsbúar heíöu
ekki kosið læknaskipti, þótt
völ hefði á verið, því traust
og virðingu hlaut Sigurjón
því raeiri, sem starfstími
hans lengdist, og er það eitt
nægur vottur um hann sem
lækni. Þaö lætur líka að lík-
uni um raann eins og Sigur
jón, sem ætti tn að bera í
ríkulegum mæli gáfur, sam-
vizkusemi og skyldurækni.
Það eina, sem á skorti, að
dómí þess, er þetta ritar, og
svc munu fleiri undir taka,
var, að skapstillingu var nokk
uð ábótavant, einkum fram
an af. Þetta játaði og fann
Sigurjón sjálfur þótt eigi
fengi fyliilega að gert. Sig-
urjón læknir var svo mikill
perséraileiki. að hann bolir
það vel, að veikleiki hans sé
ekki ciuhnn, þegar um hann
er skrifað og mundi manna
sízt hafa óskað eftir að hann
yrði borinn lofi vfir veikleika,
því hretnskilnan mann getur
va’ia. og lá iafnvel við stund
um, að sú hreinckilni skapaöi
honum óvinsælda. Hins ber
bá líka að geta að fyntíist
honum sjálfum. að hann
heið’ gengið oí langt eða
gert öðrum rangt tfl, vantaði
harm ekki drengskap og karl
mennsku til að játa buð og
tæta ' fyrir, enda næsta sátt
fús, þótt hann sjálfur yrði
fyrir órétti, væri hreinlegra
sátta leitað.
Sigurjón læknir gerði ekki
alla að vinum sínum, var
vínavandur, en þeir, sem öðl
uðust vináttu hans, máttu
líka treysta henni og væri
þó víðs fjarri sanni að segja,
að hann dyldi vini sina þess,
sem ha-nn taidi ljóð á ráði
þeirra eða væri aðfinnslu
(Framhald 6, 6. BÍSu).
pnum a morgun
nýja deild fyrir kápur, kjóia
og dragtir
að Laugaveg 116
I. hæö)
Frá saitia tsma verða hjóludeild í Anstarstrætl 6 hápu-
deild í Ansturstræti 10, lagðar niður.
Nýtt og glæsilegt úrval af útlendum
vetrarkápum og poplinkápum
3Jjur Lf.
ft
Tékkneskur skdfatnaður
er heimskunnur sakir gæða og hagkvæms verðs. L
Kaupmenn! Kaupfélög!
Sem umboðsmenn á íslandi fyrir CENTROTEX, Footwear Department,
Prag, getum við boðið yður óvenju fjölbreytt úrval af hvers konar
gúmmí-, striga- og leðurskófatnaði. Á skrifstofum okkar höfum við bæði
sýnishorn og myndalista yfir skófatnað þennan.
Sendið okkur pantanir yðar og mun CENTROTEX síðan senda yður
vörurnar beint frá Tékkóslóvakíu. — Gúmmí- og strigaskófatnaður er á
frílista, en leðurskófatnaður er háður venjulegum gjaldeyris- og innflutn-
ingsleyfum.
Lárus G. Lúðvígsson Th. Benjamínsson & Co.
SKÓVERZLUN ÓLI J. ÓLASON
Pósthólf 968 — Reykjavík, Pósthólf 602. — Reykjavík
UMBOÐSMENN Á ÍSLANDI FYRIR J
CENTROTEX
— FOOTWEAR DEPARTMENT —, PRAG.