Tíminn - 19.11.1955, Blaðsíða 1

Tíminn - 19.11.1955, Blaðsíða 1
Kfcxifstofui 1 Edduhúsi. Préttasimar: B1302 og 81303 Afgreiðslusími 2323 Auglýsingasiml 81300 PreatsmiSjan Edda Bitstjóri: Þórarinn Þórarinsson Ótgefandi: yra.mgóimnrflnirlni'HTin S9. árg. Reykjavík, laugardaginn 19. nóvember 1955. 264. blaS. Nýít fiskiðjuver á Seyðisfirði Nýlc: ra var sagt írá byggmgu fískiðjuvers í Seyðisfirði. — Myndzn er af fiskiðjuverinu. TveSr nýir stálbátar keyptir til Fáskrúðsfjj. Frá fréttaritara Tímans á Fáskrúð'sfirði. í næsta mánuði eru væntanlegir hezm til Fáskrúðsfjarff- ai tveir nýir fiskibátar, sem byggffir eru í Hollandi úr stál>. Eru báðzr þesstr bátar um 70 lestir að stærð og búnir öllum nauðsynlegum siglinga- og sjósóknartækjum. Hádegisverður á vinnustað Á bæjarstj<5rnarfundi sl. fimmtudag var eftirfarandi tillaga borin fram. Bæjarstjórn ályktar að fela borgarstjóra og bæjar- ráði að athuga hvort hag kvæmt sé og æslcilegt að fereyta vinnutzlhögun í skrif stoíum og öðrum vinnustöð um bæjarins og stofnana hans á þann veg að starfs- fólkið snæði hádegisverð á vinnustað sínum. Athuguð sé aðstaða sér- hverrar deildar í bæjarrekstr insim til að koma á fót mat- stöðum í þessu skyni og kostnað viff það. Ennfremur skal leita á- Jits félags bæjarstarfsmanna og verkalýðssamtakanna um breytingu á vmnutilhögun starfsfólks í framangreinda átt. Tiílaga þessi var samþykkt með öllum atkvæðum. Annar þessara báta er smíðaður fyrir hraðfrystihús Kaupfélags FáskrúðsfjarÖar, en hinn fyrir Pálma Þórðar- son útgerðarmann á Fáskrúðs firði. Eru umboðsmenn beggja eigenda nú komnir til Hollands tU að fylgjast með smíðinni og veita bátunum við töku, þegar þar að kemur. Stjórnmála- námskeiðið í dag hefst fundur kl. 2 e. h. Erindi á fundinum held- ur Eystemn Jónsson, ráSð- herra, um stjórnmál. Einnig flytur Guðmundur Magnús- son framsöguerindi um í- þróttamál. Mætið vel og stundvíslega. Þessir nýju stálbátar munu kosta um 1200 þús. krónur. Þegar þessir bátar eru komnir til Fáskrúðsfjarðar eru gerðir út þaoan fjórir stórir vélbátar- Var e>nn keyptur frá Danmörku i sumar og ann an keypti hraðfryst>hús kaup - félagsins í fyrra. Báturinn, sem keyptur var í sumar, Stefán Arnarson, er nú á línuveiðum úti fyr'r Aust urlandi og aflar sæmilega í úti legu. Áður stundaði báturúin landróðra og fékk bá upp i 13 skippund í róðri. Sjómenn á Austfjörðum telja, að fiskigengd hafi vaxið nokkuð úti fyrir Austfjörðum síðustu misserin, enda þótt h>n nýju landhelgisákvæði komi að litlum notum og frið- unarsvæði aukist litið með til komu þeirra út af Austfjörð- um. Telja menn nauðsynlegt að víkka landhelgina úti fyrir Austurlandi. KJÖRBÚÐ - skal verzlun með „sjálfsafgreiösfu” íieita Úrsllt í samkeppsKi SÍS um heppsSeg’t ís- lenzkt orö yfir slíka verzluu Úrslit í samkeppni þeirri nm nýtt, íslenzkt orð yf*r „sjálfsafgreiðsluverzlanir“, er Samband íslenzkra sam- vinnufélaga efnd> t*l í síð- ast liðnum mánuði, urðu þau að valið var orðið k j ö r b ú ð. Mæhr dómnefndin með því, að það orð verði tekið upp í málið yf*r allar slíkar verzl anlr. Með þvf að sendu tillögur 65 manns um þetta sama nafn, var, eins og tilkynnt vár í upphafi, dreg >ð um 5.000 krónu verðlaun- in, og var það gert hjá full trúa borgarfógeta í gær- Verð launin hlaut: Aðalbjörn Arn grímsson, Þórshöfn. AHs bárust tæplega 700 bréf með 2500—3000 tillög- xun. f dómnefndinni áttu sæti bez'r Þorkell Jóhannes- son, rektor Háskólans, Hall- dór Halldórsson, dósent, og Benedikt Gröndal, ritstjórl. Handritanefndin hefir unnið gott og mikilvægt starí Foru haudrit Ijóspreutnð og gefin út í síðustu fjárlögum voru 100 þúsund krónur veitíar í þvl skyni aö gefa út forn handrit og Þl vísindalegra iökana £, fornum bókmcnntum þjóðarinnar. Nefnd var skipuð til ao' \inna að framgangi málsins og áttu þessir sæti í henní Einar Ólafur Sve'insson, Þorkell Jóhannesson, Ólafur Lárus • son og Alexander ’ Jóhannesson. Einar Ólafur er formaðii: .’ nefndarinnar. Maður hverfur á Akureyri Frá fréttaritara Tímanns á Akureyri. S. I. mzðvikudagskvöld hvarf hér í bænum maður að nafni Friðjón Jóhannes- scn, fremur ungur maður. Vann hann í verksmiðjunni Iðunn og fór þaðan he>m frá vinnu á miðvikudagskvöld en síðan hefir ekki til hans spurzt. Hefir hans verið leit að undanfarna tvo daga en án árangurs. Nefndin kallaði fréttamenn blaða og útvarps á sinn fund upp í Háskóla í gær og skýrði frá framgangi málsins. Nefnd in áleit að verkefni hennar væri þrennskonar: 1. Ljósprentun handrita. 2. Útgáfa sérst^kra hand- rita í stafréttri útgáfu. 3. Að gefa út emstök verk fornra bókmennta. Þetta er þannig vísindaleg útgáfa og hið bezta innlegg i þeirri baráttu þjóðarinnar að fá handritin heim. Fyrst íslendingabók. Fyrsta bókin, sem út kem- ur verður ljósprentuð útgáfa af íslendingabók Ara fróða og er áætiað að halda slíkum lj ósprentunum áfram. Enn- fremur kernur út Svalbarðs- bók, sem er skinnhandrit af Jónsbók frá 1281. Einiiig kem ur út Skarðsbók, sem er hluti af Landnámubók gerð eftir handriti Jóns á Skarðsá, en aðrir hlutar af Landnámubók liafa þegar veúð gefnir út stafréttir. Sér Jakob Bene- diktsson um útgáfu Skarðs- bókar. Maður slasast í Keflavík Frá fréttaritara Tjmans í Keflavík. Það slys varð í Keflavík 1 gær, að Jóel Hannesson, Gerð um í Garði, fékk opið fótbrot á hægra fæti og leggbrot á vinstra fæti við að falla af fótbretti bifreiðar. Nánari at vik voru þau, að Jóel stökk upp á fótbretti vörubifreiðar, sem var á hægri ferð og kunn ingi hans ók. Eftir stundar- korn ætlaði hann af brettinu aftur. en féll við með þeim afleið'ingum, sem áður grem- ir, án þess að bifreiðin ætti þar nokkurn hlut að máli. Lisíafólki fagnað í Ólafsfirði í fyrrakvöld efndu tónlist- armenn útvarpsins til skemmt unar hér og va»> aðsókn svo mikil, að þeir urðu að tvítaka hana. Var þe>m frábærlega vel tekið. Bæjarstjóri og sókn arprestur ávörpuðu listafólk- ið og þökkuðu þvi fyrir kom- una. BS. Rímur geinar út. Gefið verður út safn af rím um, sem eiga að taka við þar sem rímnasafn Finns Jóns- sonar hættir og sér Björn Þór ólfsson um útgáfu þessara rírnna. Emnig er í áætlun að gefa út safn af Riddarasögum. en ekki er enn byrjað á þeirri út gáfu, enda þegar gott starf veríð unnið. Verða útgáfur bessar sendar út um allan heim og munu verða til þess að auka hróður íslenzkra fræðimanna. Hefir nefndir. því gott starf unnið og á miL iö þakklæti skilið. V öruskipta jöf nuður óhagstæðnr nm 310 milljón kr. Vöruskiptajöfnúður i októ - ber var óhagstæöur um 4i! millj. kr. Flutt var út fyrix- 72,8 millj., en innflutningui’ nam 120,9 millj. kr. Á fyrstu 10 mánuðum ársins var vöru skiptaj öfnuðurinn óhagstæð- ■ ur um 310,7 millj. kr. Útílutr. ingur nam 658,5 millj., en inr.. flutningur 969,2 millj. kr. í fyrra var vöruskiptajöfnuður inn fyrstu 10 mánuði ársins óhagstæður um 196 milljónir króna. Raflína yfir Fjarðarheiði Frá fréttaritara Tímans á Egilsstöðum. Þessa dagana er verið aS leggja strengina í raflínu yfir Fjarðarheiði, en staurarnir voru settir niður í sumar. Gera menn sér vonir um, að' hægt verði að leiða nætur- rafmagn frá Seyðisfirði upp að Egilsstöðum í vetur, og sparast nokkuð v'ð bað, þar sem þá þarf ekki að láta dísil stöð fyrsti húsanna ganga um nætur. ES. MiíllEandaskip geta nú Eagzt að Biafnargarðl í ÓBafsfirði Frá fréttaritara Timans í Ólafsfirði- S. I. þriðjudag kom Ðettifcss hingað og lagð*st aff hafna?' garðznum, og var skzpað út í hann þrjú þúsund kössum a£ hraðfrystum karfa. Þetta er í fyrsta sinn sem eúihver Foss- anna leggsí að bryggju hér, og vonum við að framhald verffi á því. * oft hlaðið sandi í höfnina svo að dýpkunarskip hefir orðið að v>nna þar að. Nú virð>st höfnin hinsi ve-gar veira að dýpka, sandurinn að færast frá- Þessi skíp hafa ekki fengizt til að leggjast hér við hafn- argarðinn af ótta v>ð grvnn ingar við garðinn. Nú reynd- ist dýpi hins vegar nóg os mældust ]jxir metrar undir kjöl Dettifoss um fjöru. Höfnin dýpkar. Á undanförnum árum hefir LítUl afli. Trillur geta sjaldan róið vegna ógæfta, og afli er lítill, þegar á sjó gefúr. BS.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.