Tíminn - 18.12.1955, Qupperneq 6

Tíminn - 18.12.1955, Qupperneq 6
K TÍSVIINN', summdaginn 18. desember 1955. 289. blaff. S SC M1F A Það eru merkileg og góð tíð- tndi að Samband ísl. sam- vinnufélaga skuli loks hafa fengið leyfi til að láta kaupa ®ða byggja olíuflutningaskip. Það er nú komið hátt á þriðj a ár síðan S.Í.S. hófst handa um að kaupa olíuflutningaskip og átti það um skeið kost á að fá skip keypt með mjög hagstæð- um kjörum. Af því varð þó ekki, því að íslenzk stjórnar- völd neituðu um leyfi. Þarf skki að taka það fram, að þar var Sjálfstæðisflokkurinn að verki. Síðan hafa olíuflutn- hrgaskip stórhækkað í verði. iRekstur olíuflutningaskipa hefir og verið mjög hagstæður á þcssum tíma. Óhætt má því fullyröa, að þessi leyfissynjun Sjálfstæðisflokksins er búin að skaða þjóðina um margar miljónir króna. Engar réttmætar ástæður færði Sjálfstæðisflokkuinn fyrir þessari neitun sinni. Henni réði ekkert annað en löngunin til að hinda fram- gang og framtak samvinnu- hreyfingarinnar. Má vel marka á þessu hug flokksins i garð hennar. Þetta eina dæmi er næg sönnun þess, hvers samvinnuhreyfingin mætti vænta, ef Sjálfstæðis- flokkurinn gæti ráðið því ein samall hvernig málum yrði háttað hér á landi. Eftir langa baráttu, hefur þessi mótspyrna Sjálfstæðis- flokksins verið brotin á bak aftur, og leyfið til að byggja olíuflutningaskip, sem verður iangstærsta skip íslenzka flot ans, er nú loks fengið. Með því er stigið veigamikið spor til að ikoma siglingum til landsins á innlendar hendur og gera þjóð íina óháða erlendum gróðafél- Ligum á þessu sviði. í raun og veru er hér að gerast merkur þáttur í sjálfstæðisbaráttunni. Fyrir samvinnumenn er vissulega ástæða til að fagna þessum sigri. Þess er líka vert að minnast, að umræddur sig- ar hefði ekki unnist, án að- iStoðar og fulltingis Framsókn arflokksins. Þingfrestunin og fjárlögin. Alþingi hefur nú frestað störfúm sínum fram yfir nýj- ár. Jafnframt hefur afgreiðslu xjárlaga einnig verið frestað. Fjármálaráðlherra beitti sér 'jþó gegn því, en lét að lokum undan vegna eindreginna til- :.næla sjávarútvegsmálaráð- tierra. Sj ávarútvegsmálaráðherra færði fram þau rök, að hann væri ekki tilbúinn með tillög- ur sínar varðandi rekstur út- gerðarinnar á næsta ári, en embættisskylda hans er að lafa forustu um lausn þéss máls. Taldi hann eðlilegt, að af greiðslu f j árlaganna yi’ði frestað, unz séð yrði, hverjar jpessar tillögur yrðu. Ef rétt hefði verið að mál- xim þessum unnið, hefði sjáv arútvegsmálaráðherra átt að hafa þessar tillögur tilbún- ar fyrir alllöngu Það eru ekki afsakanleg vinnubrögð að Jraga það fram á allra sein- astu stundu að koma með þessar tillögur. Af þeim irætti getur hlotist, að vetr- arvertíðin hef jist seinna en ®lla. Það skal hinsvegar viður- Lkennt, að það er engin gam- anleikur að fást við þessi mál. Það sýnir gleggst, hve sjúkt og óheilbrigt íslenzkt f j ármála Oiíyfluiningaskip S.Í.S.— Orátiuriiin h|á sjávar- an= iaganna. — Fram- um mái. — Fordæmi Norðurlanda og niðurlæging líf er, að svona saga skuli end- urtaka sig um næstum hver áramót. Órækari sönnun er ekki hægt að fá fyrir því, að efnahagskerfið þarfnast gagn gerðrar lækningar. Verður nánar vikið að því í niðurlagi þessara þátta. Kjarnorkan og íslendingar. í sambandi við þingfrestun- ina er ekki úr vegi að rifja upp þau ýmsu merkilegu nýmæli, sem þingmenn Framsóknar- flokksins hafa flutt á þinginu. Á öðrum stað í blaðinu er sagt frá frumv. þeirra Eiríks Þorst- einssonar og Páls Þorsteins- sonar um stofnun jafnvægis- lánadeildar, en það er óefað merkasta mál þingsins. Af öðrum málum, sem þingmenn Framsóknarflokksins hafa flutt, þykir rétt að nefna sér- staklega þessi: Skúli Guðmundsson, Vil- hjálmur Hjálmarsson, Karl Kristjánsson, Gísli Guðmunds son og Helgi Jónasson hafa flutt þingsályktunartillögu um kjarnorkumál. Er þar lagt til, að ríkisstjórninni sé falið að láta fram fara rækilega at- hugun á því, hvei’jir mögu- leikar séu hér á landi til hag- nýtingar kjarnoi’ku og geisla virkra efna í þágu atvinnu- vegairna og til lækninga. Enn- fremur að gera ráðstafanir til ef heppilegt þykir að athug- uðu máli, að sérstök stofnun fylgist með nýjungum í þeim efnum og hafi með höndum rannsóknir og forgöngu um framkvæmdir, eftir því sem gagnlegt þykir og viðráðan- legt er. Með þingsályktunartillögu þessari er gagnmerku máli hreyft. Hagnýting kjarnorku til friðsamlegra starfa er ó- efað eitt af stæi’stu viðfangs- efnum vísindanna nú á tím- um. Getur engin þjóð, hvort sem hún er stór eða smá, rík eða fátæk, talið sér það mál óviðkomandi. Staðfestu ís- lendingar það viðhorf með þátttöku í alþjóðaráðstefnu um kjarnorkumál, sem hald- in var í Genf s.l. sumar. Kom fram á ráðstefnu þeirri, að fyrir hendi eru margháttaðir möguleikar til hagnýtingar kjarnorku og geislavirkra efna. Er mikil nauðsyn að at- liuga, hvort slíkir möguleikar séu fyrir hendi hér á landi, og hvernig þeim málum verði hér hagaiilegast skipað. Jöruixdur Brynjólfsson, Helgi Jónasson, Ásgeir Bjarna son, Andrés Eyiólfsson og Ei- ríkur Þorsteinsson flytja til- lögu til þingsályktunar um rannsókn nýrra heyverkunar- aðfex’ða. Skal það vei’kefni falið þi’iggja manna nefnd, er skipuö sé í samráði við Bún- aðarfélag íslands. Munu flest ir sammála um, ekki sízt eftir óþui-rkana s.l. sumar sunnan- lands og vestaix, að slíki’ar rannsóknar sé þörf. Eiríkur Þorsteinsson og Páll Þorsteinsson eru flutnings- menn h'ns stórmerka frumvarps um jafnvægislánadeild, en nánara er rætt um þgð mál á öðrum stað í blað'nu í dag. Nýbýli og bústofnslán. Bernharð Stefánsson, Ásgeir Bjarnas., Jörundur Brynjólfs- son og Eiríkur Þorsteinsson f ly tj a þingsályktunar tillögu um skipun nefndar til að end- urskoða ákvæði laga um ný- býli og bústofnslán og gera til- lögur um breytingar í því skyni að greiða fyi’ir fjölgun nýbýla og gera efnalitlum bændum kleift að koma sér upp hæfilegum bústofni. Er hér um að ræða stórmerkilega tillögu. Skúli Guðmundsson, Páll Þorsteinsson og Eiríkur Þor- steinsson flytja þingsályktun- artiliögu um, að rikisstjórnin láti, í samráði við vegamála- stjóra og hafnarmálastjóra, fara fram athugun á því, hvað tiltækt er af fullkomnum og hentugum vélum og verkfær- um til vega- og hafnargerða hér á landi og hverrar viðbót- ar sé þörf af þeim tækjurn, til þess að í öllum héruðum lands ins sé hægt að vinna að slíkum framkvæmdum með sem hag- kvæmustum aðferðum. Síðan sé unnið að því að afla, svo fljótt sem unnt er, nýrra og fullkominna tækja, eftir því sem rannsóknin sýnir að þörf sé fyrir.“ Vilhjálmur Hjálmarsson og Halldór Ásgrímsson flytja þingsályktunartillögú, þar sem lagt er til, að ríkisstjórn- inni sé falið að láta fai’a fx-am athugun á vegarstæði yfir há- lendið milli Austur- og’ Norð- ui’landsins og Suðurlandsins. Framleiðrlusamviimuféög. Karl Kristjánsson, Skúli Guðmundsson og Páll Þor- steinsson flytja tillögu til þingsályktunar um undirbún- ing löggjafar urn framleiðslu- samvinnufélög. í greinargerð segja flutn- ingsmenn réttilega, að eitt af helztu misklíðarefnum innan þjóðfélagsins sé kaup og kjör þeirra, er selja vinnu sína. Hagsmunir vinnuveitenda og verkamanns fari ekki saman nema að takmörkuðu leyti undir hinu venj ulegasta skipu lagi þessara málefna. Verka- maðurinn tortryggir gjarnan vinnuveitendann og álitur að hann geti greitt hærri laun en hann gerir, græði of mikið, stjórni fyrirtæki sínu verr en skyldi o.s.frv. Framleiðslusamvinna er mikilsvert skipulag til þess að lcomast framhjá slíkum mis- klíðarefnum. Tilgangur fram- leiðslusamvinnuféiaga er að gera verkalýðinn efnahags- lega og atvinnulega sjálfstæð- an, sameina í höndum hans fjármagn og vinnuafl, skapa honum sannvirði vinnunnar. „Tryggja honum stjórnarhlut deild, eignaarhlutdeild og eft- irlitsaðstöðu í atvinnufyrir- tækjunum“, eins og segir 1 greinargerð tillögunnar. í Bretlandi eru framleiðslu samvinnufélög búin að starfa lengi, einkanlega með al iðnaðarmanna. f Reykja- vík var nýlega stofnað Sam- vinnufélag rafvirkja f und- irbúningi er stofnun sam- vinufélags liúsasmiða. Fleiri atvinnuhópar munu hafa hug á að legga inn á þessa braut. Félagsþróun í þessa átt ber að styðja með ráðum og dáð. Nú hefur það hinsvegar komið í ljós, að samvinnulögin eiga ekki við að öllu leyti. Þau eru sniðin fyrir kaupfélagsskap og sam- vinnuverzlun. Því hafa Fram sóknarmenn borið fram þessa tillögu um undirbún- ing löggjafar um framleiðslu samvinnufélög. Aukin fræðsla í þjóðfélags- og þjóðhagsfræðum. Bernhárð Stefánsson og Gísli Giiðmundsson flytja þingsályktunartillögu um aukna fræðslu í þjóðfélags- og þjóðhagsfræðum. Er tillaga þeirra svohljóðandi: „Alþingl ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa þriggja manna nefnd, einn eftir tilnefningu Háskóla íslands, einn samkvæmt til- nefningu Alþýðusambands ís- lands og einn eftiir tilnefn- ingu Stéttarsambands bænda, til þess að kanna, hversu bezt verði komið við aukinni fræðslu í þjóðfélags- og þjóð- hagsfræðum, svo sem um ýmsa þætti þjóðskipulags fé- lags- og verkalýðsmála. Nefnd in athugi, hvort námskeiðum um þessi efni verði komið við á vegum Háskóla íslands". í tillögu þessari er hreyft athyglisverðu máli. Er auð- sætt, að í lýðræðisþjóðfélagi er almenuingi mikil nauðsyn á óhlutdrægri fræðslu um þessi efni. Valdið er þar end anlega í höndum þeirra þjóð félagsbegna, er kosningarétt liafa. í þjóðfélagi okkar eru Framh. á 11. slðu. J3SS5SSSSSSCS5SSS'«SSS55SSS5SSSSSSSSSS S5S5S555SSS5SSS3S5SSS5SSS55SS5555555S5SS5S5Ö555655S551 'Uiljir^u L í cigncLót ueí d fjví cio verci i LemurÉu QCj, 'ciuptr Launum Skfóta-b ■ J olc natinn tbáé í ■}° / amatinn SKJÓLAKJÖTBUÐIN Kesvegl 33 — Sími 82653.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.