Tíminn - 18.12.1955, Page 7
289. bíað.
TÍAIIXN, sunnudaginn 18. dasembcr 1955.
7.
Sunnud. 18. des.
Stærsta þingraálið
Mörg athyglisverð ný mál
hafa verið flutt á Alþingi að
þessu sinni, en efalaust er þó,
hvert þeirra má teija merkast.
Það er án efa frumvarp
þeirra Efríks Þorsteinssonar og
Páls Þorsteinssonar um stofn
un jafnvægisílánadeildar við
Framkvæmdabanka íslands.
Samkvæmt frv. skal ríkis-
sjóður leggja þessari deild tjl
50 millj. kr. næstu 5 árm eða
10 millj. árlega á þessum tíma.
Jafnframt skal ríkissjóður
ábyrgjast fyrir hana 100 millj.
kr. lántöku. Hlutverk deildar-
innar skal vera að veita lán
til að auka útgerð og iðnaö
í þeim landshlutum, sem nú
hafa erfiðasta aðstöðu sakir
skorts 4 atvinnufyrirtækjum.
í gremargerð þessa stór-
merka frv. segir m. a- á þessa
leið:
„Úr bæjum og þorpum við
sjávarsíðuna á Vestfjörðum,
Norðurlandi og Austfjörðum,
svo og úr sveitunum, er stöð-
ugur straumur fólks og fjár-
magns til hinna vaxandi bæj a
við Faxaflóa. Af hálfu hms
opinbera hefir nú undanfarið
ve’rið nokkur viðleitni í þá
átt að ráða hér bót á- Má þar
t. d.meína starfsemi fiskimála
sjóðs og úthlutun atvinnu-
aukningarfjár á vegum félags
málaráðuneytisins, ríkis-
ábyrgðir vegna fiskiðjuvera,
lánadeild smáíbúðarhúsa, fé-
lagsheimilasj óðs, vatnsveitu-
lögin, endurbætur jarðræktar
laga svo og útvegun fjár-
magns til .hinna eldri láns-
stofnana dreifbýlisins, svo að
nefnd séu nokkur úrræði í at_
vmnu- og mennmgarmálum,
sem komið hafa að gagni á
þeim stöðum. sem örðugt eiga
með að halda til jafns við þétt
býlið syðra.
En hér er meú'i aðgerða
þörf, aðgerða, sem alveg sér_
staklega eru miðaðar við þá
staði, sem mest þörf er á að
styðja. Það er fyrst og fremst
atvmnulíf þessara staða, sem
þarf á stuðnmgi að halda. Efl-
ing atvinnulífsms er undir-
staða annarra framfara. Stað
ir, sem búið hafa við árstíða-
bundið atvinnuleysi, þurfa að
fá nýja möguleika. Sama er
að segja um þá staði, sem orð
ið hafa verst úti af því, að báta
mið hafa gengið úr sér vegna
ágangs togara eða af öðrum
ástæðum. Úrræðm eru þá þau
að' koma upp nýjum atvinnu.
tækjum eða skipta að meira
eöa minna leyti um atvinnu-
t'æki. Emkum á þetta við um
atvinnutækin á sjónum. í
seinni tíð hefir mikið verið að
því unnið að koma upp hrað-
frystihúsum, fiskimjölsverk-
smiðjum, verkunarstöðvum og
öðru tú að hagnýta sjávarafl-
ann, þegar hann er kominn á
land. En hm nýju fiskiðjuver
og fiskverkunarstöðvar vantar
víða hráefni til vmnslu, hafa
það af skornum skammti, Kem
ur þá til greina jöfnum hönd
um að fjölga bátum og að fá
togara til löndunar, og fer það
efth' staðháttum, hvaða leið
á að fara í því efni og að hve
miklu leyti. Sums staðar er í
þessu sambandi aðkallandi að
bæta hafnarskilyrði, en erfitt
fyrir hafnarsjóði að fá lán,
jafnvel þótt ríkisábyrgð sé til
staðar- í landi koma ýmsar
framkvæmdir til greina til efl
ingar atvinnulífi aðrar en þær,
ERLENT YFIRLIT:
Kosningin í
Þáttiir lárkjunnar
TwinmiruMnmFMtiiMiiiiimiiiiMisiiuiiiimiin)
Ljíptök deiluimar eru jtau. að Bamtuugráðstcfiiaii krafðist meiri
lilutdcildar fyrir Asíuríkin í ráðinu —
Ó, Jesú bróðir bezti
Segja má að hin stranga og langa
barátta, sem átt hef-ir sér stað á
þingi Sameinuðu þjóðanna í sam-
bandi við kosninguna í Öi-yggisráðið,
hafi hafizt á Bandungráðstefnunni,
sem haldin var af Asíu- og Afríku-
ríkjunum á s. 1. vori. Á þeirri ráð-
stefnu voru bornar fram og sam-
þykktar margvíslegar kröfur um
aukin réttindi Asíu- og Afríkuþjóða.
Ein þeirra var sú, að þœr fengju
aukna hlutdeild í Öryggisráði S. Þ.
Öryggisráðið er skipað ellefu full
trúum, eins og kunnugt er. Fimm
ríki eiga þar föst sæti eða þrjú
Evrópuríki (Bretland, Frakkland,
Sovétríkin), eitt . - Ameríkuríki
(Bandaríkin), og , eitt Asiuríki
(Kína). Um hin sex sætin er kos-
ið til tveggja ára í senn ,en þó þann
ig, að aldrei er kosið um fleiri en
þrjú í einu. Við kosninguna um
þau koma til greina öll þau ríki, sem
ekki eiga föst sæti í ráðinu. Kosn-
ing í Öryggisráðið er því aðelns
gild, að viðkomandi ríki fái %
greiddra atkvæða.
I’egar fyrst var kosið í Öryggis-
í'áðið, komu vesturveldin og Sovét-
rikin sér saman um eins konar land
fræðilega skiptingu á hinum svo-
nefndu lausu sætum í Öryggisráö-
inu. Samkvæmt þessu samkomulagi
skyldi Vestur-Evrópa fá eitt þeirra,
Austur-Evrópa eitt, Suður-Ameríka
tvö, Arabaríkin eitt og brezka sam
veldið' eitt.
Asíuríkin hafa að sjálfsögðu álltaf
værið óánægð yfir þessari skiptingu.
Með nokkrum rétti má þó segja,
að hún hafi verið réttlætanleg á
sínum tíma.'þvi að mjög fá Asíu-
ríki áttu þá sæti í S. Þ. Þá voru
t. d. Indland, Burma' Indónesía og
Pakistan ekki komin til sögunnar
sem sjálfstæð ríki, én þau fengu
inngöngu í S. Þ. síðar. Nú á þinginu
hafa svo Ceylon, Kambodia og Laos
fengið inngöngu.
Fljótlega eftir að kalda stríðið
hófst, ákváðu vesturveldin að beita
sér fyrir því, að sæti það, sem var
ætlað A.-Evrópu félli ekki í skaut
neinu leppríki Rússá þar. Raunar
var þetta brot á sámkomulaginu,
því að Rússar höfðu skilið það
þannig, að átt væri við eitthvert
þeirra, þótt það væri ekki tekið
formlega fram. Þeii' hafa því í
hvert sinn, sem kosið hefir verið
um sæti það, sem ætlað var Austur-
Evrópu, teflt fram einhverju lepp-
ríkjanna, en vestui-veldin hafa kom
ið í veg fyrir, að það næði kosn-
ingu, og fengið éitthýert annað ríki
kosið, eins og Júgóslavíu, Grikkland
Og Tyrkland. Á þvi kjörtímabili, sem
nú er að ljúka, hefir Tyrkland skip
að þetta sæti;
Strax eftir að Bandungráðstefn-
unni lauk á s. 1. vori, hófust Filipps
eyingar strax hánda um að fá sæti
Magsaysay,
\ rorseti Fil'ppseyja
Tyrklands í Öi-j’ggisráðinu, þegar
það losnaði. Auk sæti Tyrklands,,
losna nú um áramótin sæti Brazilíu
sem annars fulltrúa SuðurAmeríku
og Nýja-Sjálands sem fulltrúa
brezka samveldisins.
Fylgisleit Filippseyinga bar þann
árangur, að þeir fenau loforð fvrir
stuðningi ýmra Asíu- og Afriku-
ríkja. Mest munaði þá lun það, að
Bandaríkin og nær öll Suður-
Ameríkuríkin hétu þeim stuðningi
sínum. Hins vegar snerust Bretar
strax cíidverðir gegn málaleitún
þeirra, þar sem þeir töldu, að ekki
mætti hrófla við þeirri skipan, að
umrætt sæti skyldi skipað Austur-
Evrópuriki.
Rússar voru og að sjálfsögðu mót
fallnir þessu og' ákváðu að tefla
fram Póllandi sem fulltrúa Austur-
Evrópu. Leituðu þeir liðveizlu Breta
en fengu hana ekki. Bretar reyndu
hins vegar að miðla málum á þann
veg, að Júgóslavía yrði kosin.
Þannig stóðu málin, þegar byrjað
var að kiósa í Öryggisráðið á þingi
S. Þ. fyrir nær tveimur mánuðum
s'ðan. Um það' náðist nær strax
samkomulag að' kjósa Kúbu i stað
Brazi’.íu og Ástraliu í stað Nýja-
Sjálands. Hins vegar náðist ekkert
samkomulag um þi'iðja sætið. Þar
kepptu fyrst Fiiippseyingar og Pól-
land og munaði litlu í fyrstu um-
ferðunum, að Filippseyingar næöu
tiiskildum meirihluta eða einum
tveimur atkvæðum í einni umferð-
inni. Þegar Rússar sáu, aö Pólland
myndi vei-a vonlaust, ákváð'u þeir
að fallast á tillögu Breta og styðja
Júgóslavíu. Eftir að fyrstu þremur
umferðunum lauk, hefir því keppnin
staðið milli Filippseyja og Júgó-
slavíu og alltaf munað fáum at-
kvæðum á fylgi þeirra, en Filipps-
eyjar þó jafnan haft fleiri atkvæði.
Evrópuríkin haía yfirleitt kosið
Júgóslavíu en Ameríkuríkin Filipps-
eyjar, en Asíu- og Afrikurikin verið
skipt. Annarst vita menn ekki full-
komlega um skiptinguna, því að
kosningin er leynileg.
Kosninguna er nú búið að endur
taka á mörgum fundum og skipta
umferðirnar orðið mörgum tugum.
Síðan glíman milli Filippseyja og
Júgóslavíu hófst má segja, að hún
hafi raunar verið á milli Breta og
Bandaríkjamanna. Bretar telja, að
ekki megi víkja frá samkomulaginu,
sem gei't var 1946, en Bandarikja-
menn segja, að það hafi aðeins náð
til kosningarinnar þá, enda sé
þegar löngu búið að víkja frá því,
þar sem kommúnistaríkin hafi ekki
verið kosin sem fulltrúi Austur-Evr
ópu. Þeir telja og aðstöðuna ger-
brcytta siðan 1946 vegna stórauk-
innar þátttöku Asíuríkja í alþjóð-
le?.u samstarfi. Aukin hlutdeild Asíu
ríkja í Öryggisráöinu sé því sjálf-
sagt réttlætismál.
Bretar viðurkenna, að það sé rétt,
að hlutdeild Asíu í Öryggisráðinu
beri að auka. Það beri hins vegar
að gera á annan hátt, t. d. með
fjölgun fulltrúanna í Öryggisráðinu
oftir að þjóðunum í S. Þ. hefir fjölg-
að.
Þótt Júgóslavía hafi verið annar
aðalkeppandinn að undanförnu,
hafa Júgóslavar ekki sótt sérstak-
lega eftir að hreppa sætið í Öryggis
ráðinu. Þeir sóttu það hins vegar
fast að fá að halda áfram sæti sínu
í Efnahagsráði S. Þ., en það er mjög
sjaldgæft, að ríki á stærð við Júgó-
slavíu eigi bæði sæti í Efnahags-
ráðinu og Öryggisráð'inu á sama
tíma.
Athygli vekur, að Indland hefir
lítið beitt sér í þessu máli, þótt það
hafi sig mjög í frammi á þingi S. Þ.
Sumir telja, að Indverjum falli mið
ur, að þeir skuli ekki hafa forustu
um að heimta rétt Asíu í þessu
máli, og aö þeir séu því óánægðir
yfir framgöngu Filippseyinga. Talið
er, að' þeir hafi kosið Júgóslavíu,
en aftur á móti fylgi Indónesia
Filippseyjum.
Seinustu vikurnar hefir talsvert
verið unnið að því bak við tjöldin
að ná samkomulagi um eitthvert
þriðja ríkið, sem meirihluti fylgis-
manna Filippseyja og Júgóslavíu
gæti sætt sig við'. Bandaríkjamenn
munu hafa látið í -það skína, að
þeir gætu sætt sig við Grikkland,
en Bretar hafnað því vegna Kýpur
deilunnar. Þá hefir Spaak utan-
ríkisráðheiTa Belgíu bent á þá leið,
að Filippseyjar og Júgóslavía skiptu
kjörtímabilinu á milli sín. Nokkuð
hefir og verið rætt um það, að
Svíþjóð fengi þetta umdeilda sæti,
en Svíar hafa hingað til ekki viljað
taka sæti í Öi-yggisráðinu vegna hlut
leysisstefnúnnar. Eftir nánari at-
hugun, mun sænska stjórnin þó
hafa boöizt til að taka sætið, ef
Framhald á 10. síöu
í öllu því bókaílóðl, sem
út kemur handa börnum, er
ákaflega fátt, sem flytur hug
þeirra nær þeim viðfangs-
efnum, sem síðar á ævmni
verða þeim umhugsunarefni
og _ uppbygging.
Á erlendum málum eru til
bækur, þar sem lesefni biblí-
unnar er búið þeim búningi
að börnum verður það eins
aðgengilegt og hvert annað
efni til skemmtilesturs. Við
íslendmgar höfum enn verið
of fastheldnir á orðalag bibl
íunnar sjálfrar, meira að
segja orðalag gamalla þýð-
inga, að þar hefir helzt engu
mátt breyta án þess að valda
umtali, jafnvel hneykslunum.
Nú er þetta að breytast
sem betur fer. Reynslan við
barnaguðsþjónustur hefir
kennt, að börnum hæfir ann
að mál á frásögnunum en
hið heföbundna hátíðlega mál
bibliuþýðendanna.
Sú bók, sem er nokkurs
konar bjarmi af komandi tíð
á þessu sviði er bók Veru
Pewtress, sem sr,- Garðar Þor
steinsson, próf. í Hafnarfirði
hefir þýtt á íslenzku og nefn
ist Ó, Jesú bróðir bezti.
Samt verð ég að játa, að
ég hafði sjálfur ekki veitt
þessari bók athygli. Hafði ó-
sjálfrátt flokkað hana með
hinum bókunum, sem gefnar
eru út í gamla stílnum af
ýmsum trúarbragðafélögum,
sem ekki bera gæfu tU að
tryggja sér börn að lesend-
um, þar er svo mikið af ein-
hverri helgivellu, sem fer fyr
ir ofan garð og neðan hjá
þessum ungu lesendum og
raunar fleirum.
En börnin mín höfðu sjálf
uppgötvað þessa bók, sem
e-’na af sínum beztu og vakað
yfir henni á jólanóttina í
fyrra, og lesið svo vel, að
nám yngra drengsins í kristn
um fræðum ber fyrst og
íremst blæ af þessari bók.
Hann kann þar næstum ó-
sjálfrátt miklu meira en við
höfum hugmynd um að hann
hafi iært. Og þetta er honum
innlifað án fyrirhafnar af
ljúfum áhuga, sem frásögnin
ein hefir vakið.
Ég mæli með þessari bók
sem einni hinna beztu handa
börnum á aldrinum tiu til
tólf ára, og vel mætti hafa
hana sem framhaldssögu í
skólurn og á barnasamkom-
um jafnvel niður í sjö ára
aldursílokka. Þeir, sem vilja
vanda val sitt munu að at-
(Framhald á 11. síðu).
sem hér hafa verið nefndar.
í sveitunum bíða ýmis tUsvar_
andi úrlausnarefni.
Frv. þetta, ef að lögum verð
ur, miðar að því að flytja til
nokkuð gf fjármagninu við
sjávarsíðuna á næstu árum
og beina því þangað, sem þess
er mest þörfin tú að stuðla aö
jafnvægi byggðarinnar. Fjár_
magninu er misjafnlega varið
og ekki ávallt 4 þann hátt,
sem heppilegastur væri fyrir
þróun þjóðfélagsins og upp-
byggingu landsins. Verzlun
landsmanna virðist óþarflega
fjárfrek svo og ýnuss konar
fjárfesting, einkum í höfuð-
staðnum, sem verður ekki tal-
in bráðnauðsynleg þjóðinni.
En uppbygging atvinnulífsins
í þeim landshlutum, sem örð-
ugasta aðstöðu hafa, þolir ekki
langa bið.
Að tUhlutun Alþingis og rík
isstjórnar er nú unnið að áætl
un um framkvæmdir í þeim
landshlutum, sem við erfið-
asta aðstöðu búa salcir skorts
á raforku, samgöngum og at-
vinnutækjum. Er þar um víð-
tækt verkefni að ræða, sem
vafalaust krefst ýtarlegra
rannsókna og tekur sinn tíma.
Flutningsmenn telja hins veg-
ar, að þann þátt jafnvægis-
málsins (varðandi atvinnu.
tæki), sem frumvarp þetta
fjallar um, verði að leysa sem
fyrst, aö minnsta kosti til
bráðabirgða, og ekki sé ástæða
tU að sú lausn biði efÞr þeirri
væntanlegu framkvæmda-
áætlun, sem nú er unnið að“.
Undir þetta má vissulega
hiklaust taka. Aukið jafnvægi
í byggð landsins er nú vafa-
laust eitt ahra stærsta mál
þjóðarinnar. Til þess að stuðla
að því, þarf nú jöfnum hönd-
um að styrkj,a þorpin og sveit-
irnar. Framangreint frv. mið_
ar að því að rétta hlut hinna
dreifðu kauptúna og kaup-
staða, sem höilustum fæti
standa. Þess ber fastlega að
vænta, að Alþingi sýni þann
skilning á þessu mikilvæga
verkefni, að umrætt frv. nái
fram að ganga.
Tveir bátar byr jaðir
vertíðarróðra frá
Keflavík
Tveir vertíðarbátar byrjuðu
róðra í Keflavík í fyrrinótt og
komu að landi í gær með 4—5
lestir af góðum fiski. Nokkrir
bátar hafa stundaö.veiðar með
þorskanet að undanförnu og
aflað vel, þegar gæftir leyfðu
sjósókn. Afli þeirra var hins
vegar í minnsta lagi í gær.
AÖeins einn Keflavikurbát-
ur hefir ennþá síldarnet um
borð. Hinir eru allir hættir
síldveiðum.