Tíminn - 08.03.1956, Síða 9

Tíminn - 08.03.1956, Síða 9
? í M I N N, fimmtudaginn 8. marz 1956. 9 Eftir HANS MARTIN Butferick snið 56 Smátt og smátt hafði bólg- an horfiö af andliti hennar, höndum og fótum. Hörund hennar fékk aftur hinn Ijósa, fíngerða blæ og austurlenzka ljóma, og augun urðu ávöl og geislandi á ný. En hið töfr- andi, ertnislega blik þerira sá Walter ekki framar. Og nú voru komnar silfurgráar írur 1 hrafnsvart hár hennar. — Soffía, við verðum að vera við því búin að fara héð- an án nokkurs fyrirvara. Hún kinkaði kolli. Það var henni léttir, að ógnir þær, sem höfðu grjúft yfir þeim, voru loks tjáðar í orðum. — En hvernig? Hvað getum við tekið með okkur? — Allt hið verðmætasta. En það er víst ekki mikið, ég á ekki eyri eftir. Þú sérð sjálf, hvernig teið mitt og sykurinn þinn er selt til Kínverja an þess að við fáum eyri fyrir. — Við eigum nokkra gim- steina og skartgripi. Síðan hún komst að þjófnaði Marí- önnu, hafði hún skartgripi sína jafnan í litlum poka í bandi um mitti sitt. Á nótt- unni hafði hún pokann undir koddanum. — Hvað eigum við meira? spurði Walter. — Klæði, tösk- ur fullar áf klæðum. Við get- um sent þær til Bandung. Fé- lagar mínir úr búðunum munu taka við þeim þar og geyma þær. — En Walter, ef þeir koma nú alveg að óvörum, um- kringja okkur. Þá — hún greip andann á lofti. — Þá myrða þeir okkur og Maríönnu og allt fólk okkar. Hún bar hend- ur fyrir andlitið. — Við skulum fara héðan þegar á morgun, sagði Walter ákveðinn. — Og skilja allt eftir? — Já, svo að þeir hafi ein- hverju að stela eða brenna. Og þetta, sem við verðum að þola hér, er hinum miklu stjórnendum í Haag, London eða Ástralíu að kenna. Það er ávöxtur alvizku þeirra, þess- ara þverhausa og heimsku flokksþræla. Ef mér auðnast að koma lifandi heim til Ha.ag. skal ég láta það vera mitt fyrsta verk að hella mér yfir einhvern ráðherra þar. En við getum nú byrjað á þeirri skírn í Batavíu. Þessa síðustu nótt í hvíta húsinu uppi á hæðinni, rak eftirsjáin og þörf á trausti og gleymsku, þau til þess að leita hvors annars, svo að þau lifðu nú saman sem hjón í fyrsfa sinn um langan tíma. Og það var sem þessi faðmlög vektu í þeim gamalt sjálfstraust og mótstöðuafl, sem virzt hafði með öllu þorrið. Það lifnaði í þeim einhver bjartsýni og von og traust á þá framtíð, sem beið þeirra. Þau hikuðu. Þau voru lengi að velja og hafna meðal þeirra muna, sem þeim kom til hug- ar að taka með sér. Þjónustu- fólkið var sem lamaö, er það fékk að vita ákvörðun hús- bæhdá sinna. Sumir læddust híjóðlega ut í bakgárðinn 'og sátu þar sk'jálfa’ndi áf ótta. Þeir óttuöust örlög sín, fannst sem hefnd væri að þeim stefnt. Walter vissi, að jafnskjótt og þau væru farin, mundi þjónustufólkið líka hverfa á brott til öruggari staða í skjóli lands síns. Maríánna hjálpaði þeim ekki við að búa niður. Soffía var henni reið og skipaði þjóni að fara og leita að henni og segja henni að koma og hjálpa til. Þegar þjónninn kom einn aftur, skildi Walter, að hann hafði ekki þorað að fara til hennar og bera henni skila- boðin. Hann skildi það af hálf kveðnum vísum, að vinkona Maríönnu mundi vera hjá henni og hann grunaði, hvern ig sambandi þeirra mundi vera háttað. Hann gekk orða- laust út í hliðarálmuna og fann ungu stúlkurnar þar saman. Þær hvíldu þar sam- an á hægindi. — Klæddu þig tafarlaust og komdu og hjálpaðu okkur, skipaði hann byrstur og átti bágt með að stilla sig um að hella yfir hana þeim ávítum, sem lágu honum á tungu. Maríanna brosti háðslega, lét augnalokin síga og smeygði sér feimnislaust í baðfötin og fór með honum. Hin dökkleita grannvaxna vinkona hennar hafði látið síga upp fyrir hægindið. Þegar þau voru komin fram í ganginn, sagði Walter: — Skammastu þín ekki? Þú, sem ert orðin átján ára, lætur þér sæma að haga þér þannig. Hún leit til hans yfir öxlina. — Gleðstu heldur yfir því, að ég eyði ekki heldur stundun- um hjá ungum pilti, sagði hún háðslega. — Þá væri ástand mitt kannske orðið öðruvísi. Walter beit á vörina og þagði. Stundum var hann þess ari stúlku svo reiður, að hann gat vart stillt sig um að hirta hana eins og óþægan krakka. En hann vissi, að hún mundi aðeins hlæja háðslega að því, alveg eins og þegar Japanirn- ir höföu barið hana til blóðs. Á einni andvökunótt hafði Soffía sagt honum grátandi, hvernig barnið væri afvega- leitt, sagt honum frá atburð- unum, þegar hún hefndi sín á Japananum. Síðan hafði Walter hatað Maríönnu. — Fannstu hana? spurði Soffía hvíslandi án þess að líta upp frá ferðatöskunni, þegar Walter kom. Hann sagði henni frá því, sem fyrir hann hafði borið og þau orðaskipti, sem á milli þeirra höfðu farið. Hún hristi örvilnuð höfuðið. — Það er fangabúðalífið, Walter, sem hefir farið svona með hana. Hún er afvegaleidd. Hún er einmitt á þeim aldri, sem tilfinningar ungrar stúlku vakna til fulls styrk- leika, og henni hefir ekki gef- izt eðlilegt tækifæri eins og öðrum stúlkum til þess að kynnast ungum mönnum, daðra og láta kyssa sig. — Mér finnst þetta hræöi- legt. — Vertu róleg, Soffía, þetta lagast. Við skulum reyna að gleyma því. Við skulum reyna að komast sem fyrst meö hana heim til Hollands. — Til Hollands? Hún reis undrándi upp frá ferðatösk- Norræn námskeið Hindsgavl í sumar Dagana 1.—8. júlí í sumar verð- haldið norrænt æskulýðsmót í Hindsgavl-höllinni á Fjóni, en það er félagsheimili Norræna félags- ins í Danmörku. Mót þetta er fyrst og fremst ætlað fólki á aldrinum 17—25 ára. Kostnaður verður alls 85 danskar krónur á hvern þátt- takanda. Vikuna 8.—15. júlí verður náms- skeið fyrir norræna móðurmáls- kennara á Hindsgavl. Námskeið þetta heldur Norræna félagið í Danmörku í samvinnu við samtök danskra kennara. Kostnaðurinn, vegna dvalarinnar á Hindsgavl, verður 150 eða 160 danskar krón- ur, eftir því hvar þátttakendur búa í höllinni. Þriðja norræna námsskeiðið verður haldið dagana 22.—29. júlí. Það er námsskeið fyrir meðiimi norrænna stéttarfélaga. Námsskeið ið er haldið í samvinnu við upp- lýsingastofnun verkamanna í Dan- mörku (Arbejdernes Oplysnings- forbund). Kostnaður verður ails 150 eða 160 danskar krónur eftir því hvar í höllinni þátttakendurn- ir búa. Aðalritari Norræna félagsins í Reykjavík, Magnús Gíslason, náms- stjór, Hafnarstræti 20, sími 7032, veitir nánari upplýsingar um náms skeið þessi. Auglýsið í TDIAXOI Hið heimsþekkta Aluminíum samskeytaþéttiefni, til aS j| gera samskeyti vatnsþétt og ryðfrí, er komiS á íslenzkan ♦; markaS. —ÆHaS tii notkunar við: || Bifreiðayfirbyggingar — Húsbyggingar ítré, jj stein, járn og aiuminíum). — Rúðuísetningar tvöfalt og einfalt gler — Rörlagningar — Skipaviðgerðir, tré og stál. — Þolir iogsuðu. :: il ♦♦ ♦♦ ♦♦ H ♦♦ :: ♦♦ «♦ ♦♦ ♦ ♦ ♦♦ ♦ ♦ ♦♦ ♦♦ ♦♦ ♦♦ 8 Fæst i (tape). 7 mismunandi þykktum. Ennfremur í rúllum Allar nánari upplýsingar hjá umboðinu íslenzka Verzíunarfélagið it.f. Laugavegi 23 — Sími 82943. ♦♦♦♦•♦♦♦♦♦«♦•♦♦♦♦♦♦♦•♦♦< ♦♦•♦**♦< ♦♦♦♦-♦♦♦♦♦♦♦♦« •♦««**♦♦♦•♦♦♦ Á KVENPALLI 1 — Það veit ég, sagði hann og rey^di gð veya rólegur. — Þegar hún kynnísLmannV, sem hen»l.j{^r> fc® þykja væng SPÆNSKAR SALTFISKBOLLOfí. Saltfiskur er lagður í bleyti í sólarhring, síðan roðflettur og oein- in tekin úr. Skorinn í smábiva. 2 matskeiðar af matarolíu látnar í pott eða djúpa pönnu og hitað, þá er bætt útí tveimur matsk. af hveiti. Hrærist vel saman og áður en hveitið dökknar, þá er bætt útí hálfum bolla af kjötsoði eða mjólk. Potturinn tekinn af eldinum. Dá- lítið af saxaðri steinselju er bland að útí fiskinn, hvorttveggju hrært útí jafninginn, ásamt einu hrærðu eggi. Kælt, mótað í bollur og steikt í olíu. Búin til sósa úr lauk, hvít lauk, tómötum, dálitlu af söxuðum, steiktum möndlum og hæfilega miklu vatni. Bollurnar látnar sjóða litla stund í sósunni, áður en þær eru bornar fram. Hálft kíló af saltfiski á að vera nóg í bollur handa sex manns. Góðar tækifærisgjafir. Ef að menn vilja gleðja kunn- ingja sína á afmæli eða öðrum merkisdegi að vorlagi, væri þá ekki ágætt að gefa eina eða fleiri fallegar trjáplöntur, ef viðtakand- inn er að græða upp garð eða skóg arlufid?. Fvrir nokkrum árum gáf- Sænsk kona hefir látiS smíSa sér þennan saumakassa. Hyllurnar standast ekki á, svo hægt er að loka kassanum og fer þá mjög lítiS fyrir honum, én‘hins vcgar léttara aS hafa alla hluti í röS og reglu meS þessu fyrir- komulagi en í diúpum kössum. 'þ'éilra. Nii vaxa þarna tvær hrísl- Ég held, að einhversstaðar hljóti ijirsétja við sumarb.ústað foreldr, a® standa skrifað, að dyggðir mæðr um viðihjónin.tvejpnir litlum °k|o' lagast þetta. i: ’; b .-Jinuna tvær,grepiplöntur tilíað þrÁ3', ar/.j,'ú jf. . '. • §#■$•'» •*>'$ fhii I i’í i ■ íM ; apJWniVUfli.Js.qma .QÚWr.M þyrnun- i^.iWgHiHðflfljefl.fyfldjLÍe^anna. Uíj,dígrí;b?ftn,§|ÍÍr fighaíjies, Dicjtefls. ^ bgasisú" .Mtý' /jj' r •/ c L #v ýf JVr

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.