Tíminn - 28.04.1956, Síða 1
Aðalfundur Framsóknarfélaganna
í Árnessýslu að Selfossi á morg-
un kl. 1,30.
Fulltrúafundur félaganna kl. 11 fh.
Áskriftarsími Tímans er 2323 og
81300. — Fylgist með tíman-
um og lesið Tímann.
40. árg.
Reykjavík, laugardaginn 28. apríl 1956.
f blaSinu í dag:
Yfir Skeiðarársand, bls. 5. 1
Djúpið blátt, leikdómur, bls. 7.
Kekkonen, bls. 6. ,
96. blaS.
Bulganin og Krusjeff halda heim effir árangursiifiar viSræður: fj
Gáfu í skyn í lokin, að Rússar kynnu að
fást til að hætta vopnasölu til Araba
Þegar beitiskipið lét ur liöfn, sag^i Krusjeff, aÖ biliÖ myndi breikka
á yfirborðinu, en ekki í anda
Þórarinn Þórarinsson
Haraldur Guðmundsson
Almennur kjósenöafunÉr
Blönduósi næsta fim
Framsóknarflokkurinn og Alþýðufiokkurinn boða
til sameiginiegs kjósendafundar á Blönduósi fimmtu-
daginn 10. maí n. k. Hefst fundurinn kl. 4 e. h. Frum-
mælendur á fundinum verða þeir Þórarinn Þórarins-
son, ritstjóri, og Haraldur Guðmundsson, alþingis-
maður.
Öllum er heimill aðgangur. Húnvetningar eru hvatt
ir til að fjölmenna á fundinn og rœða stjórnmálavið-
horfið fyrir kosningarnar.
er
Stefna Norðmanna í hvervarna
að leyfa ekki herstöðvar á fnumui
— segir Finn Moe, form. utamrákisnefmdar
norska Stérþingsins
Mbl. þótti ekkitakaþví aðrekja öll um-
mæli Norðmannsins í Arbejderbladet
Morgunblaðið birti í gær ummæli eftir Finn Moe, rit-
stjóra Arbejdebladet í Ósló, en Moe er jafnframt formaður
utanríkismálanefndar norska Stórþingsins. í grein Mbl. er
lítið haft orðrétt efíir Moe, en meira um endursögn með
orðalagi Mbl.-manna.
Vekur þetta strax grim um, að
ekki sé allt með felldu um frá-
Vísir ber af sér - læt-
ur böndin berast að
fréttaritara Reuters
VÍSIR ER NÚ komiim í þá
sjálfheldu út af fölsunum á um-
mælum utanríkisráðherra, að
lnann ber af sér og þykist hafa
alit úr New York Times (þó lík-
lega varla fyrirsögnina í tilvitn-
unarmerkjunum, sem var tilbú-
in á skrifstofu blaðsins), Hér í
blaðinu var í gær sannað með
orðréttum tilvitnunum, að um-
mæli þau, sem Vísir prentaði og
sagði úr New York Times og eft-
ir utanríkisráðherra, voru stór-
lega úr lagi færð. Blaðið segist
nú ekki hafa breytt stafkrók, og
teiur að varla muni New York
Tiines heldur hafa breytt neinu.
Lætur það því böndin berast að
fréttaritara Reuters, starfsmanni
Mbl., að hann hafi breytt orða-
lagi frá því, sem utanríkisráð-
herra sagði og heimilaði að hafa
eftir sér. Verður fróðlegt að sjá,
livort fréttaritarinn vill una þess-
um ásökunum flokksbræðra
(Framhald á 2. síðu.)
Ádsnauer lætur í Ijós vcnbrigSi
þýzku þjoðarinnar yíir stefnu
Rússa - Þeir neita enn aS fallast á
frjálsar kosningar ©g sameiningu
NTB—London, 27. apríl.
Rússnesku leiðtogarnir, Bulganin og Krusjeff héldu í
dag heimleiðis frá höfninni í Portsmouth eftir 9 daga opin-
bera heimsókn í Englandi í boði brezku stjórnarinnar. Þeir
félagar héldu fund með fréttamönnum í London í morgun.
Hann hófst á því, að Bulganin las upp langa yfirlýsingu og'
tók lesturinn rúma klukkustund. Hann kvaðst harma, hvað
árangurinn af viðræðunum hafi orðið lítill — satt að segja
hefði ekkert miðað í samkomulagsátt í afvopnunarmálum.
sög'n þessa og hér muni eiga að
fara eins að gagaivart þessrnn niik
ilsvirta norska stjórnmálamanni og
Mbl. og Vísir ieyfa sér gagnvart
íslenzkum ráðherrum, sem eru
andstæðingar þeirra í stjórnmálum.
En þessi Mbl. og Vísis-taktík er að
birta glefsur úr ræðum manna,
slitnar úr samhengi, búa síðan til
fyrirsagnir með tilvitnunarmerkj-
um upp úr sínum eigin heilaspuna.
Aðalatriðin í grein Finn Moe,
þau er norska NTB-fréttastofan
sendi út 24. þ. m. eru á þessa leið:
,,Nokkur amerísk blöð hafa lát
ið í Ijósi mikinn áhuga fyrir að
Danir og Norðmenn beiti áhrifum
sínum á íslandi til að fá meiri
hluta Alþingis til a'ð breyta á-
kvörðun sinni í herstöðvarmál-
inu.“
Þar næst kemur sá kafli, sem
Mbl. Þýðir og setur upp í fyrirsögn:
„Það er tæplega nokkur vafi,
að það skref, sem ísland hefur
stigið muni veikja varnarundir
búning í Norður-Atlantshafi.
Þetta geta Norðmenn bent á með
fullum rétti og þetta er atriði,
sem íslendingar eiga að hyggja
að.“
En í framhaldi af þessu segir
Moe, og því sleppir Mbl. auðvitað
af því að það fellur ekki heim Við
áróður Sjálfstæðisflokksins:
„En hvernig sem, metm líta á
þetta atriði, þá hafa Norðmenn
(Framhald á 2. síöu..
Bulganin sagði, að sambúðin
við Frakka væri nokkuð góð og
sambúð Breta og Frakka færi batn
andi. Hins vegar væri því ekki að
neita, að mjög margt mætti betur
fara í sambúð Bandaríkjanna og
Rússlands. Nú væri mikilvægt
að drága úr vígbúnaðinum og efla
skilning og vináttu á milli þjóð-
anna. Koma þyrfti á alþjóðlegu
banni við notkun kjarnorkuvopna.
Eitt var það í yfirlýsingu Bulg'
anins, sem vakti mikla athygli,
en það var, að Rússar væru fá-
anlegir til að hætta allri vopna-
sölu til landanna fyrir botni
Miðjarðarhafs, svo framarlega,
sem aðrar þjóðir gerðu það líka.
Hann sagði, að hernaðarbanda-
lög Vesturveldanna við Miðjarðar-
haf ættu mesta sökina á ólgunni
í þessum löndum. Bulganin sagði,
að samningar um aukin viðskipti
liefðu því miður ekki gengið eins
vel og vonazt hefði verið til.
Krusjeff lék á alls oddi.
Meðan á fundinum stóð lék
Krusjeff á alls oddi og virtist hinn
ánægðasti. Hló hann oft og brosti
til blaðamannanna, sem skemmtu
sér vel yfir gleði þessa rússneska
leiðtoga. Skömmu eftir, að fundin-
um lauk var haldið til Viktoríu-
járnbrautarstöðvarinnar. Kvöddu
brezkir ráðherrar þar Bulganin og
Krusjeff, en síðan var haldið til
Portsmouth, þar sem rússneskt
beitiskip beið þeirra.
„Bilið breikkar — aðeins á
yfirborðinu“?
Þegar beitiskipið lét úr höfn
í Portsmouth var skotið kveðju-
skotum. Þegar skipið var komið
frá bryggju hrópaði Krusjeff til
utanríkisráðherrans Selwyn
Lloyd, að nú myndi bilið breikka
á milli þeirra, en það væri aðeins
á yfirborðinu, en ekki í andanum.
Lloyd kallaði á móti, að hann
fengi saknaðarsting í hjartað, þeg
ar hann kveddi þá félaga. Krus
jeff kallaði þá á móti, að hann von
aði, að sá verkur héldist þangað
til Lloyd kæmi til Rússlands í
heimsókn.
Yfirlýsing Bulganins tekin til
athugunar.
Brezka utanríkisráðuneytið lýsti
því yfir í dag, að yfirlýsing Bulgan
ins, að Rússar væru fúsir til að
hætta allri vopnasölu til Araba-
ríkjanna, myndi verða tekin til
nákvæmrar athugunar. Vakin er
athygli á því, að hvorki Krusjeff
né Bulganin svaraði nokkurri spurn
ingu um sameiningu Þýzkalands.
Brezku blöðin eru yfirleitt sam-
mála um, að svo til enginn árang-
ur hafi orðið af þessum viðræðum,
vegna þess að Rússar vilji ekki
fallast á tillögur véstrænna lýðræð
isríkja. Til dæmis neiti þeir að
fallast á frjálsar kosningar í Þýzka
landi og enn sé ekki séð, hvort
þeir standa við það, að hætta vopna
sölu til landanna fyrir botni Mið
jarðarhafsins.
(Framhald á 2. síðu.)
Aðalfundur Fram-
sóknarfélaganna
í Arnessýslu
Aðalfundur Framsóknarfélag-
anna í Árnessýslu verður á Sel-
fossi á morgun, sunnudag, (en
ekki í dag, eins og misprentaðist
hér í blaðinu í gær). Fundurinn
hefst kl. 1,30 e. h. Fulltrúafunð-
ur félaganna hefst kl. 11 árdeg-
is. —
Flugvéi teppt á ísa-
firði vegna bilaðs
flotholts
Frá fréttaritara Tímans
á ísafirði í gær.
Um klukkan hálfsjö í kvöld,
er áætlunarflugvélin, sem er
katalínuvél, var að fara héðara
og ætlaði að fara að hefja sig
til flugs, bar svo við, að annað
vængflotholt hennar rakst á bát
þann, sem flytur farþega milli
lands og vélar, og skemmdist flot
holtið svo, að ekki var hægt að
draga það upp. Báturinn skemmd
ist ekki og fólkið í honum sakaði
ekki heldur.
Vegna þessara skemmda hætti
vélin við suðurförina og bíður
nú viðgerðar á ísafirði. Hjólum
vélarinnar mun ekki vera hægt
að koma niður, nema flotholtin
séu uppi. GS.
NAT0 styrkir vega-
framkvæmdir í Noregi
NTB-Osló, 27. apríl. — Norska
stjórnin Iagði í dag fram frurn-
varp fyrir þingið um stórauknar
samgöngubætur til Norður-Nor-
egs frá Osló. Er ætlunin að
leggja góðan steinsteyptan veg
þangað. Stjórnin skýrði frá því,
að vegalagning þessi væri gerð
í samráði við Atlantshafsbanda-
Sandið með tilliti til hernaðar-
legs mikilvægis Norður-Noregs.
NATO mun leggja fram tölu-
verða fjárhæð til þessara sam-
göngubóta, m. a. stórvirkar vél-
ar til að hraða sem mest vega-
lagningunni. Áætlað er, að NA
TO leggi fram allt að 10 þús.
sterlingspund til þessara fram-
kvæmda.
Það er Sjálfstæðisfl., sem rofið hefir
eininguna í utanríkismálum
Morgunblaðið er farið að birta glefsur úr fundarsamþykkt-
um landsfundar Sjálfstæðismanna, en þær voru flestar svo
lélegar og handahófskenndar að undrun sætti. í ályktun um
uíanríkismál, sem birt er í gær, er því haldið fram, að Al-
þýðuflokkurinn og Framsóknarflokkurin hafi rofið einingu lýð-
ræðisflokkanna í varnarmálunum. Þetta er augljós blekking,
og það sést bezt á eftirfarandi staðreyndum:
Að varnarsamningnum stóðu upphaflega saman þrír flokk-
arnir, Alþýðuflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðis-
flokkurinn. Nú standa tveir þessara flokka að stefnu þeirri, sem
Alþingi hefir framfylgt í málinu, en sá þriðji — Sjálfstæðis-
flokkurinn — skerst úr leik, þótt framfylgt sé þeirri stefnu,
sem hann hefir margoft áður lýst yfir — að hér sé ekki her
á friðartímum. Það sjá allir heilvita menn, að það er sá e i n i
sem eininguna rýfur, en ekki hinir t v e i r, sem saman standa.
Þá segir einnig í ályktuninni, að það hafi verið Sjálfstæðis-
flokkurinn, sem liafði forgöngu um það, að svo var frá gengið
í samningnum, að fslendingar geta nú einhliða sagt varnar-
samningnum upp. Þetta er auðvitað aðeins marklaust sjálfs-
hól eins og allir vita. En það hljómar undarlega í eyrum fs*
lendinga nú, að jafnframt því, sem þessu er lýst yfir, berst
Sjálfstæðisflokkurinn g e g n því með oddi og egg, að þessi rétt-
ur sé notaður, heldur hcimta, að þjóðin afsali sér þessum
sjálfsákvörðunarrétti.
Þeir eru rökvísir, Sjálfstaeðismenn.