Tíminn - 28.04.1956, Page 12
VeSrið í dag:
Þykknar upp með suðaustan
1 kaláa og rigningu í nótt. Léttir
til með NA-átt á morgun.
40. árf.______________________
Hiti á nokkrum stöðum klukkan 18;
Reykjavík; S st. Akureyri 3 st.
Londoú ÍL st: Kaupmannahöfn
8 stig. Stókkhólmur 4 st. París
Laugard. 28. april 1956.13 stt,-.
Riddaralið loftsins
Riddaralið var fyrr á öldum styrkur hvers hers, og hestar þess valdir gripir. Nú er saga þess liðin. En sumir
láta sér detta í hug, að í þess stað geti komið fram í dagsljósið „loftriddarar" svipaðir því, sem teiknarinn á
þessari mynd gerir sér í hugarlund, ef heimurinn á enn að þola styrjöld áður en þúsund ára friðarríkið renn-
ur upf Þá fær hver riddari svona þyrilvængju að reiðskjófa og situr í söðli sem á hesti. Sagt er, að í sumum
löndurr, t. d. Bandaríkjunum, séu gerðar tilraunir með að koma upp slíkum herdeildum. Þar með væri þjóð-
sagan um gandreið á sópskafti orðin að veruleika.
Ný lyfjabúð opnuð í dag í vönduðu
húsnæði við Hofsvallagötu
LfyabúSin nefnist Vestnribæjarapótek, en eig-
andinn er Birgir Einarsson, Iyfjafrætiingur
í dag verður opnuð ný lyfjabúð hér í Reykjavík undir
nafninu Vesturbæjarapótek. Lyfjabúðin er á horni Melhaga
og Hofsvallagötu og verður opin alla virka daga frá kl. 9
að morgni til kl. 8 að kvöldi, nema á laugardögum verður
hún ekki opin nema til fjögur. Eigandi lyfjabúðarinnar er
Birgir Einarsson, lyfjafræðingur, en hann rak áður lyfja-
verzlun á Norðfirði.
Með opnun þessarar nýju lyfja
búðar er bætt úr brýnni þörf Vest
urbæinga, sem búa í Skjólnum og á
Seltjarnarnesi. Tveir lyfjafræðing
ar, Kjartan Gunnarsson og Sigurð
ur Jónsson, vinna í Vesturbæjar
apótekinu, en afgreiðslustúlkur
eru fjórar.
2700 rúmmetra hús.
Byrjað var að grafa fyrir húsinu
í september 1954, sem er 2700 fer-
metrar að stærð. Á fyrstu hæð er
afgreiðslusalur, vinnustofur, kaffi
stofa starfsfólks og geymslur fyrir
hráefni. Á efri hæð eru læknastof
ur og íbúð yfirlyfjafræðings. Húsið
er hið glæsilegast að útliti og er
allur búnaður í afgreiðslusal og
vinnustofum eins og bezt verður
ákosið.
Þeir sem hyggðu.
Teiknigar af húsinu og innrétt
ingum annaðist Hannes Davíðsson,
arkitekt, en byggingameistararnir
Guðmundur Jóhannsson og Jón
Guðjónsson sáu um smíði hússins
en um smíði innréttingu sá Jónas
Sólmundsson, með aðstoð Gamla
Kompanísins. Burðarþolsútreikn-
inga annaðist Sigurður Thorodsen,
verkfræðingur, hitalagningateikn-
ingar Helgi Sigurðsson, verkfræð
ingur. Pípulagnir annaðist Þorgeir
Ólafsson, pípulagningameistari,
raflagnir Jónas Guðmundsson, raf
virkjameistari, blikksmíði Blikk-
(FranUiaW á 2. síðu.)
Gísla langar til að
kveðja sem flesta
Barðstrendinga
Morgunblaðið birtir það sem
einhverja stríðsyfirlýsingu, að
Gísli Jónsson, alþingismaður, hafi
„tilkynnt þeim hræoslubandalags
mönnum, að hann muni mæta á
fundum þeim, sem þeir hafa boð
að“ í sýslu þeirri, sem hann kall
ar „sitt“ kjördæmi, og mun eiga
við Barðastrandarsýslu. Honum
er það auðvitað frjálst sjálfuin
sér til ánægju, að kalla Barða-
strandasýslu „sitt“ kjördæmi
fram að kosningum.
Sannleikurinn um þennan Gisla
gorgeir í Morgunblaðinu er sá, að
Gísli þessi fór fram á það við
fundarboðendur, að hann fengi
að mæla á þessum funduin, og
var honum fúslega veitt það leyfi
án tafar.
Fundarboðendur hafa sem sé
ekkert við það að athuga, þó að
Gísli fái tækifæri til að kveðja
sem flesta Barðstrendinga, og
mun hann skilja, að því takmarki
verður náð betur á þessuin fuml
um en þeim, sem hann boðaði
sjálfur.
Fimm minkar veiddust í eina
og sömu giidru af nýrri tegund
Gildran er tunna hálí aí vatni með liíandi sil-
irngi í, sett vií veitSistaU hjá KaldárhöflSa
Frá fréttaritara Tímans
í Grímsnesi.
Síðustu þrjár vikurnar hafa
hvorki rneira né minna en tiu
íninkar veiðzt í nýja tegund
minkagildru við veiðistaðinn við
Kaldárhöfða, og eina nóttina
veiddust þar fimm mimkar i
sömu gildruna.
Mikið liefir verið um mink við
Kaldárhöfða eins og annars stað-
ar þarna við veiðivötnin. Bræð-
urnir Jón og Óskar Ögmundssyn
ir tóku sig til og gerðu gildru
með þeim hætti, að þeir gráfu
járntunnu niður við vatnsbakk-
ann og létu hana vera hálfa af
vatni. í tunnuna settu þeir síðan
lifandi silung. Af landi út á
tunnubarminn lögðu þeir trébrú
og þöktu með torfi.
Minkurinn heyrir buslið í sil-
ungnuin, fer út á tunnubarminn
og stingur sér eftir bráðinni í □
veiðihug. En þegar hann ætlar
up'p úr, getur hann ekki fótað
sig á járnveggnum innan I tunn-
unni og kemst ekki upp.
Minkarnir, sem veiðzt hafa,
eru allir fullorðnir, og hafa þeir q
allir verið dauðir í gildrunni, er
að var komið, einnig þeir fimm,
sem í henni voru sama morgun-
inn.
Erlendar fréttir
í fáum orðum
Mikil ólga er í Alsír. — Frakkar
herða enn baráttuna gegn upp-
reisnarmönnum.
Hammarskjöld fór í gær frá
Beirút til Amman. Hann hefir
nú lokið við fyrstu hringferðina
um öll löndin fyrir botni Mið-
jarðarhafsins. Ekki er sóð annað
en að góður árangur hafi orðiö
af ferðum hans og viðræðum
hans við ráðamenn í löndum
þessum, þar sem hann hefir
fengið forustumenn þessaia
landa til að hætta hinum alvat-
legu skærum, sem urðu dagiega
á landamærum ísraels og Araba-
ríkjanna.
Utanríkisráðherra Grikkja lýsti í
gær yfir fullri samstöðu Grikkja
með hinum vestrænu lýðræðis-
þjóðum. Hann harmaði atburð-
ina á Kýpur og sagðist vona, að
deilan yrði leyst bráðlega á við-
unandi hátt.
Utanríkisráðherrar Vesturveld-
anna koma saman í París bráð-
lega til að ræða ástandið í lönd-
unum fyrir batni Miðjarðarhafs-
ins.
Lítið málverk eftir Ásgrím fór á
39 þús. kr. á málverkauppboðmii
Málverkin seldust, flest fyrir hátt ver^
Á málverkauppboSi Sigurðar Benediktssonar 1 gær, seld-
ust allar myndirnar, 29 að tölu, nema ein, og fóru þær flest-
ar fyrir hátt verð, enda var hér um óvenjuiega góðar myndir
að ræða. Málverk Ásgríms Jónssonáig^|g||faamúla í Fljóts-
hlíð fór t. d. fyrir 39 þús. kr., en það mun vera hæsta verð
sem boðið hefir verið í málverk á uppboði hér.
Mynd þessi er þó ekki mjög
stór, aðeins 98x117 sm. Myndin
er máluð 1912 eða 1914 og hefir
verið erlcndis síðustu fjörutíu ár-
in. Þá var vatnslitamynd eftir Ás-
grím, Fagurhlíð í Landbroti 60x
100 sm. að stærð, máluð 1911,
seld á 23 þús. kr. Aðrar vatnslita
myndir Ásgríms seldust á 8500 kr.,
7500 kr. og 5500 kr. Ein mynd
eftir Mugg seldist á 9 þús. kr. og
þrjár aðrar á 5—6 þús. kr. Mynd
eftir Kjarval fór á 4500 kr.
Vetrarstarfi náms-
fíokkanna lokið
Námsflokkar Reykjavíkur luku
vetrarstarfinu um síðustu mánaðar
mót og voru þáttökuskírteini af-
hent s. 1. miðvikudag.
í vetur voru kenndar sautján
námsgreinar í fjörutíu og fimm
námsflokkum: íslenzka, danska,
enska, þýzka franska spænska
ítalska, reikningur, bókfærsla vél
ritun, sálarfræði, upplestur, kjóla
saumur, barnafatasaumur, útsaum
ur, sniðteikning og föndur.
Kennarar voru átján auk skóla
stjóra.
Ráðningasíofa
landbúnaðarins
tekin til starfa :
Háðningarstofa landbúnaðarins
er nú tekin tij starfa og er til húsa
í Ingólfsstfæti 8. Þégar er séð, að
mikil eftirspurn er eftir starfs-
fólki í syejfjim landsins og sízt
minni en :vefið héfir, einkum er
skortur á fevénfóiki. Er mikil eft-
irspurn efjtir ráðskoiium og kaupa
konum, og býður skrifstofan marg
ar ágætar ráðskonustöður á ágæt-
um heimilum. Kaup, sem í boði er,
er yfirleitt hátt. Magnús Guð-
mundsson veitir skrifstofunni for-
stöðu eins'og undanfarið.
——————————i
Heiíai* á VestfjörSum
færar 1
ísafirði, 27. aríl. — Búið er að
moka snjó af veginum yfir Breið-
dalsheiði og Botnsheiði til Súg-
andafjarðar, og er nú fært jeppa-
bifreiðum á þessum leiðum. Er
það óvenjuléga snemmt. GS.
Grundvallaratriði í málefna-
samningi umbótaflokkanna
Framsóknarflokkurinn og' Alþýðuflokkurinn birtu þjóðinni :
stjórnmálayfirlýsingu og stefnuskrá 19. apríl s. 1. Þar er gerð ;
grein fyrir þeim aðgerðum, sem flokkarnir telja nauðsynlegt :
að gera til þess að afstýra vandræðum og undirbúa að unnt ||
verði að reka kröftuga framfarastefnu í landinu.
Blöð Sjálfstæðisflokksins eru um þessar mundir að birta |
; samþykktir flokksþingsins í efnahagsmáluin, en lesendur eru |i
! jafnnær um stefnuna, úrræðaleysið og sérgæðin vaða uppi í :
hverri málsgrein. Er nauðsynlegt að liafa stefnuskrá umbóta- ;
flokkanna til samanburðar. Þar er öðruvísi á málunum tekið. ;
\ Grundvallaratriði framfaraáætlunar þeirrar, sem flokkarnir :
hafa komið sér saman um að framkvæma, eru þessi:
1. Samstarfi verði komið á milli ríkisstjórnar og samtaka \
verkalýðs og launþega, bænda og annarra framleiðenda :
um meginatriði kaupgjalds- og verðlagsmála. Markmið
þessa sainstarfs skal vera að efla atvinnuvegi landsmanna, ;
tryggja stöðuga atvinnu og heilbrigt fjármálakerfi.
2. Taka skal upp eftirlit með öllu verðlagi í Iandinu. Stefna :
skal að því, að ekki þurfi að beita innflutningshöftum. ; :
Haft skal eftirlit með fjárfestingu til að stuðla að jafn- : :
vægi milli landsliluta og jafnvægi í efnahagsmálum.
3. Tryggja skal liallalausan ríkisbúskap.
4. Bankakerfið skal endurskoðað, m. a. með það fyrir aug- :
um að koma í veg fyrir pólitíska misnotkun bankanna. ||
Seðlabankinn skal settur undir sérstaka stjórn, og marki ; |
liann heildarstefnu bankanna, og beini fjármagninu að g|
frainleiðsluatvinnuvegunum og öðrum þjóðnýtum fram- g;
kvæmdum.
5. Starfræksla þeirra fyrirtækja, er vinna úr sjávarafla lands l
manna, skal endurskipuleggja með löggjöf í því skyni, að
sjómönnum og útvegsmönnum verði tryggt sannvirði g;
aflans. Fulltrúar ríkisvaldsins ákveði í samráði við full-
trúa sjómanna, útvegsmanna og fiskvinnslustöðva, lág-
marksverð á fiski, sem öllum fiskvinnslustöðvum sé skylt ; :
að greiða. Stefnt sé að því, að fiskvinnslustöðvar séu
reknar í sem nánustum tengslum við útgerðina og. í þjón- ;g
ustu hennar.
6. Útflutningsverzlun með sjávarafurðir skal endurskipu- g;
lögð með löggjöf í því skyni, að markaðsskilylði nýtist
sem bezt og sjómönnum og útvegsmönnum verði tryggt ;;
rétt verð. í yfirstjórn útflutningsverzlunariniíar eigi sæti
fulltrúar frá ríkisstjórn, sjómönnum, útvegsmönnum og ;;;
fiskvinnslustöðvum. Þeir aðilar einir, sem ríkisstjórnin ;
löggildir, skulu annast útflutning sjávarafurða. Stjórnin ;
skal geta sett það skilyrði fyrir löggiidingu, að í yfir- ;
stjórn útflutningsfyrirtækis eigi sæti fulltrúar frá ríkis- :
stjórn, sjómönnum, útvegsmönnum og fiskvinnslustoðvum- ;g
7. Þjóðhagsáætlun skal samin árlega.