Tíminn - 29.05.1957, Side 4
4
» I
| jf' á; h
Uppreisnartilraun á Kúba — Barizt
í forsetahöllinni — Einræðisherrann
• •
komst undan — 011 þjóðin gegn hon-
um — Andstaða þrátt fyrir velmegun
— Skæruliðar og herforingjar
Á Kúbu rsaSur ríkjum ein-
ræðisherrann Fulgencio Bat-
ista. í marzmánuði síðastliðn-!
um riðaði veldi hans til falls’
sem snöggvast. Þrjátíu ung-
ir menn réðust til inngöngu
í höll einræðisherrans, brut-
ust framhjá iífverði hans og
stefndu inn í höllina þar sem
Batista leyndist. Ætlunin var
að ráða hann af dögum. Til-
raunin var djarfleg, en hún
var dæmd til að misheppn-
ast. Uppreisnarmennirnir
börðust hraustlega, en þeir
híutu að bíða ósigur.
Bardaginn hófst þegar uppreisn-
ar nenn, sem flestir voru stúdent-
er, ruddust framhjá lífverði Bat-
WÍsta og inn í garð forsetahallar-
-dnnar. Þeir brutust inn í höllina
og stefndu upp á aðra hæð henn-
ar þar sem skrifstofur forsetans
cru. En Batista var ekki þar, hann
•fcyndist uppi á þriðju hæð hall-
artnnar vopnaður skammbyssu.
f.ifverðinum tókst að veita upp-
^reisnarmönnum mótstöðu þar til
"^þerlið og skriðdrekar voru komnir
«á vettvang. Bardaginn stóð í tvo
fí ia. og uppreisnarmenn voru
atráfelldir.
Arndstæðingar kúgaðir
Meðan bardaginn stóð í forseta-
hóilinni réðist hópur stúdenta itin
í útvarpsstöðina í Havana og höfðu
tiana á valdi sínu í einar tuttugu
ír.ín.útur. Þeir útvörpuðu tilkynn-
-s^fngu þess efnis að Batista væri
dauður og hershöfðingi hans hefðj
verið tekinn höndum. Tilætlunin
-JiVar að skapa ringulreið og greiða
fi nnig götuna fyrir allsherjarupp
-cesn. En þeir voru drepnir strax
og beir komu út úr byggingurni
©g herinn tilkynn.ti fljótlega hvers
■■•fcyns var.
Eftir að uppreisnin hafði verið
t> nld niður tók stjórnin íil sinna
cíða. Andstæðingar Batista voru
•#i ndteknir hundruðum saman, og
cinn fyrrverandi þingmaður sem
•■fiafði gagnrýnt stjórnina harðlega
ysr myrtur. Einræðisherrann hafði
•'•ffomizt undan að sinni og reyndi
-«*u’ eftir mætti að festa sig í sessi j
á nýjan leik. En það er heitt í j
eyjarskeggjum, og fljótlega getur!
soðVö upp úr á nýjan leik. Þetta |
#c>' a glögglega í Ijós við jarðarför j
u; i.meisnarmannánna þrjátíu, en!
þ' fóru kúbanskar konur mikla
ífv'pgöngu íil mótmæla við stjórn-
4' þar á meðal mæður sumra
iiinna drepnu.
Batista ávarpar aimenning í skjóli hermanna sinna eftir að uppreisnar-
tilraunin hafði verið bæld niður.
Einn gegn öllum
Batista var áður fyrr liðþjálfi x
kúbanska hernum, en sextán síð-
astliðin ár hefir hann verið hinn
sterki maður þar í landi. 1952 var
Carlos Prío Socarrás kosinn for-
seti, og Batista beið ósigur. En
hann var ekki af baki dottinn.
Hann þröngvaði Prío til að ílýja
land og hefir síðan haldið völdun-
um í skjóli hers síns, en jafnan
Skæruliðaforinginn Fidel Castro,
sem leynist uppi í fjöilum og
safnar þar að sér liði.
hefir verið grunnt á andstöðunni
við hann og iðulega legið við að
syði upp úr. Batista reyndi að
kenna Prío um uppreisnartilraun-
ina og kvað hann hafa útvegað upp
reisnarmönnum vopnin. Prío neit-
ar þessu staðfastlega. „Ég þarf
ekki að koma til skjalanna“, segir
hann. „öll kúbanska þjóðin stend-
ur sem einn maður gegn Batista.“
Eitt sinn skal hver deyja
Andstaðan gegn Batista sem er
mjög almenn og öílug stafar fyrst
og fremst af hinu stranga einræði
sem hann heldur uppi. í janúar
síðastliðnum nam hann þannig úr
gildi ýmis sjálfsögðustu mannrétt-
indi svo sem prentfrelsi og sam-
komufrelsi. Hagur landsins hefir
verið allgóður, en engu að síður
hafa háskólastúdentar blásið að
glóðum óánægju að stáðaldri. Auk
þess hefir skæruliðaforinginn Fid-
e! Castro haldið uppi sterkum á-
róðri gegn stjórninni, en hann
stýrir allmiklú liði skæruliða í
fjöllunum 500 mílur austur af Hav-
ana. Orð fer af Castro sem ein-
hvers konar Hróa Hetti á Kúbu,
og Batista hefir aldrei tekizt að
hafa hendur í hári hans.
En mesta hætta sem steðjar að
veldi Batista stafar samt af hans
eigin her. Hann hefir látið hand-
taka ýmsa herforingja fyrir að
gera samsæri gegn sér, en honum
hefir samt ekki tekizt að vinna bug
á öllum andstæðingum sínum inn-
an hersins. Árið 1958 rennur út
kjörtímabil hans sem forseta, og
ekki er gott að segja hvernig þá
fer. En Batista hefir alltaf látið
sem hann óttist ekki andstöðu né
óeirðir. „Allir þjóðhöfðingjar eru
í hættu“, sagði hann eitt sinn eftir
að gerð hafði verið tilraun til að
myrða hann. „Og ég veit vel að
eitt sinn skal hver deyja.“
Handavinnusýnihg
Foreldramót og opnun handa-
vinnusýningar verður í Gagnfræða
skóla Austurbæjar í kvöld (mið-
vikudag) og hefst kl. 8,30. Nem-
endur skólans og foreldrar þeirra
eru velkomnir. Handavinnusýning-
in verður opin á morgun (fimmtu-
dag) kl. 1—11 sd. Skólanum verð-
ur slitið n. k. laugardag, 1. júní,
kl. 2 e. h.
Kúbanskar konur ganga hópgöngu til útfararinnar og syngja: Það er heiður að deyja fyrir föðurlandið.
T í M I N N, miðvikudaginn 29. maí 1957,
Fram Reykjavíkurmeistari í knatt-
spyrnu — sigraSi Val meS 2-0
þý^insfarmikil spurning: Hver fer í mark, ef Helgi
Ðaníeiss. meiíist í leikjunum vií Belgi og Frakka?
Úrslitaleikurinn í Reykjavíkurmótinu var háður í fyrra*
kvöld og áttust við Fram og Valur. Fram vann verðskuld*
aðan sigur, sigraði með tveimur mörkum gegn engu, og
voru hæði mörkin skoruð í síðari hálfleik, hið fyrra úr víta-
spvrnu. Þetta er í 9. sinn, sem Fram verður Reykjavíkur-
meistari í knattspyrnu, síðast vann Fram þetta mót 1950.
Úrslitaleikurinn var allskemmti
legur á köflum og bæði liðin
sýr.du góða knattspyrnu. í fyrri
hálíleik lék Fram undan góðri
golu, en samt var það svo, að Val-
ur hafði heldur yfirtökin, og rétt-
lát úrslit fyrri hálfleiks hefði ver-
ið eins marks munur fyrir Val.
Fá góð tækifæri buðust, mest
vegna góðs varnarleiks beggja
liða. Þó fékk Hörður Felixson
gullið tækifæri um miðjaiK hálf-
leik, sem hann misnotaði illa.
Það mun hafa verið almennt
álit áhorfenda á vellinum í hléinu,
að Valur myndi bera sigur úr být-
um í þessum leik, einkum þar sem
Valur hafði heldur yfirburði í fyi'ri
hálfleik, en lék þó gegn golunni.
jafnbezta knattspyrnu í mótinu,
og hið unga lið félagsins er lík-
legt til meiri afreka í framtíðinni,
iþegar leikmennirnir hafa öðlazt
meiri reynslu. Að vísu vantar til-
finnanlega „eina kanónu“ í fram-
línuna, til að reka endahnútinn i
hin oft á tíðum skemmtilegu upp-
hlaup. Aðalkostur liðsins er hve
það er jafnt, enginn einn leik-
maður skarar sérstaklega fram ör
hinum. f þessum leik var vörnin
traust, með Guðmund Guðmunds-
son sem bezta mann. Reynir Karls
son byggði ágætlega upp eins og
áður og er aðalstoð liðsins. í fram
línunni er Skúli skemmtilegastur,
leikinn og fljótur, og þessi korn-
ungi leikmaður er líklegur til a3
Reykjavíkurmeistarar Fram 1957. Fremrl rö3 taliS frá vinstri: Gunnar
Leósson, Reynir Karlsson, Geir Kristjánsson, Guðmundur Guðmundsson,
Karl Bergmann. Aftari röð: Guðmundur Óskarsson, Björgvin Árnason,
Dagbjartur Grímsson, Hinrik Lárusson, Skúli Nielsen, Halldór Lúðviksson,
En hinir ungu leikmenn Fram
voru ekki á því, að láta þetta við-
horf hins almenna áhorfanda ræt-
ast.
Fyrst í síðari hálfleiknum sóttu
Valsmenn nokkuð stöðugt að
marki Fram, en án þess, að veru-
leg hætta skapaðist. Leikmenn
Fram fóru hins vegar að sækja í
sig veðrið er áleið, og upphlaup
þeirra vonx þetur skipulögð og því
hættulegri. Ekki var þó mark skor
að fyrr en um hálftími var af
leik. Skúli Nielsen, hinn leikni
vinstri kantmaður Fram, bi’auzt
þá í gegn, og var kominn 1 gott
skotfæri, þegar hægri bakvörður
Vals greip í hann. Skúli gaf þá
fyrir markið, og mark var skor-
að, en dómarinn hafði flautað áð-
ur og dæmdi vítaspyrnu á Val.
Skúli framkvæmdi spyrnuna og
skoraði örugglega.
Heldur dró úr Val eftir þetta
mark og á það bættist, að Éirxar
Halldórsson var nú orðinn haltur
og gat því ekki beitt sér sem
skyldi, en hann hafði verið kleít-
ur í vörn Vals. Lék Einar í fram-
línunni það sem eftir var án ár-
angurs. Stuttu síðar skoraði Fram
annað mark, og gerði Karl Berg-
mann það, en markmaður Vals
verður að taka það mark á sig,
því staðsetning hans í því tilfelli
var mjög slæm.
Liðin.
Eins og áður segir vann Fram
verðskuldaðan sigur í þessum
leik, sem jafnframt tryggði lið-
inu sigur í mótinu. Ekki fer á
milli mála, að Fram hefir sýnt
komast mjög langt ef hann æfir
vel og reglulega. Hinir í framlín-
unni eru mjög svipaðir, Dagbjarí*
ur Grímsson ef til vill ekki eina
hættulegur og í fyrri leikjum mótá
ins, enda skiljanlegt, þar sem mik
ið var í húfi fyrir hann, að meið-
ast ekki í leiknum.
í liði Vals lék Einar Halldórs-
son mjög vel meðan hann gekfe
heill til skógar, og erfitt er að
benda á betri varnarleikmann hér
en Einar. Hins vegar er ekki á
það hættandi, að velja Einar f
landsliðið meðan hann er þetta
slæmur í fætinum að hann kemst
sjaldan gegnum leik án þess, að
vera orðinn draghaltur. í heims-
meistarakeppninni má sem kunn-
ugt er ekki skipta um leikmánn,
þótt einhver meiðist í leiknum.
f því sambandi má gjarnan geta
þess, að ég hringdi í Gunnlaug
Lárusson, formann landsliðsnefnd-
ar, og spurðist fyrir um það hver
myndi fara í markið, ef svo óheppt
lega vildi til, að Helgi Daníelsson
myndi meiðast í öðrum hvorum
leiknum við Belgi eða Frakka.
Ekki kvað Gunnlaugur um þetta
hafa verið rætt enn hjá landsliS-
inu, en það hins vegar í undirbún-
ingi. T. d. minnti Gunnlaug, að
Halldór Halldórsson hefði ein-
hvern tíma leikið í marki með
góðum árangri, en hins vegar get
ég ekki séð hvernig liðið getur án
, Halldórs verið í vörninni, og verð-
1 ur bví að finna aðra lausn á þessu
Ivandamáli. Mér finnst að lands-
liðsnefnd hafi ekki sýnt næga fyr-
irhyggju í þessu máli, og þess má
(Framhald á 8. síðu.)