Tíminn - 01.06.1957, Síða 9
I í M I N N, laugardaginn 1. júní 1957.
9
MARTHA OSTENSO l
| RÍKIR SUMAR í RAUÐÁRDAL
19
íva*s og hitt til Magdali.
Bréfið til Ivars var frá Jul
ian Fordyce. Julian hafði ver
ið á ferðalagi langt norður í
landi, en þegar hann kom aft
ur til Fort Garry, hafði hann
hitt ungfrú Shaleen á dans-
leik hjá landstjóranum, en
þessi ungfrú Shaleen hafði
einmitt verið svo heppin að
ferðast með frú Vinge sumar
ið áður, er þær voru á leið
norðvestur yfir sléttuna. Þessi
fundur hans við ungfrúna
hafði orðið til þess að hann á
kvað að skrifa Ivari, óska
honum og fjölskyldu hans
gleðilegra jóla og velgengni á
nýja árinu. Um sína eigin
hagi var Julian fáorður. Til
þess að geta betur sinnt um
son sinn kvaðst hann hafa tek
ið við skrifstofustarfi hjá Fé
laginu og snúið bakinu við
því ánægjulega lífi sem hann
hafði lifað undanfarin ár.
Hann kvaðst vona að hann
hitti Ivar fljótlega og þá ef
til vill fá tækifæri til þess að
kynnast fjölskyldu hans nán
ar. Annars hlyti ráð hans í
framtíðinni að verða mjög á
reiki. Meira stóð ekki í því
bréfi.
Bréfið til Magdali var frá
Kate Shaleen og skriftin var
mjög smágerð og fínleg.
Kæra frú Vinge, skrifaði
hún. Oft hefi ég hugsað til
yðar og verið að því komin
að skrifa yður, síðan ég kom
hingað norður. Þegar ég af
tilviljun hitti hr. Julian For
dyce frá Hudson Bay félaginu
nú fyrir skömmu, rifjuðust
upp fyrir mér okkar gömlu
kynni og ég ákvað að skrifa
yður þegar í stað.
Unga konan hefir fengið
mig til að fallast á að dvelja
hjá sér til vors, þótt ég upp-
haflega ætlaði að fara
suður á bóginn löngu fyrr.
Það er ætlun mín, að -koma
til baka brátt eftir að leiðir
opnast að nýju í vor og ætla
ég þá að sækja um kennara
stöðu, ef nokkra er að fá. Það
væri gaman til þess að hugsa
ef skóli yrði settur á stofn í
Rauðárdalnum, þar eö syst
ir mín og bróðir hafa látið í
ljós ósk um að flytjast þang
Téstur og setjast þar að.
Ef fcrsjónin skyldi láta leið
mína liggja einhvers staðar
nálægt heimili þínu á næsta
ári, þá myndi verða mitt
fyrsta verk að leita yður uppi.
Ég mun aldrei gleyma fum
lausu hugrekki yðar frú Vinge
í póstvagninum. Ég vona að
barnið, sem þar fæddist dafni
vel og verði foreldrum sínum,
sem eiga yður ómetanlega
skuld að gjalda, til gleði og
sóma. Þér muniö, um það er
ég viss, verða ein af hinum
mikilhæfustu brautryðjendia
konum. í Rauðarárdalnum.
— Ég óska yður og fjöl-
skyldu yðar gleðilegra jóla og
hagsældar á komandi ári.
Með beztu kveðjum o. s. frv.
Kate Shaleen.
— Hugsið ykkur, sagði Mag
dali og augu hennar skinu af
ánægju. Er þetta ekki fall-
ega gert af henni. Aðeins ef
við hefðum skóla tilbúinn
handa henni, þegar hún kem
ur. Hún myndi verða reglu
lega góður kennari, held ég.
Hún hefir hið rétta viðhorf
— þú hlýtur að finna það,
Ivar.
— Jú-ú, bara að hún sé
ekki of ung til að verða kenn
ari í frumbýlingsskóla eins og
hér, svaraði Ivar og virtist
ekki hafa mikinn áhuga fyr
ir bréfinu frá Kate Shaleen.
Magdali sperrti brýrnar. —-
Vitleysa, Ivar, sagði hún. Ég
■var orðin móðir á hennar
aldri, það er ég viss um, þótt
ég viti annars ekki hvað hún
er gömul. Það var glettni í
augum hennar þegar hún leit
á Ivar og bætti við: — En þú
talaðir við hana þennan dag
— niður við ána. Um hvað
töluðuö þið? Ef til vill veiztu
hve gömul hún er?
— Fjandinn hafi þaö, ég
veit ekkert um það.
Hann roðnaði í framan af
reiði um leið og hann talaði
og snéri sér undan til þess að
losna við þá gremju, sem
hann fann til, vegna þess að
hann skyldi láta Magdali tak
ast að stríða sér. Annars var
meira sem kom til en það,
honum varð það ljóst seinna,
þegar hann hugsaði um þetta
í næði. Eitthvert hugboð sagði
honum, eða Kate Shaleen
myndi minnast þess dags, er
hún tæki að sér að kenna
börnum Magdalis, með iðrun
og gremju. Hann var ekki að
ásaka Magdali. Hún var að-
eins kröfuhörð, eins og móð
ur ber skylda til að vera, eink
um þegar hennar eigin af-
kvæmi eiga í hlut. Það myndi
ábyggilega ekki vera nein
kennslustund ætluð sam-
kvæmt stundaskrá Magdalis
til ævintýraflugs, slíks sem
þess er stúlkan Kate Shaleen
hafði brugðið fyrir sig, þeg
ar hún stóð á árbakkanum og
lét sig dreyma framtíðar-
drauma.
Kate Shaleen mundi verða
hamingjusamari, ef hún yrði
kennari við annan skóla en
þann, sem senn yrði stofnað
ur í Rauðarárdal.
Maigdali taldá dagana til
jóla — fyrstu jólanna sem þau
lifðu í Rauðarárdalnum — á
mánaðardagaspjaldi, sem
hékk í eldhúsinu. Það var
þegar búið að búa til leikföng
in handa börnunum og fela
þau niðri í stóru dragkist-
unni.Magdis fékk tuskubrúðu
með svört augu úr gömlum
skósóla, gult hár úr garni og
munn úr rauðum spotta. Og
brúðan var í agnarlitlu brúðu
rúmi, sem í var koddi og á-
breiða. Og Karsten fékk sleða,
er Ivar hafði smíðað með sér
stakri vandvirkni. Svo fengu
hafði einnig búið til mynda-
hvort, sem í var piparmintu
brjóstsykur og fleira góðgæti
frá Roald frænda. Magdali
hafði einnig búi ðtil mynda-
bók úr gömlu hefti af Harp
, ers Weekly er legið hafði á
' botninum í ferðakistunni. Á
síður þess hafði hún límt
' myndir úr Kristilegu barna-
blaði, sem mágkona hennar
hafði gefið henni, þegar þau
fluttu brott frá Wisconsin.
| Ein myndin fannst Ivari
1 lítt við barnahæfi. Á henni
j sást hvítglóandi kross, sem
reistur hafði verið upp á
barmi gínandi hengiflugs, en
óhrjálegar verur með geisla
baug um höfuðið og klæddar
hvitum skikkjum strekktu i
átt til krossins með miklum
erfiðismunum, rétt eins og
þær ættu að sækja gegn ofur
efli.
— Virðist fremur kuldaleg
mynd þetta, ekki sízt fyrir
börn til að lesa í náttfötun
um, þegar þau eru komin í
rúmið, sagði Ivar hlæjandi.
Magdali svaraði með nokkr
um þjósti: — Ef til vill getur
þú gert betur og fundið heppi
j legri leið til að leiða litlu
angana á rétta braut hér á
j þessum stað þar sem við höf
um enga kirkju.
— O, við fáum bráðum
kirkju, Magdi að minnsta kosti
urn það leyti þegar þau fara
að geta lesið kverið sitt. Við
munum búa hér öll eins og
höfðingjar að einu eða tveim
ur árum liðnum.
Án þess að hafa hugmynd
um það hafðl Ivar drepið hér
á mál, sem hafði verið efst í
huga Magdalis um margra
vikna skeið.
' — Þú hefir alveg rétt fyrir
þér, Ivar, svaraði hún. Og við
verðum líka að fara að undir
búa að svo geti orðið. Við verð
um að gefa þeim, er vilja
| vinna að þessum breytingum,
tækifæri til að koma saman.
Mér hefir dottið í hug, að gam
an væri að bjóða Sondstroms
fjölskyldunni hingað á jóla-
dag.
— Það eru nú aðrir, sem
þyrftu þess frekar með, svar
aði Ivar.
Smáar og hvítar tennur
Magdali skildu eftir djúp för
á neðri vör hennar og síðan
sagði hún hraðmælt: — Það
er synd, að frú Endicott skuli
ekki vera nægilega frísk til
þess að koma. En ég hefi snið
ið pils handa telpunum úr
gamla rauða ullarpilsinu
mínu og einhvers staðar eig
um við yfirsæng, sem við get
um án verið. Ég ætla að biðja
Roald að skreppa niður eftir
til þeirra á morgun með kök
ur og dálítið af osti.
Ivar svaraði ekki strax. í
þetta sinn skyldi hann að
minnsta kosti hvaö fyrir Mag
dali vakti, hvernig hún nú
þegar var tekin að skilja hafr
ana frá auðnum í þessu nýja
og fámenna byggðarlagi, þar
sem hann hafði sjálfur i
barnaskap sínum gert sér í
hugarlund og glaðst yfir, að
enginn yrði öðrum æðri.
— Jæja, þú skalt þá bjóða
Sond(strqms-íf j ölskyldiunni,
sagöi hann að lokum og faldi
bros með þv að bera hönd-
ina fyrir munninn. En bæöi
m
Auglýsingar
sem eiga að birtast í sunnudagsblöðum í
sumar þurfa að hafa borizt blaðinu fyrir
kl. 5 e. h. á föstudögum.
miiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiímiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiimiinji
| Fasteignabók I (
I er komin út. í bókinni er skrá um skattmat allra fast- I
| eigna í öllum sýslum landsins. j§
I Bókin er til sölu á skrifstofu Fasteignamatsins að 1
I Gimli við Lækjargötu, og kostar kr. 150.00. Út á land er fí
§ hægt að fá bókina senda með póstkröfu. |
1 Fjármálaráðuneytið. §j
miiiniiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiijmiHk
iiiiiiiiiililiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiilllliiiiiiiiiiiiiiiliiillllllllillililllllillillliiiiiiiiiiiiiiiliililllllliimiiiiiliiiiiiiiiiiiiliiiyt
| Vörubifreiö yfirbyggö (
| Tilboð óskast í yfirbyggða vörubifreið „Dodge 1947“ §
| burðarmagn 3 tonn. Bifreiðinni fylgja sæti fyrir 12 §
| farþega. i
| Bifreiðin er til sýnis eftir kl. 5 næstu daga á Klepps- |
| spítalanum. Upplýsingar á staðnum veitir Ásbjörn Guð- §j
| mundsr.on bifreiðarstjóri. 1
§ Skrifstofa ríkisspítalanna =
111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
VAV.V.V.W.V.W.VV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.W.WVAV
í i
■. Hjartanlega þakka ég öllum vinum og vandamönnum j.
;! fjær og nær, sem glöddu mig á sjötugsafmæli mínu ;!
;! með nærveru sinni, gjöfum og skeytum. £
Sigríður í Krossavík.
i í
V.V.V.V.V.V-’.'.W.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.’.
v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.
í 1
;■ Innilega þakka ég vinum og vandamönnum margs
;! konar vináttuvott mér sýndan á 70 ára afmæli mínu ;■
--' lArrt ■"
26. maí 1957.
Guð blessi ykkur öll.
í
;■ Vilhelmína Vilhjálmsdóttir, ;■
!■ Ránargötu 6A, Reykjavík. *■
v.v.v.v.v.’-v.v.v.vv.v.v.v.v.v.v.v.v.v.’-v.v.v.v.v
Konan mín,
GuSrún Guðmunda Þorláksdóttir,
andaSist að heimili okkar, Laxárdal í Þistilfiröi 28. maí. Jarðarförin
fer fram miðvikudaginn 5. júní.
Fyrir mína hönd og ættingja.
Ólafur Þórarinsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
Helga Guðmundssonar,
bakarameistara frá safirði.
Björg Pálsdóttír og dætur,
Guðrún og Elin Guðmundsdætur.
Bergsveinn Guðmúndsson og
aðrir vandamenn.
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
konunnar minnar,
Sigríðar Sigurðardóttir
frá Hvammi í Skaftártungu.
Fyrir hönd aðstandenda.
Sigurður Gestsson.