Tíminn - 27.06.1957, Blaðsíða 7

Tíminn - 27.06.1957, Blaðsíða 7
TÍMINN, fimmtudagmn 27. júní 1957. 7 Stimarleyfisferðir til Grænl. (Framhald af 5. síðu). frá miðöldum. Eftir það væri hald ið áfram út íil Hvalvíkur (Juliane- j háþ — Krarkortokr) sem er þar j fyrir utan. ' Vitanlega væri ekki hægt með j þessu ferðalagi að öðlast alhliða kynni af Grænlandi, en þó væri þarna skoðað allmerkt byggðarlag,, sem gæfi mönnum nokkra innsýn ! í hverskonar land Grænland er, þar sem það er líkast íslandi. j Reyndar eru þó til enn fjölskrúð- ugri gróðursvæði, svo. sem eins og í Ketilsfirði (Tasermiut) sem er miklu sunnar. Ekki væri samt gjörlegt að skipu leggja sumarleyfrsleiðangur þang- að í sömu ferð og til þeirra staða sem hér hefir verið bent á, því þá þyrfti lengri tíma. En hægt mundi fyrir flugvél, annað hvort á heimleið eða um leið og farið væri vestur, að leggja lykkju á leið sína yfir firðina vestan við Hvarf og þ. á m. Ketilsfjörð, ef | veður væri gott, svo mönnum gæf- is’t kostur á að líta á landsvæðin þar líka. ViðráSanlegt fyrirtæki Leiðangur skipulagður á þann hátt sem ég hef hér bent á ætti að vera viðráðanlegur sem sumar- leyfisferð til Grænlands, því hann ætti ekki að þurfa að taka meira en 10—12 daga samanlagt með flugferðum báðar leiðir, og ef traustar stofnanir eins og t. d. Or- lof eða Ferðafélagið tæki að sér að sjá um stjórn hans og fyrir-1 gfeiðslu, þá ætti það að vera öruggt að hægt yrði að gera kostn-1 aðinn sem minnstan. Langbezti tíminn til þess að j imiR iuuias uæA gaoj e>[ijs ejbj I júlí og ágústmánuður, því þá eru ! B. S í. FERÐAFRÍTTIR Laugardag 29. 6. kl. 2, tveggja daga ferð í Húsafellsskóg og SurtshelH. Laugardag 29. 6. kl. 1:30, 2 daga ferð í Þórsmörk og 2 daga ferð í Landmanna- laugar. Sunnudag 30. 6. kl. 9, skemmtiferð um Borgarf jörðinn. Ek- ið um Hvalfjörð að Bifröst. Um Hvítár- síðu. Húsafellsskóg, Uxahryggi til Þingv. Fimmtudagur kl. 1:30, Krísuvíkur- hringurinn. Föstu- dag og sunnudag kl. 9 skemmtiferð að Gullfossi og Geysl. mestar líkur fyrir hagstæðu veðri, en það er náttúrlega frumskilyrði þess að ferðalagið lánaðist vel. í hugum margra, sem mest hefir dreymt um suðrænni lönd sem dæmi um dýrð landslags og nátt- úrufegurð, hefir nafn Grænlands jafnan vakið kuldahroll og mynd nakinna fjalla umkringra jökli, og oftast falinn þoku og illviðrum við ísþakið haf, fyllt hjarta þeirra. — Slíka ömurleikans hugsýn gef- ur þeim sem láta óraunsæi og fyrirfram gerða fordóma móta við- horf sín og fullvissun, sem á eng- um rökum er reist. Sannleikurinn er sá að þarna í Eystribyggð gefur allt aðra mvnd að líta og víðast hvar í Grænlandi; er það hin fjölbreytilega litadýrð sem umvefur gjörvallt landslag þess og greypir í hugann óafmá- anlega mynd hinnar mikilfengleg- ustu fegurðar sem mannlegt auga getur séð. Ef þátttakendur í slíkum leið- angri, sem ég hef hér lagt til, væru úr hópi ljósmyndara, eða á- hugamanna á því sviði, myndi ég ráðleggja þeim að hafa með sér myndavélar og filmur sem hægt væri að taka með landslagsmyndir í litum. Þess konar minjar mundu gera þeim slíka för ógleym anlega. í sambandi við útbúnað sem menn þyrftu að hafa í slíka för, sem hér er lagt til, vil ég taka fram, að fyrir utan tjöld, svefn- poka og nesti, þá er bráðnauð- synlegt að hafa með sér flugna- net til að smeygja yfir höfuðið og' einnig áburð til þess að verj- ast mýbiti, því fólk sem er óvant því þolir það illa fyrst í stað. Ég hef hér bent á það hvernig bezt hentaði að fara íyrstu hóp- ferðina til Grænlands einmitt til þess svæðis, sem bezt gæti rifj- að upp hin gömlu sögulegu tengsli, svo þátttakendum gæti orðið margt Ijósara um sögu Grænlands en nú virðist hér almennt. En að aulci væru þarna möguleikar til að kynnast atvinnuháttum nútíma Grænlendinga í tveimur allstóruin þorpum ásamt landbúnaðartilraun- um þeirra í hinni gömlu bænda- byggð. •— Þetta ætti að geta Iagt grundvöll að nánari kynnum milli íslendinga og Grænlendinga nú- tímans sem síðan gætu svo orðið báðum til ávinnings. Og síðast en ekki sízt ætti svona leiðangur til Grænlands að gera sitt til að útrýma ýmsum þeim þruglkenndu hugmyndum sem, hér sem annars staðar, ríkja um líf og háttsemi Grænlend- inga. Síðar mætti svo ræða um skipulagningu ferða til annarra héraða Grænlands. í júní 1957. Ragnar V. Sturluson Fimmfudagur 27. júní Sjö sofendur. 178. dagur árs- ins. Tungl í suðri kl. 12,12. Árdegisflæði kl. 4,46. Síðdeg- isflæði kl. 17,09. DENNI DÆMAEAUSI VAJii r;;,,. ...... L... • ji fl.JJiv " ■ jV'-'íí ií •/; Jú /)\. ..A.Ij 1.Vi . ) Ai ' I • :‘a ;.11”■■'5 fj I )\:lb/Sd Lárétt: 1. eldfjall, 6. straumur, 8. teg- und, 9. grjót, 10. dýr, þf., 11. sjó, 12. hvoftur, 13. kvenmannsnafn (stytting þf), 15. vafða. Lóðrétt: 2. sérvitur, 3. samhljóðar, 4. blaðmyndun, 5. Nes, 7. Ás, 14. sér- hljóðar. Lausn á krossgátu nr. 378. Lárétt: 1. eddur, 6. Róm, 8. aga, 9. vor, 10. USA, 11. gúm, 12. nón, 13. und, 15. króar. — Lóðrétt: 2. draum- ur, 3. dó, 4. umvanda, 5. Rangá, 7. hrani, 14. NÓ. Fríkirkjufólk. Munði skemmtiferðina austur i Landssveit, sunnudaginn 30. júní. Farseðlar seldir ti lföstudagskvölds í Verzl. Bristol, Bankastræti. Stigamaðurinn. Stjörnubíó mun í kvöld sýna hina frægu brazilísku kvikmynd Stigamað- urinn. Verður hún sýnd kl. 7 og 9 og eru það síðustu forvöð til að sjá myndina. Ferðafélag íslands fer fjórar iy2 dags ferðir um næstu helgi. Á Heklu, í Þórsmörk og í Land mannalaugar. Vegna mikilar eftir- spurnar verður farið að Hagavatni og upp á Langjökul. Lagt verður af stað í allar ferðirnar kl. 2 á laugar- dag frá Austurvelli. Farmiðar eru seldir í skrifstofu félagsins Túngötu. SJÓN ER SÖGU RÍKARI íJíróitRkeppní A alþjóðamótum átzt er við af íþróttagörpum stórum. Knattspyrnu- skák- og skíða-lið, ásamt skyttum og ökuþórum. En svo er nú liðfátt land vort enn, að ti lleiks fara kannske einn — tveir menn, með fáeinum fararstjórum. Alltaf heyrum við undur ný af afrekum slikra ferða, heimsmælikvarðinn hann er því helzt til stuttur að verða íslendingum, sem út á við um anda og líkams keppnisvið sífellt sóknina herða. Þótt fornkappar íslands úf um heim öðluðust sigra stóra, og óvinir flýðu undan þeim með auma og rifna bjóra, og ýms þeirra miklu afreksverk um aldirnar geymist, sögumerk, — ei finnst neitt um fararstjóra. Þá Egill vor Skallagríms ytra var, einn af íslands röskvustu sonum, og fulihugans afrek fóru þar fra múr djörfustu vonum. — þá skilst mér það, eftir hæfni hans, að það hefði ekki veitt af tugum manns í fararstjórn handa honum. Andvari. Eg veit ekki hvað tóbakið heitir, en það er vond lykt af því. Útvarpið í dag. 8.00 Morgunútvarp. 10.10 Veðurfregnir. 12.50 „Á frívaktinni“, sjóm.þáttur. 15.00 Miðdegisútvarp. 16.30 Veðurfregnir. 19.30 Harmóníkulög (plötur). 19.25 Veðurfregnir. 19.40 Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.30 Náttúra íslands, erindi: Gróður farsbreytingar og innflutning- ur jurta, Ing. Davíðsson. 20.55 Tónleikar: Lög úr óperettunni Leðurblakan eftir Jóh. Strauss. 21.30 Útvarpssagan: „Synir trúboð- anna“ eftir Pearl S. Buck. Hjúskapur Á hvítasunnudag voru gefin sam- an í hjónaband í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum ungfrú Artie Giano- puios og Sigurður Helgason (Skúla- sonar augnlæknis). Laugardag fyrir hvítasunnu gaf sr. Benjamín Kristjánsson saman í hjóna band ungfrú Eddu Eiríksdóttur stúd ent Kristnesi og Rafn Holgason bif- vélavirkja Akureyri. Heimili ungu hjónanna verður í Kristnesi. Dagskrá Ríkisúfvarpsint fsest f Söluturninum við Arnarhól 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Upplestur: Kristján Röðuls les úr nýrri ljóðabók sinni „Fugl í stormi.“ 22.25 Sinfónískir tónleikar. 23.05 Dagskrárlok. Sjö Islendingar fengu kross 17. júní. Hinn 17. júní 1957 sæmdi forseti íslands, að tillögu orðunefndar, þessa íslendinga heiðursmerkjum hinnar íslenzku fálkaorðu: Árna Thorsteinsson tónskáld, stór- riddarakrossi, fyrir tónsmíðar og störf að tónlistarmálum. Hann var sæmdur riddarakrossi 1. janúar 1947. Brynjólf Jóhannesson, leikara, stór riddarakrossi fyrir störf í þágu leik- listar. Hann var sæmdur riddara- krossi 11. janúar 1947. Frú Aðalbjörg Sigurðardóttir ridd arakrossi fyrir störf að félags- og mannúðarmálum. Björn Pálsson flugmann, riddara- krossi fyrir sjúkraflug. Friðrik Jónsson oddvita, bónda að Þorvaldsstöðum, Skriðdal. Suður múlasýslu, riddarakrossi fyrir störf að búnaðar- og félagsmálum. Gunnlaug Blöndal, listmálara, ridd- arakrossi fyrir störf sem listmálari. Jón Steffensen, prófessor í læknis- fræði riddarakrossi fyrir kennslu- og vísindastörf. Sýning Ásgeirs Bjarnþórssonar Áesgir Bjarnþórsson listmálari hefir málvcrkasýningu i bogasal Þjóðminja safnsins þessa viku. Opið kl. 2.—10 daglega. Myndin hér að ofan heiti laxveiðimenn og er á sýningunni. Hún sýnir þrjá kunna Reykvíkinga búú sig af stað til veiða.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.