Tíminn - 27.06.1957, Page 8

Tíminn - 27.06.1957, Page 8
Veðrið í dag: Norðaustan gola, skýjað í dag. Hitinn kl. 18: Reykjavík 13 st., Akureyri 12 st., Kaupmannahöfn 14 st., London 11 st., París 22 st. Fimmtudagur 27. júní 1957. í mmningu Einars Helgasonar garðyrkjuírömuðar Gamla gróðrastöðin við Laufósveg hefir verið skírð Einarsgarður í minningu Einars Helgasonar garðyrkjufröm uðar, sem stofnaði stöðina á sinni tíð og var þjóðkunnur forvígismaður garðyrkju á íslandi. Um þessar mundir eru 90 ár frá fæðingu hans. Af því tilefni hefir garðurinn verið fegraður og bæjarstjórn ákvað að kalla hann framvegis Einarsgarð. í garðinum er nafn Einars og ártöl letruð með fögrum blómum í grasbrekku. (Ljósm. J. Danska samvinnuhreyfingin og lýð- háskólinn vöktu athygli Nehrus Indverjar geta iært miki'S al dönsku samvinnu- hreyfingunni, sagUi forsætisráíherrann, er hann kvaddi Dani Koma Jawaharlal Nehru til Danmerkur vakti mikla athygli þar í lardi og er svo að sjá af blaðaskrifum og umsögnum fréttamanna, að ferðin hafi orðið báðum til ánægju, dönsku þjóðinni og hinum heimsfræga stjórnmálamanni. Þegar Nehru kv'addi Dani og hélt áfram ferð sinni á ráðstefnu forsætisráðherra brezku samveldis landanna — með viðkomu í Osló — hafi hann ýmislegt að segja um Dani og búskap þeirra, og var það allt lofsamlegt. „Danmörk er land, sem hefir náð miklum þroska og framförum á braut lýðræðisins, land, sem hefir róandi áhrif á hug- ina, land, sem ekki býr við árekstra né miklar þjóðfélagslegar hræringar, land með notalegt and rúmsloft, í stuttu máli, gott land og hamingjuríkt. .. .“Þessari rós stakk Nehru í hnappagat Dana, er hann kvaddi. Samvinnuhreyfing og lýðháskóli. Það vakti athygli, að Nehru tal- aði mikið um hve Indverjar gætu lært mikið af samvinnuhreyfingu Norðurlanda og um dönsku kaup- félögin sagði hann m. a. þetta: „..... Samvinnuhreyfingin danska er kunn víða um heim. Heima á Indlandi reynum við' nú af fremsta megni að efla sam- vinnuhreyfinguna hjá okkur. Eg tel þó ekki, að unnt sé að flytja reynslu eins lands til annars í bókstaflegum skilningi, heldur verði að laga hlutina eftir aðstæð j um á hverjum stað. Hins vegar j hafa Indverjar lært mikið af þróunarsögu dönsku samvinnu- hreyfingarinnar. . . „Ég hefi einnig hrifizt mjög af danska lýðháskólanum“, sagði | Nehru. „Ég segi þó ekki, að hann henti Indverjum, eins og hann er. Vandamál okkar er að mennta ungu kynslóðina og í okkar landi er hún óskaplega fjölmenn, svo fjölmenn, að verkefnið er risavax- ið. En margt hjá danska.lýðháskól anum er hollt fordæmi, sem við höfum tekið eftir og lært af....“ Sláttur hafinn viða í Borgarfirði Sláttur er hafinn víða í Borgar- firði og er spretta sæmileg, þrátt fyrir þurrkana. Bændur þurrka nú hey jafnharðan og það er losað. Jörð er mjög þurr og akvegir svo útleiknir, að rykmekki lcggur lang ar leiðir undan farartækjum. AHar ár eru vatnslitlar orðnar, og sum- ar minni nú en oftast áður svo snemma sumars. 40 manns fyrir rétti á Formósu Formósu, 26. júní: — í dag hóf- ust í Teipeh réttarhöld í málum 40 manna, sem sakaðir eru um að hafa átt sök á óeirðunum miklu fyrir nokkrum vikum, er æstur múgur gereyðilagði bandaríska sendiráðið á eynni og grýtti ser.di- ráðsstarfsmenn. Erlendar fréttir í fánm ©rðiim RAÐSTEFNA brezku samveldisland- anna hófst í Lundúnum í gær. Fyrst verður rætt um heimsmál- in yfirleitt, m. a. Mið-Austurlönd og Ungverjaland. DANSKA stjórnin hefil’ lýst yfir, að hún geti fallizt á að leyfa hern- aðareftirlit úr lofti yfir Græn- landi norðan 63. breiddarbaugs. NORSKA stjórnin kveðst ekki vera mótfallin slíku liernaðareftirliti yfir Norður-Noregi. BREZKA stjórnin kveðst geta faliizt á að hætta tilraunum með kjarn- orkuvopn, ef samkomulag næðist um að hætta framleiðslu slíkra vopna. — AlþjóðahafrannsóknarráðiS ákvað þátttöku Rússa í síldarrannsóknum Rússar geríust aíilar acl ráíiinu á s. I. ári Þátttaka Rússa í síldarrannsóknunum á Norður-Atlantshafi er gerð samkvæmt ákvörðun Alþjóðahafrannsóknarráðsins. Frá þessu er skýrt í fróltatilkynningu frá sjávarútvegsmála- ráðuneytinu, sem blaðinu barst í gær, og er birt vegna blaða- skrifa um íund fiskifræðinga 4 þjóða á Seyðisfirði. í tilkynn- ingunni segir á þessa leið: Undanfarin fimm ár hafa vís- indamenn frá Danmörku, íslandi og Noregi haft með sér samvinnu um rannsóknir á hafinu milli ís- lands og Noregs og norður af ís- landi. Er samvinna þessi einn lið ur í margþættri starfsemi Alþjóða hafrannsóknaráðsins. Á s. 1. ári gerðust Sovétríkin meðlimur Alþjóðahafrannsókna- ráðsins og sendu fulltrúa á árs- þing stofnunarinnar, sem haldið var í sept. s. 1. Sovétríkin hafa stundað síldveið ar í stórum stíl í Norður-Atlants- hafi undanfarin ár og haldið uppi margþættum rannsóknum á svæð- inu. Innan Alþjóðahafrannsóknaráðs ins starfa allar þjóðir, sen» liggja að sjó í Norður- og Vestur-Evrópu. Er reynt að samræma rannsókn- arstarfsemi þessara þjóða og skipt ast vísindamenn á upplýsingum í því sambandi, svo að sem mest gagn megi verða af rannsóknun- um. Þegar Sovétríkin hófu þátt- töku í starfsemi ráðsins á s. 1. hausti, lögðu fulltrúar þeirra fram margs konar skýrslur og upplýsing ar um rannsóknir sínar á Norður- Atlantshafi, m. a. að því er snerti síldina á þessu svæði. Það lá því í hlutarins eðli, að fiskifræðingar frá Sovétríkjunum Hagstæðari sjávarhiti - meiri síld Vísindamenn á rannsóknarskipum 4 þjó'Sa birta skýrslu um síldarrannsóknir Vísindamenn rannsóknarskipanna Dana, G. 0. Sars, pró- fessor Mesjatsev og Ægis hafa haldið fundi á Seyðisfirði 24. til 26. júní og borið saman gögn sín, segir í fréttatilkynningu. yrðu með í samvinnunni um síld- arrannsóknir á Norður-Atlantshafi og var út frá því gengið á árs- fundi Alþjóðahafrannsóknaráðsins á s. 1. hausti, að svo yrði. Þátttaka fiskifræðinga frá Sovétríkjunum í fundinum á Seyðisfirði er því í beinu framhaldi af því, sem ákveð ið hafði verið innan Alþjóðahaf- rannsóknaráðsins. Aukaferðir í mið- næfursólarflug Mikil eftirspurn hefir verið eft- ir miðnætursólarflugi með Flug- félagi íslands og er nú uppselt í allar ferðir sem upprunalega var ákveðið að fara. Vegna þessa mikla áhuga hefir verið ákveðið að fara þrjár ferðir til viðbótar og verða þær farnar 27. júní, 1. júlí og 2. júlí. Flogið er í hinum nýju Vis- count flugvélum Flugfélagsins, og farið af stað héðan kl. 23. Til baka er komið eftir um það bil tveggja stunda flug. Fólk ætti ekki að draga lengi að tryggja sér miða í aukaferðirnar enda má búast við að þær fyllist fljótlega. Gerð voru kort yfir lárétta hita- dreifingu á 20, 50 og 100 metra dýpi. Einnig var gert kort, er sýn- ir útbreiðslu síldarinnar á hafsvæð inu austan íslands og norðan Fær- eyja allt norður fyrir Jan Mayen. Einungis lágu fyrir átukort frá Ægi og Professor Mesjatsev. Niðurstöður. Á grundvelli þessara gagna var komizt að eftirfarandi niðurstöðu: Á svæðinu vestur og norður af Islandi var hærra hitastig en á síðasta ári í efstu 20 metrunum, sérstaklega á norðursvæðinu. Það er hærra en 1954 metra dýpi var hitinn norðan íslands um 1 gráðu hærri en eðlilegt er í júní og tölu- vert hærri en á síðasta ári. Lega íssins norðvestan íslands var svip- uð og á siðasta ári. Við Horn var ísinn í 25 til 30 mílna fjarlægð frá ströndinni, en út af Húnaflóa gekk ísröndin beint í norður svipað og í fyrra. Núna eins og í fyrra lá ís- inn nær norðurströndinni en verið hefir síðustu árin. Norðan og vest an Jan Mayen lá ísröndin mun vestar en undanfarið. Milli 71 og 72 gráðu Nbr. lá ísröndin 165 míl- um vestar en 1956 og 180 mílum vestar en árin 1955 og 1954. Á þessu svæði var breidd íssins frá Grænlandsströnd aðeins 80 mílur. Hærri sjávarhiti. í samræmi við litla víðáttu rek- íssins reyndist sjávarhitinn norðan og norðvestan Jan Mayen 1 til 2 stigum hærri en á undanförnum árum. Hitastig efstu 50 metranna í köldu tungunni sunnan Jan May- en og austan íslands reyndist hærra en undanfarin ár. Mót At- lantssjávarins og köldu tungunnar norðaustan Færeyja lágu nú um 50 til 60 mílum austar en í fyrra. I efstu 50 metrum Atlantshafssjáv- arins undan Noregsströndum er kaldara en 1956. Á 100 metra dýpi er hitadreifingin svipuð og í fyrra. Samanburður á hitastigi í 20 metra dýpi og síldarmagni leiddi í ljós, að mjög mikið síldarmagn var á mótum Atlantshafssjávarins norð- austan Færeyja. Mikil síld. Mjög mikið síldarmagn fannst á svæðinu milli 66. gráðu og 68. gráðu Nbr. og 6. til 10. gráðu VI. Mikið síldarmagn fannst á 64. gráðu Nbr. milli 6. og 10. gráðu VI. og einnig milli 65. gráðu og 67. gráðu Nbr. og 10. og 12. gráðu VI. Annars staðar fannst allmikið síld- armagn á takmörkuðum svæðum og er það sýnt á kortunum, sem útbýtt verður. Lega síldarsvæðisins norðaustan Færeyja var áþekkt því, sem var 1955, en þó er síldar- svæðið öllu stærra nú. Á hafsvæð- inu austan íslands 65. gráðu til 68. gráðu Nbr. og 6. gráðu til 12. gr. VI. fannst meira síldarmagn í vor en á undanförnum árum. Á þessu ári eins og í fyrra fannst meira síldarmagn í vor en á undanförn- um árum. Á þessu ári eins og í fyrra fannst mikið síldarmagn um 68. gráðu Nbr. og 14 gráðu VL, norðaustur af Langanesi. Átan. Hvað átumagn í júní viðvíkur sýna gögn rannsóknarskipanna Professor Mesjatsevs og Ægis, að átumagnið reyndist meira nú en í fyrra í mið- og austurhluta Nor- egshafs og undan vestur- og norð- vesturströnd íslands. Zorin: TiII. Breta og Banda- ríkjanna mjög athygl isverðar London, 26. júní. — Enn var fundur haldinn í dag í afvopnunar nefnd S. þ. Stassen, aðalfulltrúi Bandarílkjanna lagði fram og skýrði tillögur Breta og Banda- ríkjamanna. Zorin, fulltrúi Rússa, kvað þær mjög athyglisverðar og fevaðst taka þær til nákvæmrar at- hugunar. Svalbakur landar á Ólafsfirði Ólafsfirði í gær: — Togarinn Svalbakur frá Akureyri er hér að landa 270—280 lesta farmi. Lönd- uninni Iýkur vart fyrr en á morg- un. í gær lagði héðan af stað hóp ur manna til Raufarhafnar til að vinna þar við síldarsötlun í sumar. Hér bíða menn óþreyjufullir á plönunum eftir leyfi til að fá að salta. BS. Konunglegt skilnaðarmál Egypzkt blað hefir skýrt frá því, a'5 Hussein Jórdaníukonungur hafi i sl. viku fengið skilnað frá drottningu sinni, Dinu, sem er egypzkrar ættar. Hjónabandið hefi rverið í upplausn um nokkra hríð. Dína drottning hefir dvalist hjá ættfólki sínu í Cairo siðan í september 1956, en Hussein situr sem kunnugt er í Amman, höfuðborg Jórdaniu. Konungshjónin eiga eina dóttur barna, Alíu prinsessu. Það urðu mikil vonbrigði í Jórdaníu, er drottn ingin fæddi dóttur. Dína drottning er 29 ára, en Hussein konungur 22 ára.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.