Tíminn - 04.09.1957, Qupperneq 7

Tíminn - 04.09.1957, Qupperneq 7
t ÍM'ivN N, miðvikudagiim 4. september 1957. Nokkur kveSjuorS til Jóns KonráSssonar hreppstj. Bóndinn á Bæ á Höfðaströnd Mínn 6. júní s. I. lézt ágæt- ur Skagfirðingur í sjúkrahús inu á Sauðárkróki, Jón Kon- ráðsson fyrrv. hreppstjóri og bóndi í Bæ á Höfðaströnd. Með því að þessa gagnmerka og mæta manns hefir ekki verið minnzt nú að ieiðar- lokum, bið ég Tímann fyrir nokkur kveðjuorð. Hann var fæddur 3.11 1876 að Miðhúsum í Óslandshlíð. Var Kon- ráð faðir hans sonarsonur Eggerts gamla Eiríkssonar prests í Glaum- bæ, sem var víðkunnur maður á sínum téna. Var Eggert prestur 3. maður frá Jóni Eggertssyni á Ökrum og konu hans Sigríði stór- ráðu, en 6. maður frá Magnúsi prúða Jónssyni. Er sú ætt nefnd Svalharðsælt. Jón Konráðsson var því 10. maður í beinan karllegg frá Jóni Magnússyni sýslumanni á Svalbarði. Voru þeir Svalbarðs- menn margir (og Eggert prestur þar ekki undan skilinn) stórbrotn- ir menn og aðsópsmiklir, vel gefn- dr og mikilhæfir, þó síður en svo jafnaðarmenn sumir hverjir, ef í odöa skarst. Móðir Jóns í Bæ og húsfreyja Konráðs var Ingibjörg Gunnlaugsdöttir frá Hofsstöðum, systir Jónasar bónda á Þrastar- hóli. Voru þeir frændur Ingibjarg- ar margir vel gefnir menn, sem fóru að engu óðslega, en komu fram vilja sínum og stefnumálum meir með lægni og fyrirhyggju en nieð míidum átökum og hávaða. Konráð og Ingibjörg hófu búnað á Naustum (Snekkjunaustum) hjá Hoísósi, lítilli jörð. Þaðan flutt- ust þau að Miðhúsum og tóku þar við búi af Jóni föður Konráðs. L'öngu sáðar keyptu þau Bæ á Höfðastrírod og fluttust þangað bú ferlum. Hófu þau Bæ úr niður- níðslu mcð ræktun og öðrum um- bótum til vegs og gengis. Var Kon- ráð biíhöldur mikill. Lagði hann jöfnum höndum stund á landbún að og sjávarútveg. Var hann í röð frentstu bænda, framtaksmaður, héraðsríkur, höfðingjadjarfur og stórbrotinn drengskaparmaður. Hann var lengi hreppstjóri og sá maður, er mest var skotið ráðum til þar í sveit, er um sveitar- og héraðsmál var rætt. Var hann svo ínerkur athafnamaður og sérstað- ur persónuleiki, að um hann þarí að skrifa sérstakan þátt á vegum Skagfirzkra fræða. Ungur að árum kvæntist Jón KonráSsson Jófríði Björnsdóttur frá Gríif, glæsilegri mannkosta- konu. Þau voru jafnan mjög vel samhent ura stjórn á stóru búi og samvalin um rausn alla og myndarfjrag, sem jafnan einkenndi heimili þeirra, úti sem inni. Börn áttu þau þrjú: Björn hreppstjóra í Bæ, Geirlaugu húsfreyju Þórð- ar Pálmasonar, kaupíélagsstjóra í Borgarnesi og Konráð, sem látinn er fyrir fiáum missirum. Vegna fijarlægðar er mér rni ekki unnt að ná til þeirra manna, er bezt þckictu Bæjarheimilið, með an Jón ré.S þar búi, og fá hjá þeim stuttorða lýsingu af honurn sem heimilisföður. En jafnan þótti anér þar hinn bezti bæjarbragur, húsbóndinn ekki alltaf margmáll, en dagfarsprúður og dagfarsjafn. Sagði hann fóiki sínu greinilega fyrir verki og sýndi því, hversu vinna skyldi. :En ekki var háttur hans að vanda oft um við hjú sin, þótt verk þeirra gengju ekki fram með þeim hætti, sem hann ætlað- ist til. Kom fljótt í ljós, að Jón var fram'sýhn og athafnamaður mikiií. Líktist hann í báðar ættir nokkuð,- en þó í móðurætt meira. Stundaði har.n ailtaf sjávarútveg jafnhiiða landbúnaði. Fór hann aldrei hart af stað í framkvæmdum, reisti sér aldrei of þungan hurðarás um öxl, en sótti fram hægt og öruggt. Og þótt hann væri hlaðinn störfum í þágu sveitar og héraðs, þá lét hann hvoríci heimilið né búskap- inn gjalda þess. Reis hann jafnan snemma og ,vann þá að ritstörf- um og öðru þyi, er lionum var á hendur falið að vinna í þágu sveit ar sinnar og félagssamtaka. Gekk hann svo til annarrar vinnu þeg- ar almennur starfsdagur hófst. Starfsöm ævi Ekki reyni ég að telja öll þau störf, er Jóni voru á hendur ialin um langa ævi, því að þau voru ærið mörg og margs háttar. Hrepp stjóri var hann nær hálfa öid. í hreppsnefnd um skeið og oddviti hreppsnefndar, í stjórn Búnaðar- sambands Skagfirðinga fjölda ára, lengst formaður. Sæti átti hann jafnan í fasteignamatsnefnd Skaga fjarðarsýslu, oftast formaður. Og f-orsæti át.ti hann í stjórn Kaup- félags Fellshrepps (sem nú hefur skipt um nafn og heitir Kaupfélag Austur-Skagfirðinga) frá fyrstu ár- um þess til síðustu ára. Um langt skeið mun hann hafa verið for- maður í stjórn Búnaðarfélags Hofs- hrepps. Gaf hann því félagi og jafnframt Búnaðarfélagi Óslands- hlíðar riflegar fjárhæðir. Komu þessar gjafir að góðu haldi, eins dagsbirtuna •— eins og góðum dreng hæfir. Og þótt um nyíja- mái væri að ræða, sem ég vissi aft hann átti upptök að, fékkst ridrei samþykki hans til þess að sagan léti hans getið í því sam- tandi. Jafnan var hann fundarstjóri á foalfundum félagsins. Þar r.aut hann sín prýðilega. Bar þá hæst o t.tgróna háttvísi hans, lipurð og frábæra iagni er átakamál bar að höndum. Ég segi það ekki gömtum fundarfélögum til lasts, þótt ég geti þess, að stundum var skoðana munur á fundum þessum, eins og hlaut að verða og jafnan hlýtur að verða. Nokkrum sinnum flugu örvar ásakana um fundarsalinn. Stúndum var þeim örvum beint að stjórninni eða að starfsemi félags- ins, nokkrum sinnum af einhverju tilefni og önnur skipti af litlu eða engu tilefni. Jafnvel fór storm- | ur um fundarsalinn. En sjaldan | varð fundarstjóra rótað úr fyllsta jafnvægi. Honum sem formanni stjórnarnefndar bar fremur öðr- um að svara til saka, ef kaldyrð- um var beint að stjórninni. Mér er þetta enn mjög í ljósu minni, því að cg var oft fundarritari og sat því við hlið fundarstjórans. Nærvera hans var alltaf jafn á- gæt. Þar var jafnan logn, þótt annars staðar í salnum væri gust- ur. Fyrstu ásökunum svaraði hann venjulega á þá leið, að hann teldi rétt að ásakanir kæmu fram ein- mitt á þessum vettvangi, hér væri hvort tveggja réttur staður og rétt stund til að gera upp ágreinings- efnin, en hitt mætti niður falla, sem verr færi, er menn ræddust við einslega eða í fámennum hópi og mikluðu hver fyrir öðrum það, er þeim þætti hafa miður tekist og miður farið, og oft yrði til þess eins að auka tortryggni og óhollan söguburð. Eftir að ræðumenn höfðu talað að vild sinni, svaraði fundarstjóri jafnan með hógværri og rökstuddri ræðu. Áttu þá allir Bær á Höfðaströnd. og gefandinn ætlaðist til, því að þær urðu báðum búnðarfélcgun- um lyftistöng til vélakaupa og mikilla jarðræktarframkvæmda. Er það athyglisvert, að Jón þok- aði þessum störfum frá sér, íærð- ist undan endurkjöri þegar er hann fann, að heilsan tók að bila. Hann minnkaði þannig við sig smám saman, skoraðist fyrst und- an þeirn störíum, er mestur eriil fylgdi og hann hlaut að rækja al- farið utan heimilis síns. Og síðast færðist hann undan þeim störfum, er hann gat rækt heima hjá sér og í næsta nágrenni. 'Lengst mun hann hafa verið í stjórn Kaupfé- lags Austur-Skaftfellinga. Þó kom þar, fyrir nokkrum missirum, að hann gaf ekki iengur kost á að taka þar endurkjöri. Samvtnnumaðurinn Jóni kynntist ég allnokkuð sem starfsmanni á opinberum vett- vangi á fundum Kaupíelags Aust- ur-Skagfirðinga og í samstarfi er við áttum, þegar við skráðum sögu félagsins, er það varð 30 ára. Betri samstarfsmann get ég ekki kosið. Enn leikur laðandi birta minning-' anna um þá daga, er við sátum saman að þessu starfi, veturinn 1949—50. Um vöndun og ná- kvæmni get ég ckki lengra jafnað en til hans. Ekki skyldi neitt und- an fella, skrifa söguna heila og alla, hvergi hálfa — allt fram í kost á að lesa ágreiningsmalin of- an í kjölinn. Kyrrðust þá umræður og dró oftast til fullra sátta og ein ingar. Hann var prýðilega máli far inn, réð yfir hljómþýðum raddblæ og bar hæfilega hratt fram ræð- una. Gat hann, jafnvel fram á efstu ár, flutt ágætar ræður af munni fram, án verulegs viðbúnað- ar. Naut hann svo almenns trausts sem stjórnarnefndarmaður kaup- féiagsins, að ég má fullyrða, að hverju sinni, er hann átti að ganga úr stjórn, samkvæmt lögum, var hann endurkosinn með öllum atkvæðum fulltrúa. Glæsilegur persónuleiki Eg á erfitt með að gera mér þess grein, hvað það var í fari Jóns, sem mér verður hugstæðasL Þsr íór svo margt vel saman. Þótt ytra útlit hafi raunar aldrei í þeim efn- ttm áhrif til úrslita, má ég get.a þess, að hann var fríður sýnum, með hærri mönnum á vöxt og svar aði sér vel, gekk beinn frant á efstu ár og svo hraðstígur og iétt ur á fæti, að mörgum var erfitt að fylgja honum. Hlaut því Jón að vekja athygli, hvar sem hann fór. Hann var karlmenni að burðum og öruggur til skjótra átaka. Hefur hann vafalaust verið vel fallinn til íþrótta á yngri árum. Þó kom karlmennska hans bezt fram í þeirri mynd, að hann tók óvænt um, alvarlegum atburðum ætíð með sérstöku jafnaðargeði og hóf- semi, sem minnir á Ögmund bisk- up Pálsson, er hann varð þess var að honum þvarr sjón skyndilega. Hann var jafnan snjall og laginn samningamaður, lét aukaatriði litlu skipta, ef hann fékk því fram- gengt, sem mestu skipti, að hans dómi. Munu ýmsir telja, að hann hafi helzt skort harðfengi, er stóru var að skipta og um stórmál var deilt. Verða jafnan skiþtar skoðan ir um það, hve hörðum tökum eigi að neyta aflsmunar og svo hitt, hvenær skörungurinn á að halda um stjórntauma og hvenær samningamaðurinn. Þó gat þar komið ef honum þótti drengskap arskorti og ósvífni að mæta, að hann steig frarn báðum fótum og gat þá orðið stórhöggur. Heima á Bæ Síðast sáumst við Jón Konráðs- son heima hiá honum í Bæ á fögrum haustdegi sl. ár. Ilafði hann þá mjög látið fyrir hin síð- ustu missiri, þótt virðulcik stnum héidi hann óskertum, svo og glað legri framkomu og frábærri gest- risni. Skömmu síðar kenndi hann vanheilsu mjög alvarlega. ICom þar, seint á sl. vetri. að ltann fór til Reykjavíkur og gekk þar undir holskurð á Landspítalanum. Var þá í slíkt óefni komið, að ekki varð rönd við reist. Þeim úrslitum tók hann með einsærri hugarró, svo sem vænta mátti, en kvaðst vilja kornast heim í fjörðinn sinn til að deyja þar. Fór hann, þegar er hann varð ferðafær, norður til Sauðárkróks, og beið dauða síns þar í sjúkrahúsinu. Var hann jarð settur í heimagrafreit að Bæ 15. júní við hlið konu sinnar og sonar. Var jarðarför hans ein hin fjöhnennasta, sem fram hefur far ið í Skagafirði. Frá mörgum stórbýlum I Skaga- firði getur að líta mikla náttúru fegurð, þó óvíða meiri en frá Bæ. í suðri rís Mælifellshnjúkur. hilm ir skagfirzkra fjalla. í vestri er Tindastóll og hin töfrum roðna Drangey. í norðri er Höfðavatn, eins og glitofin ábreiða við geisia sumarsólar og vorbirtu. Lengra frá er „hyrna Höfðafjalis". Vestur af vatninu er hinn rammaukni Þórðarhöfði, víkingurinn í her- klæðunum, einskonar Lómagnúp- ur í skagfirzku umhverfi. í Bæ átti Jón sínar beztu stund- ir, þar var hann öll sín manndóms ár, og þar kaus hann að hvíla, þegar skeiðið væri runnið, í ættar grafreitnum, sem hann valdi stað bæst á túnöldunni suður frá bæn- um. Þessa jörð hafði hann bætt og fegrað með frábærri kostgæfni og smekkvísi, fyrst meðan hann bjó einn í Bæ og síðar stutt Björn son sinn að halda upp merkinu. Víst fer vel á því, að bein Jóns hvíli þar, sem hann vann flest verk sln og' þar sem stórbrotna og fagra sýn gefur til allra átta. Kolbeinn Kristinsson. Kvöldskóli KFUM Hinn 5. september hefst innrit- un nemenda í Kvöldskóla KFUM, og fer hún fram í nýlenduvöru- verzluninni Vísi, Laugavegi 1. Þessi vinsæli skóli er fyrst og fremst ætlaður piltum og stúlkum, er stunda vilja gagnlegt nám sam- hliða atvinnu sinni, og eru þessar námsgreinar kenndar: íslenzka, danska, enska, kristin fræði, reikn ingur, hókfærsla og handævinna (stúlkna), en auk þess upplesturj og íslenzk bókmenntasaga í frarn-' haidsdeild. — Einskis inntöku-[ prófs er krafizt, en skólavist geta' þeif hlotið, er lokið hafa lögboðnu skyldunámi. Einnig er þeim nem- endum, er lokið hafa námi 1. bekkjar gagnfræðastigsins, heim- ilt að sækja skólann. Að loknu burtfararprófi úr Kvöldskólanum hafa þeir fullnægt skyldunámi sínu. Skólinn starfar aðeins í tveim deiidum, byrjenda- og framhalds- deild. Er fólki eindregið ráðlagt að tryggja sér skólavist sem allra fyrst, en umsækjendur eru teknir í þeirri röð, sem þeir sækja um, þar til bekkirnir eru fullskipaðir. — Skólasetning fer fram þriðju- daginn 1. október kl. 7,30 síðdegis í húsi KFUM og K við Amtmanns- stíg. 3 Á víðavangi Bölsýni ungu skáldanna Jónas Árnason liefur nýlega. birt í Þjóðviljanum athyglisvertU an greinarflokk, þar sem hann ræðir um ungu skáldin. Hann, segir m. a.: „Böisýni er eitt lielzta ein* kennið á verkum ungra skálda. Sutnir þeirra yrkja bókstaflega eins og þeir hafi étið arsenik og séu að semja þetta meðan þeir bíða þess að eitriS verki. Nær undantckningarlaust er sál þeirra þrungið af alvöru heimsins eins og rúllupylsa undir þungu fargi. Oftast er hjarta þeirra alveg að springa. Margir þeirra virðast vera í stöðugrí lífshættu við skrifborðið. Það er eðlilegt að við óbreytt ir lesendur veltum því fyrir okk- ur af hvcrju þetta stafar. Til dæmis allur þessi þrýstingur kringum hjartað, gæti ekki liugs ast liann stafaði af því hvað mennirnir rembast mikið víð hvert orð, hvað þeir taka óg'ur- lega mikið á þarna sem þeir sitja við skrifborðið sitt lon og don? Helztu aðdáendur þeirra hafa þó á takteinum aðrar og til- komumeiri skýringar: Þessir ungu menn eru að túlka viðliorf samtíðar sinnar. Þeir eru sannir og einlægir í skáldskap sínum, þess vegna tjá þeir okkur sorg lífsins, og þeir tjá okkur ekkl annað en sorg lífsins, af því að lífið er ekki annað en sorg. Þetta er eitt af mörgu varð- andi verk ungra skálda og rit- liöfunda sem ég á erfitt með að kingja. í fyrsta lagi neita ég því, að lífið sé ekki annað en sorg. Það skáld sem ekki finnur ar.n- að í lífinu en sorg hlýtur að vera eitthvað bilað. En ég er sannfærður urn að meginið af þessu er — sem bet- ur fer — ekki annað en upp- gerð. Ungu skáldin eru yfirleitt hvergi nærri eins sorgbitin og þau látast vera. Alvara þéirra flestra er engin alvara, • heldur skáldskapur, leiðinlegur skáld- skapur. Sorg þeirra er ræktuð sorg eins og þau skegg sem ung- Iingar láta sér vaxa til að sýu- ast rosknir menn.“ Til fundar við fólkið . . . Jónas heldur áfram og segir: „Og' livað viðvíkur þrýstingnum kringum hjarta'ð, þá á hann sér mjög eðlilega orsök. Hann staf- ar af hreyfingarleysi. Mennirnir eru búnir að sitja svo lengi við veitingaborð eða skrifborð að blóðrásin er farin úr lagi. Og ég skal benda þeim á einfalda læku ingu. Standið upp og teygið úr ykkur. Farið út og andið að ykk ur hreinu lofti. Fáið ykkur and- lega og líkamlega heilsubótar- göngu út í lífið, til fundar við félkið í landinu, þetta prýðilega óbreytta alþýðufólk sem þekkir Iífið, þekkir það eins vel og þið eruð ókunnugir því, af því að það hefir lifað því hvern dag ævi sinnar á meðan þiS sátuð við skrifborð eða veitingaborð og rembduzt við að vera séní. Gerið þetta, og þið munuð finna glcð- ina og skilja að hún á eriudi í bókmenntir nútímans engu að síður en sorgin. Og þið munuð finna fegurðina, hina einu sönnu fegurð, hina tilgerðarlausu feg- urð hversdagslega lífs. Og þið rnunuð finna bjartsýnina og skilja, að sá sem vill túlka raunverulegt viðhorf samtíðar sinnar getur, þrátt fyrir allt, ver ið bjartsýnn á að vera bjartsýnn. Því lífið er yfirleitt bjartsýnt, og fólk þess, þetta óbrotna alþýðit- fólk. það er bjartsýnt. Og sorgina, já sorgina líka, vissulega munuð þið líka finna sorg'ina. En ekki þá sorg sem er ræktuð við skrifborð til að vera uppistaða í fáguðu ljóði, heldur hina djúpu sorg er dynur yfir sem andstæða hinnar hjörtu og einföldu gleði lífsins, og þá miiu uð þið taia um sorgina af minni tilgerð og rneiri alvöru á cftir.“ Hinn sanni efniviSur í niðurlagi greinar sinnar far- ast Jónasi þannig orð: (Franthald á 8. síða.)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.