Tíminn - 04.09.1957, Blaðsíða 9

Tíminn - 04.09.1957, Blaðsíða 9
T ÍM I N N, miðvikudaginn 4. september 1957. 9 iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiijiiiiiiiiiiiiimniiii AAARTHa ostenso RÍKIR SUMAR 'RAUÐÁRDAL 9%» 119 Þeir voru með langt, dökkt hár og í jökkum með látúns- hnöppum. Foringi þeirra var Englendingur. Eg ætla aö segja þér meira um það ein- hvern tíma seinna. Honum fannst varla vogandi að segja Rose frá leyndarmáli þeirra Ales og Solveigar. Louie Spragg kom á móti þeim strax og þau komu inn úr hliðinu. Rose renndi sér úr sætinu og heilsaði Spragg alúðlega. Karsten leit fram hjá þeim yfir grasflötinn og sá þar standa vagn Roalds frænda sins. Hann leit á klukkuna. Hún var tíu mín- útur yfir fjögur. Fjárinn hafi það. í heiminum væru vafa- laust margar milljónir eins og William Cole, en ekki nema ein Rose Shaleen. — Eg var rétt í þessu að láta hestinn hans frænda þíns inn í hesthúsið, Karsten, sagði Spragg. Hann kom með . gamlan fausk með sér, sem var svo bjálfalegur, að maður hefði vel getað ímyndaö sér að hnerri hefði dugað til þess að velta honum um koll. En hann á fallega dóttir. — Svo hann hefir komið með konu sína og dóttur? spurði. Karsten. — Nei, bara dóttur sína og svo kjölturakka, sem hún kall aði Punkins. Hún skyldi ann- ars eftir sólhlífina sína hjá mér til þess að gera við hana. — Heyröu litli maður, sagði hún. — Geturöu gert við þessa lykkju. Eg tók við sól- hlífinni og gerði við hana, þeg ar ég var búinn að láta hest- inn inn. Vilt þú ekki taka hana með þér inn og færa henni. Karsten leit á Rose og sá ótta í stórum augum hennar. Hann greip hönd hennar og dró hana með sér um leið og hann tók við sólhlífinni. Rose starði á fagurlega skreytt handfangið. — Góði Karsten, sagði hún kvíðafullri röddu, — lofaðu mér að fara heim. Hún er fín og fögur, en ég er alls ekki nógu vel klædd til þess að hitta . . . Karsten eldroðnaði og anz aði henni ekki, heldur skálm- aði með hana við hlið sér upp að húsinu. Blómabeðin voru vel hirt og fögur í af- girtnm reivum. sem markaðir voru með skeljura frá ánni og hvítþvegnum steinum. Það var enginn í dagstofunni. Auðvitað myndi viðhafnar- stöfan vera notuð handa þess um virðulegu gestum. Karst- en hélt annarri hendi fast um handlegg Rose en kreisti sólhlífina í hinni. Dyrnar voru opnar inn í stofuna og þaðán barst ómur af röddum, lágum og virðu- legum. Það var ekki að márka hugsaði Karsten, því að þetta hræðilega herbergi kom öll- um til að tala í hálfum hljóð um, rétt eins og jarðarför væri í þann veginn að hefj- ast. Á gólfi var þykkt, rán- dýrt teppi frá Brussel, en hús gögnin voru úr útskornum valhnotuviði. A miðju gólfi stóð borð með þykkri marm- araplötu, en fyrir gluggum voru íburðarmikil tjöld úr rauðu flaueli. Karsten fannst hann aldrei haía séð svo and- st.yggilega stofu, en samt var hún stolt og sómi móður hans. — Það er allt í lagi með hárið á þér, tautaði Karsten, þegar hann sá Rose vera að strjúka á sér hárið með skjálf andi höndum. — Við skulum j flýta okkur inn og kynna okk j og fyrir fólkinu. i Um leið og hann gekk inn j úr dyrunum sá hann gengt sér í stofunni siúlku, sem var með hár sett upp samkvæmt nýjustu tízku og rækilega lagt. Kjóllinn hennar var úr jhvítu, fögru efni og fór mjög vel. Þrýstin oddlaga brjóstin komu glöggt í Ijós, en í háls- inn var kjóllinn tekinn sam- an með knippi af blómum, sem litu út eins og Gleym- mér-ei. Hún sat bein á horni legubekksins og hafði gætt þess vel að krippla ekki kjól- inn. Við fætur hennar lá : rakki, móbrúnn á lit. Spikið , lá í fellingum á honum, en i svart trýnið hafði hann lagt ! ólundarlega fram á milli lappa sér. | Um leið og Karsten opnaöi dyrnar, leit stúlkan upp með eftirvæntingarsvip og sneri sér að honum. Roald var þeg- ar risinn á fætur og skundaði til móts við Karsten. — Ágætt, Karsten. Þú ert kominn. Komdu drengur minn, þú veröur að kynnast þessum ágætu vinum okkar. j Svo kom hann auga á Rose og það var eins og neðri j kj álkinn á honum dytti niður um nokkra þumlunga. — Og Rose, sagði hann loks. Sol- veig er einhversstaðar — úti held ég . . . | — Eg vildi gjarnan kynna Rose fyrir hr. Cole, greip Karsten fram í fyrir honum. ! Hann ipyndi sennilega hafa 1 snúizt á hæli og gengið út aftur þegar í stað, ef hann hefði ekki komið auga á föð- ur sinn. En ívar var svo vand ræðalegur og ráðvilltur á I svip, þar sem hann sat við hliðina á Arne við eina glugg ann í stofunni, sem var op- inn. j Roald drap tittlinga, en ; jafnaði sig þó furðu fljótt. — : Já, já auðvitað: Komdu hing- að. En Karsten skundaði fram hjá honum og gekk til ung- í frú Cole. Hann hélt fast um (hendina á Rose. | — Leyfið mér að skila sól- hlífinni yðar, ungfrú Cole, sagði hann kurteislega. — Það er búið að gera við hana. Eg heiti Karsten Wing — og þetta er ungfrú Shaleen. Ungfrú Cole tók við sól- hlífinni, hreyfði af mikilli leikni þétt, dökk augnahár sín og leit brosandi ýmist á Karsten eða Rose eins og væri hún undrandi, én mjög á- nægö. —Ó, þakka yður kærlega fyrir, sagði hún loks og hló. — Eg er hrædd um, að ég hafi verið nokkuð frökk, en spennan tolldi aldrei. Hún lagði sólhlífina til hliðar og leit á Rose: — Þér hafið ver- ið úti að ganga? Mig langaði svo til að fara í gönguför í dag og tína villt blóm. En ég varð að fara í þennan þreyt- andi kjól og fara í heimsókn með pabba. Auðvitað eins og hlýðinni og skyldurækinni dóttur sæmdi. Hún þagnaði og hló léttum hlátri. — Þarna kemur pabbi með hr. Brat- land. Hún leit á Karsten: — Gættu þín á pabba. Hann er slægur, gamall refur, þótt hann líti svona meinleysis- lega út. Þér skulið setjast hérna hjá mér, ungfrú Shal- een. Tal karlmanna er svo bjánalegt, finnst yður það ekki. Karsten til gleði, en jafn- framt undrunar settist Rose á legubekkinn við hliðina á ungfrú Cole. Hún var nú orð- in róleg að því er virtist, og andlit hennar órætt. Roðinn, sem færzt hafði í kinnar hennar jók aðeins fegurð hennar. Karsten hneigði sig frem- ur klaufalega fyrir stúlkun- um og sneri sér svo við til þess að tala við þá Roald og lögfræðinginn. Nokkru fjær í stofunni sá hann, að móðir hans og Magdis voru að bjástra við kaffikönnur og brauðföt, sem vinnukonurn- j ar höfðu komið með inn í stof una. Arne og Olina voru þarna líka, en faðir hans stóð nú einn sér og horföi tóm- jlega út um opinn gluggann. . Solveig sást hvergi. j Meðan Roald kynnti Karst- en fyrir hr. Cole, var ungi , maðurinn sér þess meðvitandi I að móðir hans hafði séð Rose og einnig, að hún bjó sig und- ! ir að leyna öllum svipbrigð- um, sem gætu gefið til kynna, hvaða tilfinningar koma hennar hefði vakið. En Karst j en var ekki í vafa um hv.erj ar þær tilfinningar voru. Það ' gat hann af langri reynslu lesið úr þöndum nasavængj- um hennar og hvatlegri fram komu. ' William Cole var horaður maður, fölur í andliti og næst um bersköllóttur. Hann hefði i ekki verið ófríður maður hefði hann verið ofurlítið feit lagnari, en vaxlitt hörundið j virtist vera hið eina er huldi : kinnbein hans og langan kjálka. Hann bar kolsvart , blómlegt yfirskegg, og stór dökk augu hans lýstu næmri greind. Þegar Karsten gat loks beint allri athygli sinni að manninum fann hann óð ara til velvilja í hans garð. Hann var einkar þreklegur maður og skemmtilegur og virtist einnig mjög umburð- arlyndur eins og honum væri fremur lagið að aumka menn en stjórna þeim harðri hendi. — Það skiptir ekki máli, sagði Cole viðkunnanlegri röddu, hvort Cleveland verð ur endurkjörinn eða Benja- min Harrison nær kosningu. Harrison er veiklyndur mað- ur — nógu veiklyndur iiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiimiiiiiiniiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii iiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii I Áfkvæmasýning | i I | verður að Lágafelli, Mosfellssveit 6. þ. m. Allir gripir, | I sem sýna á, eiga að vera komnir á sýningarstað kl. i | 11.30. Sýningin verður opin almenningi frá kl. 14— i I 18 e. h. Búnaðarsamband Kjalarnesþings = = = 5 iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmm miimiiiiiimiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiji | Kópavogsbúar I I Kærufrestur til yfirskattanefndar Kópavogskaupstað- 1 | ar vegna skatta og útsvars 1957 er útrunninn 20 ágúst | f næstkomandi. 1 = Yfirskattanefnd Kópavogskaupstaðar. = imiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiipiiiiiiimiiiT iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiimmmmim miiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiimiiiiiiimiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiimmiiiimiim Innilegustu þakkir til allra nær og fjær fyrir auðsýnda hluttekn- ingu viS andlát og jarSarför Jóns Gísla Jónassonar frá Helgafelli. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd vandamanna. Margrét Andrésdóftir, Stykkishólmi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.