Tíminn - 28.11.1957, Side 8

Tíminn - 28.11.1957, Side 8
8 Erlent yfirlit (Framhald af 7. síðu). ríkin, Bretland, Frakkland, Kína, Sovétríkin, Japan, írak, Svíþjóð, Panama, Kolumbía og Kanada. í undirnefnd afvopnunarnefnd- arinnar hafa átt sæti fulltrúar Bandaríkjanna, Bretlands, Frakk- lands, Kanada og Sovétríkjanna. Að undanförnu hafa verið uppi raddir um að fjölga bæri fulltrú- um í afvopnunarnefndinni og breyta jafnframt skipun undir- nefndarinnar. Bæði hefir þátttöku ríkjunum í S.Þ. fjölgað og skipun undirnefndarinnar hefir verið ó- eðlilega hagstæð vesturveldunum. Indverjar höfðu líka strax hreyft þessu máli í þingbyrjun nú, án þess að koma þó fram með bein- ar tillögur. Fékk það mál strax verulegan stuðning. Tiilaga Rússa upi að hafa öll þátttökuríkin í afvopnunarnefnd- inni, hlaut hinsvegar aldrei neinar undirtektir. Slík nefnd var talin of þung í vöfum. RÉTT áður en stjórnmáia- nefndin lauk afgreiðslu sinni á af- vopnunarmálunum, lýstu Rússar því yfir, að þeir myndu hvorki starfa í afvopnunarnefndinni né undirnefnd hennar, ef skipan nefndanna héldist óbreytt. Þessi afstaða Rússa mæltist ekki vel fyrir, því að hún hafði á sér blæ hótunar og ráðríki. Timinn til þess að lýsa þessu yfir, þótti ekki heldur vel valinn, þar sem um þetta leyti var verið að vinna að því bak við tjöldin að reyna að ná samkomulagi um nýja skipan afvopnunarnefndarinnar, er væri Rússum hagstæðari. Ýms ríki voru því andvig að breyta nefndinni nokkuð. Afstaða þeirra var sú, að væri raunverulega vilji til sam- komulags, skipti sjálf skipun nefnd arinnar ekki máli, enda hefðu Rúss ar ekki haft neitt við hana að athuga fyrr en nú. Eftir þessa verkfallshótun Rússa væri þó enn síður ástæða til að breyta nefnd- inni en áður. ÞRÁTT FYRIR þetta, héldu þó samningaumleitanir áfram og höfðu þar forgöngu Indverjar, Kanadamenn og Júgóslavar. Vest- urvældin voru alltreg til breytinga, einkum þó Frakkland. Um skeið voru horfur um samkomulag á þeim grundvelli, að bætt yrði við tíu ríkjum, og var nokkurn veg- inn samkomulag um átta þeirra, en deila var um tvö sætin. Þar vildu vesturveldin fá Belgíu og Túnis, en Rússar vildu fá Pólland og Egyptaland. Auk þess vildu Rússar heldur Mexíkó en Argen- tinu. Upp úr þessu málaþrasi spratt sú hugmynd, að bætt skyldi við 14 ríkjum eða til viðbótar þeim 10 ríkjum, sem vesturveldin voru búin áð fallast á, þ. e. Argen- tínu, Ástralíu, Belgíu, Brasilíu, Burma, Indlandi, ftalíu, Tékkó- slóvakíu, Túnis og Júgóslavíu, skyldi bætt Egyptalandi, Póllandi, Mexíkó og Noregi. Vesturveldin virtust vera treg til að fallast á þetta, en Sovótríkin virtust þess- ari hugmynd mjög hlynnt. Niður- staðan varð því sú, að þau fimm ríki, er mest höfðu unnið að samn ingunum, Indland, Kanada, Júgó- slavía, Japan og Svíþjóð, fluttu til- lögu um að framannefnd 14 ríki skyldu bætast í afvopnunarnefnd- ina. Búið var að tryggja tillögunni fylgi flestra Asíu- og Afrikuríkj- anna, Suður-Ameríkuríkjanna og Norðurlanda. Átti því að láta slag standa, þótt vesturveldin sættu sig sig ekki við þetta, því að vitað var, að þau myndu ekki grípa til verkfalls út af því, eins og Sovét- ríkin höfðu hótað. Mál þetta kom svo til lokaaf- greiðslu á þinginu þriðjudaginn 19. nóv. Þar lýstu vesturveldin sig fylgjandi framangreindri tillögu, en Rússar lýstu sig ekki geta fall- izt á hana, og myndu þeir ekki starfa í afvopnunarnefndinni, eins og hún yrði skipuð samkvæmt til- lögunni. Hins vegar myndu þau gera það, ef samþykkt myndi til- laga frá Albaníu um að bæta við Austurríki, Finnlandi, Indonesíu, Ceylon, Súdan, Búlgaríu og Rúm- eníu. Þessi afstaða Rússa vakti mikil vonbrigði á þinginu, einkum með- al Indverja og Júgóslava, sem TÍMINN, fimmtudaginn 28. nóvember 1957. Kadarstjormnni heíir nú tekizt aS kága nngversku verkamannaráSin Ekkert hefir frétzt um örlög formanns þeirra, Sanddors Racz Vínarborg. — Búdapest-útvarpið skýrði frá því fyrii skömmu, að verkamannaráðin, það síðasta, sem eftir var af lýðréttindum ungverskra verkamanna eftir þjóðbyltinguna, hefðu nú verið lögð niður að boði stjórnarinnar. Athusfasemd í tilefni blaðaskrifa varðandi verð á perum, sem birst hafa í dagblöðum í Reykjavík, vill Félag ísl. stórkaupmanna taka fram eftirfarandi: Perur þær, sem nýlega voru fluttar til landsins frá Bandaríkj- unum og seldar hafa verið í verzl unum nú að undanförnu, eru ekki fluttar inn af meðlimum Féiags ísl. stórkaupmanna, heldur af Samkaupum h.f., sem eru samtök nokkurra matvörukaupmanna í Reykjavík. í stað þeirra koma rikisskipuð ráð, sem eru háð stjórninni i öll- um atriðum. Kadarstjórnin liefir allt frá lokum byltingarinnar átt í miklu stríði við verkamannaráð- in, sem nutu stuðnings verka- manna í landinu svo og sjálfrar þjóðarinnar. Formaðurinn fangelsaður. Svo virðist, sem leppstjórninni hafi nú tekizt að buga alla slíka mótspyrnu, að minnsta kosti á yf- irborðinu, með afnámi verka- mannaráðanna. Eitt af fyrstu verkum leppstjórnarinnar var að fangelsa formann ráðanna, Sandor Racz. Ekkert hefir frétzt af ör- lögum hans síðan hann var hand- tekinn. ÁÖalfundur FUF í j V-Skaftafellssýslu (Framhald af 5. síðu.) arklaustri. Skemmtunin var fjöl- ' sótt. Þeir Björgvin Jónsson og Þráinn Valdimarsson fluttu stutt- ar ræður, Karl Guðmundsson leik- ari skemmti. Mikill sóknarhugur. Það leyndi sér ekki á aðalfund- inum, að ungir Framsóknarmenn í V-Skaít. munu þegar hefja undir- búning næstu kosninga og strengja þess heit, að leysa kjördæmið úr viðjum íhaldsmennskunnar. Með auknu brautargengi meðal æsk- unnar mun Framsóknarfl hefja á ný merki framfara í hagsmuna- málum Vestur-Skaftfellinga í söl- um Alþingis. Samstillt átak fram- fara'aflanna mun í næstu kosning- um gera kjördæmið að öryggu vígi framfara og frjálslyndis. Þetta átak er höfuðverkefni ungra Framsóknarmanna í Vestur-Skafta fellssýslu. 49 ár liðin frá síðustu fr jálsu kosnmgunum í Rússlandi Þann 25. nóvember síðastliðinn voru 40 ár liðin síðan að síðusíu frjálsar kosningar voru haldnar 1 Rússlandi undir kommúnistískri stjórn. Eftir þennan ósigur tók Lenin til sinna ráða. Hann lýsti því yfir, að kosningarnar væru ólöglegar — borgarastéttin hefði farið að með rangindum og að hið nýja þing yrði ekki virt viðlits. Lenin stóð við orð sín — er þingið reyndi að koma á lýðræð- isstjórn, tóku bolsévikkar upp vopn. Þúsundir manna voru drepnir. Lýðræði í Rússlandi var liðið undir lok. Kosningar þessar fóru fram að- eins vegna þess, að þær höfðu verið ákveðnar og skipulagðar áð- ur en Lenin brauzt til valda þann 7. nóvember 1917. Þessar kosning- ar voru mikill ósigur fyrir komm- únista, sem fengu fjórfalt færri atkvæði en andstæðingar þeirra. Jafnvel í þáverandi höfuðborg, Petograd, þar sem fylgi Lenins var mest, urðu frambjóðendur hans í töluverðum minnihluta. 'Jlllilllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllillilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllilllllllllllllllllllllllllllllll! töldu sig vera búna að koma á | samkomulagi. Niðurstaðan var svo jsú, að tillaga Albaníu var felld, [en tillaga ríkjanna fimm sam- þykkt með yfirgnæfandi meiri- hluta. EINS og málin standa nú, verður þessi nýja afvopnunarnefnd raunverulega ekki starfhæf og kem ur sennilega ekki til að starfa neitt, ef Rússar halda fast við þá ákvörðun að taka ekki þátt í störf- um hennar. Haldi Rússar fast við þá ákvörðun eftir að búið er að ganga eins langt til móts við þá §j í sambandi við skipun afvopnun- ] §j arnefndarinnar og lýst er hér að I = framan, verður ekki dregin önnur ályktun af því en sú, að þeir vilji ekki viðræður um afvopnunar- = málin að sinni. Það er a. m. k. erfitt að koma auga á aðra á- stæðu. Von margra er sú, að Rússar muni endurskoða þessa afstöðu sína og taka þátt í störfum afvopn- unarnefndarinnar, þegar frá líður. Svo vaxandi er nú áhuginn fyrir afvopnun, að það muni engu ríki sigurvænlegt að hafna þátttöku í viðræðum um þetta mesta vanda- mál mannkynsins. Þ.Þ. Gjaldkera- starf á aðalskrifstofu Happdrættis Háskóla íslands er laust til umsóknar. Umsóknir er íilgreini náms- feril og starfsferil umsækjanda skulu sendar til skrifstofu happdrættisins, Tjarnargötu 4, fyrir 7. desember næstkomandi. uiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiminnaiinimui iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinii NAUÐUNGARUPPBOÐ I verður haldið í tollskýlinu á hafnarbakkanum, hér 1 bæn- | um, fimmtudaginn 5. des. n. k. kl. 1,30 e. h. eftir kröfu | tollstjórans í Reykjavík o. fl. Seldar verða ýmsar vörur | til lúkningar aðflutningsgjöldum, húsgögn og heimilis- | tæki ti! lúkningar ýmsum kröfum. | Ennfremur verða seldar ýmsar vörur, er gerðar hafa | verið upptækar af tollgæzlunni í Reykjavík, þ. á m. eru § stálþráðstæki, radíógrammófónar, fatnaður, skófatnað- | ur. snyrtivörur, lindarpennar, hljómplötur, skrautvörur | o. m. fl. | Greiðsla fari fram við hamarshögg. | H Borgarfógetinn í Reykjavík. | B «iniiniiiimnmmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiinffli«iBBsa^ Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir okkar, Einar Ólafsson, kaupmaður, Skagabraut 9, Akranesi, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness 27. þ. m. Guðrún Ásmundsdóttir Ólafsson, Einar Jón Ólafsson, Lydia Bjðrnsson, Ingvar Björnsson. Úfför konu minnar, Katrínar Þorsteir.sdótfur, sem andaðist þ. 20. þ. m., fer fram frá Fossvogskirkju, föstudag- inn 29. nóv. kl. 3 e. h. Hannes Pálsson ■; Reykjavíkurlíí fyrir I; aldamétin ;« i _n~ í :■ j: I; Kvennaskólastúlk- ■: í urnar 1878—1879 í ij ji Fyrsta ísíenzka konan, í; sem reyndi at5 Iesa til í; í síúdentsprófs í ! z~D~..! '• Þorbjörg Sveiusdóttir í í; ljósmóðir í :: í jj I; Konan, sem sauma'ði ;í ;■ fyrsta íslenzka fánann ■: > (Hvítbláinn) í; ! -D.-. i! Kvenfélögin í I; > Reykjavík ■: ! -Q- j; Umsatin um ■; •: Hétel ísland í —n— S *■: Engeyjarbændur og :; húsfreyjur Jieirra í jj -□— í: í „Frúin mín“ í Viíey ■: ! , ;j •l MúrhúsifS viíS Skóla- ■: ■; vöÝðuslíg 11 oghinir í; mörgu íbúar þess í; ii -Q- I. ;,Dóttir prestsins á Mosfelli,;. ;; fósfurdóttir Þorbjargar £ Sveinsdóttur og frænka ■! II t ;• Einars Benediktssonar ;■ hefir í ritum þessum ;! ;» brugðið upp skyndimynd- ;í ;. um af samtíðarfólki sínu ;í ;• hér á landi og eriendis. ji , Rit i jj ölafíu Jóhanns- \ j! dóttur jj ;. !—II. bindi ib. saman. ;í ;. Ásamt ævisögu Ólafíu £ ;. eftir Bjarna Benedikfsson ;í ;» alþingismann. ;. J ■■■■■■' V.V.V.V.V.V.-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.