Tíminn - 11.12.1957, Blaðsíða 6

Tíminn - 11.12.1957, Blaðsíða 6
6 TIMINN, miðvikudagmn 11. desember 1957, Útgefandl: Framsóknarflokkurln* Rltstjórar: Haukur Snorrason, Þórarinn Þórarlassaa (áb). Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu. Símar: 18300, 18301, 18302, 18303, 18304 (ritstjórn og blaðamenn) Auglýsingasími 19523. Afgreiðslusíml 123X1 Prentsmiðjan Edda hf. ---------.........jl Lagíæringar á kosningalögunum EINS og skýrt var frá í blaðinu í gær, hefir ríkis- stjórnin lagt fyrir Alþingi breytingar á lögunum um kosningar til Alþingis, en ætlajst er til, að þær breyting ar gildi einnig um kosning- ar til bæjar og sveitarstjórna Tilgangurinn með þessum breytingum er að gera kosn- ingar friðsamlegri og virðu- legri en þær hafa verið um skeið, og skapa kjósendum jafnframt meiri vernd gegn óeðlilegum áróðri og ágangi st j ómmálaf iokkanna. Helztu breytingarnar, sem þetta nýja stjórnarfrumvarp gerir ráð fyrir, eru þessar: FYRSTA breytingin fjall ar um það, að kjósanda, sem vill greiða atkvæði utan kjör fundar, eru lagðar á herðar þær skyldur að gera nánari grein fyrir fjarveru sinni. Segir svo um þetta í greinar- gerö frumvarpsins: ' „Að gildandi lögum er at- kvæði manns, sem neytt hef ir atkvæðisréttar síns utan kjörfundar, ógilt, ef sannast, aö hann sé staddur innan þesis hrepps eða kaupstaðar, þar sem hann stendur á kjör skrá, þá er kosning fer fram. Þykir rétt að auðvelda sönn- un um, að ekki sé kosið í rík aramæli utan kjörfundar en lög heimila.1 ÖNNUR breyting er sú, að kjörfundi skuli slitið eigi síð ar en kl. 11 að kveldi. Segir svo um þetta í greinargerö frumvarpsins: „í lögunum eru skýr ákvæði um það, hvenær kjörfundir skuli hefjast. í kaupstöð- umskal byrja kjörfund kl. 10 á kjördag, en annars staðar kl. 12. Hins vegar eru ákvæð in um slit kjörfundar ekki j afnskýr, og hafa þau leitt til mismunandi framkvæmdar eftir skilnigi og skýringum hinna ýmsu kjörstjórna. Slfkt ástand er óviðunandi. Ttl dæmis hefir yfirkjör- stjórn hér í Reykjavik skilið svo ákvæði 97. gr. laganna, að þegar kjörfundur hefir staöið í 12 tíma, megi ekki slíta fundi fyrr en stundar fjóröungur sé liðinn, frá þvi að kjósandi gaf sig síöast fram, á þann hátt, að hún hefir haldið áfram kjörfundi löngu eftir að kjördagur var liðinn. Hér er lagt til, að þebta ákvæði falli niöur, en skýrt ákvæði komi í staðinn, þar sem fyrir er rnælt, að kjörfundi skuli alls staðar slíta í slðasta lagi kl. 23 með þeim eina fyrirvara, að þeir kjósendur, sem þá hafa gefið sig fram við kjörstjórn á staðnum, fái að kjósa. Þetta mundi í framkvæmd verða þannig, að útidyrum kjör- fundarhúss yrði lokað kl. 23 og þeir, sem þá væru komnir inn í húsið, gætu kosið. Eftir 97. gr. þannig breyttri æbti kjörfundur í kaupstað ekki að geta staðið lengur en 13 klukkustundir, og virðist það nægilegur tími. Eðlileg ast virðist, að um þetta séu skýr ákvæði i lögum. ÞRIÐJA breytingin fjallar um það að óheimilt er gert að senda skýrslur af kjör- fmidi um það, hvaða kjósend ur hafi neytt atk\ræöisréttar síns.. Segir svo um þetta í greinargerð frumvarpsins: í þessari grein er lagt bann við því, að sendar séu frá kjörfundi upplýsingar um það, hverjir neyta atkvæðis réttar síns. Hefir það farið mjög í vöxt hin síðari ár, a. m. k. í kaupstöðum, að flokk arnir noti rétt sinn til að hafa umboðsmenn í kjördeild um fyrst og fremst til að fylgjast með því, hverjir hafa kosið og hverjir ekki. Á þeirri vitneskju, sem þannig fæst, er síðan byggð kosningasmöl un, sem telja verður óæski- lega og raskar þeirri leynd og þeim friði um kosninga- réttinn, sem hver maður á að njóta. Fjórða breytingin fjallar um að tryggja leynd kjör- gagna eftir að kosningum er lokið. Segir svo um þetta í greinargerð frumvarpsins: „Hér er nýímæli um með ferð kjörskránna, eftir að kosningu lýkur. Með ákvæð inu á að tryggja þann rétt kjósandans, að eftir kjördag sem á kjördegi megi hann treysta því, að óviökomandi menn fái ekki vitneskju um það, hvort hann hafi kosið eða ekki, en slikt er jafnmik ið einkamál hans eins og hvernig hann kýs.“ FIMMTA breytingin fjall ar um að útiloka áróður á kjörstööunum, t. d. með aug lýsingum og flokksmerkjum. Segir svo um þetta í greinar gerð: „Hér eru skýrari ákvæði en í gildandi lögum um það, hvað telja beri óleyfilegan kosningaáróöur. Þörf er á því að friða sjálfan kjördag inn með því að takmarka á- róður flokka og frambjóð- enda. Æskilegast væri, að á róöur væri með öllu niður felldur alls staðar í kjördæm inu, meðan kjörfundur stend ur yfir, en hætt er'við, að slíkt komist ekki á fyrr en stjórnmálaflokkarnir í land inu verða sammála um það. En rétt þykir að útiloka með lagaboðum áróður á kjörstað og í næsta nágrenni, svo sem hér er lagt til. Með ákvæðinu er mönnum bannað að hafa uppi flokksmerki sín á kjör staðnum og að hafa uppi á róður á kjörstað, á næstu húsum og i aðliggjandi göt- um. HÉR hafa þá verið raktar allar helztu breytingar frum varpsins og jafnframt sýnt fram á, að þær miða mjög að því að friða kjördaginn og verja kjósendur fyrir óeðli- legum ágangi og smölun flokkanna. Þess hefði því mátt vænta, að algert sam- ERLENT YEIRLIT; Verður Marshallf éð lánað Aröbura? Italir leggja athyglisverSar tillögur fyrir stjórn Bandaríkjanna FYRIR seinustu helgi fóru •frani í Washington, viðræður milli Pella utanríkisráðherra Ítalíu, og Dulles utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Aðalefni viðræðn anna var að fjalla um undirbúning NATO-fundarins í París. Jafn- framt notaði svo Pella tækifærið til að leggja fram mjög athyglis- verðar tillögur, um viðreisn hinna nálægari Austurlanda. Meginatriði tillagna Pella eru þessi: 1. Afborganir af lánum Mars- hallhjálparinnar, sem eiga að greiðast ríkissjóði Bandaríkjanna, skulu renna i sérstakan sjóð, en afborganir þessar eiga að hefjast •á næsta ári. Þennan sjóð skal nota til að efla framfarir og at- vinnulíf hinna nálægari Austur- landa. 2. Ríki þau, sem greiða umrædd ar afborganir, skulu jafnframt leggja upphæð í sjóðinn, er nemur allt að 20% af afborgununum. 3. Ríki þau, sem eru í Efnahags stofnun Evrópu (OEEC), en ekki hafa fengið Marishall-lán, mega leggja fram svipaða upphæð í sjóð inn og isvarar til tillags ríkjanna, •sem rætt er um í öðrum málslið hér á undan. Þessi rííki eru V- Þýzkaland, Sviss, Grikkland og Austurríki. : Áætlað er, að stofnfé umrædds sjóðs verði samkvæmt framan- sögðu 'iim 100 anillj. dollarar. — Hér er átt við það fé, sem sjóðn- um mun strax safnast á fyrsta ári. Við þetta bætist svo árlega : afborganirnar af Marshall-lánun- um og viðbótarframlög umræddra rílkja. TIL FREKARI skýringar þy>k- ir rétt að geta þess, að Marshall- aðstoðin var á sínum tima veitt í tvennskonar formi. Nokkur hluti hennar var veittur í óafturkræfu um framlögum, en nokkur hluti í lánum með hagstæðum vöxtum og afborgunmn. Það eru þessar afborganh', sem eiga að hefjast á næsta ári. Ríki þau, sem fengu umrædd lán, eru þessi, og er heildarupphæð lánanna tilgreind innan sviga í millj. dollara: Bretland (336.9) Fraikkland (182.4) Hoiland (150.7) írland (128.2) Ítalía ( 73.0) Tyrkland ( 72.8) Belgía (68.1) Portugal ( 36.7) Noregur ( 35.0) Danmörk ( 31.0) Svíþjóð ( 20.4) ísland ( 4.3) Rótt er að geta þess, að Lux- PELLA — utanrikisráðherra ítaliu. emburg fékk nokkurn hluta þeirra lána, sem voru veitt Belgíu. í TILLÖGUM Pella, sem áður ' greinir, er tekið fram, að rangt myndi reynast að hafa umrædd an sjóð í nokkrum tengslum við Allantshafsbandalagið eða Bag- dadbandalagið. Það myndi verða til þess, að ýmis ríki á viðkorn- andi svædi, myndu ekki vilja þiggja lán úr sjóðnum. Pella leggur þessvegna til, að sjóðurinn verði hafður í tengslum við Efna hagsstofnun Evrópu, OEEC. Jafn framt leggur hann til, að komið verði upp fastri miðstöð fyrir sjóð inn í Napoli á Ítalíu. í þessari mið- stöð starfi bæði fulltrúar frá lán- veitendum og lántökum, til athug unar á því, hvernig fjármunum sjóðsins verði bezt ráðstafað. Lán úr sjóðnum verði veitt án allra pólitískra skilyrða. Pella leggur til, að starfssvið sjóðsins verði eingöngu bundið við hin nálægari Austurlönd. Þá tillögu byggir hann á því, að þar sem nú vegna ýmisra aðstæðna mest þörf fyrir efnahagslega viðreisn. í hjólför efnalegrar end urreisnar í þessum löndum, rnuni fylgja aukinn friður í þessum hluta heims, þar sem nálæg styrjaldar- hætta er nú allra anest. ÞEGAR þetta er ritað, er efcki kunnugt um, hvernig stjórn Banda rikjanna tekur þessurn tillögum Pella. Af ýmsum ástæðum mætti ætla, að undirtektir hennar yrðu jákvæðar. Að vísu er hér gert ráð fyrir mestu framlagi af hálfu Bandaríkjanna, en framlagi þeirra er hinsvegar þannig háttað, að þau eru búin að leggja þetta fram áður og ekki þarf því nvjar skattálög- ur vegna þeirra. Fyrir Bandaríkin er það einnig ánægjuleg tilhögun, að þetta fé, sem áður fór tii við- reisnar í Evrópu, verði aftur not- að til viðreisnar í öðrum 'löndum. Enn er ekki heldur vitað um þær undirtektir, er tillögur Pella munu fá í Evrópu. Mönnuan þar verður þó stöðugt Ijósara, að Evrópa verður að hjálpa til þess að efla efnahag og afkomu þeirra þjóða Asíu og Afríku, sem nú eru lakast settar. Þetta sézt m.a. á þeim tillögum enskra jafnaðar- manna, að 1% af þjóðartekjum Breta verði lagt í isjóð, senn styrki framfarir í umræddum tlöndum. ÝMSUM kunna að fcoma það undarlega fyrir sjónir, að ítalska stjórnin skuli verða til þess að bera fram þær tillögur, sem hér hefir verið sagt frá. Þetta kemur hinsvegar ekkert kynlega fyrir frá sjónanmiði þeirra, sem hafa fylgst með málum að undanförnu. ítalir hafa gert sér verulegt far um þaö seinustu árin að vingast við Araba og auka marg’náttuð skipti við þá. Þetta hefur borið verulegan árang ur og eru tengsli Araba og ítala að styrkjast á margan 'hátt. I þessu sambandi má ýeil vekja athygli á því, að Ítalía hefir mjög verið að festa sess sinn að undan förnu, sem eitt hinna hrifameiri ríkja. Endurreisnin hefir gengið allvel á Ítalíu eftir styrjöldina og standa ítalir orðið mjög framar- lega í ýmsum iðngreinum. Á sviði tízkuvara rj’ðja ítalskar \örur sér stöðugt meira og meira tiil rúms. Að dómi kunnugra manna er Ítalía það ríki, sem hefir rétt imest við eftfr styrjöldina, næst á eftir Vestur-Þýzkalandi og Japan. Ef þannig heldur áfram, virðast ítal- ir brátt geta talið sig jafnoka Frakka á sviði alþjóðamála, enda gera þeir líka hlut sinn alltaf meira og meira gildandi þar. Til- lögur Pella, sem hafa verið rifjað ar upp hér á undan, eru einn vott- ur þess, að ítalir ætla sér að vera í röð forustuþjóða. Á þessu stigi verður litlu spáð um það, hvernig umræddum tillögum Pella nnmi reiða af. Þær eru hinsvegar ný sönnun um auk inn skilning framsýnna manna á því, að hlutur vestrænna þjóða og lýðræðisstefnunnar anunu fara verulega eftir því á komandi ár- um, hvern þátt þessar þjóðir munu eiga í viðreisn Asíu og Afríku. , Enn hafa þes>sar þjóðir skilyrði tii að hafa forustuna á því sviði. Þeir tímar geta hinsvegár komið, að það tækifæri reynist glatað, ef þær rumska ekki við nógu fljótt. I Þ.P. 'BAÐSrorAN komulag hefði orðið um þetta mál á Alþingi, en því hefir þó ekki verið að heilsa. Sjálf stæðisflokkurinn hefir risið þar öndverður gegn frum- varpinu og teflt fram borg arstjóranum í Reykjavík, sem aðalmanni sínum. Ber sýnilegt er, að Sjálfstæðis flokkurinn tel-ur sig hafa eitt hvað hagnast á þeim misfell um, sem hér er verið að af- nema, og þessvegna berst hann fyrir því að halda í þær dauðahaldi. Þannig hef ir það enn einu sinni sannast, að hann hikar ekki við að halda í misfellur og rang indi, ef hann telur sér ein- hvern hag í því. Sú afstaða Sjálfstæðis- flokksins er hinsvegar hætt að geta ráðið því, að rétt mál nái fram aö ganga. Þess- vegna verður hann að una því hlutskipti að Alþing mun fyrr en síöar samþykkja áður greindar lagfæringar á kosn ingalögunum, hvort sem Sjálfstæðisflokknum kemur það betur eða ver. Jólasveinar nútímans. Ég stóð í mannþrönginni i Austurstræti á sunnudaginn og horfði með börnunum á jóla- skreytingar verzlana, brúðuleiki og jólasveina. Menn voru x jóla- skapi, þótt svalt blési, og börnin skemmtu sér vel. Það er ekki of- sögum sagt af framförunum á ís- landi. Nú er búið að steypa jóla- sveinana upp í nýtt mót. Þeir gömlu góðu, brosmildu kax'lar eru horfnir, en í þeirra stað komin rokkóð skrípi í í-auðum kyrtli, sem hafa í frammi alls kyns fíflalæti önnur. Og þeir skemmta reykvískum böi-num við óðamála sönglist Elvis Presley og annarra slíkra dægurflugna. Á þessari auglýsingasamkomu höfðu verzlanirnar, er að sýn- ingunni stóðu, ekki smekkvísi til þess að láta leika og syngja okik- ar góðu gömlu jólasveinavísur, sem öll börn þekkja, og i-aula á hverju heimili eftir að jólasvein- arnir okkar eru lagðir af stað til byggða. Þarna var allt útient tryllingsmúsikk af vei-stu tegund, og látbragð jólasveinanna eftir því. Ég held að okkar gömlu jólasveinahugmyndir taiki þess- urn nýmóðins uppátektum langt fram. Barnamúsík í nýjom stíl Við þetta sama tækifæri voru leiknar svokallaðar barnaplötur, sem nú er farið að gefa hér út og selja. Er sagt, að sú fyrsta, sem kom út i íyrra, hafi selzt í þúsundiun eintaka. Þessar þlötur bera því miður svipmót af skripa látum jólasveinanna. Þetta eru ekki jólaþulur eða barnagælur, heldur rustalegur samsetningur úr útlendum dægurlögum, með ívafi úr nokkrum alkunnum ís- lenzkum lögum. En sá galli er þar á bæði nú og í fyrra, að rangt er farið með alkunna teXta, svo að raun er á að hlýða. Hvenær fáum við barnaplötur, sem eru í senn skemmtilegai-, fallegar og fágaðar? Þarna er verkefni fyrir góða listamenn, þarna er þörf úr að bæta. — Kaldbakur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.