Tíminn - 16.02.1958, Blaðsíða 9

Tíminn - 16.02.1958, Blaðsíða 9
TÍMINN, sunnudagmn 16. febrúar 1958. 9 (Jclitli Ij Ji i n erá t a d: dóanna Framhaldssaga tmmsmmmm milli kaffisopanna, og oft sló hún blá'bólgiium hnefa í borð ið. Gat ég trúað Lottu? Var Caro þjófur og svikari eftir allt saman? Að sögn Lottu stakk hún peningum fyrir- tækisins á sig, þegar hún fór að kaupa ýmislegt í þess nafni og hún hafði á brott með sér silfurmuni úr geymslunni; ein I mitt muni eins og þá, sem Svenson hafi verið sakaður um að hafa stolið. Og það sem meira var, hún hagræddi bók-’ haldinu, það sagðist Lotta geta svarið. Hún hafði njósn- að svo lengi um Caro, að hún' var ekki í neinum vafa lengur.! — Hún heldur, að ég sé svo' einföld, að hún þurfi ekki að fela þetta fyrir mér, því að ég, muni hvorki taka eftir því né skiljá það. En við sjáum nú hvað setur, og sá hlær bezt sem síðast hlær. Og nú vil ég biðja þig Bricken að koma með mér og líta á það, sem ég ætla að sýna þér. — Ég var bæði ráðvillt og reið vegna sögu Lottu. Öll fyri-i andúð min á Caro brauzt nú fram að nýju. ) — Góða Lotta, ég get ómögu lega farið að njósna þannig um annað fólk, sagði ég. Ég get ekki farið þangað með þér, þegar fyrirtækið er lokað. Ef einhver kæmi og sæi mig þar, mundi honum þykja það kynlegt. — Það kemur enginn, sagði Lotta rólega. Enginn nema næturvörðurinn, því að hann gengur um og stillir klukku sína nokkrum sinnum á nóttu Ég heyrði, að Hinrik og Caro ætluðu að verða samferða til elnhverrar konu, sem þau kölluðu Ingalill, eða eitthvað, þess háttar. Hún hringdi fyrir \ lítilli stundu, og nú eru þau nýfarin. — Ég sá, að leiftri bráfyrir í gömlum augurn Lottu um leið og hún sagði þetta, og það leiftur sagði mér, að Lotta þættist vita, að meira óhreint mjöl væri í pokahorinu en hnupl og bókhaldsfölsun Caro — En nú vili svo'til, Lotta, að fólk veit, að ég hef heldur horn í síðu ungfrú Barrman, og mér mundi ekki verðá trú- að fremur en þér. Ég hef heldur ekkert vit á bókfærslu og harla lítið á verzlunar- rekstri. Og það, sem Lottu finnst koma undarlega fyrir sjónir, getur átt sér einfaldar og eðlilegar skýringar. — Þessu trúir þú ekki einu sinni siálf, sagði Lotta. Og var ég ekki líka að segja, að ég hefði tekið eftir því, að munir hyrfu úr geymslunn’i, einmitt þegar hún þykist vera að vinna í skrifstofunni fram eftir á kvöldin. — En mér þykir kynlegt, að! Ottó skuli ekki taka eftir því, | þar sem hann er með hugann! allan við silfrið sitt. — Já, það er hann, það er, hverju orði sannara. En þú, veizt nú sjálf, hve lélegt' minni hans er. Hann getur ekki munað eftir öllum þess- um smáhluturn, það er mér niiklu auðveldara. Annars tel ég að hann safni allt of miklu rusli í kringum sig. Gamli húsbóndinn hefði átt að sjá það, honum hefði ekki getizt að því. 30 Hann var nógu skynsamur til þess að selja á uppboði það, sem ekki gekk út í búðinni. En Otto geymir allt og heldur, að hann sé að safna sér auð- ævum í framtíðinni. — Já, en góða Lotta, það hlýtur að vera eitthvert eftir- lit með vörubirgðunum og þær hljóta að vera skráðar. — Já, þær eru skráðar, og einu sinni á ári er farið yfir þessar skrár að nafninu til. En ég hef nú sjálf séð, hvernig þaö er gert. Þá segir Ottó: Já, já, Caro. í þessum kassa eru tvær silfurkönnur gallaðar, einn ljósastjaki og þrjár skálar. Ég man eftir því við þurfum ekki að opna kassann. Lotta romsaði þessu upp úr sér eins og hún hefði verið silfurkaupmaður í 30 ár. Og svo svarar Caro. Já, það kemur heim við skrána, en hvað þú getur verið minnugur Og svo skrifar hún eitthvað í bókina. Ottó þykir hólið gott, einkum af því hann hefu ótrútt minni. Og þegar vöru- talningin er með þessum hætti, þá veit hún gerla hvar óhætt er að taka munina. — En getur ekki verið búið að selja þá hluti, sem þú segir að hafi horfið? — Nei, alls ekki. Ég fylgist með því. Ég sagði einmitt, að það væru einmitt þeir hlutir, sem illa seljast og hafa stað- ið í geymslunni mörg ár, sem horfið hafa. — En hvað getur hún gert með þá? — O, selji maður aðeins nógu ódýrt, má koma flestum hlutum út. Hún veit vel, hvernig hún á að haga sér í því efni. En það hefur nú komizt upp, að sumir þessara muna eru horfnir. Það var t.d. síðast þegar átti að láta muni á uppboð. Þá kom i ljós, að nokkrir þeirra voru horfnir, og þá var Svenson stimplaður þjófur og rekinn. — Já, það er hræðilegt að hugsa um það, ef hann hefur verið saklaus. En því hefir þú ekki farið beint til bræðr- anna og sagt þeim þetta, úr því að ert svona viss í þinni sök? — Hinrik er svo bráðlyndur og hann metur Caro svo mikils , að hann mundi ekki vilja hlusta á mig. Og Ottó hefur haft horn í síðu minni alllengi, og hann telur vafa- laust að ég sé orðin elliær. Og svo munu þeir auðvita spyrja Caro um þetta eins og allt annað, og hún hefur vafalaúst ráð til að kasta ryki í augu þeirra, enda geta þeir engu illu um Caro trúað, bræðurnir Og berist böndin að henni, gerir hún sig vafalaust grát- klökka og segist hafa orðið að gera það til þess að sjá fyrir blessuðu, föðurlausu barninu. En ég þori að veðja um það, að hún hefur sjálf drukkið út andvirði þeirra að mestu leyti. Mér sýnist hún bera það með sér. En viljir þú ekki skipta skelfd. — Því snýröu þér ekki heldur til Emmy? — Súsönnu? spurði ég skelfd. — Því snýrðu þér held ur ekki til Emmy? — Það er ekki til neins, hún mundi ekki skilja þetta. Og Súsanna hefir verið góð við Anniku og mig. Hún kom inn í verzlunina eitt kvöld um daginn og heyrði Anniku syngja og varð hrifin af. Og svo fór hún með barnið með sér og lét það syngja lag á grammófónpiötu, og plötuna sendi hún til berklahælisins svo að Gréta fengi að heyra dóttur sína syngja. Ég held, að Súsanna mundi hlusta á mig og trúa mér og geta ráðið fram úr þessu án þess að blanda mér í málið. Caro gæti fundið upp á því að segja, að ég sé þjöfurinn, því að það eru ekki aðrir en ég og hún, sem hafa lykla að geymslunni núna. Finnst þér að ég ætti að tala við Súsönnu? — Kannske það væri ekki svo fráleitt, sagði ég hugsandi. En þú skalt samt tala varlega. — Já, varlega um þessa konu, sem þau kalla Ingalill? sagði Lotta og leit rannsak andi á mig. — Eg skal gæta þess. En má ég ekki segja henni, að ég sé búin að segja þér frá þessu? — Jú, gerðu það. Hún mun skilja hvers vegna ég get ekki verið að blanda mér í þetta mál. — Eg held að ég taki f jark- ann við Nybroplan strax svo að ég komizt þangað áður en hliðinu er lokað. Mér datt í hug, að Súsanna væri kannske hjá Axberg á þessari stundu.. svo að ég áleit bezt að hringja til hennar og vita vissu mína. Til alirar ham ingju var hún heima. Eg sagði henni, að ég ætlaði að senda Lottu til hennar til þess að fá að heyra álit hennar um sögu, sem hún mundi segja henni. Hún lofaði að síma til mín daginn eftir. En hún hringdi strax klukkan ellefu þetta sama kvöld. — Jæja, Bricken, sagði hún og var hraðmælt. Nú þykir mér vera farið að færast líf í tuskurnar. Eg held, að ég þurfi ekki að lesa bréfið frá þér aftur, þvi að ég man vel, hvað í því stóð. Eg býst við að ég verði að hlíta ráðum þínum, þótt seint sé. — Eg skil efcki, hvað þau komá sögu Lottu við, sagði ég. — Þér skilst það síðar, sagði hún og mér fannst rödd henn ar hörð. Mig grunaði að Lotta hefði farið að þvaðra eitthvað urn þessa Ingulill eða a ðSúsanna hefði skilið samhengið fyrr en skall í tönnum, þött ég sæi ekki sambandið þar á milli. Þessi rödd lét ekki vel i eyr um mínum. Eg svaf varla blund þessa nótt, og þegar ég dottaði, dreymdi- mig Caro vera að telja peningaseðla með feit um, litlum fingrum sínum upp úr kassa. Klukkan fimm fór ég á fætur og tók til í íbúð- inni. Að því lofcnu lagðist ég fyrir aftur cg sofnaði vært. Þegar ég hringdi til Súsönnu morguninn eftir, var hún ekki heima. Ég bað fyrir kveðju til hennar, og eftir há- degið náði ég tali af henni í síma. — Jæja, sagði ég, Ertu búin að tala um þetta við Hinrik? — Nei, ég hef ekki minnzt á það við hann. Ég var hjá Helgi V. Ólafsson — íslend- ingurinn 1957 — er 20 ára gamalt, þróttmikið ung- menni. Hann hefir æft Atl- as-kerfið, og með því gert líkama sinn stæltan og heil- brigðan. ATLAS-KERFIÐ þarfnast engra áhalda. Næg- ur æfingatími er 10—15 mínútur á dag. Sendum Kerfið, hvert á land sem er, gegn póstkröfu. I; ATLASÚTGÁFAN, pósthólf 1115, Reykjavík. 'AVASV,\%%\WJVuV.,.V.,.V.V1,.V.V,W.W.V.'.VAVVy % wiiimiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHmiuiiiiuiiiimiiimnia VICON LELY 1 fasttengdar múgavélar Rakar ■mir- . •• yjj.i. . . . ' ■'r. ♦ . .. Dreifir Þessar vélar fara nú sigurför um Evrópu; svo mun einnig verða hér. Einföld að gerð — lítill viðhalds- kostnaður. Hentar öllum traktorum með lyftu- útbúnaði. Vinnslubreidd 2 metrar. Áætlað verð kr. 4000.00. Hverfisgötu 50, sími 17148.. = ARNI GESTSSON iiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuHiiiiiiiiinHiiiiimmiiiuumiiii uiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiimiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiig I Flugfreyjustörf | Ákveðið hefir verið að ráða nokkrar stúlkur til I I flugfreyjustarfa hjá félaginu í vor. 1 Umsækjendur skulu vera orðnir 21 árs, hafa I 1 gagnfræðamenntun og kunnáttu í ensku ásamt I I einu Norðurlandamálanna. 1 | Umsóknareyðublöð verða aflient í Lækjargötu 4, 1 1 og skal þeim skilað eigi síðar en 22. febrúar. 1 Flugfélag * Islands

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.