Tíminn - 27.06.1958, Blaðsíða 2
T í M I N N, föstudaginn 27, júní 1958.
V.
Grivas fordæmir
íillögiir Breta
|ÞriSji myndlistarmarkaSnr Sýningar
salarks á Hverfisgötu 8 hefst í dag
Gagnfræðaskólinn á Akureyri.
GagnfræSaskóImn á Ák„ f jölmennasti
framfealdsskoli utan Reykjavikur
Gagnfræðaskólanum á Akureyri var sagt upp 31. maí sl. Jó-
íiann Frímann skólastjóri, flutti stutta skýrslu um skólastarfið
á liðnum vetri. Skólinn starfaði í 15 bekkjardeildum og nem-
endur voru 388 tálsins. Er þetta langfjölmennasti framhalds-
skóli utan höfuðstaðarins.
Gagnfræðaprófi luku 48 nem-
endur og unglingaprófi 98. Lands
prófi miðskóla luku 21 nemandi.
Gagnfræðingarnir og síðan
iandsprófsnemendur fóru í
skemmti- og kynnisferð til Suð-
nrlands að prófum loknum und-
ii’ íararstjórn kennara.
; Þegar skólastjóri hafði lokið
skýrslu sinni við skólaslit,
kvaddi Gunnar Berg sér hljóðs
Og færði skólanum rausnarlega
gjöf frá fimm ára gagnf.ræöing-
um frá G.A. til minningar um
Svein heitinn Eiríksson flug-
manu. er útskrifaðist með þeim
árið 1953. Gunnar las upp stofn-
skrá sjóðsins, en honum á að
verja til eflingar félagslifi i skól
anum. Jafnframt afhenti hann
iistavel bundna bók, sem í sfculu
færð framlög til sjóðsins og
gjáfir.
Skólastjóri þakkaði þessa góöu
.gjöf og minntist Sveins heitins
með nokkrum orðum. Gat þess
núa,., að í fjögur ár hefði hann
verið einn af beztu skólaþegnum
Gagnfræðaskólans. á Akureyri
og hvers manns hugljúfi. Vott-
uðii viðstaddir hinum látna virð
ingu sína meö því að rísa úr
sætúm.
. Að þessu búnu -afhenti skóla-
stjóri brautskráðum nemendum
skólans skírteini sín. Hæsta
einkunn á gagnfræðaprófi'hlaut
Hugrún Einarsdóttir, 1. eink.,
8,54. Þá afhenti skólastjóri nokk-
ur bókaverðlaun. Þáu hlutu: Val
mundur Sverrisson og Elvar Þór
Valdimarsson úr 4. bekk fyrir
yei unnin trúnaðarstörf í þágu
skólans. Guðrún Hallfreðsdóttir,
■J bekk, og Konráð Oddgeir Jó-
h’hnnsson úr 2. bekk fyrir ísl.
ritgerðir, Arnfriður Hagnárs-
dottir úr 2. bekk fyrir framúr-
skarandi hannyrðir og þær Þór-
unn Ölafsdóttir úr 2. bekk og
Ragnheiður Gestsdóttir úr 3.
bekk fyrir námsafrek og ljúfa
framkomu. Þórunn hlaut hæsta
einkunn í skóla að þessu sinni,
1. ág. eink. 9,14.
Að síðustu flutti Jóhann Frí-
ihann skólastjóri skólaslitaræð-
una og mælti þá alveg sérstak-
lega til brautskráöra gagnfræö-
inga, færði þeim árnaðaróskir á
skiinaðrastund, og þakkaöi þeim
. samyeruna. •
1 ræðu sinni lagði hann út af
þessum ljóðlínum Einars Bene-
diktssonar skálds:
„Sá stærðist af gengi stundar
er smár.
stór er sá einn, er sitt hjarta
ei svíkur.“
Öil var ræða liins gáfaða skóla
ntanns viturleg og hin sköruleg-
asta.
Fjölmennasti framhaldsskóli
utan Reykjavíkur.
.Gagnfræöaskóli Akureyrar er,
eins og áður er sagt, langfjöl-
mennasti framhaldsskóli lands-
ins utan Reykjavíkur. Þar munu
næsta vetur verða á fimmta
liundrað nemendur. Aðsókn að
skólanum hefir sífellt farið vax-
andi. í haust verður ný viðbót-
arbygging tekin til notkunar.
Þai' eru m. a. 4 stórar kennslu-
" r '
í da" k'. 2 e. h. verður opnaður þriðji myndlistarmarkaður
Sýningar-alarins Hverfisgötu 8—10. Þessi sumar-myndlistar-
NTB—‘LUNDUNUM og NICOSIÚ
28. júní. — Umræður voru í dag
um tillögur brezku síjórnarinnar . .
fyrir Kýpur í bi’Gzka þinginu. — iHHrksðlir Gr ^Grður til J)GSS HÖ ^GlH DSGjHibuuin og iGiðs*
Lénnox Bord nýlendumálaráðh. mönnum tækifæri að sjá og eignast verk eftir yngstu og eldri
kvað tillögurnar vera einustu leið- rnyndlistarmenn vora. Hér er um stórar og smáar myndir að
ina út úr ógöngunum, Við borð ræga
hefði legig borgarastyrjöld á
eynni, sem vel gæli hafa breiðzt Sýningarsalurinn hefir sett fresti. Nú hanga þar verk eftir
ÚL Stjórnarandstæðingar
fylgjandi tillöginum í meginatrið
um. Grivas foringi EOKA-samtak-
anna á Kýpur gaf út flugrit' í
dag og fordæmir* tiliögurnar. —
Segir, að ný ógnaröld og vandræði
muni skapast á Kýpur, ef Brelar
reyni að framkvæma þær.
voru Upp til sýnis og sölu, myndlist-
arverk í Mokka-kaffistofunni á
Skólavörðustíg 3a. Þetta er nýr
liður í listkynningu Sýningarsal-
arins, þar sem fólk getur skoðað
verkin án endurgjalds á meðan
það fær sér veitingar. Þar verð-
ur skipt um verk á fjórtán daga
Mikil atvinna við hafnarframkvæmd-
ir og söltun síldar á Bolungarvík
Frá fréttaritatra Tímans í Bolungavík.
Hér er mikil atvinna um þessar mundir, einkum við hafn-
arframkvæmdir, sem hafnar eru. Er byrjað að vinna að grjót-
fyllingu að öldubrjótnum, og Grettir er senn væntanlegur
hingað til dýpkunar.
Ilöfnin í Bolungarvík er allsendsíld hefir verið söltuð. Einnig hef
is ónóg 'til verndar fiskibátunum.ir verið saltað svipað magn á Suð'-
og verða þeir oft að flýia undanureyri og einar 200 tunnur á fsa-
veðrum, sem íkunnugt er. 300 þús.firði. Allir stóru bátarnir hér eru
Jóhann Frímann
skólastjóri
stofur. Næsti áfángi verður svo
eflaust, stór og vandaður sam-
komusalur, handavinnustofur o.
fl, Þessi fjölmenna menntastofn
un, sem nýtur mikils álits undir
mikilhæfri forustu, þarf að fá
miklar úi’bætur um húsakost.
Sérstök , áherzla hefir verið
lögð á. hið „praktíska" nám í
f jór.ða bekk skólans, svo sem vél
ritun og bókhald. Hefir það
mörgum komið að góðu gagni
að námi loknu. Enda má segja,
að gagnfræðingar frá GA séu
hvarvetna, fleiri eða færri, við
j verzlunar- og skrifstofustörf hér
!í bænum ög víðár, hvar setii
koriiið er. E.D.
Nefnd til að endur-
skoða sveitar-
stjórnarmál
Samkvæmt ákvörðun rikis-
stjórnarinnar skipaði félagsmála
ráðherra hinn 20. maí s.l. fimm
manna nefnd til þess að endur-
skoða íslenzka löggjöf um sveit-
arstjórnarmál og semja frum-
varþ eða frumvörp til laga um
þetta efni.
í nefndinni eiga sæti þessir
menn:
Hjálmar Vilhjálmsson ráðu-
neytisstjóri, sem er formaður
nefndarinnar, Bjarni Þórðarson
bæjarstjóri, Björn Björnsson
sýslumaður, Jón Guðjónsson
bæjarstjóri og Tómas Jónsson
borgarlögmaður.
Nefndin hefir þegar tekið til
starfa og hefir haldið fundi dag-
lega að undanförnu.
Á næstunni mun nefndin rita
sveitarstjórnum bi’éf, þar sem
leitaö verður álits þeirra og til-
lagna um ýmis atriði varðandi
þau mál, sem nefndinni ber að
fjalla um.
(Frá félagsmálaráðuneytinu,)
krómú’ eru veittar á fjárlögum
þessa árs til framkvæmda og
hreppurinn veitir 400 þús. kr. Auk
þess á að taka lán, svo að hægt
verði að verja eitthvað á aðra mill
jón króna til verksins á þessu
sumri. Það mun þó ekki duga til
að géra höfnina svo góða sem þarf.
Síldarsöitun liafin.
Hér er búið að salta 5—600 tunn
ur síldar, og hefir ekki verið sölt
uð hér síld, sem veiðzt hefir norð
án lands, síðustu árin, en rekneta-
á síldveiðum fyrir norðan og hafa
allir fengið einhverja veiði nema
einn. Nokkrir litlir bátar stunda
færaveiðar á heimamiðum, en afli
er tregur.
Spretta er mjög léleg enn. Kuld
ar og þurrkar hafa tafið hana. Eru
tún skemmd sums staðar og slátt-
>ur hefst varla fyrr. en um miðjan
júií. í dag er hér allmikil rigning
og er það fyrsta úrkoman að kalla,
sem 'komið hefir hér síðustu tvo
mánuðtna. • ÞE.
þau Barböru Arnason, Benedikt
Gunnarsson, Jóhann Briem, og’
Nínu Tryggvadóttur.
Auk þessa hefir Sýningarsal-
urinn yfirleitt til sölu verk eftir
þá listamenn sem sýnt hafa í
salnum.
Á þriðja myndlistarmarkaði
Sýningarsalarins eru verk eftir
Japanska listmálarann Kawa-
mura, Hafstein Austmann, Nínu
Tryggvadóttur,, Bjarna Jónssbn,
Benedikt Gunnarsson, Kristinu
Jónsdóttur, Sigurbjörn Kristins-
son og Jón B. Jóasson. Sýningin
er opin daglega til 10. júlí kl.
1—7 e.h., sunnudaga 2—7 e.h.
Enpmn Eakkar
veiíileyfií.
Framhald af 12- afðu').
landsstrendur áratugum og öldum
saman. Enginn þessara þjóða man
eftir því að þakka íslendingum fyi’
ir það, og nú þegar þeir telja .sig’
nauðbeygða að færa út fiskveiðtak
mörkin, þá bregðast þessar þjóðir
reiðar við og svna vígténnurnai’.
Hið sama gerðist við Færeyjar.
Brezkir togarar hröktu Færeyihga
af heimamiðum beirra. Þá urðu
þeix- að leita til íslands og Græn-
lands. Nú verða þeir einni'g að’
hverfa af íslandsmiðum og leita á
heimaslóðir á ný. Þannig er þetta
vandamál dagsins í fáum orðum
sagt.Það er ekki auðvelt fyrir Dani
að S'kilia hörku Færeyinga í þéssxi
máli, ti'l þess verða menn að
þekkja vel til mála.“
Fréttir frá landsbyggðinni
Síldarverksmiðja sett upp
í Neskaupstat$.
Neskaupstað, 26. júní. — Hér er
nóg atvinna og allt í fullum gangi,
ef svo xnætti segja. Eins og kunn-1
ugt er, er nú verið að setja hér >
upp síldarverksmiðju. -Við uppsetn
ingu vélanna eru 18—20 menn írá I
vélsmiðjunni Héðni í Reykjavík.l
en vegna verkfallsins eru þeir'
hættir. Var þó verki þeirra yei
komið, og vantaði ekki nema
herzlumuninn til að lykist. Heima
menn, sem að þessu vinna halda á
í'ram, en að sjálfsögðu er ekki
hægt að búa yerksmiðjuna til mót
töku síldar fyrr en verkfallið leys
ist. Lokið hefix’ vexúð við að setja
upp uppskipunai’kranann á bryg'gj
uni, en ean vantar færibandið upp
í síldarþróna.
Handfærafiski við
Langanes
Neskaupstað, 26. júní. — Nokkr
ir bátar stunda héðan handfæra-
veiðar. Hafa þeii’ undanfarið veitt
vel við Langanes. Hafa þeir komið
heim með 18 til 28 skippund eftir
fjögurra daga túr. Á hverjunx báti
eru 4—5 merxn. Bátarnir eru 15—
30 tonn. — Togarinn Gei-pir land-
ar nú 500 tonnum af saltfiski,
veiddum á Grænlandsmiðum.
Mörg ný íbuðarhús.
NESKAUPSTAÐ í gær, — 12—14
íbúðarhús eru í byggingu hér í
bænum í sumar, og má það lelja
mjög mikið. Bygging félagsheim-
ilis var hafin í vor, og haldið
er áfram byggingu gagníræða-
skóla, er hafin var í fyrra. —
Tíðarfar er gott, þó heldur kalt,
og þurrkar eru mjög tii baga
grasvextij enda er spi'etta mjög
lítik
Guðmundur Júní með
aíbragðsafla.
FLATEYRI, 26. júní. — Botnvörp
ungurinn Guðmundur Júní er kom
inn hingað með einhvern hinn
bezta afla, sem hann hefur nokkru
sinni fengið, 240—250 tonn. Verið
er að skipa þeinx afla upp. Fær-
eyingar, sem verig hafa á skipinu
ganga nú af því, en skipið sjálft'
fer í aðgerð. Ekki er víst, hvort
menn fást á skipið aftur, en þó
mun von um einhverja eftir
nokkurn tíina.
TF.
Gríðarmikil atvinna
á Flateyri.
FLATEYRI, 26. júní. — Hér er
mjög mikil atvinna, eins mikil ög
hver maður framast megnar að
afkasta, og er margt aðkomufólk
í vinnu. 30—40 manns af aðkomu
fólki eru við fiskvinnu, og svip-
aður fjöldi við lagningu raflínu
og uppsetningu spennustöðvar til
að flytja oi’kuna frá Mjólkárvirkj-
un. — Þurrkar hafa tafið mjög
allan grasvöxt, en þetta virðist
þó standa til bóta. Grassprelt'a
er mjög misjöfn, en yfirleit ekki
góð.
TF.
Vel aflast á handfæri.
FLATEYRI, 26. júní. — Héðan
róa daglega á handfæraveiðar 8
ti'illubátar, og hafa þeir aflað
vel eða sæmilega undanfarið. —
Á 'hverri þeirra eru 2—3 menn,
og hefur hver um sig dregið 500
—800 kg. á dag. Breiðadalsheiði
er orðin fær bifreiðum' fyrir
skömmu, en ekkert hefur verið
gert þar við veginn, og er ihann
því lélegur. Vænta menn þess,
að vegurinn verði lagfærður.
Ný mjólkurvinnslustöö
á Hvammstanga.
HVAMMSTANGA, 26. júní. —
Skepnuhöld hafa verið allgóð í vor,
þrátt fyrir að veðurfar hefur verið
kalt og þurrt og spretta heldur
rýr. Vohandi er ,að úr fafi að
rætast; — Hér er í byggingu
mjólkurvinnsluslöð, en vantar
leyfi til. að fullgera hana, Sömu-
leiðis vantar leyfi lil að halda á-
frarn byggingu verzlunarhúss og
vörugeymsluhúsi kaupfélagsins,
senx hafin var í fyrra. ÁB.
EIli- o? hjúkrunarheimili
fyrir V.-Hún.
HVAMMSTANGA, 26. júni; —
Fj'rirhugað er að lengja hér
hafnarbryggjuna í sunxar. í fyrra-
sumar var steypt ker á Skaga-
strönd, og verður það dregið hing-
að og því aukið framan við bryggj
una. Hatfnarskilyrði mega hér
heita allgóð, en veg'ia þess, að
ekki er aðdjúpt, þarf nokkuðVlang
an hafnargarð. ’
Fyi'ii'huguð er ennfremur nokk-
ur aukning vatnsveitu kauptúns-
ins, m.a. í sambá'idi við hina nýju
mjólkurvinnslustöð. í fvrra var
hafin bygging myndarlegs sjúkra-
húss og elliheimilis fyrir vestur-
sýsluna hér í kauptúninu, ogverð-
ur þeirri þyggingu haldið áfranx.
Á.iB.
Fáar símalínur
til Revkiavíkur.
Flateyri.í .gær..— Það bagar nú
Vestfirðinga mjög, hversu fáar
símalinur eru til höfuðstaðarins.
Virðist helzt ekki hægt að fá sínxa
samband við Reykjavík nema með
Ixraði, en það er helzti dýrt. Hefir
landssiminn daufheyrzt við beiðn-
ium um ixmbætur í þessu efni.