Tíminn - 12.07.1958, Qupperneq 6

Tíminn - 12.07.1958, Qupperneq 6
6 T í M I N N, laugardaglug 12. júlí 1958. mkm ~ Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í Edduhúsinu vi3 Lindargöta Simar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (ritstjórn og blaðamenn) Auglýsingasími 19 523. Afgreiðslan 1232S Prentsmiðjan Edda hf. ERLENT YFIRLI7: För Averof f-T ositsas til Brioni AlImikí'S er nú bollalagt um viftræftur Grikkja, Júgóslava og Egypta ÞAÐ HEFIR vakið allmikið um- tal og athygli, að griski utanrikis- ráðhe rrann, Averoff-To s i t sas, skyldi fara til Brioni til fundar við þá Tító og Nasser. Sá orðrómur komst jafnvel á kreik, að þetta kynni að vera undanfari þess, að Grikkir segðu sig úr Atlantshafs- bandalaginu, ef þeir fenigju ekki lausn á Kýpurdeilunni, er þeir gætu sætt sig við. Við nánari athugun er þetta þó vart líkleg skýring. Fyrir Grikki myndi ekkert ávinnast í Kýpurdeil- unni við það að ganga úr Atlants- liafsbandalaginu, nema síður væri. Eina átyllan, sem Grikkir gætu fengið til að ganga úr Atlantshafs- bandalaginu væri sú, að bandalagið tælei að draga hfut Breta og Tyrkja isórstaklega í Kýpurdeilunni. Það hefir bandalagið ekki gert, en þetta sýnir hins vegar, að nauðsyn- legt er fvrir bandalagið að koma þar fram sem algerlega hlutlaus aðili, og þó einkum, cf það ætlar að hafa einhverja milligöngu um sættir í henni. • VEL MÁ vera, að gríska stjórnin hafi viljað aðvara Atlantshafs- bandalagið um þetta með því að láta utanríkisráðherra sinn fara til Brioni. Víst er líka, að för hans þangað hefir vakið athýgli á þessu atriði. Það hefir og rifjað upp fræg ummæli, sem franskur stjórn- málamaður lét falla á seinustu ökl: Það er alltaf örðugt að fást við pólitíska spádóma og í Grikklandi er það ógerningur. Svo óstöðug liafa grísk stjórnmál löngum verið og margt bendir til, að þau geti reynzt það enn. Flokkur Karaman- lis vann að visu góðan sigur í sein- ustu þingkosningum, sem fram fóru í vor, en komnvúnistar uku fíka fylgi sitt ískyggilega mikið. Auk þess, sem för gríska utan- ríkisráðherrans getur þannig hafa verið eins konar aðvörun, hefir til- gangur hennar vafalaust einnig verið sá að vinna fylgi hinna svo- nefndu hlutlausu þjóða við mál- stað Grikkja í Kýpurdeilunni. Stuðningur þeirra er t. d. þýðingar mikill fyrir Grikki á vettvangi S. Þ. Þá búa allmargir Grikkir í Egypta- landi og taka allmikinn þátt í við- skiptalífinu, en Grikkir eru snjallir verzlunarmenn. Gríska stjórnin tel- ur mikilvægt að styrkja aðstöðu þeirra og vill því hafa gott sam- stanf við Nasser. ÞAÐ HEFIR einnig vakið athygli í bessu sambandi, að Tító álti frum kvæðið að komu gríska utanríkis- ráðherrans til Brioni. Það er al- rnennt talið, að Tító hafi alls ekki gert það í því skýni að reyna að veikja AtlanlsJvafsbandalagið, því að liann telji sér síður en svo hag að því meðan liann á í deilum við Averoff-T osifsas ers og för gríska utanríkisráðherr- ans á fund þeirra. hafa þannig orð- ið tilefni margra hugleiðinga og spádóma um alþjóðamál. Reynsla næstu mánaða mun leiða hið rétta í Ijós. í SAMBANDI við för Averoff- Tositsas til Brioni hefir erlendum blöðum orðið alltíðrætt um hann, þar sem vel má vera að hann eigi enn eftir að koma verulega við sögu. Evangelos Averoff-Tositsas er 48 ára gamall, kominn af ríku fólki og hafa margir forfeður lians og frændur staðið framarlega í sjálf- stæðisbaráttu Grikkja. Einn þeirra varð frægur fyrir það að gefa rík inu herskip. Averoff-Tositsas vakti ungur á sér athygli sem góður námsmaður, en háskólanám stund- aði hann í Sviss og lauk þar laga- prófi með hárri einkunn. Jafn- framt lagði hann stund á tungumál og er hann talinn jafnvígur á ensku, frönsku, þýzku og ítölsku og móðurmál sitt. Að námi loknu gerðist hann blaðamaður við sviss- neskt blað, en gaf sig strax fram sem sjálfboðaliði, er ítaiir réðust inn í Grikkland á stríðsárunum. Hann tók virkan þátt i skæruliða- hreyfingunni, unz ítölum tókst að handsama liann og sat hann í fang- eási á annað ár áður en honum tókst að flýja, Eftir styrjöldina gekk hann í fr.iálslynda fiokkinn og var kosinn þingmaður. Hann hefir gegnt ýmsum ráfflherraemb- ættum. Karamanlis gerði hann að utanrikisráðherrá (itjómar einnar fyrir rúmum tveimur árutn síðan og hefir hann gegnt ,l>ví embætti siðan. KUNNUGIR TELJA, að Averoff Tositsas sé allgóður samningamað- ur, seigur og laginn. í viðtölum við blaðamenn er hann sagður kunna vel þá list að leiða talið framhjá þeim atriðum, er hann vill lítið ræða um. Hann er sagður áhugamðaur varðandi rmörg mál og þó einkum landbúnaðarmáiL Það háir honum nokkuð, að hontim ér gjarnt á að veikjast ákyndilega og fá háan hita, en hann hressist l'íka álíka fljótt aftur. Þessi vei'ki hefir fylgt honiun síðan hann var í fanga búðunum á stríðsárunum. Hann reykir mjög mikið, aðatlega vindl- , inga. Andstæðngar Averoff-Tositsas hafa haldið því fram, að hann væri of hliðhollur Bretum og sjálfur neitar hann því ekki, að hann hafi mætur á þeim. Þó endursendi I hann þeim nokkur heiðursimerki, ! sem þeir höfðu veitt honum á stríðsárunum, eftir að þeir höfðu neitað beiðni hans um að náða Kýpurbúa, sem hafði verið dæmdur til lifláts. í Kýpurmálinu Jeggur hann áherzlu á, að sjiálfs- ’ÁRvörðunarréttur Kýpurbúa fáist viðurkenndur, en segir hitt geta komið til mála, að hann verði veittur í áföngum, ef fyrirheit fá- ist um tímatakmörk. í uimræðum um þessi mál hefir hann alltaf lagt áherzlu á, að hann vilji ná sam- komulagi við Breta um friðsamlega lausn og hann sé eindregið fylgj- andi vestrænni sanwinnu. Brezk blöð hafa líka látið uppi þá skoð- un, að það myndi ekki bæta fyrir lausn málsins, ef Averoff-Tositsas yrði að láta af utanrítósráðherra- embættinu, e.ins og andstæðingar hans í Grikklándi hafa kiiafizt. Þ. Þ. UÐSroréN Gunnar Bjarnason sendir eftirfar- andi „ábendingar'* til Dýravernd- unarfélags íslands: Verkalýðsfélögin í HINNI ágætu ræðu, sem Hermann Jónasson for- sætisráðherra flutti í eld- húsdagsumræðunum, vék hann nokkuð að afstöðu verkalýðshreyfingarinnar til efnaihagsmála. Þar sem þetta málefni er nú mjög á dagskrá, er ekki úr vegi að rifja það upp að nýju. Forsætisráðherrann vék fyrst að því, að verkalýðs- samtökin hafi á undanförn- um árum ekki haft næga að- stöðu til að fylgjast með af- komu atvinnuveganna, þeg- ar hún var að undirbúa kröf ur sinar. Þetta hafi breyzt síðan núverandi ríkisstjórn kom til valda. Það hafi verið sannað fyrir fulltrúum henn ar, að framleiðslan gæti ekki haldið áfram, nema hún fengi aukið fjármagn og það yrði ekki tekið á léttbærari hátt en nýju efnahagslögin gerðu ráð fyrir. Síðan sagði ráðherrann: „NtJVERANDI rikisstjórn hefur lagt á stóreignaskatt, þótt það hafi áður verið gert fyrir fáum árum, til þess að jafna metin og bæta hag al- mennings. Álagning verzlun arinnar er ákveðin svo lág, að hvergi mun í nálægum löndum lægri, og jafnvel kaupfélög verkamanna kvarta. Hvar á að taka meira til að skipta? Eitt benda benda menn á: Of mikla eýðslu hins opinbera. Þetta er vissulega í abhugun. Það er erfitt að kippa til baka greiöslum, sem eru á komn- ar, og margir, sem telja sig fylgjandi sparnaði, eru þá stundum tregari til samþykk is en ætla mætti. Það, sem mögulegt er að spara, án stórfelldra lagabreytinga, er svo hverfandi upphæð, að tiltölulega lítil áhrif hefur. En það er til fyrirmyndar sem fordæmi og mun verða unnið að þessu eftir megni. En þegar þessar upphæð- ir verða ekki lengur til á- steytingar og fulltrúum stéttarsamtakanna sýnt og sannað, að framleiðslan get- ur ekki látið meira í té, þá er enginn ávinningsmöguleiki eftir nema einn, og hann er sá að auka framleiðsluna og bæta rekstur hennar, svo að gefi meira af sér til skipta. Og það stendur sannarlega ekki á núverandi ríkisstjórn. Það er einmitt stefna henn- ar að vinna að því með stéttarsamtökunum eftir ýtr ustu getu þjóðarinnar, ásamt réttlátari skiptingu hinna auknu þjóðartekna. ÉG GERI mér fyllilega Samstarfsnefnd í í FRAMHALDI af því, sem sagt var hér í blaðinu í gær um samstarfsnefnd verkalýðssamtaka og at- vinnurekenda, skal það upp lýst, að slik nefnd var skip- uð fyrir nokkrum misserum, samkvæmt tillögum þeim, er Fra,msóknarmenn fengu sam og efnahagsmálin ljóst, að þetta verk, traust samvinna ríkisstj órnarinnar og stéttarsamtakanna, sem nú ríður mest á að takizt, er ekki auðvelt né fljótunn- ið. Það er mikið átak fyrir sterka verkalýðshreyfingu að flytja valdið frá verkfalls haráttu með óskhyggju, inn á Alþingi, þar sem taka þarf ákvarðanir í samræmi við staðreyndir. Þegar fulltrú- um, sem taka þátt í nefnd- um fyrir verkalýðshreyfing- una, hefur veriö sýnt og sannað, hvernig ástatt er, þarf sterka ábyrgðartilfinn- ingu og kannske að stofna sér í þá hættu, að þeim verði ekki falin trúnaöarstörf á- fram, til þess að fara til síns félags og segja: Ég hef feng- ið að kynna mér allt ástand- ið. Það hafa verið farnar þær leiðir, sem hagstæðastar eru fyrir verkalýðssamtökin. Þaö er hvorki réttmætt né í sam- ræmi við hagsmuni okkar, aö gera frekari kröfur, — og bæta svo við: Þetta er vegna þess, að þegar framleiöslan getur ekki greitt meira, eins og nú er, veldur hækkuð vísi tala með hærra kaupgjaldi því einu, að nýjar álögur verður að leggja á, til þess að framleiðslan stöðvist ekki. Afleiðingin er sú ein, að verðbólgan verður óvið- ráðanleg, sjálfum okkur og öllum til tións. ÞAÐ er raunverulega þetta hlutverk, sem fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar taka að sér, þegar hún ósk- ar að flytja vald sitt inn í þingiö. Það er ólíkt auðveld- ara að vera laus við valdið og þá áþyrgð, sem því verður að fylgja, tala í anda stjórn arandstöðunnar og segja í anda hennar: Við viljum fá f-leiri krónur, og við viljum fá þær, hvað sem öðru líður. Það hlýtur að vera meira til að skipta, það hlýtur aö mega fara aörar leiðir — og þar fram eftir götunum, þótt það stangist við staðreynd- ir. Þannig er hægt að tala, 'kannske á vissan hátt með árangri, en þannig er ekki hægt að stjórna þjóðfélag- inu. Þetta þýðir að afsala sér þátttöku í stjórn landsins og fá hana öðrum í hendur.“ ÞETTA er það viöhorf, sem verkalýðshreyfing þarf að horfast í augu við nú og í framtíðinni. Framvindan í efnahagsmálum og stjórn- málum þjóðarinnar mun mótast mjög af því, sem ofan á verður hjá verkalýðs samtökunum í þessu efni. kaupgjaldsmálum þykkta á Alþingi 1955. í nefndina voru skipaðir Gylfi Þ. Gíslason og Karl Guðjónsson frá Alþýðusam- bandinu og Björgvin Sigurðs son og Kjartan Thors frá Vinnuveitendafélaginu. Lít- iö mun hins vegar hafa orð- ið úr störfum nefndarinnar Rússa. Ymsir telja, að tilgangur Títós liafi einmitt verið sá að sýna með þessu-, að hann telji sig geta ált samleið með þjóðum, þólt þær séu aðilar að Atlant&hafsbandalag- inu. Samstarfið við Grikki sé ætlað að verða eins konar brú til frekara samstarfs við vestrænar þjóðir. Svipað ikunni einnig að vaka fyrir Nasser, því að eftir ferðalagið til Sovétríkjanna á síðastl. vori hafi hanri frekar fjai'lægzt vaidamenn þar en hið gagnstæða. Margt bend ir nú líka til ‘þess, að hann legigi rneira kapp á það en áður að verða ekki Rússum háður um of. Það eitt, að Nasser skuii heim- sækja Tító meðan Rússar fordæma hann sem mest, er áreiðanlega ekki vel séð af valdamönnum í Moskvu. Ráðstefna þeirra Títós og Nass- til þessa, og stendur það því óbreytt, sem sagt var frá hér í blaöinu í gær, að nauðsyn- legt er að taka nú þennan þráð upp að nýju og vinna að auknu og bættu sam- starfi þessara aðila, bæði á þennan og annan hátt. „Ég vil þakka stjórn Dýraverndunar- félags íslands fyrir greinargerð, sem hún sendir Morgunbl., Tím- amim og e. t. v. fleiri blöðum fyrir skömmu undir fyrirsögn- inni: „Ábendingar og leiðrétting- ar frá D. í.“ Þarna kemur skýrt í ljós undir 2. „leiðréttingarliðn- um“, að hestaútflutningurinn 31. mai var stöðvaður vegna mót- mæla þessa félagsskapar, þar sem „í gildandi reglugerð er eigi leyft að flytja hross ofan þilja fyrr en eftir 15. júní, eins og seg- ir i „Ábendingunum“. Stjórn D. í. hafði ekki svo lítil af- skipti af breytingunum á hrossa- útflutningslögunum s.l. vetur, og er því ólíklegt að henni sé ókunn- ugt um, að 8. gr. laganna var breytt og nýjum aðilum falið að semja reglugerð um útflutning hrossa. Sú reglugerð (frá 10. des. 190811), sem stjórn íélagsins vísar tili, var því úr gildi fallin. Samkv. hinum nýju lögum áttu 3 aðilar að skera úr um það, bvort heim- ila hefði átt útflutninginn 31. maí, þ. e. yfirdýralæknir, fulltrúi frá D. í. og Búnaðarfélagið, og sam- kv. 1. og 2. gr. hinna nýju laga er Búnaðarfélagið sá aðilinn, sem mest hefur með málið að gera undir yfirstjórn Landbúnaðar- ráðuneytisins. En í þessu sambandi verður mörgum spurn: Hver er hin rök- rétta hugsun í öllu þessu máli, og hvers? — hver fcvaldi hesta? — hver vildi kvelja hesta? — hver drap hesta? — hver hafði samiið með ungum og eínalausum er- l'endum menntamanni, sem er að bi'jótast í þxd að gera íslenzka hestinn að vinsælum reiðhesti í Bretaveldi? — — og fl. og fl. spurningar vakna.- í fyrstu „ábendingu" D. í. er það sagt „x-angt, að félagdð hafi bar- izt gegn úttfhitningi hnossa“. Ég tek þingmenn í landhúnaðarnefnd um beggja þingdeilda til vitnis um það, að stjórn féLagsins (Þor- björn Jóhannesson, eigandi kjöt- búðai'innar ,,Borg“ og Þoisteinn Einarsson fþróttafulltrúi (mágur Þorbjörns, er mér sagt) beittu sér af hörku gegn því á s.I. vetri, að lögum yrði breytt í það horf, að útflutningur hesta geti orðið auð- veldur og hagkvæmur frá fram- leiðslu- og viðskiptalegu sjónar- miði. Og meiri hluti Atþingis mat meira sjónarmið D. í., en sjónar- mið Bunaðarþings, í aðalágrein- ingsatriði iagarma, þ. e. um lengd útflutningstfmans. (Fromhald á 8. ti8u>

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.