Tíminn - 12.07.1958, Blaðsíða 8
B
Ræft við danskan
husmæðrakennara
(Framhald af 7. sí?5u).
tækni og hinni þriðju hússtjórnar-
hagfræði. Þetta er ekki eiginleg
háBkóladeild, þannig er stúdents-
próf ekkert skilyrði til inngöngu,
en nemendur eru allir húsmæðra-
kennaxar er lokið hafa prófi, og
við leggjum áherzlu á að öll
kennsla sé á háskóiastigi. Við njót-
um ýmiss góðs af því að starfa
þannig við háskóla, höfum gott
húsnæði og aðgang að vinnustof-
um háskólans, ýmsir kennarar eru
jafnframt háskólaikennarar og
skólastjórinn var ævinlega háskóla
kennari.
Fyrsti skólastjórinn var reyndar
íslemdingur, prófessor Skúli V.
Guðjónsson. Hann hafði mikinn á-
huga á þessum málum og vann
mfldð og gott starf til að koma
deildinni á fót. M. a. tókst honum
að fá íslenzika aðila til að leggja
fram 9000 kr. til heimavistar nem-
enda, og þess vegna er þar íslenzkt
herhergi, Finsens-stofa, sem ís-
lenzkir nemendur eiga forgangs-
rétt að. SSðan hann lét af störfum
hefur skólastjóri verið F. Sehön-
heyder, prófessor í lífefnafræði.
Norrænn skóli
— Hvað lengi hefur skólinn
starfað?
— Skólinn hefirr verið starfrækt-
ur nú í 13 ár. Skólinn var að sjálf-
sögðu ætlaður dönskum nemend-
um fyrst og fremst, en raunin hef-
ur orðið sú að þangað sækja hús-
mæðrakennarar frá öllum Norðnr-
löndum, svo að kalla mætti skól-
ann norrænan. Ég þarf ekki að
taka það fram hversu gaman mér
hefur þótt að hitta þessa nemend-
ur mína aftur 'hér heima hjá þeim,
og viðtökur þeirra hafa verið frá-
bærar. Þær hafa bókstaflega borið
mig á höndum sér.
Árlega er tekið við 45 nemend-
urn og búa þeir í heimavist meðan
á námskeiðinu stendur, og er allur
aðbúnaður þar hinn bezti. Yfirleitt
er húsakostur skólans mjög góður,
skólahúsið sjálft er t. d. alveg ný
bygging.
Hrifin af íslenzkum skólum
Frú K. Harrekile Petersen
dvaldist hér á landi í vikutáma.
Héít hún tvo fyrirlestra fyrir kenn-
arafélagið Hússtjórn, en þing þess
stóð einmitt yfir er hún kom hing-
að. Auk þess hefur hún heimsótt
húsmæðraskólann að Laugarvatni
og Varmalandi og ferðazt um ná-
grenni Reykjavíkur og víðar.
Ég ‘hef haft áhuga á að koma
hiagað til lands bæði vegna kynna
minna af prófessor Skúla Guð-
jónssyni og eins af íslenzkum nem-
endum mínum, segir hún. Og ferð-
in hefur bæði verið fróðleg og á-
nægjuleg.
— Hvernig lízt yður á íslenzika
húsmæðrakennslu og -skóia?
— Skólarnir hér eru minni en í
Ðanmörku, en mér finnst þeir vera
sérlega vel úr garði gerðir, ný-
tízkulegir og vel þúnir að ölluni
tækjum. Kennslan er að sumu
leyti frábrugðin því sem ég á að
venjast, og finnst mér t. d. vefn-
aðarkennslan hér á landi vera
mjög til fyrirmyndar.
Sérstaklega hef ég samt verið
hrifin af þeim anda, sem mér mér
finnst ríkja með stéttarsystrum
mínum hér á landi, hversu gott
samstarf er með hinum eldri og
T í MIN N, laugardaginn 12. júlí 1958.
Vöruflutningar í lofti
Vöruflutningar með flugvélum Flugfélags Islands, hafa verið með mesta
móti að undanförnu og hefir orðið að fara aukaferðir til þess að anna
flutningaþörfinni. Meðfylgjandi mynd sýnir hieðslu flugvélar, við af-
grelðslu Flugfélags íslands á Reykjavíkurflugveili.
Vandamál Álsírstúdenta
OEin af mörgum afleiðingum
stríðsins í Alsír, er sú staðreynd
ag íbúunum verður æ erfiðara að
lcita sér menntunar. Kemur þetta
ekki sízt niður á stúdentum, en
flestir iþeirra hafa orðið að stunda
nám í (Frakklandi, þar eð þeir
hafa orðið að þola margs' konar
misrétti af hálfu hinna frönsku
yfirvalda við háskólann í Algeirs-
borg.
Árið 1956 stofnuðu stúdentar
frá Alsír samband sín á milli, og
nefnist það UGEMA — Union
Générale des Etudiants Musulmans
Algériens. — Á fyrsta þingi sam-
bandsins, sem haldið var í París
í júli 1955, settu þeir sér m.a. það
markmið:
„Að tryggja og vernda hið
alsirska /þjóðerni með því að berj-
ast fyrir viðurkenningu arabisku,
sem hinu opinhera máli landsins;
berjast fyrir þjóðlegri menningu;
fyrir frelsi Múhameðstrúar og
fyrir því, að Alsírbúar fái hlut-
deild í stjórn landsins."
Frönsk stjórnarvöld höfðu
snemma horn í siðu UGEMA. —
Hófust ofsóknir í garð sambands-
ins, einkum eftir að það sendi
síðasta allkherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna yfirlit um vandamál
Alsírbúa, frá sínum sjónarhóli séð,
og sögu landsins frá þvá það
komst undir yfirráð Frakka.
í nóvember s.l. var aðalritari
UGEMA, Muhamed Mhemisti,
handtekinn. Hann hafði numið
læknisfræði við háskólann í Mont-
pellier og ekki komið til Alsír
i 5 ár. Engu að síður var hann
handtekinn að kröfu herréttarins
í Algeirsborg. Frönsk stjórnarvöld
yngri. Aftur á móti hefur mér skil-
izt að húsmæðrakennarasikóli starfi
hér ekki eins og stendur, og er
slíkt ástand að sjálfsögðu með öllu
óhæft. Það er' áreiðanlega nauðsyn-
legt að 'hann taki aftur til starfa
hið fyrsta.
Að lokum vil ég segja að ég
óska þess einlæglega aS fá fleiri
íslenzka nemendur til Árósa. Kynnti
mán af þeim öllum, bæði þar og
hér á íslandi, hafa verið méð af-
brigðum ánægjuleg.
UMFERÐAMÁL
EJginmaður minn
Hjörleifur Árnason,
lézf í Sjúkrahúsi Akureyrar miðvikudaginn 9. þ. m.
Gróa Hertervig.
Þakka innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
konunnar minnar
Sfeinunnar Loftsdóttur,
Lækjarbotnum
Fyrir mína hönd og barna minni.
Jón Árnason.
lýstu því að vísu yfir, að hann
hefði ekki verið handtekinn sem
stúdentaleiðtogi, heldur vegna ann
arra athafna. Þrát't fyrir það vakti
handtakan óhemju athygli meðal
stúdenta um Iheim allan og rigndi
mótmælum hvaðanæva yfir frönsk
yfirvöld frá stúdentasamtökum.
Þessi mótmælaalda jókst þó um
allan helming tveimur mánuðuni
síðar, er frönsk yfirvöld leystu
UGEMA upp og hönnuðu frekari
starfs'emi þess. 11 forustumenn
þess voru handleknir og yfirheyrð
ir. UGEMA starfar samt áfram, en
auðvitað í leyni eða utan franska
heimsveldisins.
Allt þetta hefur orðið til þess',
að alsírskum stúdentum er ekki
lengur vært við franska háskóla,
nema þeim, sem kalla mætti
„danska íslendinga“. Hafa þeir
því flestir leitað til annarra landa
til ag halda áfram námi sínu.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Stúdentaráði Háskóla íslands hafa
borizt, eru nú um 1300 alsírskir
stúdentar landflótta í Túnis og
Marokkó og auk þess a.m.k. 300
stúdentar í Frakklandi, sem neyð-
ast munu til að hverfa þaðan af
pólitískum ástæðum. Nokkrir hafa
leitað til Sviss og sumir til Belgíu,
en í þessum löndum báðum fer
kennsla fram á frönsku í nokkrum
háskólum. Að sjálfsögðu skortir
stúdentanna algjörlega fé til að
geta haldið áfram námi sinu við
þessar breyttu aðstæður.
Fyrir því hefur UGEMA heitið
' á stúdenta um heim allan að
hjálpa sér í þessum vanda. Hafa
1 ýmsir brugðizf vel við, m.a. hafa
j stúdentasamhöndin í Marokkó og
' Túnis þegar boðið 20 námsstyrki
hvort og stúdentasamböndin í
Guatamala og Noregi 1 styrk
hvorl'.
Stúdentaráð Háskóla Islands hef
ur ákveðið að leggja hér hönd á
plóginn og freista þess' að safna
fé til að geta styrkt einn alsírskan
stúdent til náms. Talið er, að 200
£ myndu nægja einum stúdent
í eitt ár.
j Fé þessu hyggjast síúdentar
safna með því a'ð .leit'a til ýmissa
félaga um framlög og að sjálf-
sögðu verða framlög frá almenn-
ingi vel þeginn. Einnig kemur til
mála, að dansleikur verði haldinn
í þessu s'kyni.
'•■.V.V.’.V.V.V.V.V.’.V.V.V.
Orgel$réitir
útvegá ný Harmonium og
Rafmagnsorgel, þegar mögu
legt verður.
Lagfæri biluð Harmonium.
Kaupi stundum notuð
Harmonium.
ELÍAS BJARNASON
Sími 14155
v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.
Umferðarreglur
um aðalbrautir
og fleira
Vegur nýtur aðalbrautarréttar,
cf vegur, sem að honum liggur,
er við vegamótin merkfur bið-
skyldu- eða stöðvunarmerkjum. i
Biðskyldumerki verða við þær
aðalbrautir, sem sama réttar njóta
og aðalbrautir hafa gerf hingað til.
Er sú skylda lögg á þann, sem lnn
á eða yfir slíka aðalbraut ætlar,
að víkja skilyrðislaust fyrir um-
ferð um hana, með því að draga úr
hraða eða nema st'aðar eftir at-
vikum, og er skylt ag nema staðar,
þegar ekki er fullkomin útsýn yfir
veginn, svo sem þar, sem hús eða
veggir byrgja útsýn.
Stöðvunarmerki verða yfirleitt
við þær aðalbrautir, sem leyft
verður að aka hi'aðar en annars
staðar. Þar ber ökumönnum að
nema skilyrðislaust staðar, áður
en þeir aka inn á brautina eða
yfir hana. Stöðvunarskyldan er
skilyrðislaus, og ber að sýna ýtr-
ustu várúð og víkja fyrir umferð
úr báðtim áttum, áður en ekið
er af stað aftur.
Þegar komig er að stofivunar-
merki, skal ávallt' nema sl'aðar.
Skiptir ekki máli, hvort umferð
er eftir aðalbrautinni eða ekki,
stöðvunarskyldan er undanl'ekn-
ingarlaus. En til þess er stöðvunar
skyldan, að ökumanni gefizt tóm
t'il að hyggja vel að umferð eftir
aðalbraut áður en hann ekur inn
á hana.
Óþarft er að geta þess, að á
þeim gatnamótuni, sem hvorki eru
merkt biðskyldu né söðvunar-
merkjum, gildir áfram liin gamla
regla, að víkja skuli fyrir umferð
frá vinstri hönd.
Fylgist með verðlaginu í verzlunum
Til þess að almenningur eigi
auðveldara meg að fylgjast með
vöruverði, birtir s'krifstofan eftir-
farandi skrá yfir útsöluverð nokk-
urra vörutegunda í Reykjavík, eins
og það reynisf vera 1. þ.m.
Verðmunurinn, sem fram kem-
ur á nokkrum tegundanna, stafar
af mismunandi tegundum og/eða j
mismunandi innkaupsverði.
Nánari upplýsingar um vöru-
verð eru gefnar. :á s'lfrifstofunni
eftir því sem tök eru á, og er
fólk hival't til þess að spyrjast
fyrir, ef því þykif..ú.stæða til.
Upplýsingásímw! ’jsíqrif stof unnar
er 18336. ,1 ,
Baðstofan
(Framhald af 6, síðu).
Þetta mál ver'ður vafalaust tekið upp
á Búnaðarþini -gj&ur næsta vetur,
þótt ekki nema„.Ul þess eins að fá
úr því skorið, nvort stjórnendur
D. í. skuli hafa jneiri ráð og völd
um búfjárrækf ’o lagasetningu en
Búnaðarþing, sfjórn B. 1 og
starfsmenn þesá) og hvorl ástæða
sé til, að starfsmenn B. í. þurfi
£ framtíðinni að vera undir eftir-
lUi og búa við tortryggni um
skort á mannúð í meðferð hús-
dýra frá stjórnendum D. í., hvort
sem þeir eru slátrárar og kjöt-
kaupmenn eða iþróttafulltrúar og
skrifstofumenn.
í sambandi við vetrarútflutn'mg
hesta, skal ég aðeins geta þess,
að á þeim tima, sem Alþingi hef-
ur eftir tillögum ákveðins emb-
ættismanns og D. í., bannað út-
fiutning íslenzkra hrossa (þ. e. 1.
nóv. til 1. júní, með undanþágu-
heimild þó) sendu Holiendingar
s.l. vetur, 1000 Shetlandshesta til
Canada, og Bretar senda allan
veturinn hesta og annan kvikíén-
að í góðum skipum yfir Atlants-
haf og alla leið til Ástralíu. Nú er
spurningin þessi: Erum við vítr-
astir og beztir? — -er kærleikur-
inn og manngæzfean"ó svona háu
stigi í Dýraverndunaríélagi ís-
lands?
í þessum málum cr farsælla að
bægslast litið... jpýraverndarinn
ætti ekki að búa)ÍÚ i,fósafréttir“
og beina eitruöum tóftryggnisörv
um til vandaðra manna, sem eru
að leysa erfitt verkefni. Og e. t.
v. væri meiri ástæSa fyrir skrif-
stofumenn í Reykjávík (eða lög-
regiumenn) aS fara til annarra
staSa í Þorrabyrjun, en í lestir
skipa til að skoða líðan og með-
ferð hesta.
Reykjavík, G. júlí 1958.“
Matvörur og Lægst Hæst
nýlenduvörur: pr. kg. pr. kg.
Kr. Kr.
Hveiti 3,20 3,60
Rúgmjöl 2,75 2,90
Haframjöl 3,10 3,15
Hrlsgrjón 5,00 5,10
Sagógrjón 4,95 5,65
Kartöflumjöl 5,15 5,85
Te, 100 gr. pk. 8,75 10,45
Kakaó, Wessanen,
250 gr. 11.35 14,05
SuðusúkkuL, Síríus 76,80 83,40
Molasykur 5.80 6,35
Strásykur 4,20 4,90
Púðursykur 5,35 5,50
Rúsínur, steinlausar 22,00 24,00
Sveskjur 70/80 18,80 25,30
Kaffi, br. og malað 43,60
Export 21,00
Smjörlíki, niðurgr. 8,90
— óniðurgr. 13,80
Fiskbollur 1/1 ds. 12,75
Kjötfars 16,50
Þvottaefni, (Rinsó) 7,90 9,50
— (Sparr) 3,90 4,30
— (Perla) 3,60 3,90
— (Geysir) 3,00 3,65
Landbúnaðarvörur o. fl.:
Súpukjöt (I. fl.) 25,25
Saltkjöt 25,90
Rjómabússmjör, niðurgr. 41,80
— óniðurgr. 62,50
Samlagssmjör, niðurgr. 38,50
— óniðurgr. 59,18
Heimasmjör, niðurgr. 30,00
— óniðurgr. 50,60
Egg, stimpluð 31,80
— óstimpluð 29,40
Fiskur:
Þorskur, nýr, hausaður 2,90
Ysa, ný, hausuð 4,00
Smálúða 8,00
Stórlúða 12,0Ó
Saltfiskur 6,00
Fiskfars 9,50
Ávextir, nýir:
Bananar (1. fl.) 29,70
— (II. fl.) 23,20
Grænnieti:
Tómatar (I. fL) 32,00
Gúrkur (I. fl.) 8,85
Ýmsar vörnr:
Olía til húsakynd-
inga, pr. Itr. 0,79
Kol, pr. tonn 710,00
Kol, ef selt er minna en
250 kg., pr. 100 kg. 72,00
Sement', pr. 45 kg. pk. 33,40
— pr. 50 kg. pk. 37,95
Verðlagsstjórinn
Reykjavík, 7. júlí 1958