Tíminn - 16.07.1958, Qupperneq 9

Tíminn - 16.07.1958, Qupperneq 9
í í MÍNN, miðvikudaginn 16. júlí 1958. 9 sex grunaðir saga eftir agathe christie Sainsbury Seale. Er það ekki rétt? — Einmitt. Mér þykir leitt hvað ég var ókurteis. En þér verðið að viðurkenna að það leit út fyrir að þér væruð að njósna urn Howard og mig. — Jafnvel þótt það væri satt, Mademoiselle, var ég vitni að þvl þegar hr. Raikes bjargaði hr. Blunt frá bana. Hreystilega gert. — I>ér talið svo undarlega, M. Poirot. Eg veit aldrei hve- nær yður er ajvara og hve- nær þér eruð að spauga. :— í þetta sinn tala ég í alvöru, Mademoiselle. Jane sagði og rödd hennar var undarlega hvell: — Hvers vegna horfið þér svona á mig, M. Poirot? Eins og þér vor- kennið mér. — Ef til vill vorkenni ég yður, vegna þess sem ég er neyddur til að gera mjög fljótlega .... — Gerið það þá ekki. — Þvf miður ér ég neyddur til þess, Mademoiselle. Hún horfði á hann um stund. Loks sagði hún: — Hafið þér fundið konuna? Poirot sagði: — Við skulum segja, að ég vit'i hvár hún er. — Er hún dáin? — Það sagði ég ekki. — Hún er þá lifandi? — Það sagði ég ekki heldur. Jane leit á hann. Hún var gröm á svip. Hún hrópaði upp: — Nú, hún hlýtur að vera annaðhvort. — Því er nú verr, að svo einfalJt er málið ekki. — Eg held að yður finnist unun að því að tala svo aö fólk geti ekki skilið yður. — Það hefur verið sagt um mig, viðurkenndi Hercule Poirot. Jane sagði: — Skrýtið, eins og það er heitt — samt skelf ég. — Þér ættuð kannske að fara heim, Mademoiselle. Jane var andartak á báð- um áttum. Svo sagði hún og talaði mjög hratt: — Howard vill giftast mér. Undireins. Án þess að láta nokkurn vita. Hann segir — að það sé eina leiðin —■ að ég sé alltof veik- lynd — Hún þagnaði og þreif í handlegg Poirots. Hvað á ég að gera? — Hvers vegná spyrjið þér mig ráða. Aðrir standa yður nær. — Mamma? Hún mundi öskra húsið um koll, ef hana grunaði það. Frændi? Hann rnyndi vera rólegur og skyn- samur. Nógur tími, væna mín. Verður að vera viss. Dálítið vafasamur náungi, þessi ungi maður. Aldrei að flana að neinu — — Vinir yðar? spurði Poirot. — Eg á enga vini. Bara nokkra kunningja, sem ég drekk með og dansa við, og tala við um allt og ekki neitt. Howard er sá eini, sem ég hef nokkurn tma kynnst, skiljið þér .... — En hvers vegna að spyrja mig, Mademoiselle. Jane sagði: — Vegna þess að það er stundum svo skrít- inn svipur á andlitinu á yður. Eins og yður þykji eitthvað leiðinlegt — eins og þér vit- ið eitthvað — eitthvað hræði- legt, sem er í vændum. — Hún þagnaði. — Nú? spurði hún. — Hvað segiö þér þá. Hercule Poirot svaraði ekki. Hann hristi aðeins höfuðið. 4. Þegar Poirot ,kom heim, sagði þjónninn Georg: — Japp lögregluforingi er hér, herra. Japp glotti þegar Poirot gekk inn í herbergið: — Bless aður. Mér datt í hug að líta inn. Heyra í þér hljóðið. — Gott kvöld, sagði Poirot virðulega. Hvað má bjóða þér. Viskí? — Prýðilegt. Poirot skenkti og Japp lyfti glasi sínu: — Skál fyrir Hercule Poirot sem alltaf hefur rétt fyrir sér. — Nei, nei, motiami. — Hér fengum við þetta indælis sj álfsmorð upp í hend urnar. Hercule Poirot segir að það sé morð — og f jandinn hafi það — það er morö. — Svo? Þú samþykkir það þá loksins. — Hvað gat ég annað en sagt það vera sjálfsmorð. — Annað virtist bókstaflega barnalegt. — Og nú? — Gott og vel. Byssan sem Frank Carter reyndi að skjóta Blunt með var nákyæmlega eins og sú sem Morley var skótinn með. Poirot starði á hann: — Það er stórfurðulegt. — Já, útlitið er svart fyrir aumingja Carter. Hercule Poirot varð hugsi. Hann sagði: — Frank Carter. Nei, alls ekki. Japp leit reiöilega til hans: — Heyrðu, hvað er að þér, Poirot. Fyrst segir þú aö Morley hafi verið myrtur, og ekki hafi verið um sjálfsmorð að ræða. Þegar ég kem og segi þér að við séum komnir að sömu niðurstöðu og bendi þér á hver sé grunaður — þá virðist þú hreint ekkert hrif- inn. — Þú heldur þá að Frank Carter hafi myrt Morley? — Það kemur heim við allt, sem á undan er gengið. Cart- er var illa við Morley vegna þess að hann reyndi að spilla I milli hans og ungfrú Nevill.' Hann kom til Queen Char- lotte Street þennan morgun — og síðar þóttist hann hafa komið til að segja unnustu sinni að hann hefði fengið vinnu, en sannleikurinn er sá að hann hafði ekki fengiö neina vinnu þá. Fékk hana ekki fyrr en seinna um dag-; inn. Hann játar það núna. Það er sem sagt lýgi númer eitt. Hann getur ekki sagt um hvar hann var klukkan 25 mínútur yfir 12. Segist hafa verið á göngu, en það fyrsta sem hann getur sannað er að hann fékk sér bjór á sjoppu um klukkan fimm. Og bar- þjónninn segir hann hafa verið mjög óstyrkan — skjálf- hentur og náfölur. Hercule Poirot andvarpaöi og hristi höfuðið. Hann taut- aði: —Þetta kemur ekki heim við mínar grunsemdir. — — Hverjar eru þínar grun semdir. — Það er mjög leiðinlegt að heyra þetta. Mjög truflandi. Því að hafir þú á réttu aö standa .... Dyrnar voru opnaðar og Georg sagði: — Afsakið herra en .... Hann komst ekki lengra. Gladys Nevill ruddist fram hjá honum og inn í herbergið.' Hún var hágrátandi: — Ó, j M. Poirot .... — Eg skrepp fram, sagöi Japp í flýti. Hann hraðaöi sér út. Gladys Nevill horfði á eftir honum, hatursfullu augna-1 ráði: — Þetta er maðurinn — sem er að reyna aö koma allri sökinni á Frank. —Svona, svona, þér megið ekki æsa yður upp. — En það er satt. Fyrst segja þeir að hann hafi reynt að drepa þennan hr. Blunt og þar sem þeir eru ekki á- nægðir með það eitt, ásaka þeir hann um að hafa myrt Morley heitinn. Hercule Poirot ræskti sig: — Eg var þar, skiljið þér, þegar skotið var á hr. Blunt. — Eg veit að Frank gæti aldrei hafa gert þaö. Hann sver að hann hafði ekki gert það og segist aldrei hafa séð byssuna fyrr. Eg hef ekki tal-' að við hann — auðvitað leyfðu þeir mér það ekki — en lögfræöingurinn hans sagði mér þetta. Frank segir að þetta sé allt skrípaleikur. Poirot muldraði: — Og lög fræðingurinn? Trúir hann á sakleysi vinar yðar? ___ Lögfræðingar eru svo skrýtnir. Þeir vilja aldrei vera hreinskilnir. En það er þetta morðmál, M. Poirot, ég er alveg handviss um að Frank getur ekki hafa drepið Mor- ley. Eg á við — hann hafði enga ástæöu til þess. — Það er satt, sagði Poirot, — að þegar hann kom þenn- an morgun hafði hann ekki fengið neina vinnu. — Satt að segja, M. Poirot, sé ég ekki hvaða mun það gerir, hvort hann fékk vinn- una um morgunin eða seinni partinn. | Poirot sagði: — En hann sagðist hafa komið til að segja yður frá vinnunni. — Jæja, M. Poirot, aum- ingja drengurinn var áhyggja fullur og leiður, og í fullri sagt, hugsa ég að hann hafi verið búinn að drekka eitt- hvað smávegis. Aumingja Frank — hann er stundum svo viðkvæmur og þunglynd- ur. Og hann kom til Queen Oharlotte Street til að tala við Morley, vegna þess að íesið jbessa auglýsingu Neðantaldar bækur eru mikill fengur fyrir alla þá er leita sér ánægju og hvíldar við lestur góðra skemmtibóka. Bækur þessar voru gefnar út rétt eftir aldamótin síðustu, valdar sögur og vel þýddar eftir góða höfunda og hafa þær ekki verið á bókamark- aðinum í áratugi. Spegillinn í Venedig. 76 bls. Kr. 7,00. Guðsdómur o. fl. sögur 192 bls. kr. 15,00. Konan mín svonefnda. 192 bls. kr. 15,00. Dagur hefndarinnar. 212 bls. kr. 15,00. Erfinginn. 118 bls. kr. 8,00. Verzlunarhúsið Elysíum. 96 bls. kr. 7,00. Hver vissi hvað sannast var? 94 bls. kr. 7,00. Silfurspegillinn. 66 bls. kr. 7,00. Skugginn. 44 bls. kr. 5,00. Hvítmunkurinn. 130 bls. kr. 10,00. Mynd Abbotts. 40 bls. kr. 5,00. Leyndarmálið f Cranebore. 238 bls. kr. 16,00. Morðið í Mershole. 76 bls. kr. 7,00. Vitnið þögla. 142 bls. kr. 10,00. Leyndarmál frú Lessingham. 42 bls. kr. 5,00. Gorillaapinn o. fl. sögur. 76 bls. kr. 7,00. Eigandi Lynch-Tower. 232 bls. kr. 16,00. Allar ofantaldar bækur eru óbundnar, þéttprent- aðar og því mjög drjúgar aflestrar. Klippið auglýs- inguna úr blaðinu og merkið x við þær bækur, er þér óskið að fá. Nafn.......................... Odýra bóksalan Box 196, Reykjavík V.V.V.VAV.V.V.VV.V.V.V.’.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V, í Alúðarþakkir sendi ég öllum þeim, er heiðruðu mig á sjötugsafmæli mínu 25. júní s. 1. með heim- sóknum, skeytum og gjöfum. I; Guð blessi ykkur öll. í; .lóhannes Jónsson, I; Giljalandi, Dalasýslu. ■: V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VV.V.V.V.V.V.'.V.V.V.V.V.V.VJ INNILEGAR ÞAKKIR faerum við öllum nær og fjaer fyrir auö* sýnda samáð og vlnarhug við andlát og jarðarför eiginmanns og föður Árna Sigurðssonar, Hrísey. Sérstaklega þökkum við hjónunum í Deildartungu og Víðigerði og öörum Reykdælingum. Guðrún Jónasdóttir og börn. Frú Davína Sigurðsson verður jarðsungin miðvikudaginn 16. júlí kl. 1,30 e. h. frá Fossvogs- kirkju. Börnin. Útför móður okkar Guðbjargar Aðalheiðar Þorleifsdóttur, Múlakoti, fer fram föstudaginn 18. júli. Kirkjuathöfnin hefst kl. 1, frá Hlíðar- enda í Fljótshlíð. Jarðsett verður í heimagrafreit. Þeim, sem vildu minnast hennar er vinsamlega bent á Land- græðslusjóð. Bílferð verður kl. 10 frá Bifreiðastöð Islands. Börnin.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.