Tíminn - 24.07.1958, Side 6

Tíminn - 24.07.1958, Side 6
6 T í M I N N, finnntudaginn 24. júlí J958, Útgefandi: FRAMSOKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu Símar: 18 300. 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (ritstjórn og blaðamenn) Auglýsingasími 19 523. Afgreiðsian 12323 Prentsmiðjan Edda hf. Þróunin í landhelgismálinu er Islendingum hagstæð í GREIN, sem Davíð Ólafs- son, fiskimálastj óri skrifar um útfærslu fiskveiðiland- helginnar í seinasta blað Ægis, rekur hann það m.a. hvernig viðhorf til landhelg- ismálsins hefur gerbreytzt á svi'ði alþjóðamála seinustu áratugina. Davíð segir, að út- færsla fiskveiðilandhelginn- ar sé þáttur í langri og við- burðaríkri sögu. Síðan held- ur hann áfram: „í>ESSI þáttur sögunnar er að vísu ekki miklu meira en áratugs gamall, en löngu fyrir þann tíma var þó land- helgismálið til í vitund þjóð arinnar þannig, að menn gerðu sér grein fyrir að hér var um þýðingarmikið mál að ræða ,sem gat varðað lífs afkomu hennar í landinu. En hvort tveggja var, að ísland hafði þá ekki enn kvatt sér hljóðs á þingum þjóðanna og eins hitt, að ástandið á hin- um alþjóðlega vettvangi var ekki þannig, að nokkur minnstu líkindi voru ti-1 þess, að vænta mætti þess, að ís- land fengi aðstöðu til þess að færa út fiskveiðiland- helgi sína. Á árunum fyrir síðari styrjöldina var svo ástatt, að enginn grundvöllur var fyrir því, að land gæti gert slíkar ráðstafanir einhliða nema þá því aðeins að vopnað vald stæði á bak við. Enda byggðust allar um- ræður á þeim árum á því, að víðatta landhelginnar yrði ákveðin með alþjóðlegum samningum undir öllum kriiigumstæðum. HEIMSTYRJÖLDIN síðari og tímabilið eftir hana ger- breytti öllum viðhorfum í landhelgismálunum í heim- inum. Á þessu tímabili hefur fjöldi þjóða, sem áður voru ófrjálsar, fengið sjálfstæði og vaknað til vitundar um lífshagsmuni sína. Þessar þjóðir hafa uppgötvað það, að reynt hefir verið að skapa fastar reglur um víðáttu landhelginnar og skiljan- lega hafa ráðið mestu um það þær þjóðir, sem ráðandi hafa verið í heiminum und angengnar aldir. Hinar nýju þjóðir hafa og orðið þess á- skynja, að reglur þær, sem reynt hefur verið að festa, taka lítið eða ekki tillit til hagsmuna þeirra. Sú hreyfing, sem komizt hefur á þessi mál eftir styrj- öldina á sér vafalaust ræt- ur í 'þessum jarðvegi, enda eru það fyrst og fremst hinar nýju og ungu þjóðir, sem gera kröfur til aukinnar víð- áttu landhelgi sinnar og að fullt tillit sé í því efni tekið til lífshagsmuna þeirra. Fyrir okkur íslendinga hef ur því þessi þróun veriö hag- stæð, því við erum ein þeirra þjóða, sem talið hafa, að afkoma okkar byggðist á því, að við fáum tryggt fiskveiðar okkar sem undirstöðu undir efnahag þjóðarinnar." ÞÁ bendir Davíð á það, að íslendingar hafi átt drjúgan þátt í því með framgöngu sinni á alþjóðlegum vett- vangi, að þróunin hefir beinzt í þessa átt, og þá al- veg sérstaklega á vettvangi S. þ. Þessi þróun mun hjálpa til að tryggja það að þær á- kvarðanir, sem íslendingar hafa tekið varðandi útfærslu fiskveiðilandhelginnar munu verða bornar fram til sigurs. Þriggja mílna fiskveiðiland- helgi er raunar ekki annað en arfur frá nýlendutímabil inu, sem hlýtur að fara í sömu gröfina og önnur ný- lendukúgun. íslendingar hafa bæði réttinn og fram- tíðina sín megin i landhelg- isdeilunni. „Mákstaður okkar er byggður á traustum grundvellr” í ÁÐURNEFNDRI grein DavíÖs Ólafssonar víkur lvann nokkuö að Genfarráð- stefnunni, en þar var hann einn af fulltrúum íslands. Honum farast orð á þessa ieið: ,,Hér ætla ég aðeins að minnast á tvennt í sambandi við þá ráðstefnu. í fyrsta lagi hversu greinilega það. kom fram, að þriggja mílna reglan er búin að vera, sem sézt m. a. á því, að upphafs- þjóðir hennar og þær, sem sterkastar hafa verið þar í f.yrirsvari, sáu sig tilneyddar að hverfa frá henni, og ljóst var, að það var 12 mílna regtan, sem átti mestu fylgi að fagna. í öðru lagi hversu miklum skilningi málstaður ísiands mætti hvarvetna. Þetta tvennt er okkur ein Framtíð franska lýðveldisins enn óviss þótt de Gaulle sigraði fasista Nauðsyn ber til a<S allir franskir lýíveldissinnar taki höndum saman, en litlar líkur eru til aÖ þaí megi takast mitt afar þýðingarmikið nú.“ Davið skýrir svo .frá þvi, að á lokafundi ráðstefnunn- ar hafi Hans Andersen, for- maður íslenzku sendinefndar innar, skýrt frá því, að ís- lendingar gætu ekki beðið lengur með útfærslu fisk- veiðilandhelginnar. í fram- haldi af þessu segir Davíð: „Hinn 30. f.m. var gefin út reglugerðin, sem staðfesti ’pessi ummæli, og hafi ein- hver af þeim, sem á ráðstefn unni voru, verið í vafa um hvort ísland mundi fram- kvæma það, sem í yfirlýsing unni fólst, þá er öllum heim- inum nú ljóst, hvað fyrir okkur vakir. Þessum ráðstöfunum hef- ur þegar verið mótmælt all- harkalega, og ekki er gott Eftirfarandi grein eftir R, H. S. Crossman birtist í enska tímaritinu New Stat- esman í lok júní s.l. Ræðir Crossman hér um afstöðu de Gaulle til hinna fasistísku afla að baki byltingarinnar í Alsír og sömuleiðis afstöðu tveggja kunnra stjórnmála- manna, Jules Moch og Pierrf Mendés-France, til de Gaulle. Eins og fram kemur í greininni var Crossman sjálfur staddur í Frakklandi er þeir atburðir gerðust er hér seqir frá. Grein hans er hér lauslega þýdd. Franska þjóðin fylgdist mcð dauða fjórða lýðveldisins af nær algeru kæruleysi, það get óg borið vitni um af eigin raun. Fólkið var til ibvorugs biiið, að styðja uppreisnarmenn eða verja iýðræðið, og það féllst friðsam- lega á valdatöku de Gaulles. En slíkri stjórn eins manns' getur ekki orðið langra lífdaga auðið, og þá er eftir að vita hvort við tek ur fasismi eða starfhæfara lýð- ræði en hingað til ihefur verið. Eg hef rætt þeíta mál all ítar- lega við þá Jules Moch og Pierre Mendés-France, tvo þeirra fáu ■stjórnmálamanna er halda virð- ingu sinni óskertri eftir fall fjórða lýðveldisins. Báðir ræddu þeir hreinskilnislega um þær orsakir er réðu atkvæði þeirra um valda- töku de Gaulles. Og þar sem báðir hafa verið samstarfs'menn 'hers- höfðingjans og þekkja hann náið er fróðlegt að kynnast því hvers vegna Moeh greiddi atkvæði með de Gaulle en Mendés-France móti honum. Afstaða Jules Moch Moch gerir sér ljósa grein fyrir því, hve afstaða hans í þessu máli er ósamkvæm fyrri andstöðu hans við Guy Mollet, er fjallað var um endurhervæðingu Þýzkalands og um Alsírvandamálið á fyrri stig- um þess. Ifann tjáði mér að það hefði verið reynsla hans þann hálfa mánuð er ihann fór með embætti innanríkisráðherra í vor er kom honum til að fylgja Mollef nú. Hinn 15. maí s.l. var hann nýkominn til Nancy í fyrirlestra- ferð er hann var kvaddur aftur til Parísar og 'hvattur til þess' af sér. Er hann kom til innanríkis- ráðuneytisins daginn eftir var hon um tilkynnf kurteislega að herinn myndi ekki gera neinar aðgerðir gegn uppreisnarmönnum i Alsír. Hann komst- einnig 'áð'raun um, áð 'a' að gizka helmingur frönsku lögreglunnar, þar á meðal mest- allt iögregluliðið í París, var sama sinnis’. - i Næsta verkefni hans var að kynna sér hvað verkalýðsasamtök- in vildu gera ifranska lýðveldinu til varnar, og ihann komst að raun um að þau, bæði þau er lúta stjórn kommúnista ©g önnur, gátu ekki eða vildu ekki gera sér grein fyrir hversu alvarlega málum væri kom- ið. Þótt félagar verkalýðssambands ins CGT lúti ennþá forustu komm únista, voru þeir bersýnilega ekki til þess búnir að veita de Gaulle mótspyrnu með allsherjarverk- falli. Þegar kommúnistar boðuðu de Gaulle til verkfalls 27. maí, lögðu fáeinir flutningaverkamenn niður vinnu, en sjálfir flutirngarnir stöðvuðust hvergi. Og i Renaulí verksmiðjun- um kom það gleggst fram hvers'u mátlvana forystu konnnúnista er' orðin. Af 23.000 starfsmönnum þeirra greiða 15.000 atkvæði með kommúnistum. Engu að síður tóku aðeins 800 þátt í verkfallinu. Eg spurði nvort han.n áliti að foringjar kommúnista hefðu í raun og veru viljað koma á alls- herjarverk-falli. Hann svaraði því til að hann væri því sammála að mikill vafi léki á þsssu máli. j „Sumt þ3ð er ég komst að raun um í ráðuneytinu“, sagði hann, Mollet að taka þessa stöðu að „hsnti sterklega til þess að komm únisiar hefðu látið það skiljast, er þeir boðuðu til verkfallsins, að þeir kærðu sig i rauninni ekki um að boðuninni yrði hlýtt.“ Þessi tregða þeirra til andstöðu við de Gaulle getur sfafað af því að hann hefur ekki sætt neinum árásum af ráðamönnum í Sovétríkjunum. < En hvað sem því líður hljóta’ kommúnistar að hafa vitafí að meginþorri félaganna í verkalýðs sambandi þeirra var alls ekki til þess búinn að verja fjórða iýð- veldið fyrir dc Gaulle. Þeir verka menn er ekki lúta stjórn koímmúa ista voru engu betur á sig komnir. Að vísu hefðu þeir verið reiðubún ir til að ganga mótmælagöngu 28. maí hefði vel viðrað og þeir íotið verndar lögreglunnar. En lefði einhver hætta verið á ferð- im hefðu fáir látið sjá sig. 3yltingartilraun 'allhlífamanna Þótt Moch sé sannfærður um ð her eða lögreglulið hefði ekki erið fáanlegt til að brjóta á bak ftur uppreisnina í Alsír, telur íann að ef ákvörðun hefði verið skin um að flytja þúsund vöpnaða ögreglumenn frá Marseille til ■astia hefði verið unnt að koma íálum í samt lag á Korsiíku. Mér silst að sem innanríkisráðherra afi hann gerf ráðstafanir í þessa tt, en málaílækjur innan rikis- jórnarinnar hafi orðið til að lindra framkvæmd þeirra. Þetta lifun sjálfs stjórnarvalds- ns var meginorsök þess að Moch jeystist ekki til andstöðu við valdatöku de Gaulle .En það sem olli því að hann greiddi hershöfð- ingjanum atkvæði sitt og féklc visst traust til hans var hin merki legu viðbrögð de Gaulle við sam- særi fallhiifaherma.ma 27. maí. Sú saga er á þessa leið: 26. maí höfðu bæði Mollet og Moch haldið því fas'f fram að þeir gætu ekki tekið upp viðræður við de Gaulle fyrr en hann hefði sannað hollustu sína við lýðveldið, með því að afneita uppreisninni á Korsíku opinberlega. Þá um k\'öldið ræddi Pflimlin einn við hershöfðingjann í tvær stundir og reyndi að fá hann á sitf mál — eai árangurs- laust. Ekkert var ákveðið, Sízt af öllu að de Gauile skyldi taka við. Engu að síður tilkynnti hann um miðjan dag hinn 27. maí, að hann hefði gert ráðstafanir til-að taka við stjórnartaumunum. Moch er sannfærð.ur um að hann vrti hvers vegna þessi til- kynning var gefin út. Er hann kom í ráðuneytið þá um morgun- inn var homim afhenf skýrsla leyniþjónustunnar um fyrirhug- aða stjórnarbylíingu og valdatöku fasista og innrás fallhlífarher- manna, er hefjast' átti þá um kvöldið. Á sama tíma barst de Gaulle skýrslan í hendur. Þannig komst herslhöfðinginn fyrst að raun um þennan morgun hvað hin {Framhald á 8. síðu) MvsromN Áhugamaður um knattspvrnu skrif- að sjá fyrir, hvað kann að gerast næstu mánuði. En hvað sem því líður, þá er þó eitt öruggt, að eins og fyrr er málstaður okkar byggður á traustum grundvelli og þjóðin er einhuga." „Tslandsmótið í knattspyrnu, sem er merkast3 knattspyrnumót, sem fer fram hér á landi, hefir verið á hálfgerðum flæmmgi undanfar- in ár. Mótinu hefir oít verið frest að vegna heimsókna erlendra knattspyrnuliða, eða þá utanfara íslenzkra liða, og verið gert horn- reka vegna miklu þýðingarminni knattspyrnuatburða. Þó oft hafi ástandið með mótið ver- ið slæmt, munu öll met slegin hvað framkvæmd þess snertir í ár. Mótið hófst 'hinn 19. júní sl'. og fóru þá fram nokkrir leikir, en nokkrum varð að iresta, þar sem ekki var vitað á þeim tíma hvaða 119 yrði hið sjötta í mótinu. Samkvæmt skrá, sem gefin var út í byrjun ieiktímabilsins, áttu þrír leikir i mótinu að fara fram í þessari viku, en öllum hefir verið frestað uni óákveðinn tíma, þó svo ákveðið sé, að Keflavík verði sjötta liðið i mótinu. Átti það i'é- lag að vera aðili að tveimur þess- ara leikja, en þriðja ieiknum var frestað vegna þess, að tveir leik- menn KR fóru með Fram í keppn ! isför til Þýzkalands. Og nú hefir einnig fleira komið til, srvo óvfst er, hvort mótinu lýkur fyrr en einihvern tíma í október eða jafnvel nóvembér, ef að lík- um Iætur. Meístaraflokkur Fram kemur heiin úr keppnisför sinni 7. ágúst, og getur liðið því ekki tekið þál’t í leikjum fram til þess tíma. Og rétt á eftir, að Fram kemtir heim, fer Akraness- liðið utan og verður sennilega til mánaðamóta ágúsL-septemher í þeirri keppnisför. Verður því að fresta þeim Ieikjum, sem Akra- nesliðið átti að Ieika á þossu tima- bili i íslandsmótinu. En ekki er allt búið enn. Þegar Afcurnesing- ar koma- Ineiim fer landsliðið rétt á eftir tJ- Englands og mun leika þar lan<fcféiK við enska éhuga- mannaliðið. Iáðið, sem sennilega verður skdpað1 mönnum úr nokkr- um félögtnn. kemur heim um miðjan sepitemfaer, og þá verður helmingurimi af leikjum í íslands. mótinu eátir. Það er skömm„ að fslandsmólinu skuli engin vírðing sýnd, og þessi háttur, sem ú mótinu hefir verið, og sífeíft fer versnandi, er knatt- spyrnuhreyíingunni til skammar. Vonandi verða þessi mál tekin iil rækil'egrar aitfhugunar og endur- skoðunar, svó siíkt endurtaki sig ekki ár eftir ðr, og í framtíðinni verði þessú merkasta innlenda knattspyrmu'Bótinu sýnd meiri virðing."

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.