Tíminn - 24.07.1958, Page 12

Tíminn - 24.07.1958, Page 12
VeðriS: 1 Hæg breytileg átt, skýjað með köílum. Hiti kl. 18: Reykjavík 14 st., Akureyri 12, K- höfn 13, London 5, París 16. Fimmtudagur 24. júlí 1958. Laxveiði mun minni nú en í fyrra. Ný veiðilög til verndar stofninum VeiftiútlhúnatSur takmarkaftur og vei(Sitími stytlur VeiSimálastjórinn hefir látið blaðinu í té upplýsingar um lax- og silungsveiðina í sumar, svo og um breytingar vegna hinna nýju veiðilaga. Laxveiðitíminn er nú um það bil hálfnaður, en skýrslur benda til, að veiðin hafi verið fjórðungi rninni að tölu heldur en hún var um þetta leyti í fyrra. Lax er þó vænni nú en í fyrra. Er talið líklegt, að veiðin sé nú svipuð að heildarþunga og hún var um miðjan júlí í fyrra. | straumvatns og ekki má nota fyr- irstöðunet, þegar dregið er á. Veiðimálastjórnin ákveður, að fengnu áliti fiskræktarfélags eða veiðifélags, fjölda stanga, sem nota má samtímis í. veiðivatni. Laxveiði í ám, sem renna í Faxaflóa sunnanverðan, hefir ver- ið allmiklu minni en í fyrra, nema í Laxá í Leirársveit, þar sem hún hefir verig jafnmikil. Góð laxveiði hefir verið í ám í Borgarfirði, en í Dalaánum hefir Htið veiðst ennþá. Veiði í ám norðanlands er einnig með minna móti. í Ölfusá hefir verið góð veiði og sömuleiðis í neðanverðri Hvítá. Lax hefir gengið seinna í árnar í sumar og má kenna það kaldri veðráttu. Þá hefir' vatnsskortur íorveldað laxagöngur. í fyrra Veiddist bezt í ágúst, en oftast’ eer veiðin mest í júlímánuði. Verið getur að nú fari sem í fyrra, ef þurrviðri haldast enn um skeið. Veiði göngusilungs, þ. e. sjó- urriða og sjóbleikju, er um það bil að hefjast, þar sem aðalgöngutími sjósilungs er að byrja. Silungs- veiði í Þingvallaratni hefir verið ágæt í vor og í sumar. Nýju veiðilögin. Ný lög um lax- og silungsveiði gengu í gildi s. 1. haust. Var orðin full þörf á nýrri veiðilöggjöf, þar sem eldri lögin voru orðin aldar fjórðungs gömul og nauðsyn bar til að færa þau til samræmis við bréylta þjóðfélagshætti. Nýju lögin eru í mörgu frá- brugðin þeim gömlu, meðal annars er veiðiútbúnaður t'akmarkaður, meira en verið hefir og veiðitími styttur. Friðunarákjæði. Um friðun lax- og göngusilungs má segja, að lax má ekki veiða í sjó, en sjósilung má veiða þar, enda gilda sömu reglur um slíka veiði sem í ósöltu vatni. Þó má ekki leggja silunganef né hafa á- drátt nær ósi straumvatns en 500 metra, ef lax gengur í það vatn. Þá má ekki hafa ádrátf í ósi s'raumvatns eða á ósasvæði eða veiða lax eða silung í ósum í ár eða ósum í stöðuvötn og ekki 100 metra upp frá slíkum ósum eða 2 5 metra niður frá þeim. Ekki má heldur veiða í ósum úr stöðuvötnum þeim, sem lax eða göngusilungur fer um né 50 metra upp eða niður frá slíkum ósum. Veiðitíminn. Lax má veiða á tímabilinu frá 20. maí til 20. september ár hvert, en þó ekki lengur en þrjá mánuði á hverjum stað. Göngusilung má veiða*frá 1. apríl fil 20. september. Lax- og göngusilung má veiða í net frá kl. 9 á þriðjudagsmorgni til kl. 9 á föstudagskvöldi. Ádrátt má bara stunda á þriðjudögum og miðvikudögum frá kl. 9 að morgni til 9 að kvöldi. Stangaveiðitíminn er 12 stundir á dag, á tímabilinu kl. 7 að morgni til 10 að kvöldi. Veiðitæki. í straumvatni má aðeins nota færi, stöng, lagnet og króknet. Girðingakistur og ádráttarnef má aðeins nota meg leyfi landbún- aðarráðherra. Fastar veiðivélar mega aldrei ná lengra út í straum vatn en einn þriðja af breidd þess eða einn fjórða af breidd ósasvæðis. Ekki má draga yfir meira en tvo þriðju af breidd Innflutningsákvæði. Friðunartíma fyrir silung í stöðuvötnum skal ákveða hér fyrir hvert vatn á þeim tíma, sem hrygn ing fer fram. Sami friðunartími hefir verið fyrir öll vötn á land inu, og rnun hann gilda fyrst um sinn. Ráðherra getur sett reglur um takmarkanir um veiði í stöðu vötnum. í stöðuvötnum má nota' þessi veiðitæki: færi, dorg, stöng'. lóð, lagnet og ádrátt'arnet. Fiskræktarfélög hafa nú heim ild til að setja veiðireglur á félags svæði sínu og nýjar reglur hafa verið settar um arðskiptingu í veiðifélögum. Eldisstöðvar eru undanþegnar ákvæðum laganna. sem varða veiðiaðferðir og veiði- tæki, sem notuð eru á slíkum stöð um. Gert er ráð fyrir að styrkja úr ríkissjóði framkvæmdir, Sem (Framhald á 2. síðu) Lítil síldveiði í gær f gær var lítil síldveiði. Eftir hádegið fréttist um tvö skip, er voru á leið til Skagastrandar með nokkurn afla. í gærkvöldi frétt- ist um fjögur skip, sem fengu síld fyrir vestau Skaga. Fóru 3 þeirra til Ólafsfjarðar og' voru samtals með 1600 tunnur. Voru það Víðir II tneð 437 tunnur, Sævaldur með 383 og Einar Þver æingur með rúrnar 800 tunnur. Sævaldur varð fyrir vélarbilun og var derginn í liöfn af varðskipi. Veiðiveður var ekki gott fyrir norðan i gærkvöldi, bræla með landinu, en þó lygnara úti fyrir. Síldarleitin varð mjög lítillar síld ar vör. Norskt skip með nót í bátum inni á Loðmundarfirði Lögreglustjórinn á Seyðisfirði dæmdi í gærkvöldi í máli skip- stjórans á norska skipinu Indra frá Haugasundi, er verið hafði inni á Loðmundarfirði með herpinót í bátum. Þóttist skipstjórinn ekkert hafa um það vitað, að óleyfilegt er að hafa nætur í bátum innan fiskveiðimankanna. — Hann var dæmdur í vægustu sekt, 3700 kr. Hin nýja langferðabifreið Kaupfélags Árnesinga. (Ljósm.: Tímuin). Kaupfélag Árnesinga Kefir fengið nýjan, glæsilegan áætlunarbíl Mun aka á áætíunarleiðinni milli Reykjavíkur og Selfoss, tvær fer<5ir á dag Síðast liðin nlaugardag kom nýr, glæsilegur farkostur til Kaupfélags Árnesinga með m.s. Tungufossi. Er það áætl- unarbíll, sem tekur 45 farþega 1 sæti, frá Heinschel-verk- smiðjunum í Þýzkalandi, af fullkomnustu gerð. Dráttarvél- ar fluttu bílinn inn, og kom hann fullbúinn. Bíll þessi verður a áætlunarleið- inni Reykjavík-Selfoss-Eyrarbakki- Stokkseyri, og kemur í góðar þarfir, þar sem Kaupfélagið hefir haft tvær eldri bifreiðir á þessari áætlunar- leið, sem er ein sú umfangsmesta hér á l'andi. Blaðamenn frá Tímanum áttu þess kost ó mánudaginn að skoða liinn nýja áætlunarbíl, sem er mjög glæsi legur bæði ytra og innra. Sætin eru Ráðgert að byggja skíp er haldi uppi ferðum milli Vestm.eyja og Rvíkur Myndi hafa næturferðir milli hafnanna og flytja fólk og vörur Samgöngur við Vestmannaeyjar hafa lengi verið nokkurt vandamál, þar sem ekkert farþegaskip hefir annazt þessar ferðir sérstaklega nú um langt skeið, en jafnan miklir far- þegaflutningar milli Eyja og' lands. Flugið hefir skapað milda brevtingu í samg'öngumálum Eyjanna, en aðstæður erfiðar til að gera fullkominn flugvöll í Eyjum og flugferðir þangað því stopular stundum. Það hefir því lengi verið áhuga inál Vestmannaeyinga að byggl yrði sérstakt skip t'il Vestmannn eyjaferðanna og er nú slík fram- kvæmd ofarlega á baugi. Hefir Skipaútgerð ríkisins haft með höndum undirbúning vegna skipa smíðanna og látið teikna skip, sem talið yrði hentugt til að halda uppi samgöngum á sjó milli Vestmanna eyja og lands og þá miðað við siglingar milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja fyrst um sinn. Er við það miðað að haldið sé uppi næturferðum niilli staðanna, | þannig ag skipið yrði alltaf í för um yfir nóttina, en lestaði á dag inn. Yrði ferðalagið þá rétt nætur ferð fyrir farþega, sem færu milli og aðstaða góð til svefns og hvíld ar í skipnu á leiðinni. Tilboða leitað í mörgum löndiun Teikning' að skipinu hefir verið gerð í Álaborg hjá skipasmíðastöð þeirri, sem á sínum tíma smíðaði Esju og He'klu. Teikning og út- boðSlýsing voru síðan sendar ýms- um skipasmíðatyrirtækjuin í ná- lægum löndum og leitað lilboða í snríði þess1. Gert er ráð fyrir, að skipið verði 161 fet að lengd og tæp 28 fet á breidd. í því verða ldefar og kojur fyrir 20 Ynenn, en auk. þess er reiknað með. að hægt sé að breyta sófum i matsal í 12 svefrirúm. Enn verða hvíluskilyrði í reykskála fyrir nokkra menn. Burðarþol skipsins verður rúm 200 tonn, og í því verður sór- sitök kaélilest vegna mjólkurflutn- inga. Tilboða hefir eins og áður er sagt verið leitað í nálægum lönd- um. Ódýr-ust tilboð hafa borizt frá Hollandi, en næstódýrust frá V,- Þýzkalandi. TiLboðin hafa veríð no'kkuð mishá, allt frá sex til sjö milljónum króna upp í rúmar eilefu milljiónir. Á þessu stigi málsins benda allar líkur til, ðð tekið verði tiiboði frá Hollandi. mjög þægileg, með háumi bökum, gluggar stórir og útsýni gott og all- ur útbúnaður mjög fullkominn. Út- varpstæki er í bílnum, og hátalarar víða. Þá eru ýmis öryggistæki sjúkra kassar og fleira. Þetta er dieselvagn, vélin. 120 hest öfl. Vökvastýri er mjög þægiiegt, og bremsur léttar og góðar. Fimmgíra- kassi er með mili'ikassa, ,sem verkar eins og hátt og lágt drif, og eru gírar tiu. Bílstjóri á hinum nýja bil verður Sveinbjörn Guðmundsson, sem ekið hefir hjá Kaupfélagi Árnesinga í 8 ár, en það er feröaskrifstofa KÁ, sem sér um áætlunarferðirnar. For- stöðumaður hennar er Guðbjartur Jónsson. Finnsku strokumenn irnir handteknir á Egilsstöðum Finnsku mennirnir, sem struku af síldveiðiskipi sínu á Seyðisfirði og sagt var frá hér i blaðinu í gær, voru handteknir í morgun í Egils staðáþorpi. Á fyrsta íímanum í nótt frétti lögreglan af mönnum, sem voru skammt frá veginum á leið ofan af Fjarðarheiði. Ekki þótti þó sann.ið, að þar væ.ri um Finnanna að raeða. En í morgun fréttist af þeim, ?,ð þeir voru komn ir norður yfir Lagarfljótsbrú, og fóru þá lögreglumenn af stað frá Seyðisfirði að sækja þá. Er þeir komu á vettvang, höfðu ströku- mennirnir snúið við, og voru nú í Egilsstaðaþorpi. Voru þeir hand- taknir og íluttir um borð í skip sitt með valdi, þvi að þeir harð- neituðu að fara þangað. Þótiust hafa fengið nóg af vistinni þar. — Strokumennirnir gætlu þess vel að fara ekki eftir þjóðveginum, held- ur fóru skammt frá þeim til að verða siður gripnir. Ekki munu þeir 'hafa gert sér ijóst, hvert þeir skyldu lialda, höfðu það eitt mark mið að strjúka. Ungur drengur drukknar Það slys varð í fyrradag, að ung ur drengur, Hörður Karlsson, Tungu í Fróðai'ihreppi, drukknaði í Tunguósi. Var drengurinn að leika sér við ósinn en er farið var að gá að honum, um klukkan sjö síðdegis, fannst liann þar örendur.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.