Tíminn - 05.09.1958, Síða 1

Tíminn - 05.09.1958, Síða 1
SÍMAR TÍMANS ERU: Afgreiðslan 12323 Auglýsingar 19523 Ritstiórn og skrifstofur 1 83 00 Blaðamenn eftiir íkl. 19: 18301 — 18302 — 18303 — 18304 Prehtsmiðjan eftir kí. 17, 13948. 42. árangur. Iieykjavík, föstudaginn 5. september 1958. Efni í dag: Skoðanakönnun um nýlendu- veldi, bls. 4. Við stemmusöfnun, bis. ð. Vetrarstarf Þjóðleikhússins, bls 3 196. blað. Fundur þilsundanna á Lækjartorgi táknræn mynd af einhuga þjóð, sem víkur hvergi í landhelgismálinu Þannig myndaði lögreglan varnargarð þvert yfir götuna vlð brezka sendiherrabústaðinn. Fólkið stóð þarna um stund, einstök köll heyrðust en annars var allt rólegt, ólikt betri bragur á þessari heimsókn en kvöldin áður. í gaerkvöldi var allt rólegt við Laufásveginn. (Ljósm.: Tíminn JHM). Togarahjörðin umhverfis herskipin þynnist - Palliser atvinnulaus í gær Lajidhelgisbrot brezku togaranna héldu áfram í gær, en tog'urunum fækkaði að mun, eins og segir í tilkynningu land- helgisgæzlnnnar hér á eftir. Herskipið Palliser, sem ,,verndað“ hefir nokk>-a. togara út af Horni, var atvinnulaus í gær, allir togararnxr ur þeim hopi reyna að veiða eittlivað. Það skeði í íyrrinóti, að brezk- ur togari eyði'iagði net fyrir rek- netabátnum Skallarifi frá Skaga- strönd á „úthaíinu" við Vestfirði. Varðskipin béldu áírám skyldu- Nýtt herskip til verndar lögbrjótum . NTB—Lundúnum 4. sept. Tilkynnt var: af brezjka flotamálaráðuneyt inu j kvöld, að tundurduflaslæðari yrði sendiM’ til fslaods til verndar brezkum togurum, sem stunda veið ar innan 12 sjómílna fiskveiðimark anna við ísland. Kemur skip þetta í stað eftirlitsskipsins ,,Hound“, sem fer til Bretlands, þar sem gert verður við radartæki þess. ut fyrii- linuna til þess að störfum sínum við að afla kæru- gagna á hendur landhelgisbrjótun- um, en ekki kom til árekstra svo vitað væri. í gærkvöldi barst blaðinu eftir- farandi fréttatilkynning frá land- helgisgæzlunni: „Á svæSinu út af Horni eru nú engir togarar inurí.i landhelgi en þar vom áður 2—5 togamr. Brezka herskipið Palliser var í kvöld að taka olíu úr birgðaskip inu Black Ranger út af Straum nesi. Á svæðinu ut af Amarfirði voru sjö togarar innan landhelgi en voru áður 9. Fáeinir tog'arar eru út af Glelt ingdnesi, en dimmviðri er og erfitt að segja nieð nokkurri vissu, live margir togar.ir ent fyrir Austfjörðum, en þeir virð ast a. nt. k. ekki fieiri en áður.“ „Óeirðirnar“ í Reykjavík Bretar vilja um fram allt, að hér séu óeirðir og grjótkast, og brezkir fréttamenn kunna vel a'S laga slíkar fréttir í hendi sér. Frá einum þeirra, sem hér er nú barst frétt á þessa leið út uin heiminn í gærkvöldi: „Æstur mannfjöldi reyndi á fimmtudagskvöldið að þrengja sér að aðVtlliliðþiu að bústað brezka sendilierrans í Reykjavík, en öflugur lögregluvörður stöðv- aði hann. Óeirðirnar bnitust lit eftir mikinn mótmælafuncl á torgi bæjarins, þar sem 7 þús- und rnanns voru saman komnir". Þeir vita svo sem hvað „óeirð-, ir“ eru, Bretarnir. MeS bjargfastri einurð og virðulegri stillingu mun hún helga sér hinn ský- lausa rétt til 12 mílna fiskveiðilögsögu Útifundurinn á Lækjai-tox-gi klukkan 6 síðd. í gær varð mjög fjölmennur, eins og búast mátti við. Hann fór hið bezta fram. og var máli ræðumanna mjög vel tekið. Eftir fundinn gengu nokkur hundnxð fundai-manna að bi’ezka sendiherrabústaðn- um, en iögx-egla lokaði leiðinni. Var fólkið rólegt, aðeins örfá köll en ekkert kast, og hvarf fólkið síðan á brott. Erfitt mun að gizka á, hve mörg þúsund manns sóttu fundinn, en vafa- laust hafa þar verig 7—10 þús. Þessi fundur þúsundanna á Lækjartorgi var táknrænn fyrir samstöðu þjóðarinnar í þessu máli og hviklausa festu um 12 mílna landhelg- ina. í þá órofa fylkingu mun ekkert skarð koma. íslend- ingar munu sýna Bretum að þeir eiga þrautseigju og festu öðrum þjóðum fremur til þess að tryggja réttu máli sigur. Tólf mílna fiskvetðí- landhelgi er komin á, og mun (Framhald á 2. síðu) „Altnennur útifundur lialdinki á Lækjartorgi 4. septeniber, 1958 að tilhlutan Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík fagnar af heiluin hug útfærslu fiskveiðilögsögu íslands í tólf núlur út frá grunnlínum og vottar öllum, er að því hafa unnið fyrr og síðar einlægai’ þakkir og lýsir fyllsta stuðningi við þá ákvörðun. Telur fundurinn að með þeirri ráðstöfuln séu íslend- ingar að hagnýta augljósan og ótvíræðan rétt sinn og vernda brýnustu lífshagsmuni. Sérstaklega fagnar fundurinn þeirri staðreynd, að allar þjóðir, sein stuudað hafa fiskveiðar við fsland nema Bretar, hafa nú þegar viðurkemit hina nýju fiskveiðilögsögu annað hvort með beinum yfirlýshiguin þar að lútandi eða í verki, og bendir á að í þeii’ri viðurkenningu er fólginn mjög mikilvægur sigur í þessu þýðingarmesta efnahags- og sjálfstæðismáli þjóð- arinnar. Um leið og fundurinn þakkar viðurkenningu þessara þjóða fordæmir liann lmrðlega hi(na ódrengilegu afstöðu brezku ríkisstjóniarinnar, sem ein sker sig út úr, óvirðir full- veldi vort og traðkar á rétti vorum til sjálfsbjargar. Skorar fundurinn á íslenzku ríkisstjórnina að setjast ekki að samn- ingaborði við Breta um fiskveiðilögsögu fslands, en krefjast fullra bóta úr liendi brezkra stjómarvalda fyrir þau óhæfu- verk, sem unnin liafa verið og framtn kunna að verða í ís- lenzkri landhelgi í skjóli brezkna herskipa. Jafnframt lýsir fimdurinn megnri fyrirlitningu á ofbeldis- verkum brezkra lierskipa í landhelgi íslands og vottar varð- skipsmönnum vorum þakkir og traust fyiir einurð þeirra og stillingu í ábyrgðarmiklu starfi þeirra. Loks heitir fundurinn á alla ísldndinga að standa saman af einliug og festu urn rétt sinn og þjóðarhagsmuni í þessu lífsbjargarmáli og fylgja því fram til fulls sigurs.“

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.