Tíminn - 05.09.1958, Side 4
4
TÍMINN, föstudaginn 5.september 1958.
<?
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINH
Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson.
Skrifstofur f Edduhúsinu vi3 Lindargötm
Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18S04.
(ritstjórn og blaðamenn)
Auglýsingasími 19 523. Afgreiðslan 12321
Prentsmiðjan Edda hf.
Hverju reiddust goðin?
BLAÐ „]ijóðareiningar-
innar'* um landhelgismálið',
Morgunblaðið, ræðst í dag,
með sinni venjulegu einka-
háttprýði á Eystein Jónsson,
fjármálaráðherra, út af um
mælum, er hann lét falla um
framlcomu Sjálfst.manna í
1 andhelgisdei 1 unni, á sam-
komu austur í Rangárvalla-
sýslu s.i. laugardag.
Hverju deiddust goðin?
Unrmæli fjármálaráðherra
um landhelgismálið voru
þessi: „Útfærsla landhelginn
ar, vernd fiskimiðanna væri
blátt áfram undirstaða þess,
að við gætum lifaö hér menn
ingarlífi. Afstaða sumra ná-
grannaþjóða okkar væri
furðuleg, þegar þess væri
gætt, að útvíkkun landhelg-
innar hlyti að verða þeim
til hagnaðar. Þær myndu
afla betur eftir en áður. Sízt
væri það þessum þjóðum í
hag, að farið væri með fiski
miðin við ísland eins og út-
lendingar léku heimafiski-
miðin við Færeyjar t.d. —
Útfærslan mátti ekki drag-
ast. Samkomuiag við aðrar
þjóðir um málið á alþjóða-
vettvangi hafði verið reynt
til hins ýtrasta. Ráðherrann
kvaðst sannfærður um, að
við sigruðum í þessu máli, ef
okkur auðnaðist að halda á
því með fstu og þjóðin
bæri gæfu til að kveða niður
úrtöluöldur, sem af annar-
Iegum toga væru spunnar,
en á því væru nú góðar horf-
ur.
Afstaða Sjálfstæðismanna
i þessu lífshagsmunamáli
okkar væri furðuleg. Þegar
reynt hefði verið að hafa
samvinnu við þá og spurt
um þeirra álit, þá svöruðu
þeir yfirijeitt: Hvað viljið
þið? Og þegar skýrt hefði
veriö frá því, þá segðust þeir
vilja annað. En hvaö? Það
fengu menn ekki að vita
þegar slíkt þurfti og átti að
liggja fyrir.
Þeirra stefna í þessu máli
sem öðrum, virtist ■ miðuð
við það eitt, að reyna að
gera ríkisstjórninni erfitt
fyrir. Þessi vinnubrögð
Taugatitringur
RÆÐA fjármálaráðherra
hefir ekki aðeins valdið
taugatitringi hjá Mbl. vegna
ummsela hans um fram-
komu Sjálfstæðismanna í
landhelgismálinu, heldur
kveinkar það sér einnig mjög
undan orðum þeim, er hann
lét falla um þátt Sjálfstæð
isflokksíns í þróun efnahags
málanna. Rétt þykir að rifja
hér upp umrnæli fjármála-
ráðherra:
Ræðumaður bar saman
framkomu Sjálfstæöisflokks
ins í kaupgjaldsmálum nú
og meðan hann var í ríkis-
stjórn. „Þá hefðu þeir for
dæmt verkföll og kauphækk
anir en nú ælu þeir á þeim
eftir mætti. Efnahagslöggjöf
in frá í vor hefði miðað mjög
í rétta átt.. Hún hefði gert
þeirra i landhelgismálinu
væri fordæmanleg en þó ekki
hættuleg inn á við öðrum en
þeim sjÉlfum, Vegna ein-
dreginnar afstöðu almenn-
ings í málinu. En út á við
væru þessi vinnubrögð mjög
hættuleg og sorglegt að
minnast þeirra, enda vafa-
laust þegar gert þjóðinni
mikið tjón. Vegna þeirra á-
litu erlendir andstæðingar
okkar, að við værum klofnir
í afstöðunni til landhelgis-
málsins og hægt væri aö
bjóða okkur sitt af hverju.
Ýmis samtök í landinu
væru nú sem óðast að koma
til hjálpar, til þess að leið-
rétta þennan háskalega mis
skilning.
Við lifum nú örlagastund,
svo mikið er hér í húfi fyrir
framtið íslenzku þjóðarinn-
ar, og enginn vafi er á þvi,
að þjóðin mun fylkja sér
fast saman um landhelgis-
málið, og leiöa það til sigurs,
þótt ýmsum erfiðleikum sé
að mæta“.
Þetta er nú það, sem Mbl.
ærist út af. Er helzt svo á
blaðinu aö skilja, að birting
þessara ummæla, eftir 1.
sept. sé fáheyrð skemmdar-
starfsemi við samheldni þjóð
arinnar um landhelgismál-
ið. Eru nú gleymadr báðar
stórræður Bjarna aðajrití-
stjóra, er birtust í Mbl. 2.
sept. þar sem m. a. er veitzt
með illyröum að forsætis-
ráðherra fyrir ummæli, sem
hann lét falla í ræðu norð-
ur á Hólmavík fyrir nokkru?
Eru nú gleymdar ásakanirn-
ar á hendur forsætis- og ut-
anríkisráðherra í Mbl. 3. sept.
einmitt sama tölublaðinu,
sem Mbl. vitnar sérstaklega
til ,sem dæmis um heiðar-
leg vinnubrögð og einingar
viðleitni? í ummælum
fjármálaráðherra er allt
rétt. Það vita allir sem
fylgzt hafa með þessum mál-
um. Viðburðaleysi Mbl. til
þess að hnekkja þeim er líka
algjört. Og gremja blaðsins
yfir þeim, er gleggsti vot±-
urinn um að þau eru á rök-
um reist.
Morgunblaðsins
ráð fyrir 5% kauphækkun.
Nú hefði stjórnarandstöð-
unni tekizt að valda meiri
hækkunum. Þannig hefði
Sjálfstæðisflokknum tekizt
að tryggja það, að við hlyt-
um að fá nýja verðhækkun-
aröldu yfir okkur í vetur.
í sumar flæktust þessir
menn um landið og deildu
á stjórnina fyrir verðhækk-
anir, sem þeir hefðu sjálfir
lagt drögin að, með kaup-
hækkunarstefnu sinni. Dýr-
tíðarhjólið á að snúast á-
fram. Áfram á að leika sama
skollaleikinn. Þjóðin getur
nú þegar byrjað að þakka
Sjálfstæðisflokknum það, að
augljóst er að enn þarf nýj-
ar ráðstafanir í efnahags-
málunum i vetur. — Verð-
hækkanir enn. Þeir geta ver
Hvort stórveldið er fremur nýlendu-
veidi, Bandaríkin eða Sovétríkin?
I mörgum löndum Evrópu, j
Suður-Ameríku og f jarlæg- J
ari Austurlanda eru meiri .
líkur til að fólk telji Banda-
ríkin nýlenduríki en Sovét-
ríkin. Þessi skoðun kemur í
Ijós hjá 10—40% aðspurðra
í níu löndum.
í engu landi, sem heimisskoðana-
könnunin náði til, vildu fleiri en
þrír af hverjum tíu aðspurðum
telja SovétríkLn nýlenduveldi, þrátt
fyrir yfirráð þeirra yfir ríkjum,
er áður fyrr voru sjátfstæð, eins
og: Tékkóslóvakíu, Ungverjalandi,
PóLlandi, Rúmeníu, Búlgaríu og
baltnesku lýðveldunum.
Bæði stórveldin
nýlenduþjóðir?
Spurningar, sem heimsskoðana-
könnunin lagði fyrir fólk, voru á
þessa leið:
„Teljið þér að B.uidaríkin eigi
nokkrar nýlendur?
Hvað um Sovétríkin?“
Það er kannski athyglisverðast
í sambandi við niðurstöðurnar að
margar þjóðir virðast telja jafnt
á komið með Bandaríkjunum og
Sovétríkjunum að þessu leyti. Það
er augljóst, að þeir, sem telja
Sovétríkin nýlenduveldi, hafa þá
í huga yfirráð þeirra yfir lepp-
ríkjunum í Austur-Evrópu.
Fjórðungur aðspurðra Svía og
Venezúelabúa nefna leppríkin til
sem nýlendur Rússa. Einu löndin
auk þeirra, sem að nokkru ráði
eru talin rússneskar nýlendur, eru
Kína, Egyptaland og Sýrland. í
engu landi telja fleiri en 4% að-
spurðra að þessi síðartöldu lönd
séu nýlendur Sovétríkjanna.
Ný skilgreining nýlendu-
stefnu
Það er hersýnilegt að orðin „ný-
lenda“ og „nýlendustefna" hafa í
dag fengið nýja merkingu, ólíka
þeirri, sem tíðkaðist fyrir fimmtíu
árum. Margir virðast nú leggja
þann skilning i þessi orð að þau
tákni fremur að tiltekin þjóð lúti
efnahagslegri eða stjórnmálalegri
stjórn annarrar þjóðar, en hin
formlegu yfirráð, sem einkenndu
ið roggnir, Sjálfstæðlsmenn,
af svona sigrum.
Okkur er áreiðanlega hollt
að líta til Frakklands, sem
dæmis um það, til hvers
skammsýn og ábyrgðarlaus
stjórnarandstaða getur leitt
og hlýtur að leiða, en þar
rambar nú þingræðið á glöt
unarbarmi.“
ÞANNIG fórust fjármála-
ráðherra orð. Þetta er það,
sem kemur Mbl. úr skorð-
um. Brigslyrði þess í garð
ráðherrans eru haldlaus. All
ir vita að árangur efnahags-
ráðstafanna í vor byggðist á
því, að kaupgjald hækkaði
ekki umfram þessi 5%, sem
þar var gert ráð fyrir. Ein-
mitt vegna þess tók stjórn-
arandstaðan þegar í byrjun
þá afstöðu, aö róa alls stað-
ar undir auknar kröfur og
' kauphækkanir. Þessu þýðir
ekki að neita. Það er á vit-
und alþjóðar. Og fyrir hverja
eru svona vinnubrögð við-
höfð? Ekki fyrir almenning
í þessu landi. Hann hlýtur
bölvun eina af. En á bak við
þessar „þjóÖhollu“ aðfarir
vakir von metnaðarsjúkra
valdaspekúlanta um að
stjóntarsamstarfið rojfni
vegna þessara viðfangsefna
og þá sé á ný upprunninn
tími þeirra Ólafs og Bjarna.
Því er þó varlega treystandi.
Sporin hræða.
Niíurstöíur heimsskoftanakönmmar benda til
að ný merking sé nú lögíS í nýiendustefnu
E'ru Bandaríkin og Sovétríkin
nýlenduvefdi?
Bandaríkin eru
nylenduveldi;
------qg?-------
Sovétríkin eru
nýlenduveldí:
---------------
1 1 Venezúela ■r- 28%:r
fÆmr/œémm
Mexíkó
Svíþjóð
Danmörk
Japan
26%
31%
10%
1 2%;
j
Bretland
24%. v
M//Æ
Holland
1 'i i rkÍÍÓ'
J9%.....
m V////Æ Ítalía j: 1 §.\é
' • ' ■ . V - ' ' •" ’ . 1 vm io%: Þý*kal»mí m 8%
. iMiil
iriíS;iii»
nýlenduveldi nítjándu aldar.
5% Breta og álíka fjöldi í Mexikó
telja Filippseyjar og Kúba banda-
rískar nýlendur þótt ckki só til að
dreifa neinum pólitískum yfirráð-
um Washington yfir ríkisstjórnum
þessara tveggja þjóða.
Mörg svörin benda fremur til
andúðar á styrk Bandaríkjanna en
til yfirvegaðrar niðurstöðu. Þetta
kemur einkum í ljós af því hversu
margir hinna aðspurðu telja sitt
eigið land bandaríska nýlendu.
Einn af hverjum tíu Mexíkönum
segir að Mexíkó sé nýlenda Banda-
í-íkjanna, og 5% Breta lýsa því
yfir að Bretland eða hlutar brezka
heimsveldisins séu nýlendur
Bandarikjanna.
3% HoKendinga t. d. nefna til
eina eða aðra evrópska 'þjóð, sem
þeir telja að hafi aðstöðu nýlendu
gagnvart Bandaríkjunum.
Einkaréttur: New York
Herald Tribune og Tím-
inn.
Skákir frá Portoros
Portoroz, 26. ágúst.
Skömmu eftir að óg skrifaði
heim seinast var okkur boðið í
skemmtiferð, en þá fengum við
meðal annars að skoða hellana við
Postojna, einhverja frægustu og
merkustu hella heims og þá
stærstu í Evrópu. Margt er reynt
til að gera fólki hellisvistlna sem
ánægjulegasta, enda hafa rúmar
tvær milljónir manna skoðað hedl
ana frá stríðslokum. Við heilis-
munann eru menn klæddir í úlp-
ur, enda þótt hitinn sé um átla
stig í helLunum, og mjög nota-
legur fyrir íslendinga. Þegar inn
er komið taka túlkar á móti mönn
um en síðan er lagt af stað með
lest inn í þessa furðulegu kalk-
hella. Loftin í hellunum eru öll
útsteypt í grýlukertum sem fara
sívaxandi niður á við en upp úr
gólfunum vaxa stönglar beint á
móti kertunum. Svona hafa grýlu-
kertin og stönglarnir reynt að
nálgasl hvort annað í tvær milljón
ir ára og allar likur benda til að
með árunum muni þau mætast,
þótt biðin kunni að verða löng.
Að öðru leyti .eru hellarnir marg
breytilegir og bera oftást nafn
af helztu sérkennum sínum, einn
er þó nafnlaus, en enginn heitir
í höfuðið á Tító. Okkur var leyft
að skoða tvo hella sem annars
eru ekki sýndir ferðamönnum, og
gengum við góða stund meðfram
ánni Pivka sem rennur þarna neð
an jarðar, voru margir orðnir
þreyttir á göngunni þegar við sá-
um örla fyrir dagsbirtu, en þá
áttum við eftir að ganga upp þrjú
hundruð þrep áður en við kom-
umst upp á yfirborð jarðar. Við'
höfðum verið á þriðja tíma í iðrutn
jarðar og farið um átta kilómetra'
langa, ógleymanlega leið.
Eins og ég hef áður getið um
er Portoroz fyrst og fremst báð-
staður með tilheyrandi hótelu irí
og veitingastöðum. Auk þess eru
hér dansstaðir og eitt bíó, undif
berum himni, næturklúibbar og
verzlanir. Einn dansstaðurinn er
öðrum freunir sóttur og því er
ekki að undra þótt þar só stund-
um eitthvas um að vera. Á þessum
vinsæla stað er fegurðarsam-
keppni tíður viðburður. —
Eru valdar fegurðardrottn-
ingar á hverju hóteli fyrir sig, og
keppa þær siðan til úrslita um
titilinn ungfrú Portoroz. Þegar
þetta var allt um garð gengið var
hyrjað á fegurðarkóngunum og
voru nokkur eintök komin fram
í dagsljósið þegar fegurðarstjór-
inn, sem er sjálfur geysifallegur
með silfurgrátt hár og ávalan vöxt
fókk þá bráðsnjöllu hugmynd að
láta dömurnar á dansstaðnuin
velja þar.n dláðasta og afkast’a-
mesta meðal -keppenda á skákmót
(Framhald á 6. 'sí'&n).