Tíminn - 05.09.1958, Page 8

Tíminn - 05.09.1958, Page 8
▼e5rl8: Sunnan og suð vestan gola, Síðar kaldi, þokuloft, dálítil rigning, Hitinn kl. 18: Reykjavlk 14 sfc, Akureyri 13. London 19, París 23, Ham'borg 18. Föstudagur 5. september 1958. Eisenhower varar Kínverja ákveð- ið við innrás á Quemoy og Matsu Bandaríkin neituíu }>egar í staí aíS viíurkenna 12 mílna landhelgi Kínverja NTB-Washington, 4. sept. — Eisenhower forseti birti 1 dag yfirlýsingu, þar sem hann segist elcki muni hika við að beita bandarísku herliði til að verja eyjar við meginland Kína, sem hersetnar eru af þjóðernissinnum á Formósu, ef hann telji slíkt nauðsynlegt til þess að tryggja öryggi Formósu. Yfirlýsing þessi var gerð heyr in kunn af J. Foster Dulles ut- anríkisráðherra, eftir að ráðherr ann hafði rætt ástandið við Kína strendur við forsetann í eina og hálfa klukkustund, en Eisenhow er dvelst nú í sumarbústað sínum á Rhode Island. Formósa yrði næst. Dulles sagði blaðamönnum, að forsetinn teldi engan efa.á því, að Formósa yrði næst fyrir árás iánverskra kommúnista, ef þeir næði tangarhaldi á eyjunum Que moy og Matsu og öðrum smáeyj- um, sem liggja fast við meginland iS. Dulles kvað Bandaríkjastjórn einjteglega vona, að Pekingstjórn in beygði sig fyrir óskum alls mannkyns um frið. Bæði ég og forsetinn vonum í einlægni, að kommúnistastjórnin í Peking end- Mögulegt að virkja gufuþrýsting af vetnissprengingum Genf, 2. sept.: Á ráðstefnu kjarn orkufræðinga í Genf sem haldin er á vegum S. Þ. og fjallar um friðsamlega hagnýtingu kjarn- orkunnar, sagði dr, Edward Tell er, einn frægasti kjarnorkuvís- indámaður Bandaríkjanna, sem venjulega er talinn höfundur vetnissprengjunnar, að mögu- leiki væri á að vinna rafmagn með því ' að virkja gufuþrýsting, er stafaði af vetnissprengingum und ir yfirborði jarðar. Hann kvað einnig gerlegt að hagnýta vetnis sprengjur til að sprengja fyrir nýj um hafskipahöfnum. urtaki ekki sama leikinn og í Kór- eu. sagði Dulles. Stjórnin ætti að beygja sig fyrir þeirri meginreglu að landaþrætur skuli ekki útkljá með vopnavaldi. Átök á sundunum við Formósu hlytu að leiða til um- fangsmikilta styrjaldaraðgerða þar evstra. Stönnikil Jiætta á ferðum. Fréttaritarar segja, að ástandið við Formósu sé nú enn iskyggi- legra en áður, einkum eftir að Kín verjar hal'a fært út landhelgi sína í 12 mílur, og Bandaríkjastjórn lýst yfir nær tvímælalaust ásetn- ingi um að verja Quemoy og' fleiri smáeyjar. Bandaríkjastjórn lýsti yfir strax og kunnugt varð um á- kvörðun Pekingstjórnarinnar um 12 sjómilna landhelgi, að liún við- urkenndi alls ekki slíka útfærslu, enda væri hún gerð til þess að breiða yfir árásarfyrirætlanir Pe- kingsstjórnar. í Lundúnum er sú skoðun ríkjandi, að útfærsla land- helginnar hafi aukið mjög á hættu ástandið þa.r eystra. Hammarskjöld ræðir við Nasser NTB—Karió. 4. sept. Han\mai- skjöld framkvæmdastjóri S. Þ. er staddur í Kairó og ræddi í dag við Nasser forseta. Hann ræddi og öðru sinni við Fawsi utanríkis- ráðherra. Ekkert hefir verið látið uppskátt uni gang viðræðnanna. Kynþáttaóeirðir í Lundúnum eru brezku stjórninni mikið áhyggjuefni NTB-Lunöúnum, 4. sept. — Kynþáttaóeirðir blossuðu enn í dag' upp í Lundúnum. Kom til uppþota bæði í Paddinton- hverfi og Notting Hill, þar sem mest hefir kveðið að óeirðum þessum allt frá því fyrir helgi. í dag voru yfir 200 rnanns dæmdir i Lundúnum í fésektir eða fangelsi fyrir þáttöku í óeirðum þessum. Brezkum stjórnarvöldum stendur stugg'ur af þessum uppþotum, en kynþáttaárekstrar hafa naumast komið fyrir í Bretlandi allt fram á þennan dag. Spánska stjórnin mótmælir Hinn 26. f. m. afhenti set'tur sendifulltrúi Spánar í Osló amb assador íslands þar mótmælaorð- sendingu vegna stækkunar fisk- veiðilandhelginnar við ísland. Að efni til er þessi orðsending sam- hljóða þeim mótmælum, sem áður hafa borizt. Þegar framangreind mótmæla- orðsending var afhent lét sendi- fulltrúinn þess getið, að ríkis- stjórn Spánar hefði frestað til síðustu stundar að tilkynna ríkis stjórn íslands afstöðu sína, í von um að samkomulag tækist um mál ið. (Frá utanríkisráðuneytinu). I gær ræddust þeir við Butler innanrikisráðherra og Macmiilan forsæt'isráðherra um mál þetta. Var birt yfirlýsing að fundinum loknum, þar sem sagt var að lög- unum yrði framfylgt til hins ítr asta og skorað á almenning að sýna stillingu. í dag hi'aðaði ný lendumálaráðherrann Lenox Boyd för sinni heim á leið, en hann var staddur í V-Indium. Þá er einnig á leiðinni fil Lundúna tveir full trúar stjórnarinnar í V-Indíum til ag kynna sér mál þetta, en mikill fjöl'di bíifkkumanna he|ir flutt þaðan til Bretlands síðustu árin. Mjólkurflöskur og sprengjur. í Paddington-hverí'i kom lög- reglan á vettvang í þrem lögreglu bílum, er blökkumenn brutu rúður í byggingu einni með því að kasta mjólkurflöskum. Hvítir menn svöruðu með því að kasta múr- steinum í glugga, þar sem þeldökk kona bjó. Tvær konur og einn karlmaðui' voru handtekin. í Nott ing Hill var kastað bensínsprengju inn í hús hjá svertingjakonu einni en ekki sakaði neinn þar. 20 manns voru í dag dæmdir í sektir eða fangelsi allt upp í 6 vikur fyrir þátt'töku í óeirðum þess um. Á þingi brezku verkalýðsfélag anna, sem stendur þessa dagana, var skorað á brezka verkamenn, a'ð taka ekki þátt í kynþáttaóeirðum þessum. Fasistar að vei-ki. Bretland hefir leyft ótakmarkað ann flutning fólks frá Bretlandi til samveldislandanna og öfugt. Þetta hefir leitt fil þess að yfir 200 þús. brezkir borgarar frá nýlendum Breta í V-Indíum og Afríku hafa flutzt til Bretlands. Macmillan lýsti yfir í gær, að brezka stjórn in myndi ekki láta þvinga sig til að breyta innflytjendalögunum. Það er hald manna, að óeirðir þessar séu runnar undan rifjum ofstækismanna, sem mynduðu kjarnann í hinni gömlu fasista- hreyfingu Oswald Moslejrs og nokk uð kvag að í Bretlandi fyrir st'yrj öldina. Blása menn þessir að lcyn þáttahatri og hvetja til ofbeldis verka. Frá happdrættinu Þeir, sem fengið hafa heimsenda miða, eru beðnir að gera skil fyrir þá við fyrstu hentugleika. Á skrifstofunni í Framsóknarhúsinu er einnig hægt að fá miða til að selja. Umboðsmenn úti á landi eru beðnir að gera skil strax og sölu er lokið. Það þurfa allir að eiga miða í happdrætti Framsóknar- flokksins. Skrifstofa happdrættisins er á Fríkirkjuvegi 7 (Framsóknarhúsið). Sími 1-92-85. Fiskþurð yfirvofandi í Englandi News Croniele í London flyt ur þá frétt eftir fiskkaupinanni í Grimsby í gær, að þar vofi nú yfir fiskskortur eftir viku eða hálfan mánuð vegna aflaleysis brezkra togara á íslandsmiðum. Muni þetta hafa í för með sér um 25% verðhækkun á fiski og jafnvel leiða til þess að Bretar verði að reyna að fá ísfisk hjá íslenzkmn togurum. Mun þar vera að koma fram fyrsti „árang ur“ herverndarinnar. Hátterni brezka flotans jafngildir arás á fullveldi landsins* 99 U Ályktun stjórnar Sambands ungra Framsóknar- manna um stækkun fiskveiÓilandhelginnar „Stjórn Sambands ungra Framsóknannanna lýsir yfir ánægju sinni meS þá ráðstöfun ríkisstjórnarinnar aS færa íslenzku fiskveiSilandhelgina út í tólf sjómílur. Sambandsstjórnin harmar og átelur hai'Slega ofbeldis- verk herskipa brezku ríkisstjórnarinnar innan íslenzkrar landhelgi, sem miSa einungis aS því aS gera veiSiþjófum kíeift aS stunda iSju sína. Stjórnin telur þetta hátterni brezka flotans jafngilda árás á fúllveldi landsins, þar sem íslenzka ríkinu er meinaS aS halda uppi lög'gæzlu á stórum hluta yfin'áSasvæSis síns. Stjórnin vekur athygli á þeirri staSreynd, aS verSi ekki skjótur endir á ofbeldisaSgerSum Breta hér viS land, sé full nauSsyn á aS taka tengsl íslendinga og Breta til gagngerrar endurskoSunar. Stjórn S.U.F. treystir því, aö ríkisstjórnin beiti öllum tiltækum ráSum til aS vekja athygli á málstaS okkar og afla honum fullrar viSurkenningar, en telur óhugsandi, aS nokkrir samningar eigi sér staS um skýlausan rétt íslendinga. A3 lokum lýsir stjórnin yfir aSdáun sinni á hinum fáu, hugprúSu sjómönnum íslenzku landhelgisgæzlunn- ar, sem gegn ofurefli hinna brezku ofbeldismanna hafa sýnt þá festu og prúSmennsku, sem er miklu heilladrýgri til aS þoka réttlætismálum áleiðis en máttur hins sterka en málefnasnauða“. Ofangreind ályktun var einróma samþykkt á fundi stjórnar Sambands ungra Framsóknarmanna þann 4. september 1958. Kínverjar stækka landhelgi sína úr þremur sjómílum í 12 Quemoy og Matsu innan hinnar nýju landhelgi - Bretar munu mótmæla NTB-Peking, 4. sept. — Stjórn alþýðulýðveldisins Kína í Peking tilkynnti í dag, að landhelgi Kína sé færð út í 12 sjó- mílur, en hún hefir verið 3 sjómílur til þessa. Það var sérstak- lega tekið fram í tilkynningu, sem Pekingútvarpið flutti um málið, að evjarnar Quemoy og Matsu ásamt fjölda smáeyja. sem þjóðernissinnar á Formósu hafa á valdi sínu, lendi nú innan hinnar nýju landhelgi Kína. Alþjóðlegt samstarf að geimkönflun NTB—New York 2. sepl. Henry Cabot Lodge aðalfulltrúi hjá S. Þ. skýrði frá því í gær, að Bandarík in myndu á næsta allsherjarþingi leggja til að liafið yrði allþjóðlegt samstarf að könnun ihins yíra geims. Tilganginn kvað hamv að koma á fót stofnun innan S. Þ. er séð gæti um öll vandamál könnim ar geimsins í fi'iðsamlegum til- gangi. Þá var og sérstaklega tekði fram að þessar nýju landhelgisreglur taki einnig til Formósu, þar eð hún sé hluti af kínversku landi. „Hernámslið“. Þá var tekið fram, að framvegis bæri að líta á herlið Bandarífcj- anna á Formósu og öðrum eyjum þjóðernissinna sem „hernámslið". Einnig skertu sjöundi ffloti Banda ríkjanna og lofther þeirra sjálf- stæði og fullveldi Kína, ef her- skipin héldu sig innan 12 sjómílna markanna og flugvélar í lofti innan sama svæðis, án leyfis kínverskra stjórnarvalda. Loks eru endurtekn- ar fyrri kröfur og hótanir Peking- stjórnarinnar um að ná úr höndum þjóðernissinna áðurnefndum eyj- um, sem séu kínverskt land. Bretar viðurkenna ekki. Fréttamaður hefir það eftir áreiðanlegri heimild í Lundúnum, að brezka stjórnin muni ekki við- urkenna 12 sjómílna landhelgi Kínverja. Þessi aðili í Lundúnum upplýsti, að brezku stjórninni iiei'ði ekki borizt opinber tilkynn- ing frá Kína um útfærsluna. Brezka stjórnin viðurkenndi ekki einliliða útfærslu landhelgi, þar eð liún ætti enga stoð í alþjóðalögum. Á þetta hefði íslenzku ríkisstjórn- inni verið bent. 3 mífna landhelgi væri hin alþjóðlega réttarregla. Undantekning frá þessu væri Nor- egur, sem á sögulegum íorsendum liefði verið dæmdur rétfcur til fjögurra míina landhelgi af dóm- stólnum í Haag. Frá Stéttarsambands fundinum Fundur St^ttjarsambands bænda hélt áfram í gær og stóðu umræður um húsbyggiiigarmál. er blaðið átti tal við fréttaritara sinn í Bifröst í gærkveldi. Til- lögur verðlagsnefndar voru þá ekki komnar fram en búizt við umræðum um þær í nótt og fund arlakum. Nokkrar ályldainr liöfðu verið afgreiddar og fjár hagsáætlun sambandsins, en nán ar verður skýrt frá störfum fundarins og' ályktumun hér í blaöinu á morgun, enda lágu litl ar niðurstöður fyrir í gærkveldi. Reynt að myrða brezkan hermann á Kýpur NTB—Nicosíu, 4. sept. Enn ein árás var gerð í dag á brezkan her mann í Nicosíu á Kýpur. Var sprengju kastað að herbíl og særð ist hermaður nokkuð. Gerðist þetta nokkru effcir að1 gengið var úr gildi útgöngubann sem náði til unglinga á aldrinum 14—25 ára. í gær var einn herma'ður brezkur og lögreglumaður myrtir í borginni.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.