Tíminn - 19.09.1958, Blaðsíða 1

Tíminn - 19.09.1958, Blaðsíða 1
• fMAR TÍMANS ERU: jygrelðslan 12323 Augiýsingar 19523 Rltsifórn og skrifstotur 1 83 00 , Blaðamenn eftir kl. 19: 1*301 — 18302 — 18303 — 18304 Prentsmiðjan eftir kl. 17: 13948 EFNIÐ: 4. síðan Ræða Ásgeirs’ Bjarnasonar aíþin. á héraðshátíð í V-Hún., bls. 5. Landhelgishugleiðingar, bls. 5. Flóttamannavandamálið í Þýzka- landi, bls. 6. Skýrslur atvinnutækjanefndar, bls. 7. 42. árgangur. Reykjavík, föstudaginn 19. september 1958. 208. blað. Fásinna að útiloka sex hundruð millj. þjóð frá alþjóðasamtökum, segir stjórn brezka verkamannaflokksins 9 togarar fyrir innan Á' tíunda tímanum í gærkvöldi vorn 9 togarar að veiðum út af Vestfjörðum fyrir innan línu. ■— Einn togari var út af Straumnesi í fylgd með herskipi en hinir 6 voru sunnar. Engir togarar voru á Langanes- svæðinu í gærkvöldi, en þrír voru í stefnu til Grímseyjar, þeir voru og í íylgd með herskipi. Land- helgisgæzian taldi líkur fyrir því iað þeir mundu ætla sér að toga fyrir innnn. linu við Grímsey. NTB—London, 18. sept. Forusta brezka verkamannaflokksins end urtók í dag kröfu sína um, að veita beri kínverska alþýðulýð- veldinu aðild að Sameinuðu þjóð- unum. Lögg var áherzla á, að at- burðir síðustu daga á Formósu- sundi hefðu sýnt ennþá skýrar en áður, hversu mikil fásinna væri að úliloka 600 milljóna þjóð frá a’.þjóðasamtökunum. Flokkoforusta verkamannaflokks ins lýsti stuðningi við kröfu Hugh ‘Gailskells um. að brezka stjórnin tilkynnti Bandarlkjastjórn, a?j Brelar styðji ekki Bandaríkja- (Framhald á 2 stðu) Þjóðfrelsishreyfingin í Alsír mun mynda ríkisstjórn í dag Frú Georgía Björnsson látin Frú Georgía Björnsson, ekkja Svcins Björnssonar, fyrsta for- seta íslcnzka lýðveldisins, lézt í Landssþítalanum um miðjan dag í gær á 75. nldursári. ■ Hennar verður getið nánar í blaðinu á næstunni. i VerÓur útlagastjórn í erlendri arababorg fyrst í staft. — Um 30 ríki sög<$ reiíubúin aS viíur- kenna hana NTB-Kairó, 18. sept. — Þjóðfrelsishreyfingin í Alsír eignast á morgun eigin ríkisstjórn. sem vera skal fulltrúi fyrir hið frjálsa Alsír, og að því er talsmaður hreyfingarinnar í Túnis sagði, eru nú um það bil 30 ríkisstjórnir, þar á meðal stjórnir kommúriistaríkjanna, Indiands, þriggja Suður-Ameríkuríkja og Arabaríkjanna, reiðubúnar að viðurkenna hana um leið og hún er komin á fót. Þessi vika hefir verið mikil heyskaparvika í þeim landshlutum, sem búið hafa við látlausa óþurrka meginhluta sumarsins, en það eru Norð- nr- og Austurland. September kom með sunnanvinda á þessum slóðum eins og oft áður, og' heyin björguðust í hlöður. En taðan var orðin hrakin eða úr sér sprottin og ekki þurrkvönd, svo að liirðingin gekk fljótt. Dráttarvélar með heyvagna í tauini liafa verið á ferðinni um engj ar ogtún, og fólkið keppist við aö ljúka hirðingnnni. Göngurnar eru hafnar, réttirnar eru þessa dagana og þá er ekki hægt að sinna öðru, því að liðið á sveitabæjunum er varla til skitanna eins og kunnugt er. — Síðasta heyið hirt - og svo koma göngurnar Ríkisstjórnir Túnis og Marokkó hafa þegar lagt blessun sína yfir myndun frjálsrar stjórnar Alsir, og var það gert á fundi arabaleið toga á fundi þeirra. í Tangier í apríl í vor. í rauninni hafa einnig allmörg arabaríki veitt viðurkenningu sína með því að veita þjáðfrelsishreyf- ingunni, FLN, fjárhagsaðstoð, sem nemur allt að 700 milljónum kr. árlega. Leiðtogi FLN tilkynnti um stjórnarmyndunina í Kaíró í morg un, en áður hafði blað egypzku stjórnarinnar flutt fréttina. Sagði blaðið jafnframt, að Abbas, for- ingi sá, er tilkynnti um stjórnar- myndunina, myndi verða forsætis ráðherra hennar, Andstaða gegn þjóðar- atkvæðagreiðslunni. Af hálfu araba í Kaíró er til- kynnt, að sljórnarmyndunin sé ráð stöfun gegn þjóðaratkvæ'ða- greiðslu um nýja franska stjórnar- skrá, sem de Gaulle forsætisráð- herra ætlar að láta fara fram eftir tiu daga. Sagt er, að ríkisstjórn þessi fyrir Alsír muni koma sér upp höfuðstöðvum í landinu sjáHu innan skamms, en þangað til muni hún hafa aðsetur í Kaíró eða ann- arri höfuðborg araba. Formósumálið fyrir S. Þ. ef sendi- herraviðræðurnar bera ekki árangur Ræða Gromykos utanríkisráð heri'a Ráðstjóranriimar var hörð árás á utanríkisstefnu Bandaríkj anna. Krafðist hann brottflutn ings alls bandarísks liers frá Formósu og' endurtók loforð Rússa viff Kínverja um lijálp ef til árásar kæmi. „Að skaka brandinn.“ Gromyko kva'ð vesturveldin og þá fyrst og fremst Bandaríkin beita hernaðarógnunum í æ fyllra mæli til að koma sínu fram. Þann ig hefðu Bandarikin hagað sér í Formóiudeilunni og í borgárastyrj öldinni í Indónesíu, og Bandarík in og Bretland í Libanon og Jórd aníu. Bandarikin hneygðust nú að þeirri stefnu Hitlers að skaka (Framhald á 2. slðu) Dwlies og Gromyko reifuðu heimsmálin á fyrsta degi almennra umræðna á þingi S.Þ.J NTB-New York, 18 sept. — Hið alvarlega kreppuástand í Austtirlönduin setti þungan skugga á hinar almennu umræð- ur á allsherjarþingi S. Þ., sem hófust í dag, en þá töluðu meðal annarra Dulles og Gromyko. Sagði Dulles, að Bandaríkjamenn áskfldu sér rétt til að leggja Formósumálin fyrir allsherjar- þingið, ef sendiherraviðræðurnar í Varsjá reyndust árangurs- lausar. Er þetta í fyrsta sinn, sem það er orðað á opinberum vettvangi, að viðsjárnar á Formósusundi komi til umræðu á þinginu. Talið er, að Bandaríkjamenn muni ekki láta sér lyndá að sendiherraviðræðurnar dragist á langinn. Dulles lýsti því þó yfir, að meðan menn vissu ekki hvernig sendi- herraviðræðurnar færu, væri ekki rétta að taka málið cyrir. Sendiherraviðræð- i urnar í Varsjá NTB—Varsjá, 18. sept. Sendi- herra Bandaríkjanna í Varsjá, mr. Beam og Wang Ping Nan, sendiherra kínversku stjórnar- innar í Pekimg komu í dag sam an til annars viðræðufundar síns um ástandig á Formósu- sundi. Þeir koniu fyrst saman á mánudaginn, en þá gerði hvor um sig sem gleg'gsta grein fyrir afstöðu lands síns í máiinu. Fréttamenn í Varsjá töldu, að á fundinum í dag myndi fást úr því skorið, að livc niiklu leyti viðræffur sendiherranna koma til með að geta leitit til árangurs. Iíkki er búizt við, að þessar við- ræður leiði til lausnar vandans til fulls, en menn vona, að af þeim leiði, að- eittlivað linni tog' streytunni. Fundurinn í dag stóð í tvær klst. og var ekki gefin út nein tilkynning að lion um lokniim. Sendilierrarnir koma næst sanuin á sunnudag Ferrat Abbas. Foringinn Ferrat Abbas er 59 ára gamall og hefir menntun sem lyfjafræðingur. Eftir að hafa ver- ið blaðamaður um skeið, fór hann að skipta sér af stjórnmálum og átti sæti á fyrra löggjafarþingi fyr ir Alsír. Eftir landgöngu banda- manna í Alsír 1943 gaf hann út yf irlýsingu, þar sem hann krafðist stjórnarskrár fyrir landið og þsng. sem kosið væri til með almennum kosningarétti. Síðar varð hann einn af forustumönnum FLN. — Lengi var hann hófsamur í stjórn málastefnu, en síðan 1956 hefir hann verið einn af ákveðnustu for vígismönnum írelsishreyfingarinn- ar. Aðrir forsprakkar hreyfingar- innar verða ásamt Abbas í þess- ari ríkisötjórn. Engir kommiinist- ar eru í henni, enda finnast þeir ekki meðal forustumanna hreyfing arinnar. HvaÖ gerir franska stjórnili? í kvöld vildi franska utanríkis- ráðuneytið ekkert segja um þe.ss- ar tilkynningar frá Kaíró. Óháða . blaðið Le Monde heldur því fram 1 (Framhald á 2. síðu) ið fundinn um landhelgismálið á mánudaginn Hatdinn í Framsóknarhúsinu við Tjörnina kl. 20,30 - Frummælendur ráðherrarnir Hermann Jénasson og Eysteinn Jónsson - Framsóknarfólk fjölmennið

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.