Tíminn - 21.10.1958, Blaðsíða 5
1. og 2. hefti seldust upp á fáum döguir
Níú er 3. hefti komið út - kaupið stras
TÍMINN, þriðjudaginn 21. október 1958.
0
TRA-LA-LA TRA-LA-LA TRA-LA-LA TRÁ-LÁ-Ll
Leiksýning á Selfossi
Sendið mér
eint. af 3. hefti Textaritsins TRA-LA-LA:
Grein um Helenu EyjólfstJóiCj
ur og margar myndir.
Grein um Þóri Roff mec
myndum.
Rabb um GuSmund Sfe >
grímsson og mynd.
Myndir af nýrri KK-hljóm
sveit.
yt- Heilsíðumynd af Tommy
Steele.
Ólafur Ólafsson, Svava Kjartansdóttir, sem fer með aöalhlutverkið, og Elin Arnaldsdóttir — (Ljósm.: Studio).
Ritið er sent út um land ef greiðsla fylgir pöntun. Utanáskrift: Textarii
TRA-LA-LA, Bergþórugötu 59, Reykjavík
★
Gítaraðferðin og fjöldi dæ:>
uriagatexta, þeir nýjustu oy
vinsælustu.
Föstudaginn 17. þ. m. hóf leik
félagið Mímir á Selfossi sýningu
á sjónleiknum „Ljúfa Maren“ eft
ir' norskan höfund, Oscar Brajit
en að nafni. Kristmann Guð-
mundsson skáld þýddi leikritið.
Leikstjórn og leiktýaldamálun
annaðist Gunnar R. Hansen. Leik
rit þetta hefur ekki verið sett
fyrr á svið hér á landi.
Hér ausan Fjalls bíða menn þess
með eftirvæntingu haust hvert, að
leiksýningar hefjist, og hefur hið
unga leikfélag, sem cr arftaki
Kvenfólags Selfoss um leiksýning
ar, rækt starf sitt með mikilli
prýði og léttir mönnum ok
skammdegisins með því að hefja
sýningar þegar að Jiaustinu. Leik-
húsgestir hafa jafnan komið á-
nægðir af sýningum, og ætla ég
svo hafi enn verið í þetta skipti.
Ber þar einkum til, að val leik
rita hefur verig gott, leikendur
verið starfi sínu vel vaxnir, og sið
ast en ekki sízt hefur ávalt tekizt
gifusamlega með val leikstjóra, og
ér það að sjálfsögðu fyrsta skil-
yrði þess, að leiksýningar verði
annað og meira en nafnið tómt.
Leikurinn „Ljúfa Maren“ gerist
í Osló um 1889 á heimili Nieisar
Andréssonar, kaupmanns. Tvær
stúlkur utan af landsbyggðinni,
Maren og Karen, ráðast í vist til
kaupmannsins. Þessar tvær stúlk
ur eru algerar andstæður. Karen
er veikbyggð og veikgeðja og vinn
ur ekki fyrir brauði sínu, enda
farin að heilsu. Hrasar hún með
vinnumanni kaupmannsins, ábyrgð
arlausu dusilmenni, og deyr í öðr
um þætti leiksins, en lætur eftir
sig barn. Það verður hlutverk Mar
enar, að annast barnið, enda er
hún mjög sterk og fórnfús. Heim
dishaldið í kaupmannshúsinu hvíl
ir á herðum hennar. Kona kaup-
mannsins er farlama og endar ævi
sína í miðjum leik. Kaupmaöur
inn er vonlaus drykkjumaður og
rola og auðsveipt tæki í höndum
konu sinnar. Við danða hennar ætl
ar hann sér Marenu til fylgilags,
en þrár hennar og vonir beinast
að æskuvininum heima í sveitinni.
Þá kemur og við sögu annar sveit
ungi hennar, sem kominn er til
borgarinnar. Sá er hin argasta
mannleysa,sem hrekst á milli vinnu
staða og verður víðast illt til
fanga. Það er því næsta lítið mann
tak í persónum leiksins, nema
Marenu. Ilún sendur sem klettur
úr hafinu meðal þessara ógæfusam
legu persóna, og virðist af höfund
inum lögð áherzla á fórnfýsi henn
ar og staðfestu, og í henni býr mót
vægi og andstæða þeirra, sem
hún hrærist á meðal. Annars er
leikritið ekki rismikið og held
lítill skáldskapur, en mörg eru
tilsvörin hnyttin, og þrátt fyrir
aumlegt umhverfi er andrúmsloft
ið kímni blandið og vekur ósjald
an hlátur sýningargesta. Verður
því að teljast, að í leiknum hallist
ekki á harmur og gamansemi, en
það sem á vantar í reisn leikrits
ins, bæta leikendur upp með prýði
legum leik sínum, enda eru þeir
nærri allir sviðsvanir.
Ekki verður komizt hjá að minn
ast á málið á þýðingunni. Höfund
ur greinar þessarar hefur að visu
ekkí lesið frumtexta le’kritsins,
en hæpið hlýtur það að teljast að.
leggja norsku sveitafólki á 19. öld
í munn ýmis óvönduð slanguryrðí
sem notuð eru á íslandi nú á dög
um af þeim, sem ekki hirða um
málfar sitt.
Þá skal að nokkru getið hlut
verkanna í leiknum.
Marenu, aðalpersónuna, íeikur
Svava Kjartansdóttir. Sýnir Svava
enn hér, hvílíkum leikhæfileikum
hún er gædd, fer hún með hlut-
verk sitt af stakri prýði og skiln
ingi. Ef nokkuð má að leik hennar
finna, væri það helzt, ag innileik
og viðkvæmni skorti í lok síðasta
þáttar. Með hlutverk Karenar.stall
systur Marenar, fer Elín Arnolds
dóttir. Veldur hún hlutverki sínu
ágætlega og er gædd þeim fínleika,
sem hæfir hinni veikbyggðu og
umkomulitlu Karenu.
Níels, kaupmanninn, leikur Guff
mundur Jónsson. Hann er að góðu
kunnur á sviðinu og brást hér
heldur ekki vonum manna. Er hlut
verk hans öðrum fremur spaugi-
legt. Hámarki náði leikur hans, er
hann var að laumast í eldiviðar-
geymsluna á fund Bakkusar, svo
og er hann kemur af þeim fundi
íram á sviðið aftur.
Ólöf Ösferby túlkar kaupmanns-
frúna, Matthildi, prýðilega. En við
lestur leikritsins finnst manni,
sem samband kaupmannshjónanna
eins og það er túlkað á sviðinu,
einkenhist ekki nægilega mikið af
undirlægjuhætti eiginmannsins og
yfirgangi konunnar.
Axel Magnússon hefur ekki
brugðizt á sviðinu til þessa. Skilar
hann hinum ólíkustu hlutverkum
frábærlega, hvort sem um er að
ræða matsveininn í Nirflinum, Jón
hónda í Gullna hliöinu eða toónda
soninn Þóri í þessum leik.
Axel vinnumaður kaupmanns-
hjónanna er leikinn af Ólafi Ólafs
syni. Skilar hann hlutverki sínu
vel, en þó virðist persónan ekki
fyllilega sjálfri sér samkvæm leik
inn á enda. Ekki er fullt samræmi
í framkomu Axels í upphafi leiks
ins og t. d. í þriðja þætti. Páll
Sigurðsson leikur bóndasoninn,
Einar. Páll er nýliði á sviðinu, og
geldur hann þess nokkuð. Honum
eru líka fá tækifæri gefin í leikn
um. Leikstjórn og leikljaldamáiun
var slík, sem vænta mátti af hin
um góðkunna leikstjóra. Var leik
stjóra og leikuruin óspart klapp
að lof í lófa að sýningu lokinni.
(Þ.G.).
Cuðmundur Jónsson, skósmiður og Ólöf Österby í hlufverkum sinum.
Kaflagnir—VlðgerBlr
Sími 1-85-56
TRA-LA-LA TRA-LA-LA TRA-LA-LA TRÁ-LÁ-LÍ
fiiiiiiniiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinnno
I I
Til greina kemur að ráða á teiknistofu vora:
arkitekt, húsgagnaarkitekt
eða byggingariðnfræðing
Upplýsingar gefur starfsmannahald vort í Sam
bandshúsinu.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA
'llll(llfl[flllIIIIIIIilll[lillllll|[|IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII!llllllIIIIII!llllllllIIIIIIIIIilllIIIIIIIIim!Illimiilll{l!IIIIIIIIlllllIIHrc
VW.%\V%V.',.V\VW.,.V.V.V.V.V.W.,.V.V.VWiVVLVAN
í I
■. Innilega þakka ég öllum sem glöddu mig með v
J heimsóknum, skeytum og gjöfum á sjötugsafmæli ?■
í; mínu þann 12. þ. m.
Guð blessi vkkur öll.
I
AV.V.V.V.V.V.V.V.V.VAVAV.VAV.V.V.V.V.V.V.V.V
Hólmfríður Jóhannesdóttir,
Stóra-Gerði.
Þekkum innilega samúð við ancllát og jarðarför móður okkar
og fósturmóður,
Guðrúnar Sveinsdóttur.
Sveinborg Gísladóttir, Einar Gíslason,
Vilmundur Gíslason, Úlfhildur Kristjánsdóttir.
Móðir okkar,
Margrét Jónsdóttir,
frá Kvigsstöðum,
andaðisf að heimili sínu Dalshúsi við Breiðholtsveg, 19. þessa mán-
aðar.
VilborgVigfúsdóttlr,
Halldór Vigfússon.
Maðurinn minn
Sveinmar Jónsson,
andaðlst að heimili sínu Hjallavegi 52, Reykjavík, aðfaranótt laugar-
dagsins 18. þ. m.
Jarðarförin auglýst síðar.
Hólmfríður Þóroddsdóttlr.