Tíminn - 10.12.1958, Blaðsíða 4

Tíminn - 10.12.1958, Blaðsíða 4
4 TIM I N N, Miðvikuáaginn 10. desemebr 1958, fSLENZK HETJUSAGA Sjáífsævisaga Björns Eysteinssonar A bókamarkaði þessa vetrar er ein sú bók, nýútkomin, er ég vildi vekja athygli á með nokkrum orð- um, en það er Sjálfsævisaiga Björns Eysteinssonar. Ekki er þetta stór bók eða áberandi umfram það er nú gerist. Ekki er raunar heldur hægt að segja að nafn .sögumanns sé víðkunnugt eða landfrægt þó fyrir eyru ýmsra hafi borið í af- spurn og ýktum sögúsögnum. Björn Eysteinsson var húnvetnsk ur bóndi .kenndur við Grímslungu og Orrastaði. Ilann var umsvifa- mikill maður og stórbrotinn og reyndi margt á rysjóttri og langri 'búskapartið. ‘Hann var orðinn stór bóndi er hann felldi bústofn sinn og varð snauður maður hálffertug- ur að aldri ,á harðindaárunum um og eftir 1880. Þá réðst Björn í að reisa sér nýbýli, í afréttarlöndum langt framan við byggð á Auðkúlu- heiði. er ihann nefndi á Réttarhóli. Þar bjó hann í fimm ár og kom undir sig fótum að nýju og varð einn fjárríkasti bóndi sýslunnar, en aldrei við eina fjölina felldur, djarfur og umskiptagjarn. Bók þessi er búin til prentunar af Birni Þonsteinssyni sagnfræð- ingi. Ritar hann allýtarlegan for- mála fyrir foókinni og gerir grein fyrir gerð hennar, jafnframt því, er hann drepur á ýmsar ýkjusögur og missagnir er myndazt hafa um Björn. Næst formála er stutt ættar tala Björns Eysleinssonar. Þá kem ur sjálf ævisagan sem er rituð af Birni, aðallega veturinn 1913—14, en þá átti ihann enn ólifaðan aldar fjórðung, því Björn lézt 1939 tæ_p- lega 91 árs að aldri. í formála segir svo um gerð ævisögunnar: „Sigurgeir, sonur Björns, afritaði handrit föður síns og jók það með smáinnskotum. Síðar skráði ráðs- kona Björns, Kristbjörg Péturs- dóttir ýmsa þætti eftir frásögn foans og foélt áfram sögunni eftír 1914. í þessari bók er handrit Björns sjálfs birt orðrétt sem aðal texti, en. viðbætur, sem KristbjÖL-g skrásetur, með smáu letri og inn- skoti Sigurgeirs innan sviga. í ævi- sögunni er ekkert um Björ.n nema það, sem hann sagði sjálfur fyrir eða skráði með eigin hendi“. Saga þessi er forvitnisleg fyrir ókunnuga á tvennan hátt. Fyrst er það, að um Björn Eysteinsson, at- gervi !hans og ýmislega háttu í bú- skap, bafa gengið ýmsar sögur er höfðu á sér ólíkindablæ þótt full- víst mætti telja að um hversdags- mann væri að ræða. Og þá v?r foitt, að eftir því orðspori virtist hann flestum mönnum ólíklegri til þess að fá sér það til dundurs, meðan enn var dagur og verkbjart, að festa sögu sína í 'letur, enda líít gegnt skriftum um dagana. Kem- ur enda í ljós í formála að þetta gerði hann að hvatningu annars manns. Það verður Ijóst við lestur sög- unnar, að þarna hefur farið óvenju legur maður og einnig hitt að ekki er hér um rithöfund að ræða í nútímalegri merkingu, en það eykur gildi þessarar frásögu frem ur en hitt. Að vísu saknar lesand- inn þess öðrum þræði að fá ekki ■skipulegri heildarsögu um ævi hans, en úr því er meira en bætt, með þvl að myndin af Birni verð- ur persónulegri en annars hefði orðið. Fyrir aftan ævisögu Björns er æviminning Sigurgeirs Pálssonar Barda'ls, tengdaföður hans, föður Helgu er var seinni kona Björns og sú er flytja varð með honum að Réttarhóli. Sú er hélt þar við eldinum og treindi líf þeirra og foarnanna unz þau náðu byggðitm á nýjan leik. Er það réttilega fram tekið :hjá höf. formálans, „að hafi hann (þ.e. Björn) verið afreks- máður, þá hefur kona hans, Helga Sigurgeirsdóttir verið kvenhetja“. Þá er að lokum þáttur um Gríms- tungu í Valnsdal og ábúendur þar m.m., eftir Þorstein Konráðsson, og síðast atfougasemdir. Saga Björns Eysteinssonar er hetjusaga. Það er saga sem endar vel, á þann hátt að miklu er bjarg- að og börn hans komast til manns tsökuni atorku hans og eigin at- gervis. En þó er þetta harmsaga að allri undii-stöðu. Harmsaga, þegar til þess er litið hverri örbirgð þessi horfna kynslóð var á stundum ofur seld. Hún var ofurseld þeh-ri ör- 'birgð og álögum er voru svo sterk, að jafnvel fífldirfska og atgervi manna eins og Björns, voru hvergi nærri einhlít til að brjótast þar í móti og vinna sigur. Þó að Ðirni Eysteinssyni tækist tafiið, þá verð ur það naumast allt þakkað hans atgervi, þar um réði öðrum þræði hending blind og strákalukka eða það sem að baki því liggur. Hinir voru margir er áttu þæði atgervi og djörfung oog voru þó ofurliði bornir af örlögum með ýmsum hætti, frá þeim er engin saga, — það er harmsagan að baki þeirrar sögu sem 'hér er skráð. Einn þykir mér Ijóður á þessari bók. Vera má að hann stafi af hæversku þess er sá um útgáfuna, en það verður ekki reiknað honum til inntekna af minni hálfu. — Fyrir framan ævisöguna er saman tekin ættartala Björns. Mun það gert í þeim tilgangi að talið sé að lesendum kunni að vera nokkur forvitni á að vita deili á foreldri þessa manns og fræðast um hvar úr jörð hann væri sprottinn og af I hverju bergi brotinn. Var það rétt ! ályktað og kurteislega komið til móts við þá náttúrlegu löngun It-s andans. En var þá ekki jafnframt eðlilegt að álykta svo, að ekki síð- ur væri lesandanum forvitni á að vita nokkur deili á börnum hans, þeim er við söguna koma, þó með slitróttum hætti sé, og börnuin þeirra, en það hefur láðst að gera. Þó að Húnvetningum megi vera þetta kunnugt, er ekki svo með aðra. Það er læpast að lesandinn sé öruggur um að allra barna Björns sé getið í bókinni, og hend- ing ein ræður, að gerð cr grein fyrir sumiun þeirra og þó með mjög ófullkomnum hætti. Næstum 40 ára aldursmunur er á elzta og yngsta barni Björns, eftir því er týnt verður saman úr athugasemd um B.Þ. aftast í bókinni, því sjalf er ævisagan lítt studd ártölurn. Eftir því sem á lcið lestur ævi- sögunnar, varð ég æ forvitnari að mega að líkum vænta þess í bókar iok að fá stutt yfirlit yfir börn jBjörns og næstu afkomendur, en það er ekki fyrir hendi. Fer þá að líkum, að nærri vafaíaust hljóti niðjar hans að hafa orðið hlut- gengir til jafns við aðra, endi mun það sannast ef eftir er grenns : last. Einn af sonum Björns er lög- fræðingur og bæjarstjóri, annar er verkfræðingur. Björn Þorsteins son sagnfræðingur er sér um út- gáfu sögunnar, mun' vera sonarson- ur Björhs, en annar sonarsonur hans er eðlisfræðingur. Einn dótt- ursonur hans doktor í vísindum og annar einn umsvifamesti bóndi nú í Húnaþingi og ber nafn hans, og dóttursonarsonur einn mun vera verkfræðingur. Þótt ég haldi mig vita þetta, fer því fiarri að mér séu kunnir nema að litlu leyti niðjar Björns Eysteinssonar, sem mér hefði þótt mikil fróðleiksbót, sprottin af sjálfs hans sögu. Indriði Indriffiason. Í* ■ 3ROÐUR OG GARÐAR INGOLFUR DAVIÐSSON „Afríkukorn“ í Ameríku „Svertingjakornið,, Dúrra (Sorg- hum) er lítt kunn korntegund hér á landi. í Afríku og Asiu hefur hún verið ræktuð frá fornu fari. Talið er að dúrra hafi verið rækt að í Egyptalandi á dögum faró- anna fyrir meira en fjögur þús- und árum og enn er það mikið ræktað í Afríku. Afríkufarar fyrr á tímum undruðust mjög hve vel þessi komtegund stóðst hinn mikla hita og þurrk inni á megin landi Afríku. Til er bæði sykur- dúrra og korndúrra. Bandaríkja menn fluttu inn sykurdúrra til ræktunar fyrir um 80 árum og framleiddu mikið af dúrra eða Sorghumsírópi. Safi jurtarinnar — sakkarínið er sætefni, sem notað er handa ýmsum sjúklingum frem ur en venjulegur sykur. Banda- ríkjamenn tóku lika brátt að rækta korndúrra í stórum stíl. Það þoldi þurrkana og reyndist einnig mjög jarðvegsbindandi, þ. e. hefti uppblástur lands líkt og melurinn hjá okkur. Það þrífst vel í limkenndri leirjörð, þar sem aðrar korntegundir gáfu litla eða enga uppskeru. Dúrrakorn reynd ist afbragð til fóðurs svo kvikfé fjölgaði þar sem það var ræktað. En ekki var jurtin gallalaus frem ur en annað í þessum heimi. Rækt uð höfðu verið frá þvi í fornöld ýmsar tegundir og afbrigði, oft í einum graut! Kornstráin voru mislöng og jurtirnar svo ólíkar að ýmsri gerð að nauðsynlegt var að J handþreskja kornið. Þetta höfðu I svertingjarnir gert í þúsundir ára. En nú varð vinnuaflið of dýrt svo nauðsynlegt var að grípa til nýrra úrræða. Jurtarkynbólanienn tóku málið í sinar hendur. Þeir voru þolinmóðir, stunduðu úrval og æxl uðu saman álitlegum afbrigðum í ergi og gríð. Takmarkið var að framleiða kynblendinga af hæfi- legri jafnri stærð svo hægt væri að þreskja með stórvirkum vélurn. Það tókst að lokum að framleiða jafna, harðgerða og frjósama bast arða. Árið 1941 var hægt að nota stórar korskurðarvélar á dúrra . kornið. Það var mikill sigur. Síðan | hefur dúrra korntegundin farið sigurför ríki úr ríki þar vestra. 'Haldið er áfram að kynbæta korn ið, m. a. til þess að framleiða tegundir sem vaxið geta norður og norðar. í Dakota o. fl. fylkjum SHb . *■*'*■■: ?, -Itó: Korndúrratcgundir. fer nú uppskeran fram eftir fyrstu frostin. Þurrir vindar eiga að þurrka kornið að nokkru, eftir að það hefur frosið. Reynt er einnig að framleiða bráðþroska dúrra. j Dúrrakorn þykir gott föður — j grófmalað —. í því er meira I „prótein" en öllu minni fita en í j venjulegu korni. — Talsvert var : bruggað úr dúrrakorni á strfðsár unum. Dúrra er stórvaxin jurt, oft meira en mannhæðarhá, sum af- brigði jafnvel 4—5 m. Dúrra er talið ættað frá Afríku (e. t. v. ,frá Abyssiníu). Þaðan 'hefur það breiðzt út til Miðjarðarhafsland anna, Mið- og Suður-Asíu, Suður Rússlands og loks til Ameríku. Skylt er hirsiff, sem forfeður vor ! ir ræktuðu á bronsöld fyrri um 3000 árum, t. d. í Danmörku og Suður-Skandinaviu; en ialið er að þá faafi sumarveðráttan þar verið i hlýrri og þurrari en nú. Talið er , hirsi hafi verið ræktað í Kína og á Norður-Indlandi fyrir íimm þús : und árum. Tröllahirsi (Kaoliang, t.v. á mynd inni) er ræktað í Kína, m. a. til grænfóðurs, en lágvaxnara af- brigði sem kornjurt. Svertingjar ! hafa bruggað hirsiöl síðan í torn j öld. Kínverjar ihafa notað sí.ráin • til pappírsgerðar. „Sópdúrra“ er ; notað til sópagerðar í Suður- Evrópu og Bandaríkjunum. Hirsivax mynast í blaðslíðrun- um, inn við stráið. Þjóðverjar rækta dálítið af ‘hirsi til græn- fóðurs. Og hirsigraut átu forfeður okkar aftur í grárri forneskju. — Þáttar klrkjannar Félagsmála-Ieiðbeinendur i ÞAÐ ER STUTT síðan að leið beiningastarfsemi á hinum ýmsu sviðum þjóðlífsins í per- sónulegum vandamálum hófst hér á íslandi. Enda tilheyrir slík starfsemi svo að segja eingöngu þessari 20. öld mannkyns, því að fyrst um síðustu aldamót, hófst þessi starfsemi formlega t. d. vestan hafs. Hér vann Ölafía Jóhannsdótt- ir merkilegt brautryðjendastarf a þessu sviði og opnaði augu margra, þar á meðal ráða- manna í þjóðlífinu fyrir hinni miklu þörf hjáipar og aðstoðar, sem þá þegar var aðkallandi hér í Reykjavík. En sú þörf hefir margfaldazt síðan. Og margt er líka gert, til þess að bæta úr í þessum vanda máhim, en það er ekki nógu skipulega og markvisst unnið enn þá, og ber margt til. Fyrst og fremst skcrtir á almennan skilning gagnvart olnbogabörn- um hamingjunnar og útburðum samfélagsins yfirleitt og auðvit- að féleysi og þekkingarleysi, þótt víða séu á ferð fórnfúsa-r manneskjur, sem gjarnan vilja fórna bæði tíma og kröftum til úrbóta. Kirkjan ætti þarna að hafa forustuna, og við hverja kirkju eða safnaðarhús hér í bænum og víðar, ætti að skipuleggja leiðbeiningarstarf og hjálp handa þeim, sem eru aumastir allra á einhvern hátt, eins og Ólafía orðaði það. Og ríkið ætti hins vegar á- samt kirkjunni að stofna til fræðslu með námskeiðum í þess um málefnum og hafa til slíkrar kennslu sérstaka deild t. d. í hinum verðandi kirkjulega skóla, sem nú er talað um að reisa í Skálholti. Þar sem bezt er að þessum málum búið erlendis stunda félagsmálaleiðbeinendur eða ráðunautar — social workers — erfitt nám í sex ár, áður en tekið er til starfa á þessum víð- áttumikla akri samfélagsins. En meðan engin væri fræðsl- an, ætti samt að rækja svona starfsemi í sambandi við kirkj- una í slærri eða fjölmennari söfnuðum landsins undir um- sjá prestsins á kostnað safnaða með fórnfúsum sálfboðaliðum. Nóg — já, alltof mörg eru verk- efnin. HVER ERU ÞESSI verkefni? veit ég margur vildi spyrja, sem lítt eða ekki þekkir til á- standsins í samlífi fjölbýlisins og þekkir hin persónulegu vandamál aðeins af slúðursög- um. Þar sem þessum málum er bezt komið erlendis, er verkefn unum skipt í flokka. Sumir ann- ast vandamál heimila, aðrir drykkjumanna, nokkrir koma í fangelsin eða sjúkranúsin. Hér hefir nú þegar verið kom ið á skipulegri starfsemi fyrir börn og unglinga, sem lent hafa á glapstigum, þótt er.n sé mai gt, sem bæta þarf og breyta sér- staklega með eftirliti, sem koin ið gæti í veg fyrir, að ungling- ar lendi i hringiðu glaumsins. !:I Líka hefir margt verið gart fyrir drykkjusjúkt fólk nieð !| Bláa bandið og A-A i broddi §| fylkingar og frábært er starí !§ Oscars Clausen fyrir fangana. ;§ Allt þetta bendir í rétta átt. !§ En hér þarf enn betri yfirsýn i! og enn fastari tök, sem ætti að ;!§ nást með starfi smærri hópa t. !§ d. safnaðarstarfi, þótt sízt mætti §; niður í'alla sú starfsemi. sem áð- ur er hafin. Leiðbeinendur eða ráðunaut- ar í persónulegum vandamálum láta sér fátt óviðkomandi. SALFRÆÐINGAR annast ráð og aðstoð gagnvart börnum á gelgjuskeiði, sem hlaupast j§ brott af heimilum sínum og eru foreldrum sínum stöðugt tilefni áhyggna og kvíða, sorg- ar og reiði, þar sem framtíðin er hulin bliku lasta eða glæpa. Þarna bæta góð ráð og holl á- hrif oft úr öllum vandanum á stuttum tíma. Séð er fyrir aðstoð við heim- ili þar sem annað hvort hús- ráðenda hafa veikzt af langvar-1 andi sjúkdómi t. d. berklum. Þá er reynt að leiðbeina um heppilegust. ráð til að efla hug- rekki og bjartsýni gagnvart sjúkdómum og útvega húshjáip, svo að aldrei þurfi að leysa upp heimilið, leiðbeint um heppileg- ustu lifnaðarhætti til að verj- ast sjúkdómum og ná sem fyrst bata. Sérstaklega er lögð: stund á að annast um aldrað fólk, t. d. einstaklinga, sem ekki geta út- vegað sér heppilega vinnu, sem hæfir heilsu og kröftum, en jafnframt aS skemmta þeim og bæta úr einsíæðingsskap þeirra og auka tekjur þeirra og traust á sjálfa sig. I ÞÁ ER OG stundúð fanga- bjálp. Þeim er útvegúð henlug atvinna, komið í veg fyrir, að þeir lendi aítur í þeim félags- skap, sem hefir leitt þá á glap- stigu og þeim veittur kostur á að byrja nýtt líf og eignast hugð arefni, vini og áhugamál. Þá er séristak deild til hjálp- ar fyrir geðveilt fólk, sem týnt hefir gleði sinni og misst trú sína á tilga'ng Hfsins. (Framhald). * Geta jórturdýrin sofið? Sjáifsagt munu margir halda því fram, að kýr og kindur sofi, en þeir, sem raunverulega hafa rann- sakað þetta, segja hið gagnstæða. Bæði menn og skepnur msisa meðvitund meðan þau sofa. Jafn- vel þó Jvýr sýnist vera í algerri hvíld, hefur hún yfirleitt’ augun opin. Hún blundar e. t. v. í hæsta lagi nokkrar mínútur þegar hún hvílir höfuðið aftur með huppnum. Horfi maður á kúahóp að nóttu, liggja þær flestar með opin augun og virða fyrir sér áhorfandann. í þau fáu skipti, sem augun eru lok- uð, gefur t. d. hreyfing á eyrunum til kynna, að skepnurnar séu með fullr.i meðvitund og hinn minnsti hávaði nálægt þeim vekur andsvar hjá þeim. 'Scrkennandi er það einnig fyrir jórturdýr, að þau liggja aiæi'ri ævinlega og hvíla á brjóstinu. Það er mjög sjaldgæft a'ð menn sjái heilbrigða kú liggja alveg á híið- inni. Þetta gefur að líta jafnt í haga sem á (bás, eins hjá tömdum sem villtum jórturdýrum. Er þá einhver eðlileg skýring á því hvers vegna jórturdýrin haga sér að þessu-leyti öðru vísi en aðrar skepnur? Hestarnir sofa og villt hross lifa við sömu skilyrði eins og mörg villt jórturdýr. Þýzkar athuganir hafa ieitt í Ijós, að hross á húsi • sofa að meðaltali 7 klukkustundir á sólarhring. Þau geta sofið bæðí standandi og liggjandi, en dýpstum svefni sofa hestar þegar þeir liggja flatir á hliðinni. Margt bendir til þess, að jórtur- dýr hafi blátt áfram ekki tíma ti] að sofa. Eins og kunnugt er, þurfa þau að tyggja fæðuna tvisvar. Tín> inn, sem þarf til þess að jórtra fæð*

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.