Tíminn - 08.01.1959, Qupperneq 4
4
TÍMINN, fimmtudaginn 8. janúar 1959.
' -------------- — " '■ -«a
— Jónas Guömundsson
Stjórnmálanámskeið Framsóknarfél. í Rvk.
hefst aftur 24. þ. m. og stendur til 14. febr.
Fyrrihluti var 6.-14. desember. Nær 40 manns sóttu námskeiðið
r/r!cj!nn Cunlnccnn
Sunnudaginn 14. des.
s.l. laufe stuttu stjórn,-
málanámskeiði sem Fram
sóknarfélögin gengust fyr
ir hér í Reykjavík. Þa'ö
hófst 6. des. og voru alls
haldnir fimm fundir. Var
héi* um að ræða upphaf
að sams konar starfsemi
sem verður nú tekin upp
aftur í þessum mánuði,
eöa nánar til tekið 24. þ.
m. og stendur það nám-
skeið til 14. febrúar.
Þetta nýafstaðna nám-
skeiö þótti takast mjög
vel og létu þátttakendur í
ljós mikla ánægju yfir því
aö fá tækifæri til þess að
æfa sig í ræðumennsku og
fundahöldum. Tilgangur
slíkra námskeiöa sem
þessa, er einmitt sá aö
æfa menn í því að koma
fram í ræðustóli, láta 1
Ijós skoðun sína á hinuih
ýmsu verkefnum sem fyr-
ir hinum einstöku fund-
um liggja.
Á þessi námskeið
koma ýmsir þekktir
stjórnmálaforingjar og
flytja framsöguræður og
m.a. á þessu nýafstaðna
námskeiði töluðu t.d. al-
þingismennirnir Páll Þor
steinsson um ræðu-
mennsku, Karl Kristjáns-
son um kjördæmamálið
og Eysteinn Jónsson um
st j órnmálastef nurnar.
Jónas Guðmundss., stýri
maöur hjá landhelgis-
gæzlunni var meöal þátt-
takenda á námskeiöinu
og hélt hann framsögu-
ræðu um landhelgismáliö.
Að lokinni hverri fram-
söguræðu gefst þátttak-
endum á námskeiðinu
kostur á að ræða málin
og leggja fram spurning-
ar fyrir framsögumenn-
ina ,og þá um leið fæst
meiri þekking á þeim mál
um sem rætt er um, og
að sama skapi þjálfun í
rökræöum.
Mikil gróska er nú í
starfsemi Framsóknarfl.
hér I Reykjavík og er sá
hópur sem flokkurinn er
að eignast í sambandi við
þessi námskeið, að verða
mjög stór, en einmitt á
námskeiðum sem þessum
mótast verðandi baráttu
menn Framsóknarflokks-
ins lrér í þéttbýiinu;
þeir menn, sem munu á
komandi tímum halda á
lofti merki flokksins, og
leiða hina þjóðhollu og
framsýnu stefnu flokks-
ins til sigurs, þjóðinni tii
velfarnaðar.
Stjórnandi námskeið-
anna er Örlygur Hálfdán
arson, fuiltrúi. —. Hér á
síðunni eru birtar myndir
af nokkrum þátttakend-
um á námskeiðinu i des.
Stjórnrnáianámskeið Fram
sóknarféiaganna í Reykja-
vík hefst eins og áður seg-
ir hinn 24. þ. m og verður
haidið í Breiðfirðingabúð.
Þeir, sem hyggjast taka
þátt í námskeiðinu, eru
beðnir að innrita sig hjá
skrifstofu fulltrúaráðs
Framsóknarfélaganna í
Reykjavík. Skrifstofan er í
Framsóknarhúsinu • við
tjörnina, simi 1 55 64.
Sjálfstæðismenn og samv.félögin
Einar Eysteinsson
Húnbogi Þorsteinsson
í nýútkomnu hefti Stefn
is, tímarits um þjóðmál og
íslenzkum sveitalýð undan harð
stjórnaroki og kúgun kaupfé-
menninearmál sem uneir laganna' Honum er -sériega illa
o t * ' u r g Srið alla kaupfélagsstjóra og álítur
Sjalfstæðismenn hafa a þá vera spillta menn, sem
sínum snærum, birtist
grein eftir ungan mann,
Magnús L. Sveinsson að
nafni. Fjallar greinin um
kaupfélögin íslenzku, og
þá pólitísku misnotkun
þeirra, sem höfundur telur
forsvarsmenn þeirra hafa
beitt í þágu Framsóknar-
flokksins.
Upphaf greinarinnar fjallar
um þa'ð á mjög skemmtilegan
hátt, hvernig samvinnufélög
hænda hófu samkeppni við
hina dönsku selstöðukaupmenn
að loknum einokunartímanum,
og hvernig þau unnu glæsileg-
an sigur í þeirri samkeppni
og komu því til leiðar, að
verzlunln var algjörlega kom
iu í íslénzkar hendur stuttu
eftir aldamótin. Slíkar raddir
er sjaldgæft að heyra úi’ röð-
lum Sjálfstæ'ðismanna, og eir
gleðilegt til þess að vita, að
þeir skuli þó viðurkcnna þenn-
.an glæsilega þátt íslenzkra
samvinnumanna í frelsisbar-
áttu þjóðarinnar.
Síðari hluta gremarinnar
eyðir höf. til að fjalla um þá
miklu spillingu, sem ríki í
stjórn kaupfélaga landsins.
Fjallar hann um þau mál af
miklum alvöruþunga, og virð-
ist hann einna helzt álíta sig
iera nokkurs konar himnesk-
an boðbera, sendan til bjargar
hafi ótakmörkuð yfirráð yfir
digrum sjóðum kaupfélaganna
og beili þeim óspart til þess
að hindra menn í að verzla
við kaupmenn og til að þvinga
þá til að kjósa Framsóknar-
flokkinn. Hann segir, að kaup-
félagsstjórar aðhyllist lífs'skoð
anii' einvaldsins og vilji alræði,
einokun og átlhagafjötra. Sem
dæmi um þetta segist hann
vita um mann, sem kaupfélags
stjóri hafði hindrað í að verzla
utan kaupfélagsins, því hann
hafi verið því fjárhagslega
háður.
Sem dæmi um pólitískar
kúganir þessara manna, nefnir
hann ungan mann sem nýút-
skrifaður úr Samvinnuskólan-
um hafi farið til starfa hjá
kaupfél. í nágrenni Rvíkur.
Þessi maður hafi verið hlið-
hollur kommúnistum, og er
liann frétti, að kaupfélags-
stjórinn, sem hann yann hjá,
hafði af persónulegri forvitni
að því er virðist, verið að
spyrjast fyrir um pólilískar
skoðanir hans, þá brá bann
við og gekk í félag ungra
Framsóknarmanna á slaðnum,
að því er hann hafði sagt, at-
vinnu slnnar vegna.
Þessi ungi maður ætti að
setjast niður í rólegheitum og
ikynna sér skipulag og starfs-
hætti samvinnufélaga. Ef hann
gerði það, þá myndi hann von-
andi standa upp aftur vitandi
það, að þótt maður hafi einu
sinni gengið í kaupfélag, þá
er enginn sá aðili til, sem geti
hindrað hann í að verzla utan
þess, eða jafnvel að segja sig
úr því aftur, ef hann sæi sér
hag í því. Þess vegna falla
kenningar hans um kúgun og
einokun um sjálfar sig, því að
það sér hver heilvita maður,
að ekki myndu menn ganga í
kaupfélög og verzla við þau,
ef þeir sæu sér ekki einhvern
hag í því.
Andstæðingar samvinnu-
stefnunnar hafa alltaf haft ein
hver ráð með að breiða út róg
um kaupfélögin, og óteljandi
eru þær gróusögur um þau
sem þeir hafa komið á kreik.
Hius vegai’ liefir samvinnu-
stefnan fyrir löngu sannað
gildi sitt í verki, og þess vegna
skaðar slíkur áróður hana ekki
svo mjög, enda eru það í fiest
um tilfellum menn, sem hafa
litla sem enga þekkingu á
eðli hennar og tilgangi, sem
breiða hann út. Hitt er leiðin-
legra, þegar ungur maður, sem
virðist hafa töluverða þekk-
ingu á framkvæmd stefnunnar,
Ijær nafn s'itt slíkum rógburði
á opinberum vettvangi. Verð
ur það vart skilið á annan
hátt en þann, að hann sé svo
blindaður af ofstæki, að hann
láti sig staðreyndir og skyn-
samleg rök engu skipta, held-
ur kasti sér úl í vonlausa bar-
áttu, með rógburði og gróu-
sögur einar vopna. Slíkar á-
í'ásii’ verða þeim, sem fyrir
verða, síðut’ en svo til miská,
þær verða þeim einum til
tjóns, sem ljá krafta sína til
að annast framkvæmd þeirra.
Eysteinn Sigurðsson
Steinþór Þorsteinsson
Skúli Skúlason
Páll Jörundsson
Lárus Jónsson
Gísli Jónsson
I