Tíminn - 10.02.1959, Síða 6

Tíminn - 10.02.1959, Síða 6
6 T í M I N N, þriðjudaginn 10. fcbniar 1959. ■7 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (skrifstofur, ritstjórnin og blaðamenn) Auglýsingasími 19 523. - Afgreiðslan 12323 Prentsm. Edda hf. Sími eftir kl. 18: 13948 Einbeitnin ber árangur UPPGJÖF brezku stjórnar- innar í Valafellsmálinu, er glög-gt dæmi þess, að einbeitt framkoma íslendinga er væn leg til áxangurs. Brezku her- skipin hindruðu töku togar- aixs snemma sunnudagsmorg ■un, en lofuðu jafnframt að Jeita strax nánara fyrirmæla stjórnarvalda í London. Sunnudagurinn leið þó svo, að engin fyrirmæli, bárust þaðan, og mánudagurinn einnig. Af þeim ástæðum var lagt til-hér í blaðinu á þriðju dagsmorgun, að Alþingi og ríkisstjórn létu málið sköru- lega, til sín taka. Umræður fóru svo fram um málið á Alþingi eftir hádegi á þriðju daginn og kom glöggt fram. að gripið myndi tii nýrra rót tækra aðgerða, ef Bretar létu ekki togarann lausan. Árang ur þessa kom strax i ljós dag- inn eftir, en þá ákváðu brezk stjórnarvöld að hindra ekki lengur töku togarans. ATBURÐUR þessi sýnir í fyrsta lagi, að brezk stjórnar völd eru síður en svo að baki dottin í þeirri iðju að beita íslendinga ofbeldi. Þess vegna eni brezk herskip lát- in hindra töku togarans í þrjá sólarhringa. í öðru lagi sýnir svo þessi atburður, að brezk stjórnarvöld telja hyggilegast að láta undan síga, þegar vænta má harðr- ar mótspyrnu af hálfu íslend inga, eins og t. d., að stjórn málasambandi landanna verði slitið eða ofbeldið kært fyrir öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Eitthvað slíkt hefði orðið óhjákvæmileg af leiðing þess, ef Bretar hefðu ekki tekið þann kost, sem þeir völdu aö lokum. ÞAÐ, sem hér hefur gerzt, styrkir vissulega þá skoðun, að Bretar hafi ráðist í ofbeld- isaðgerðirnar gegn íslending umí trausti þess, að íslending ar væru klofnir í málinu og myndu því láta undan síga, ef þeir mættu harðri mót- spymu. Ef Bretar hefðu bú- ist við fullri samstöðiÞ og einbeitni íslendinga, hefðu þeir sennilega látið strax undan síga, eins og þegar þeir þeir mættu einbeitninni í Valafellsmálinu. Þeir virð- ast hins vegar alltaf hafa búist við sundrungu íslend- inga, og gægist þetta nú enn fram í enskum blöðum eftir stjórnarskiptin. Af framangreindum ástæð um er nauðsynlegt að taka hér af skarið í eitt skipti fyr ir öll. Alþingi þarf að lýsa því yfir skýrt og skörulega, að ekki veröi vikið um hárs- breidd til takmörkunar á tólf mílna fiskveiðilandhelginni. Frá þvi marki verði ekki kvikað, hvort heldur sem beitt er hótunum, bliömæl- um eða lánveitingum. Slik viljayfirlýsing Alþingis myndi í eitt skipti fyrir öll eyða þeirri skaðlegu ósk- hyggju, að hðegt sé að neyða íslenöinga til einhvers af- sláttar í þessu máli. Því fyrr, sem Bretum verð ur gert ljóst, að íslendingar verða ekki kúgáðir til neins undanhalds, því fyrr eru þeir líklegir til að átta sig og taka skynsamfega afstöðu til málsins. VITANLEGA er það svo einnig rétt, sem oft hefur verið sagt hér í blaðinu, aö í máli sem þessu ber að sýna fulla aðgætni. Það hefur líka verið gert. Bretar hafa fengið mjög rúman tíma til að hætta ofbeldinu, án þess að það væri sérstaklega kært. En aðgætnin ein er ekki nægi leg, ef fullur sigur á að vinn ast. Það þarf einbeitni sam- fara aðgætni. Þá einbeitni þarf Alþingi nú að sýna með skeleggri yfirlýsingu í mál- inu. Fari svo ólíklega, að Bretar dragi ekki réttar á- lyktanir af henni, heldur þverkallast enn meira, hafa íslendingar fleiri leiki á hend inni. Það er bezt að gera öll- um það ljóst í tíma. Og áreið anlega finnst mörgum fleir- um en útgerðarmönnum og skipstjórum á Akranesi, held ur lítið til um vernd Banda rikjanna, ef Bretar fá lengi aö beita íslendinga ofbeldi, án þess að Bandaríkjastjórn virðist nokkuð hafa við það að athuga. „Það skal sterk rök til“ ÞAÐ er vissulega rétt, sem Ásgeir Ásgeirsson sagði á Alþingi 1933, að það skal sterk rök til, ef leggja á sýsl- urnar niður sem sérstök kjör dæmi, þar sem það fyrir- komulag tryggir bæði héruð- unum öruggari málsvara en elia og er þýðingarmikil hemill á flokkavaldið, er miklu síður getur þá haft framboðin alveg í hendi sinní. Þau sterku rök, sem þarf fyrir slíkri breytingu, hafa vissulega enn ekki verið lögð fram. Því fer t.d. fjarri, að þetta verði rökstutt með því, að ekki sé með öðru móti hægt að tryggja þéttbýlinu réttmæta þingmannatölu. — Það er alveg eins hægt, þótt sýslukjördæmin og kaup- staðakjördæmin haldi sér. Afstaða þeirra, sem vilja leggja þessi kjördæmi niður, byggist á allt öðru en sterk- um rökum. Afstaða þeirra byggist fyrst og fremst á því, að þeir vilja draga enn meira úr valdi héraðanna en fylgir fjölgun þingmanna í þéttbýl inu. Þeir vita, að sýslukjör- dæmakjörnir þingmenn eru héruðunum öruggari fulltrú- ar en landskjörnir eða stór- kjördæmakjörnir þingmenn, eins og Ásgeír Ásgeirsson ERLENT YFIRLIT: Ófriðarhættan vegna Berlínar Dulles reyndi að samræma afstöðu vesturveldanna í Evrópuför sinni JOHN FOSTEK DULLES er nú kominn hcim úr skyndiför sinni til Evrópu, er farin var í þeim tilgangi að ræ'ða við stjórnir Bret- lands, Frakklands og Vestur- Þýzkalands um Þýzkalandsmálin . og þó Berlínarmálið alveg sérstak- ; lega. Tilefni farar Dullesar voru tvær orðsendingar Rússa, sem Vesturveldin þurfa að taka afstöðu ! til. Önnur fjaliar um það, að Rúss- ar muni afhenda Austur-Þýzka- landi eftirlit það, sem þeir hafa nú með flulningaleiðum til Vestur Berlínar, ekki síðar en 27. maí næstkomandi, ef ekki verði komið á nýtt samkomulag um framtíð ! Berlínar fyrir þann tíma. Hin orð- ! sendingin fjallar um, að kvödd j verði saman ráðstefna 28 ríkja j til að ræða um friðarsamninga við Þýzkaland og taki Vestur-Þýzka- land og Aus-tur-Þýzkaland þátt í þeim, sem jafn réttháir aðilar. Ef vesturveldin fylgdu áfram óbreyttri stefnu í máium Þýzka- lands, væri vandalaust fyrir þau að svara þessum orðsendingum. Þau myndu þá hiklaust neita að viðurkenna, að Austur-Þjóðverjar fengju yfirráð yfir flutningaleið- unum til Vestur-Berlínar, og jafn- framt hafna öiktm viðræðum um friðarsamninga við Þýzkaland þangað til lajidfð hefði verið sam- einað á grundvelli frjálsrar kosn- I inga og ein ríkisstjórn gæti þann ; ig komið fram fjTÍr hönd þess. . Þessi hefir verið hin yfirlýsta stefna veslurvældanna hingað til. MÁLIÐ er nú hins vegar ekki lengur svo einfalt, að sljórnir vesturveldanna geti svarað á þenn an veg. Demokralar í Bandaríkj- unum, jafnaðarmenn í Bretlandi og jafnaðarmenn. í Vestur-Þýzka- landi beita sér nú mjög fyrir því, að vesturveldin breyli um stefnu og starfsaðferðir í málum Þýzka- lands, því að núverandi stefna þeirra sé orðin úrelt. Þau verði að taka upp nýja stefnu, er beri vott um meiri samkomulagsvilja og sanngirni, án þess þó að láta óeðlilega unda.n Rússum. Vel megi svo fara, að Rússar fáist samt ekki til samkomulags, en með þessu hafi þá áunnizt, að sýnt sé svart á hvítu, að j>eir fftanda í vegi þess, að lausn fáist. Með því nái vestur- veldin frumkvæðinu í þessum mál um, er Rússar séu búnir að hafa alltof lengi. Þessi stefna, sem cr borin uppi af demokrötum í Bandaríkjunum, hefir nú orðfð svo mikið fylgi vestra, að Dulles hefir lalið rétt að ganga nokkuð til móts við hana. Macmillan telur einnig nauðsyn- legt að gera það vegna þingkosn- inganna, sem eru framundan í Bretlandi. Stjórnir Veslur-Þýzka- lands og Frakldands virðast hins vegar halda sér enn nokkuð fast við gömlu stefnuna. TILGANGURINN rne'ð Evrópu- DE GAULLE — hann er jafnvel talinn tregari til þess en Adenauer, að koma nokkuð til móts við Hússa. þær nánar, yrði kallaður saman fundur utanríkisráðherra Banda- rikjanna, Bretlands, Frakklands og Vestur-Þýzkalands, þar sem i-eynt yrði að ná fullri samstö'ðu þessara ríkja um nýtt tilboð til Rússa. Enn er ekki vitað með ncinni vissu um, hvaða tillögur Dulles hefir einkum reifað í þessum við- ræðum. Víst þykir, að hann hafi lagt til, að ekki yrði rætt við Rússa um BerlínarmáJið eitt, held- ur um Þýzkalandsmálin í heild. Þá þykir líklegt, að hann hafi lagt til, að vesturveldin lýstu sig fús til að athuga fl'eiri lei'ðir en eina til að sameina Þýzkaland, og féllu með því frá því skilyrði sinu, að sameiningin yrði hafin með því að láta fara fram frjálsar kosning ar i öllu landinu. Það skilyrði geta Rússar af skiljanlegum ástæð um illa sætt sig við, því að það væri sama fyrir þá og að gefa upp A-Þýzkal. Hins vegar er tal- ið vafasamt, að Dulles háfi hreyft nokkuð tillögum um afvopnað belti í Evrópu, en sú hugmynd nýtur vaxandi fylgis demokrata í Bandaríkjunum og jafnaðar- manna í Bretlandi og Vestur- Þýzkalandi. Eullvíst þykir, að Dulles hafi lagt til, að vesturveldin beittu sér fyrir því, að haldinn yrði utan- ríkisráðherrafundur Bandarikj- anna, Bretlands, Frakklands og Sovétrikjanna, til að ræða um Þýzkalandsmálin og yrði sá fund ur haldinn fljótlega eftir fyrirhug aðan fund utanríkisráðherra vest- urveldanna. ÞÁ ER talið að Dulles hafi mjög rætt um það í ferð sinni, hvað gera skuli, ef ekkert sam- komulag verður orðið um Berlín milli vesturveldanna og Rússa fyr ir 27; maí, og Rússar framkvæmi ílutnir.galeiðum til Berlínar, Ame- rískir hershafðingjar munu helzt hafa lagt t':I. að vasturveldin brytu sé: þá leið t:l Berllnar tr,eð her- valdi í trausti þess, að Rússar létu það afskiptalaust. Óliklegt er þó, að Rússar létu það afskipta- laust, og er þessi till. amerísku hershöfðingjanná því furðulega ó- gætileg. Aðrar tillögur ihafa hins vegar komið fram um það, að vesturveldin létu það gotf heita, þótt Austu.-Þjóðverjar stimpluðu vegabréfin í ?:að Rússa, ef þeir hindruðu ekki flutnlngana. Þetta yrði þá aðeins túlkað þanr.ig, að þeir væru taldir gera þetta i um- boði Rússa. Vestur-þýzka stjórn- in og franska stjórnin muuu þó vera ófáanlegar til að sætita;sig við þetta, þar sem þetta megi trclja óbeina viðurkenningu á aus,tur- þýzku stjórnirtni. Sú íneðulleið virðist því vera að vinna fylgi, að vesturveldin svaxi með því að cnd urnýja loftbnina frá 1949. þ.e. láti alla flutrtinga til VestunBerlín ar fara þangað loftleiðis, ef Rúss- ar afhenda Austur-Þjóðverjum.eft- irlitið með fhttningaleiðu-ttum.- — Geri Austur-Þ.ióðverjar hins veg- ar tilraun til að hindra lóftflutn- ingana, verði hart látiff rnæta hörðu. ' ENN verður að sjálfsögðti ekk- ert sagt .um það, hvernig Rússar ,svara væntanlegri tillögu vestur- veldanna um utanríkisráðherra- fund Sovétríkjanna, Bandaríkj- anna, Breílands og Frakklahds til þess að ræða um Þýzkalandsmál- in. Fyrir Rússum virðist helzt vaka að fá fund æðslu manna fjórveldanna um málið. Ef til vill gera þeir það því að skily.'ði fyrir þátttöku í utanrikisráðherrafundi, að hann v-erði fyrst og fremst haldinn til að undirbúa fund æðstu manna. Vegna ágrein- ings um dagskrá slíks utanrikis- ráðherrafund.iT, varð ekkert úr honuhi í fyrravor. Vei getur svo farið að eins fari nú. Vissu- lega væri illt til þess að vita, ef nauðsynleg samtöl rnilli ráða- manna vesturs og austurs, strönd uðu á kergju og formsatriðum beggja, eins og þá álti sér slað. Enn verra væri þó, ef þetta kynni jafnvel að leiða til nýrrar fityrj- aldar. Rússar verða að gera sér ljóst, að vesturveldin geta ékki fallizt á neitt, sem raunverulega veikir stöðu þeirra í Vestur-Berlín eða eykur líkurnar fyrir því, að Vestur-Berlin verði innli-inúð í Austur-Þýzkaland. Vesturveltiin verða hins vegar að gæta þess, að sé hér aðeins um það forms- atriði að ræða, hverjir stimpla vegabréf, þá má ekki ágreiningur um það leiða t.il áfaka, er gætu tendrað ófriðarbál í Evrópu. í því sambandi má minna á, að niörg Vestur-Evrópu-ríkin hafa gert við skiptasamninga við Austur-Þý-zka- land, án þess að í því felist nokk- för Dullesar var að reyna að und- irbúa fulla sainstöðu vesturveld- anna um nýtt tilboð til Rússa í Þýzkalandsmálunum. Dulles mun ekki á þessu stigi hafa lagt fram neinar ákveðnar tillögur, heldur rætt ýmsar hugmyndir, sem tekn ar yrðu til athugunar. Eftir að rík : isstjórnirnar hefðu svo íhugað þá hótun sína um að afhenda ur viðurkenning á stjórn þess. Austur-Þýzkalandi eftirlitið með Þ. Þ. Styrkir úr Vísindasjóði auglýstir laus ir til umsóknar í annað sinn bendir réttilega á. Þeir síðar nefndu eru líklegri til að fallast á hina nýju fjárfest- ingarstefnu, sem vakir fyrir núv. stjórnarflokkum og fólg in er í því að skera niður framkvæmdir í þéttbýlinu. Þessi rök þykja hins vegar ekki svo sterk, að þeim sé flaggað opinberlega. Því er annað talið til. En íbúar hér aðanna og aðrir þeir, sem vilja jafnvægi í byggð lands- ins, mega ekki láta það villa sér sýn. Vísindasjóður hefir aúg- lýst styrki lausa til umsókn- ar í annað sinn. Við fyrstu úthlutun, er fram fór í fyrra sumar, veitti önnur deild sjóðsins, raunvísindadeild, styrki samtals að upphæð 500 þús. kr., en hin deildin, hugvísindadeild, veitti 200 þús. kr. Hlutverk visindasjóðs er að cfla íslenzkar vísindarannsóknir, og í þeim tilgangi styrkir hann ein- staklinga og vísindastofnanir vegna tiltekinna ’ rannsóknarverk efna, kandidata til vísindalegs sér náms og þjálfunar og rannsóknar stofnanir til kaupa á tækjum, rit um eða til greiðslu'á öðrum kostn aði í sambandi við starfsemi, er sjóðurinn styrkir. í ár þurfa umsóknir um styrki að hafa borízt fyrir 20. marz n. k. til þess að umsækjendur korai til greina við þessa úthlutun. Sér- stök eyðublöð undir umsóknir verður hægt að fá fajá deildaritur m er veita allar nánari upplýs- ingar, ennfremur á skrifstofu Há- skóla tslands og hjá sendiráðum íslands érlendis. Deildarritarar eru fyrir raunvlsindadeild Guð mundur Arnlaugsson, en fyrir hug vísindadeild Bjarni Vilhjálmsson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.